Morgunblaðið - 22.11.1997, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fjárfestar vonsviknir með slaka afkomu í milliuppg;íöri Flugleiða
Gerhard Schröder
Skil vel
blendna
afstöðu
til ESB
GERHARD Schröder, for-
sætisráðherra Neðra-
Saxlands og einn helsti leið-
togi þýska Jafnaðarmanna-
flokksins, segir að þótt ís-
lendingum sé augljóslega
ekkert að vanbúnaði að taka
þátt í Evrópusambandinu
skilji hann vel blendna af-
stöðu þeirra, því þeir njóti nú
allra kosta aðildar án þess að
eiga í þeim vanda er búast
megi við að fylgi aðild.
Þetta kom m.a. fram í er-
indi er Schröder hélt á hádeg-
isverðarfundi er Þýsk-ís-
lenska verslunarfélagið og
viðskiptaþjónusta utanríkis-
ráðuneytisins boðuðu til í
gær. Þar með lauk þriggja
daga opinberri heimsókn
Schröders og fýlgdarmanna
hans til íslands.
íslenskt efnahagslíf reiðu-
búið fyrir aðild
Að loknu erindi Schröders
var hann meðal annars spurð-
ur um viðhorf hans til stöðu
Islands gagnvart Evrópu-
sambandinu.
Sagði Schröder að íslend-
ingar gætu að sjálfsögðu
gerst aðilar að sambandinu ef
þeir vildu. Hann hefði í heim-
sókn sinni kynnt sér íslenskt
efnahagslíf og virtist sem ís-
lendingar væru reiðubúnir
fyrir aðild.
Hins vegar sagðist hann
skilja blendna afstöðu íslend-
inga til aðildar, því þeir
byggju nú þegar að þeim
kostum sem fylgja myndu að-
ild, „en ykkur hefur á sama
tíma tekist að víkja ykkur
listilega undan þeim vand-
kvæðum sem búast má við að
fylgi aðild“.
■ Efnahagsástand/10
Hlutabréf í Flugleiðum
lækkuðu um 15% í gær
HLUTABREF í Flugleiðum lækk-
uðu um 15% í kjölfar þess að félagið
birti tölur yfir afkomu sína íyrstu
níu mánuði þessa árs. Eins og fram
hefur komið nam hagnaður félagsins
af reglulegri starfsemi 341 milljón
króna og minnkaði hann um 547
milljónir milli ára. Þetta er lakasta
afkoma Flugleiða frá 1993.
Hlutabréf í Flugleiðum lækkuðu
(ÍPiunar um 19% í fyrstu viðskiptum í
gærmorgun og fóru lægst í 2,90 en
hækkuðu lítillega á nýjan leik fyrir
lokun dags og var gengi bréfanna
3,05 við lokun í gær. Þessi lækkun
átti stóran þátt í því að hlutabréfa-
vísitala Verðbréfaþings lækkaði um
1,5% í gær, en lækkanir einkenndu
markaðinn.
Verðbréfamiðlarar sem Morgun-
blaðið leitaði til í gær sögðu vonbrigði
með afkomu Flugleiða á tímabilinu
vera nokkur og því hafí þessi skarpa
lækkun ekki þurft að koma á óvart.
Almennt hafi ekki verið búist við
því að afkoma félagsins yrði góð á
þessu ári en afkoman hafi engu að
síður reynst lakari en búist hafi verið
við. Þá valdi það sérstaklega áhyggj-
um að sú veltuaukning sem átt hafi
sér stað hjá Flugleiðum á árinu skili
sér ekki í bættri afkomu.
Skiptar skoðanir eru meðal miðl-
ara um hvert framhaldið verður hvað
gengi bréfanna varðar en almennt er
þó talið að botninum sé náð.
Um 1,3 milljarða hagnað þarf
til að markmið náist
Forsvarsmenn Flugleiða segja að
markmið félagsins um 5,5% hagnað
af veltu fyrir skatta árið 2000 séu
enn í fullu gildi. Miðað við áætlaða
veltu þessa árs þyrfti félagið að
hagnast um 1,3 milljarða fyrh'
skatta, en horfur eru á því að afkoma
félagsins verði í járnum þegar tekið
hefur verið tillit til hagnaðar af sölu
flugvélar.
„Bakslagið herðir okkur,“ sagði
Halldór Vilhjálmsson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs Flugleiða, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
■ Gengisþróun/32-33
■ Markaðsvirði/32-33
ÞEIR voru kampakátir starfsmenn Istaks þegar þeir höfðu lokið við að steypa hið risavaxna síló.
Halldór Ásgrímsson segir framsal á kvóta gagnrýnt
Unnt að ná samkomu-
Isigi um takmarkanir
V erkalýðsfélögin
í Hafnarfírði
Skoðana-
könnun um
sameiningu
FÉLAGSFUNDUR í Verkamanna-
félaginu Hlíf í Hafnarfirði hefur
samþykkt að kanna afstöðu félags-
manna til sameiningar Hlífar og
Verkakvennafélagsins Framtíðar-
^Jnnar í Hafnarfirði.
Samþykkt var að efna til skoð-
anakönnunar innan Hlífar. „Verði
meirihluti félagsmanna því fylgj-
andi að viðræðum um sameininguna
verði haldið áfram mun gengið til
þeirra með það að markmiði að þau
sameinist í einu félagi. Sé það hins
vegar vilji félagsmanna annarra eða
beggja félaganna að ekki beri að
"^ameina félögin verður viðræðum
slitið," segir í ályktun fundarins.
48 m hátt
síló á Grund-
artanga
LOKIÐ var við að steypa upp 48
metra hátt og 33 metra breitt
síló undir súrál hjá Norðuráli á
Grundartanga í gær og tók verk-
ið aðeins 16 daga. Að sögn Þor-
valds Árnasonar, verkfræðings
hjá Istaki, unnu 50 menn við
verkið á tveimur 12 tíma vökt-
um. f sílóið fóru um 400 tonn af
steypustyrktarstáli og um 3.000
rúmmetrar af steypu, þar af þús-
und rúmmetrar í undirstöður.
Eftir er að sefja þak á sílóíð og
ganga frá því að öðru leyti. Að
sögn Þorvaldar er stefnt að því
að ljúka við steypuvinnu í
kerskála álvers Norðuráls fljót-
lega, en smíði hans á að vera
lokið fyrir jól. Þorvaldur sagði
að hagstætt veðurfar hefði auð-
veldað alla vinnu við fram-
kvæmdirnar.
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, gerði að umtalsefni í
ræðu á aðalfundi miðstjómar
flokksins í gærkvöldi, gagnrýni sem
hann sagði að hefði komið fram á
kjördæmisþingum framsóknar-
manna að undanfömu á ýmis atriði
sjávarútvegsstefnunnar.
Halldór sagði m.a. gagnrýnt að
of mikið frjálsræði sé í framsali
veiðiheimilda og sagði hann það
vissulega vera álitaefni. „Það hefur
verið takmarkað frá því sem áður
var og ég á ekki von á að það sé
erfitt að ná samkomulagi um að
setja þar frekari takmarkanir. Með
því er hægt að leysa ákveðin vanda-
mál en önnur munu koma í staðinn
sem geta skapað erfiðleika í rekstri
í allmörgum byggðarlögum," sagði
Halldór.
„Áhyggjuefni að veiðiheimildir
safnist um of á fáar hendur"
Halldór sagði veiðar smábáta
stöðugt ágreiningsefni en benti á
að nú hefði náðst niðurstaða um
breytingar á skipulagi veiðanna. „I
öðru lagi er það áhyggjuefni að
veiðiheimildir safnist um of á fáar
hendur. Það er eðlilegt gagnrýnis-
atriði en jafnframt verður að hafa í
huga að hagkvæmar veiðar kalla á
færri skip. Nú hefur verið lagt
frumvarp fyrir Alþingi um tak-
mörkun á eignaraðild einstakra að-
ila og er það árangur starfs nefnd-
ar sem vann á vegum stjórnar-
flokkanna.
í þriðja lagi er talið að skattaleg
meðferð veiðiheimilda skapi óeðli-
lega hátt verð þeirna og þarfnist
breytinga við. Jafnframt veldur
mikill hagnaður þeirra sem hætta
rekstri eðlilegri gremju. Á þetta
hafa stjórnarflokkarnir fallist og nú
er unnið að undirbúningi breytinga
á skattalögum," sagði hann.
■ Eðlileg gremja/4