Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 19

Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 19 Hækkun álverðs spáð Þörf á meiri afköstum í áliðnaði Japis opnar verslun Laugavegi 13 Styrkir stöðuna á smásölumarkaði FJÁRFESTINGAR áliðnaðarins í heiminum í nýrri framleiðslugetu eru ekki nógu miklar til að halda í við eftirspum til ársins 2015 sam- kvæmt skýrslu rannsóknarstofn- unarinnar Economist Intelligence Unit (EIU), sem greint er frá í Financial Times. Því er spáð að álverð á málm- markaði í London á árunum 1995- 2015 verði að meðaltali 1.615 doll- arar tonnið. Framleiðendur munu fá um 1.712 dollara fyrir tonnið að meðaltali í dollurum á núverandi gengi. Samkvæmt skýrslunni þarf verðið að vera 1.700 dollarar tonnið til þess að fjárfesting í nýjum ál- verum sé raunhæf fjárfesting. EIU spáir því að neyzla á áli í heiminum (sem var 20,7 milljónir tonna 1996) muni aukast um 2,3% á ári að meðaltali í 31,8 milljónir tonna 2015. Ef til skemmri tíma er litið er því spáð að neyzlan muni aukast um 4% 1997, 3,6% á næsta ári, 1,9% 1999 og 2,8% árið 2000. Nægir til ársins 2002 Skýrsluhöfundur, James King, segir samkvæmt frétt FT að spáð sé að afkastagetan verði nægileg til 2002, en að fyrir 2015 muni greinin þurfa að auka getuna um 9,8 millj- ónir tonna á ári. Því er spáð að það verði hægt á tímabilinu ef 20 ný ál- ver verði tekin í notkun og með meiriháttar stækkunum á 28 nú- verandi álverum. SPÁÐ er að spurn eftir áli muni aukast á næstu árum. Auka þarf fjárfestingu Venjulega bætist við eitt nýtt ál- ver á ári og svo hefur verið í 20 ár. Bent hefur verið á nógu mikla möguleika á smíði nýrra álvera í heiminum til að mæta þörfinni, en núverandi fjárfestingar eru of litlar til þess að hægt verði að auka um- svifin að því er segir í skýrslunni. JAPIS opnar í dag nýja tónlistar- verslun að Laugavegi 13 í húsnæði þar sem verslunin Habitat starfaði um árabil. Að sögn Birgis Skapta- sonar, annars eigenda Japis, var á síðasta ári standsett Virgin-verslun í húsnæðinu en Japis tók við henni, að hans sögn. Verslun Japis á Laugavegi er þriðja verslunin sem fyrirtækið opnar í Reykjavík en fyrir eru verslanir í Brautarholti og Kringl- unni. „Við höfum verið að spá í spil- in og leitað leiða til að styrkja stöðu okkar á smásölumarkaðinum. Við teljum Laugaveginn freistandi og að það sé að færast líf í hann,“ segir Birgir. Mikið lagt í húsnæðið Að hans sögn verður tónlistar- deild Japis í versluninni á Lauga- vegi. „Þar verðum við með geisla- diska, tölvuleiki og að einhverju leyti vídeóspólur. Þarna er mun meira rými en í versluninni í Braut- arholti og það gefur okkur mögu- leika á að hafa meira úrval og svo erum við í meiri nálægð við gang- andi umferð. Við höfum yfir viðbót- ar rými að ráða þarna í húsinu sem veitir okkur meiri vaxtarmöguleika, sem við erum að skoða,“ segir hann. „Það hefur verið lagt mjög mikið í húsnæðið og er búið að koma því í aðlaðandi horf. Ég held að ég ýki ekkert þó ég segi að þama verði einhver glæsilegasta hljómplötu- verslunin um þessar mundir. Við ætlum að vera með mikið úrval og ég reikna með að mest áhersla verði lögð á dægurtónlistina í þessari verslun en að klassíska tónlist og sérhæfinguna verði að finna í Brautarholti," segir Birgir enn- fremur. Veita Skífunni viðnám Birgir segir samkeppni á mark- aðinum fara harðnandi. „Menn eru að treysta stöðu sína. Skífan hefur verið sterk á smásölumarkaðinum og við ætlum að veita henni smá við- nám,“ segir hann. PFUGtOT PEUGEOT 306 SYMBIO FRANSKA LJ0NIÐ HLAÐIÐ STAÐALBÚNAÐI Á LÉTTU VERÐI 1600 cc vél • 90 hestöfl • 5 gíra • bein innsprautun regnskynjari á framrúðu • þokuljós að framan |§| vökva- og veltistýri loftpúðar báðum megin • rafdrifnar rúður að framan • útvarp og segulband stillt með stöng i stýri • hœðarstillanlegt ökumannssœti bílbeltastrekkjarar||jfjarstýrðar samlœsingar með þjófavörn • litað gler • höfuðpúðar i aftursœti • niðurfellanleg aftursœti 40/60 rafdrifnir hliðarspeglar • rafgalvaníseraður • hiti i afturrúðu samlitir stuðarar • barnalœsingar á afturhurðum MUNDU: PEUGE0T 306 SYMBI0 - VERÐ: 1.360.000 KR.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.