Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 1
104 SÍÐUR B/C/D/E
292. TBL. 85. ÁRG.
Hávær tónlist
eykur viðskipti
veitingahúsa
TÓNLIST er vel til þess fallin að skapa
rómantískt andrúmsloft á veitingahúsum
en hún getur einnig fengið viðskiptavin-
ina til að flýta sér að borða, þannig að
veitingamennirnir geti aukið viðskiptin.
Til þess þurfa þeir aðeins að hækka í
tónlistinni.
Bandaríska dagblaðið Wall Street
Journal segir að ýmsir eigendur veit-
ingahúsa veigri sér ekki við að beita
þessu ráði til að losna við viðskiptavini á
mesta annatíma í því skyni að nýta borð-
in betur.
Þessi aðferð byggist á vísindalegum
grunni því rannsókn Fairfield-háskóla í
Connecticut hefur leitt í ljós að fólk
tyggur matinn 4,4 sinnum á minútu við
hraða og háværa tónlist, en aðeins 3,8
sinnum við hæga og ómþýða tónlist.
Fá ekki börnin
vegna skuldar
SJÚKRAHÚS í Teheran hefur neitað að
leyfa foreldrum tvíbura, sem fæddust
fyrir hálfúm mánuði, að taka börnin sín
heim fyrr en þeir greiði kostnaðinn af
fæðingunni, sem nemur andvirði 70.000
króna.
íranska dagblaðið Salam hafði eftir
föður tvíburanna að stjórnendur sjúkra-
hússins hefðu hótað að svipta foreldrana
forræði yfir börnunum þegar hann hefði
sagt þeim að hann gæti ekki greitt allan
reikninginn strax. Sljórnendur sjúkra-
hússins vildu ekki ræða málið við
dagblaðið.
Móðir tvíburanna þurfti að gangast
undir skurðaðgerð á sjúkrahúsinu vegna
fæðingarinnar og reikningurinn sam-
svarar tíu mánaða lágmarkslaunum rík-
isstarfsmanns.
Gert að búa ná-
lægt vínbúð
DÓMARI í Ohio í Bandaríkjunum hefur
fyrirskipað vínhneigðum ökumanni að
útvega sér íbúð í göngufæri við vínbúð,
ella verði hann hnepptur í eins og hálfs
árs fangelsi fyrir ölvunarakstur.
Dómarinn gaf manninum mánaðar
frest til að uppfylla þetta skilyrði og
sagði að vegalengdin að vínbúðinni
mætti ekki vera meiri en 800 metrar.
Maðurinn var einnig dæmdur til að
eyða fyrstu viku ársins næstu fimm ár í
fangelsi. Þetta er í 18. sinn sem maður-
inn er dæmdur fyrir ölvunarakstur.
SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
Brunað niður brekku við Kirkjubæjarklaustur
412 þorpsbúar
myrtir í Alsír
París. Reuters.
ÓÞEKKTIR tilræðismenn myrtu 412
óbreytta borgara, m.a. konur og börn, í
vesturhluta Alsírs í mestu blóðsúthellingum
sem orðið hafa á einu kvöldi í borgarastyrj-
öldinni sem staðið hefur í sex ár.
Fjöldamorðin áttu sér stað í fjórum þorp-
um á þriðjudagskvöld, tæpum sólarhring
eftir að föstumánuður múslima, ramadan,
hófst. 176 manns voru drepnir í Kherarba,
113 í Ouled Sahnine og 123 í E1 Abadel og
Ouled Tayeb, að sögn dagblaðsins Liberté.
Talið er að íslamskir uppreisnarmenn hafi
verið að verki.
„Ég þurfti að draga út að minnsta kosti
80 lík úr aðeins tveimur húsum,“ hafði blað-
ið eftir einum björgunarmannanna. „Þið
getið því ímyndað ykkur hversu mikið blóð-
baðið var í þorpunum fjórum.“
Ef dánartala blaðsins er rétt hafa um 840
manns verið drepnir í Alsír á síðustu ellefu
dögum. Stríðið hefur kostað 65.000 manns
lífið frá því það hófst í byrjun ársins 1992
eftir að yfirvöld aflýstu þingkosningum til
að koma í veg fyrir að heittrúaðir múslimar
kæmust til valda og stofnuðu íslamskt ríki.
Ungurn stúlkum nauðgað
Liberté sagði að heilu fjölskyldurnar
hefðu verið skornar á háls í árásunum.
„Fimmtán manns úr einni fjölskyldu voru
skornir á háls og síðan grafnir undir
símiljumjöli," hafði blaðið eftir einum
þorpsbúanna sem komust lífs af. Eiginkona
hans og þrjú börn voru á meðal fórnar-
lambanna.
Sjónarvottar sögðu að tólf ungum stúlk-
um hefði einnig verið rænt og þær hefðu
verið aflimaðar með öxum og sverðum. Að
sögn alsírskra blaða hafa uppreisnarmenn-
irnir rænt og nauðgað alls 1.600 stúlkum,
allt niður í 12 ára gömlum, í stríðinu. Flest-
ar þeirra hafa fundist látnar.
Tvísýnar
kosningar í
Litháen
Vilnius. Morgnnblaðið.
ÖNNUR umferð forsetakosninganna í
Litháen fer fram í dag, sunnudag, og sam-
kvæmt nýjustu skoðanakönnun er lítill
munur á fylgi forsetaefnanna tveggja, lög-
fræðingsins Arturas Paulauskas og um-
hverflsverndarsinnans Valdas Adamkus.
Ef marka má könnunina nýtur Paulaus-
kas stuðnings 43% kjósenda og Adamkus
41%. Kosið verður milli þessara tveggja
manna, sem fengu flest atkvæðanna í fyrri
umferð kosninganna 21. desember.
Paulauskas fékk þá 45% atkvæðanna og
Adamkus tæp 28%.
Adamkus nýtur stuðnings allra fram-
bjóðendanna sem féllu út í fyrri umferð
kosninganna. Hann er 71 árs gamall og
flutti búferlum til Litháens í fyrra eftir að
hafa dvalið í Bandaríkjunum frá 1945.
Paulauskas, sem er 44 ára, nýtur hins
vegar stuðnings Aigirdas Brazauskas, frá-
farandi forseta og fyrrverandi leiðtoga
kommúnistaflokks Litháens. Brazauskas
er enn vinsælasti stjórnmálamaður Lithá-
ens og var valinn maður ársins í fjórða
sinn í nýlegri skoðanakönnun.
BUFJARSLYSUM FJOLGAR
IMIHIIIBMB
SLY8
Æ A
A ARI