Morgunblaðið - 22.11.1997, Page 33
32 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 33 -
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÓSKÝRÐUR MUNUR
RAFORKUVERÐS
RAFORKUVERÐ til heimilisnota er mjög mismunandi
eftir sveitarfélögum samkvæmt upplýsingum frá
Samorku, sambandi rafveitna og hitaveitna. Verðþróunin
hefur verið mjög misjöfn árin 1993 til 1997. Verðið er
nú lægra hjá þremur rafveitum en það var 1993, á Suður-
nesjum, þar sem það hefur lækkað um 11,3%, á Akur-
eyri, þar sem það hefur lækkað um 1,2% og Selfossi, þar
sem það hefur lækkað um 1%. Vísitala neyzluverðs hefur
hækkað á sama tíma um 8,6%, svo um raunlækkun er
að ræða á þessum þremur stöðum.
Sérstaka athygli vekur, hversu raforkuverð á Suðurnesj-
um er miklu hagstæðara heimilunum en það er í Reykja-
vík, enda hefur þróunin verðið þveröfug á þessum stöðum
á fyrrgreindu tímabili. Árið 1993 kostaði kílóvattstundin
á Suðurnesjum kr. 8,25 en kostar nú kr. 7,32, en í höfuð-
borginni kostaði kílóvattstundin kr. 7,59 árið 1993 en
kostar nú kr. 8,38. Verð hefur því hækkað í Reykjavík
um 10,4% á sama tíma og lækkunin er 11,3% á Suðurnesj-
um. Þetta er ótrúlega mikill verðmunur milli þessara
tveggja veitusvæða. Augljóst er, að íbúar Reykjavíkur
njóta ekki sem skyldi hagkvæmni stærðar raforkumarkað-
arins í verðinu. Þeir eiga kröfu á skýringum á því, hvers
vegna þróunin hefur orðið svo gerólík á milli þessara
tveggja nágrannabyggðarlaga. Hver er ástæðan?
Samkvæmt upplýsingum Samorku er munurinn á hæsta
og lægsta raforkuverði til heimilisnota hvorki meira né
minna en 33,5%. Það er lægst á Suðurnesjum en hæst
hjá Rafmagnsveitum ríkisins, þar sem kílóvattstundin
kostar nú kr. 9,77 og hefur hækkað um 7% frá 1993.
Horfur eru á því, að raforkuverð hjá RARIK hækki um
næstu áramót um 1,7% eða það sama og hjá Landsvirkj-
un. Búast má við því, að fleiri rafveitur hækki verðskrá
sína um áramótin. Raforkan í Reykjavík mun hins vegar
lækka þá um 2% auk þess sem Rafmagnsveita Reykjavík-
ur tekur á sig þessa 1,7% hækkun Landsvirkjunar.
Lækkun raforkuverðs á svæði Rafmagnsveitu Reykja-
víkur um næstu áramót breytir hins vegar engu um það,
að engin sjáanleg rök eru fyrir þessum verðmun á milli
höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja.
FRAMLEIÐNIOG
SAMKEPPNI
HAGFRÆÐISTOFNUN Háskóla íslands hefur tekið
saman skýrslu um framleiðni vinnuafls hérlendis á
árunum 1973 til 1994 og eru helztu niðurstöður, að fram-
leiðniaukning er um það bil 2% á ári að jafnaði eða um
56% á tímabilinu öllu. Skýrslan er unnin að tilhlutan
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, sem fól Hagfræði-
stofnun verkið, með ósk um að borin yrði saman fram-
leiðni hér við framleiðni í Bandaríkjunum og Danmörku.
Ingjaldur Hannibalsson, dósent, sem hafði umsjón með
verkefninu, telur að þessi framleiðniaukning sé ekki mik-
il borið saman við t.d. Singapore, Hong Kong og írland,
en sé litið til Bandaríkjanna og Danmerkur hefur aukning-
in þar ekki verið eins hröð. Miðað við hagvaxtarþróun í
þessum löndum er árangur hérlendis ekki mjög góður.
Island er í 20. sæti af þeim 23 löndum, sem tekið var mið
af. Hins vegar er framleiðniaukning í fiskveiðum hérlend-
is í takt við það sem bezt gerist í veröldinni. Töluverð
framleiðniaukning, eða 53%, hefur einnig verið hjá starfs-
fólki í smásöluverzlun, þar sem því hefur fækkað um 21%
eða um 2.000 manns. í skýrslunni kemur ennfremur fram,
að framleiðni fjármagns hér á landi hefur að mestu staðið
í stað tímabilið, sem skýrslan nær til.
Helztu tillögur skýrsluhöfunda til að hleypa lífi í fram-
leiðni hérlendis eru aukin samkeppni á markaði, annars
vegar með því að því að afnema viðskiptahindranir til að
auðvelda sem mest flutning þekkingar til landsins og hins
vegar með því að afnema lög og reglugerðir, sem tak-
marki samkeppni á markaði.
Auðlegð íslendinga felst í náttúruauðlindum lands og
sjávar og ekki sízt í mannauðnum. Aukin þekking starfs-
fólks fyrirtækja, aukið frelsi í viðskiptum og aukin sam-
keppni, samfara stöðugleika í efnahagsmálum, eru for-
sendur aukinnar framleiðni.
BAKSLAG í AFKOMU FLUGLEIÐA FYRSTU NÍU MÁNUÐINA
GENGISÞRÓUN OG
LAUNAHÆKKANIR
RÖSKUÐU ÁÆTLUNUM
Félagið mun hvergi hvika frá hagnaðar-
markmiðum sínum iyrir áríð 2000 þrátt
fyrir bakslag í afkomunni í ár. Kristinn Bríem
og Þorsteinn Víglundsson könnuðu
aðstæður hjá félaginu um þessar mundir
og leituðu viðbragða verðbréfamiðlara við
afkomu úr níu mánaða uppgjöri.
FLUGLEIÐIR munu hvergi
hvika frá markmiði sínu
um 5,5% hagnað fyrir
skatta af veltu félagsins
árið 2000, þrátt fyrir að verulegt
bakslag hafi komið í afkomuna á
þessu ári. Ætla má að afkoman verði
í járnum á árinu í heild, en til að
uppfylla þetta markmið þyrfti hagn-
aðurinn að nema 1,3 milljörðum. Er
þá gert ráð fyrir að velta félagsins
á þessu ári verði um 23 milljarðar.
Eins og fram hefur komið nam
hagnaður Flugleiða af reglulegri
starfsemi um 341 milljón króna
fyrstu níu mánuði ársins og minnk-
aði um 547 milljónir frá sama tíma-
bili 1996. Vegna söluhagnaðar af
flugvél nam endanlegur hagnaður
hins vegar 519 milljónum, en var á
sama tíma í fyrra 662 milljónir. Á
meðfylgjandi yfirliti sést að afkoman
af reglulegri starfsemi fyrstu níu
mánuðina í ár er sú versta frá árinu
1993 miðað við þetta tímabil.
„Bakslagið herðir okkur“
Þeir Halldór Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Flug-
leiða, og Einar Sigurðsson, verðandi
framkvæmdastjóri stefnumótunar-
og stjórnunarsviðs, segja að niður-
staðan af rekstrinum í ár muni síður
en svo slá stjórnendur félagsins út
af laginu. Áfram verði unnið mjög
markvisst að uppbyggingu rekstrar-
ins með það að leiðarljósi að hagnað-
urinn fyrir skatta nemi 5,5% af veltu.
„Bakslagið herðir okkur,“ segir Hall-
dór.
Á aðalfundi Flugleiða í marsmán-
uði sl. skýrði Sigurður Helgason,
forstjóri, frá því að horfur í rekstri
félagsins á þessu ári væru góðar og
félagið gerði ráð fyrir hagnaði. Benti
hann á að á síðasta ári hafi félagið
flutt fleiri farþega en nokkru sinni
fyrr og gert væri ráð fyrir ennfrek-
ari aukningu á þessu ári. Hvað skyldi
þá hafa breyst frá þessari áætlun?
Halldór Vilhjálmsson svarar því til
að þegar þessi orð hafí verið töluð
hafí legið fyrir rekstraráætlun frá því
í desember 1996. Reksturinn fyrstu
mánuði ársins hafí verið eftir áætlun
og bókanir fram í tímann lofað góðu.
„Við gerðum ráð fyrir að hagnaður
af starfseminni yrði kringum 300-350
milljónir fyrir utan söluhagnaðinn. I
upphaflegri áætlun í desember gerð-
um við ráð fyrir að launahækkanir
yrðu um 3% í upphafí árs og nálægt
2% á síðasta ársfjórðungi. Þegar þessi
áætlun var endurskoðuð í ágúst eftir
sex mánaða uppgjör höfðu allar for-
sendur breyst varðandi laun og geng-
isþróun.“
Miklar gengissveiflur
Stöðugildi hjá Flugleiðum hér á
landi eru um 1.600 talsins að jafn-
aði og þar að auki eru 200 manns
erlendis, þannig að samtals eru um
1.800 stöðugildi. Lunginn af launa-
kostnaði fyrirtækisins er því í ís-
lenskum krónum. Hækkaði hann
fyrstu níu mánuðina um 244 milljón-
ir umfram hækkun vegna fjölgunar
stöðugilda. Annar þáttur sem spilar
inn í afkomuna með margvíslegum
hætti eru miklar gengissveiflur sem
urðu fyrst og fremst á fyrri hluta
ársins og fram á haust. Þetta hafði
áhrif á sölu okkar og samdráttur í
Þýskalandi kostaði okkur vel á annað
hundrað milljónir í veltu. Gengis-
áhrifin hafa einnig verið íþyngjandi
t.d. vegna eldsneytiskostnaðar og
leigu á flugvélum," segja þeir.
Um áætlanagerð félagsins al-
mennt segja þeir að ekki hafí orðið
stórar sveiflur frá áætlun á undan-
förnum árum. „Áætluninni er fylgt
eftir mánaðarlega og margir þættir
sem liggja til grundvallar henni e_ru
kannaðir oftar,“ segir Einar. „Ég
held að eftirfylgni með rekstraráætl-
un sé án efa með þeirri öflugustu
sem þekkist í íslenskri fyrirtækja-
flóru, jafnvel þó aðeins sé litið til
stóru fyrirtækjanna. Þegar hafður
er í huga sá gríðarlegi fjölbreytileiki
sem er í rekstrinum og að félagið
er að vinna á tugum erlendra mark-
aða held ég að segja megi að það
hafi náð mjög góðum tökum á áætl-
anagerð."
Eins og fyrr segir hefur gengis-
þróunin verið Flugleiðum óhagstæð
á þessu ári, því gengi gjaldmiðla á
mikilvægum mörkuðum lækkaði
umtalsvert á fyrri hluta ársins og
fram á haust. Gengishækkun dollars
olli því síðan að veigamiklir kostnað-
arliðir hækkuðu í íslenskum krónum.
Um það til hvaða ráða félagið hafi
gripið til að mæta gengisáhættu seg-
ir Halldór Vilhjálmsson: „Það má
segja að gengisáhættan sé tvíþætt.
Annarsvegar í efnahagsreikningi fé-
lagsins þar sem félagið skuldar veru-
legar fjárhæðir í erlendri mynt vegna
flugvélakaupa á undanförnum árum.
Við veijum félagið gengissveiflum
með því að hafa þessi lán í sömu
mynt og markaðsverð flugvéla og
Flugleiðir hf.
og hlutdeild í dótturfélögum
uy muiucnu ■ uv»ui icivyuui
Úr milliuppgjörum fyrir jan.-sept., milljónir króna á verðlagi hvers árs
, --------OL 0/ ---------% 0/ -------------
llr ralscirarrailsninni 4 007 .< ...u.. 4 aac f QOR.1...11.. 4 aaa . . .....
Úr rekstrarreikningi
Hagnaður af realulegri starfsemi
1997 af veltu
342,0 2,3%
%
1996 afveltu
834.5 5,8%
1995af veltu
712.9 5,7%
1994 afveltu
672.7 5,4%
1993 afveltu
226.2 2,2%
Aðrar tekjur og gjöld:
Hagnaður (tap) af solu eigna
446,1 3,0%
2.9 0.0%
347,8 2,8%
12.6 0,1%
(1.9) 0,0%
Hagnaður fyrir tekju- og eignarskatt
Reiknaðurtekjuskattur
Eignarskattur
788,1 5,3%
(187,9)
(41,8)
836,6 5,8%
(203,4)
(26.4)
1.060,7
(48.2)
(29.2)
8,5%
685,3
0
0
5,5%
224.3 2,2%
180.4
JML
Hagnaður án áhrifa dótturfélaga
Áhrit dótturtélaga
558,5
15j8
606,9
54,9
983,3
72,7
685,3
79,4
396,6
7,6
Hagnaður tímabilsins
574,2 3,8%
661,8 4,6%
1.056,0 8,5%
764,7 6,5%
404,2 3,9%
erum því að endurmeta flugvélaeign-
ina með hliðsjón af sömu gengis-
sveiflu og hefur áhrif á skuldirnar.
í rekstrarreikningi getur gengið haft
veruleg áhrif. Um árabil hafa íslensk
fyrirtæki í þessari atvinnugrein al-
mennt hagnast af gengisþróun krón-
unnar. Þau hafa því farið fremur
hægt í sakimar að festa gengi og
kaupa sér tryggingar fyrir sveiflum.
Nú eru að verða breytingar á
stöðu krónunnar, hún er að
styrkjast. Það og óvenjulega
öflugar gengissveiflur er-
lendra mynta á árinu benda
til þess að fyrirtækin í ferða-
þjónustunni þurfi að beita sér
meira á þessu sviði. Einn þátt
gengissveiflunnar getum við
svo ekki haft áhrif á. Það eru
markaðsáhrif líkt og gerðist á
Þýskalandsmarkaði í ár.
Þýska markið lækkaði og
ferðir til íslands hækkuðu í
verði. Afleiðingarnar voru
færri farþegar og fjöldi far-
þega leitaði í ódýrari ferðir.
Það sem við þó getum gert
þegar svona ber til er að flytja
söluna á milli markaða. Þegar
markið stendur iágt og bandaríkja-
dollari er sterkur flytjum við áhersl-
urnar í sölunni og reynum að selja
sætin yfír hafíð fremur í Bandaríkj-
unum, en Þýskalandi. í áætlunum
okkar fyrir komandi mánuði er gert
ráð fyrir að söluaukning í Bandaríkj-
unum verði veruleg og við einbeitum
okkur að sókn á þeim markaði."
Ekki má líta framhjá
söluhagnaði
í frétt á viðskiptasíðu Morgun-
blaðsins í gær var skýrt frá því að
rekstrarhagnaður félagsins fyrir
fjármagnsliði og afskriftir hefði
minnkað um 880 milljónir á fyrstu
níu mánuðum ársins. Halldór Vil-
hjálmsson bendir á að þessi niður-
staða gefí ekki rétta mynd af þróun-
inni í rekstrinum. Sú breyting hafi
orðið milli tímabila að félagið hafí
selt tvær vélar, eina í desember 1996
og aðra í janúar 1997. „Þetta þýðir
að leigan á þessum vélum bætist við
rekstrarkostnað, en á móti kemur
lækkun á vaxtakostnaði og afskrift-
um. Þar er um að ræða tilfærslu á
kostnaðarliðum," sagði hann.
Og Halldór bætir því við að ekki
megi líta fram hjá söluhagnaðinum
við mat á árangri félagsins. „Flug-
leiðir hafa hagnast á kaupum og
sölu flugvéla á undanförnum tíu
árum og síðustu fjögur árin má segja
að þetta hafi verið fastur þáttur í
rekstrarniðurstöðu ársins. Við kaup
á flugvélum hefur félagið það í huga
að velja réttan tíma til samninga-
gerðar við framleiðendur til að
tiyggja hagstæðustu verð og jafn-
framt er það haft til hliðsjónar að
vél verði seld og endurleigð til félags-
ins innan 5-8 ára þegar flugvéla-
markaður er góður og verðið hátt.
Þannig má segja að heildarávöxtun
þeirra fjármuna sem lagðir eru í flug-
vélar hjá félaginu felist ekki einvörð-
ungu í starfrækslu tækjanna
heldur einnig í því starfi sem
lagt er í áætlana- og samn-
ingsgerð við kaup og sölu
þeirra. Þess vegna er því
stundum haldið fram að kaup
og sala flugvéla ætti að vera
liður í reglulegri starfsemi fé-
lagsins."
Unnið að því að
lækka kostnað
Flugleiðir réðust í sérstakt
átak fyrir nokkrum árum með
það að markmiði að lækka
kostnað í fyrirtækinu um 500
milljónir króna. „Það skilaði
sér viðvarandi í rekstrinum,"
segir Einar. „Mælt í eininga-
kostnaði höfum við verið í
hærri kantinum í samanburði við
bandarísku félögin. Hins vegar erum
við að ná mjög góðum árangri miðað
við evrópsku félögin. Viðbrögð okkar
felast ekki í niðurskurðaraðgerðum
og samdrætti í umsvifum heldur
höldum við fast við stefnu okkar um
sókn á markaðnum og aukið um-
fang, en á sama tíma förum við í
gegnum alla rekstrarþætti með það
fyrir augum að lækka kostnað. Við
ætlum að stækka reksturinn og
byggja áfram á tengimiðstöðinni í
Keflavík. Stækkunin á að geta leitt
Einar Halldór
Sigurðsson Vilhjálmsson
Sterk viðbrögð fjárfesta við lakari afkomu Flugleiða
Markaðsvirði lækkaði
um 1,2 milljarða
LAK ARI afkoma Flugleiða á
fyrstu níu mánuðum þessa árs
miðað við sama tímabil á siðasta
ári olli greinilega miklum von-
brigðum á verðbréfamarkaði í
gær. Gengi bréfanna lækkaði um
tæp 19% strax í upphafi dags, úr
3,57 í 2,90 en hækkaði í 3,05 fyrir
lokun. Þetta samsvarar því að
markaðsvirði félagsins hafi lækk-
að um 1,2 milljarða króna i gær
eða15%.
Það má raunar segja að þessi
viðbrögð markaðarins hafi verið
í samræmi við þau viðbrögð sem
urðu við lakara milliuppgjöri en
búist hafði verið við hjá nokkrum
fyrirtækjum, þar á meðal Flug-
leiðum, nú í sumar.
Þessi lækkun í gær átti stóran
þátt í því að hlutabréfavísitaia
Verðbréfaþings lækkaði um 1,5%
í viðskiptum gærdagsins.
Þeir verðbréfamiðlarar sem
Morgunblaðið ræddi við í gær
voru almennt sammála um að þessi
afkoma hefði valdið umtalsverð-
um vonbrigðum. Þrátt fyrir að
tæplega 200 milljónum króna lak-
ari afkoma félagsins á fyrstu sex
mánuðum ársins hafi verið ákveð-
in vísbending um að afkoma fé-
lagsins yrði lakari á þessu ári en
í fyrra, hafi nokkrar vonir verið
bundnar við að sumarið myndi
koma vel út fyrir félagið.
Skiptar skoðanir eru hins vegar
á því hver þróunin verði á gengi
hlutabréfanna á næstu vikum.
Ótti við miklar sveiflur
í rekstri
„Það var talið að afkoman yrði
ekki þetta siæm,“ segir Halldór
Friðrik Þorsteinsson, hjá Kaup-
þingi. „Féiagið virtist vera að
sækja í sig veðrið aftur en nú lítur
út fyrir að afkoma þess verði í
járnum í ár en á síðasta ári nam
hagnaður félagsins 632 milljónum
króna, en þar af var óreglulegur
hagnaður rúmar 400 milljónir.
Þetta sýnir auðvitað hvað félagið
er næmt fyrir mörgum ytri þáttum
eins og gengisþróun, launaþróun
og eldsneytiskostnaði. Það hlýtur
hins vegar að vera áhyggjuefni að
það sé ekki að skila framlegð af
auknum tekjuni."
Halldór Friðrik segist telja að
þessar fréttir muni því valda nokk-
urri hræðslu meðal fjárfesta við
þessar miklu sveiflur sem orðið
geti í rekstri félagsins og sú
hræðsla verði líkast til verðlögð
inn í gengi bréfanna.
Hann segist því ekki reikna með
því að gengi á hlutabréfum félags-
ins muni hækka mikið á næst-
unni. „Á móti má þó segja að þetta
er atvinnugrein sem menn binda
vonir við í framtíðinni og horfa
með velþóknun á með tilliti til
vaxtar og fleira. Það veldur þó
áhyggjum hvað sveiflurnar eru
miklar í rekstrinum. Fjárfestar
verða því líklegast varkárari en
áður,“ segir Halldór Friðrik.
Minna sjóðstreymi
áhyggjuefni
Árni Oddur Þórðarson, hjá Bún-
aðarbankanum Verðbréfum, segir
afkomu Flugleiða vissulega valda
vonbrigðum. Þá séu það veruleg
vonbrigði að sjóðstreymi félagsins
skuli minnka svo mikið.
„Búnaðarbankinn Verðbréf
styðst í sínum útreikningum aðal-
lega við hreina fjármunamyndun
fyrirtækja. Hrein fjármunamynd-
un hjá Flugleiðum þegar búið er
að taka tillit til endurnýjunarfjár-
festinga minnkar verulega vegna
þess að sjóðstreymið minnkar um
575 milljónir króna milli ára.
Útlit er því fyrir að lítil sem
engin fjármunamyndun verði í
félaginu á þessu ári þar sem fjár-
festingaþörf vegna endurnýjana í
rekstri sem þessum er allnokkur.
Afkoma félagsins er alltaf mun
verri yfir vetrartímann, líkt og
forráðamenn félagsins hafa oft
bent á.“
Góð sætanýting ekki að skila
félaginu nægilegum tekjum
Árni Oddur segir að Búnaðar-
bankinn hafi varið töluverðum
tíma til greiningar á Flugleiðum.
Þar hafi verið vitað að þróun á
eidsneytisyrði félaginu óhagstæð,
að launahækkanir yllu kostnaðar-
auka og gengisþróun yrði því ekki
hagfelld.
„Á móti sáum við hins vegar að
sætanýtingin var mjög góð og 15%
söluaukning hefði átt að skila fé-
laginu auknum tekjum. Við bjugg-
umst alls ekki við betri afkomu í
ár en í fyrra en við bjuggumst
heldur ekki við því að hún yrði
mun lakari.“
Árni Oddur segir þó að þrátt
fyrir að afkoma féiagsins nú valdi
nokkrum vonbrigðum þá líti hann
enn svo á að framtíðarhorfur fé-
lagsins séu góðar. Framlegðin
þurfi hins vegar að aukast.
„Kostnaður sem hlutfall af tekj-
um er of mikill og forráðamenn
félagsins hafa líkt félaginu við
barn í of stórum fötum og því
þurfi það að vaxa. Það má þá hins
vegar ekki gerast að samhliða
vexti aukist kostnaður svo mikið
sem raun ber vitni.
Hins vegar má reikna með því
að fyrirtæki með þessa vaxtar-
möguleika og þessa eignarstöðu
geti aukið fjármunamyndun sína
verulega á næstu árum. Flugleiðir
ættu því að vera ágætur fjárfest-
ingakostur í framtíðinni,“ segir
Árni Oddur.
Mæltu með kaupum í
lækkunarhrinunni
Davíð Björnsson hjá Landsbréf-
um segir að 6 mánaða milliuppgjör
Flugleiða hafi að vissu leyti gefið
tóninn og því hafi slæm afkoma
félagsins á fyrstu níu mánuðum
ársins kannski ekki þurft að koma
svo mjög á óvart, í það minnsta
hafi hún ekki verið neitt reiðar-
slag þó svo að búist hafi verið við
því að hún yrði eitthvað betri en
raunin hafi orðið.
„Þegar ljóst varð hvert stefndi
með gengið vorum við alveg full-
vissir um að hér væri um mjög
gott kauptækifæri að ræða. Við
höfum kannað Flugleiðir sérstak-
lega og forsvarsmenn félagsins
kynntu okkur framtíðaráform sín
ágætlega. Við höfum skoðað fyrir-
tækið eitt og sér og þá einkanlega
sjóðstreymið og við höfum trú á
því að þetta séu nyög góð kaup á
því gengi sem bréfin voru að selj-
ast á,“ segir Davíð.
Davíð segir að viðbrögð mark-
aðarins hafi verið mjög sterk og
ef til vill réttlætanleg en þau hafi
líka skapað góð tækifæri. „Við
höfum fulla trú á langtímastefnu
félagsins og að félagið geti skapað
sér arðvænlega stöðu með því að
verða stærri en þeir eru nú á þess-
um jaðarmarkaði. Með það í huga
teljum við þetta vera prýðisgóð
kaup.“
Hann segir lakari afkomu nú
en á sama tíma í fyrra engu breyta
þar um. Stjórnendur Flugleiða sjái
það af viðbrögðum markaðarins
að hluthafar ætlist til betri af-
komu. „ Við höfum trú á því að
þeir geri sér grein fyrir þvi að
þessi afkoma sé ekki viðunandi
og eru að grípa til aðgerða til að
bæta hana.“
Davið segist því reikna með að
botninum hafi verið náð með lækk-
uninni í gær og hann hafi trú á
því að gengi Flugleiðabréfa kunni
að nyakast upp á við á næstunni.
Verulegar sveiflur á gengi
Flugleiðabréfa á þessu ári
Eins og sjá má í meðfylgjandi
töflu hefur mjög mikil sveifla orð-
til hagræðingar því þá nýtir félagið
betur fastan kostnað.“
Og Halldór bætir við að nú séu
starfandi nokkrir hópar sem hafi
fengið það verkefni að fást við
ákveðna kostnaðarþætti. „Sú vinna
er stöðugt í gangi.“
Tap af innanlandsflugi
í níu mánaða uppgjöri Flugleiða
er sérstök grein gerð fyrir afkomu
dótturfélaga. Þar sést. að afkoma
þeirra er mun lakari en árið á und-
an. Áhrif dótturfélaga í ár eru já-
kvæð um 15,8 milljónir, en árið á
undan voru áhrifín jákvæð um 54,9
milljónir. Þessar tölur eru þó ekki
samanburðarhæfar því rekstur inn-
anlandsflugs var færður frá móður- '
félaginu til Flugfélags íslands 1.
júní sl., en rekstur Flugfélags
Norðurlands hf. var tekinn inn í sam-
stæðuna um síðustu áramót. Ljóst
er að töluvert tap verður af innan-
landsfluginu í ár.
Þá sést einnig að afkoma ferða-
skrifstofunnar Úrvals-Útsýnar hf.
hefur versnað verulega og lítilshátt-
ar tap verið af rekstrinum fyrstu níu
mánuðina.
Skýrari ábyrgð á
afkomu eininga
Flugleiðir tilkynntu jafnframt á
fimmtudag um skipulagsbreytingar
sem fólu í sér nokkrar tilfærslur á ^,
æðstu stjórnendum þess. Sú spurn-
ing vaknar hvort verið sé að bregð-
ast við versnandi afkomu félagsins.
„Nei, alls ekki. Meginástæða þessara
breytinga er sá mikli vöxtur sem nú
er spáð í rekstri félagsins á næstu
árum. Áform um þennan mikla vöxt
eru til komin frá því að félagið gerði
síðast skipulagsbreytingar. Félagið
mun stækka um 9-10% á ári, auka
við flugflotann og bæta við nýjum
áætlunarstöðum. Það er mikilvægt
að þessi vöxtur skili felaginu ár- _
angri. Þess vegna vill það tryggja *
að v.erkefni og viðfangsefni hverrar
eíningar séu skýrt afmörkuð. Félag-
ið er að setja upp sérstakt fyrirtæki
um hótelrekstur sem hefur hingað
til verið í bland með ferðaskrifstofu
og flugrekstri. Starfsemi á sviði
markaðs- og sölumála í fragt- og
farþegaflugi er aðgreind. Jafnframt
hefur stefnan verið sú að vinna að
pakkaframleiðslu í ferðaskrifstofum
fremur en sem hluta af flugrekstrin-
um. Þetta eru meginbreytingamar í
skipulaginu nú. Þær eru fyrst og
fremst til að búa fyrirtækið undir
nýja framtíð.“
ið á gengi hlutabréfa í Flugleiðum
á þessu ári. í upphafi árs var gengi
þeirra rúmlega 3 en fór jafnt og
þétt hækkandi í þeim miklu hækk-
unum sem urðu á hlutabréfamark-
aðnum á fyrstu 4 mánuðum árs-
ins. Þá ollu fréttir af fyrirhuguð-
um kaupum félagsins á allt að
átta nýjum þotum á næstu árum
verulegum hækkunum á gengi
bréfanna og í byijun maí var
gengið komið í tæplega 4,80, um
54% hærra en um áramót.
Gengið lækkaði hins vegar
nokkuð á nýjan leik upp úr þessu
og í byijun júní var það komið
niður í 4,16. Þá tók það hins vegar
verulegan kipp, hækkaði í tæplega-.
5 eða sem samsvarar 61% hækkun
frá áramótum. Þessi hækkun vakti
raunar nokkra furðu enda hafði
ekkert nýtt komið fram í rekstri
félagsins. Var hún einna helsttal-
in eiga rætur að rekja til þess að
frétt um flugvélakaup félagsins
hafði aftur skotið upp kollinum í
fréttatíma Stöðvar 2 á sama tíma.
Upp úr þessu fór gengi bréf-
anna lækkandi og stóð í rúmlega
4,55 þegar félagið birti 6 mánaða
milliuppgjör sitt. Það olli hins veg-
ar verulegum vonbrigðum og
lækkaði gengi bréfanna um nær
20% í kjölfar þess. Á næstu vikum
lækkaði það nokkuð til viðbótar
og fyrir birtingu 9 mánaða upp-
gjörs félagsins hafði það lækkað
niður í 3,57 eins og fyrr segir. Sú
lækkun sem varð á gengi bréfanna
í gær þurrkaði síðan endanlega
út þá hækkun sem orðið hafði á
gengi þeirra frá áramótum.