Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 BÚFJÁRSLYSUM FJÖLGAR MORGUNBLAÐIÐ ÁRIÐ 1995 var ekið á 144 kindur og lömb. FRÁ árinu 1990 hafa rúmlega 600 öku- menn lent í árekstri við búfé á vegum landsins. Flest eru þessi slys á þjóðvegi 1 og þá helst að sumarlagi. í könnun sem greinarhöfundur gerði í nóvember hjá 30 lög- regluembættum landsins kom í ljós að á árunum 1994 til 1996 drápust alls 411 kindur og 129 hross eða samtals 540 skepnur. Til viðmiðunar var gerð samskonar könnun fyrir árin 1986 til 1988 en þá drápust 450 skepnur. I þessum ákeyi'slum var oftast um minniháttar óhöpp að ræða. Tjón var að jafnaði innan við 100.000 kr. en þó urðu nokkur alvarleg slys. Þau svæði sem oftast eru nefnd í skýrslum lögreglu eru Húnavatnssýsla og Mýra- og Borgarfjarðarsýsla. Þessi svæði eiga það einnig sameig- inlegt að þar hafa flest alvai’- legustu slysin orðið, þetta eru mikii landbúnaðarhéruð og þar er mikill ökuhraði á veg- um. 60 milljónir til bænda og búfjáreigenda Kostnaður af völdum ákeyrslna á búfé er margvís- legur og eru stærstu tjón- þolendur ökumenn sjálfir. Undanfarin ár hafa þeir þurft að bera kostnað af eigin tjóni sem og að greiða bændum eða búfjáreigendum bætur fyrir dýrið hafí það drepist. Tjóna- tölur ökumanna vegna skemmda á bifreiðum liggja hins vegai' ekki fyrir þar sem þær fara sjaldan í gegnum tryggingakerfið. Ástæður eru oftast þær að ökumenn sjá sér ekki hag í því að láta tryggingakerfið gmeiða tjónið vegna bónusmissis. í samtölum við lögreglu- varðstjóra víðs vegar um land kom fram að aðeins hluti af þessum tjónum kom inn á þeirra borð. Nefndu þeir að ökumenn létu hjá líða að til- kynna óhapp þar sem greiðsla fyrir búfé bættist við þeirra tjón á ökutæki. Einnig minnt- ust þeir á slys þar sem öku- menn reyna að forðast árekst- ur á búfé en lenda þess í stað utan vegar, stundum með al- varlegum afleiðingum. Slík tjón væru hvergi skráð sem afleiðing af lausagöngu bú- fjár. Einu haldbæru tölurnar sem hægt er að byggja á eru þær bætur sem bændur og búfjáreigendur fá fyrir þær skepnur sem drepast. Sam- kvæmt upplýsingum frá tryggingafélögunum námu þessar greiðslur um 60 millj- ónum króna frá árinu 1990 til 1996 eða um átta og hálfri milljón króna á ári. Sam- kvæmt þeim útreikningum er meðalgreiðsla fyrir hross um 195.000 kr. og um 7.600 kr. fyrir lamb eða kind. Þessar tölur eru þó aðeins lítill hluti af heildartjóna- kostnaði. Til viðbótar greiðsl- um til bænda og búfjáreig- enda má bæta við slysatrygg- ingum ökumanna, vinnutapi, dánar- og örorkubótum og kostnaði við sjúkrapláss. Eng- inn þeirra sem greinarhöf- undur ræddi við var tilbúinn að áætla heildarkostnað vegna þessara tjóna á ári en þó er ljóst að um verulegar fjárhæðir er að ræða. „Lifum enn f bændaþjóðfélagi" Til að kanna viðhorf trygg- ingafélaganna var haft sam- band við Sumarliða Guð- björnsson, deildarstjóra tjónadeildar hjá Sjóvá-Al- mennum. Hann sagði trygg- ingafélögin enn bíða eftir rót- tækum aðgerðum stjórn- valda. „Það þarf að umbylta þeim hugsunarhætti sem fram kom í hæstaréttardómi fyrir nokki'um árum þar sem sagði að búfénaður Islands ætti frían og frjálsan aðgang að þjóðvegum landsins. Þetta bændahugarfar þarf að breytast til að þessi mál kom- ist í lag. Þarna er ekki verið að hugsa um öryggi vegfar- enda heldur einungis um hag búfjáreigenda. Að okkar mati ætti sá sem á eða hefur um- sjón með búfé að vera ábyrg- ur fyrir því tjóni sem það kann að valda á þjóðvegum landins. Þjóðvegir eru lagðir til að flytja fólk og vörur en ekki til að hýsa búfé á eða við vegstæði. Hins vegar þarf líka að framfylgja betur lög- um þar sem segir að veghald- ara eða lögreglu sé heimilt að fjarlægja búfé sem hætta stafi af við vegstæði. I dag er lítið eða ekkert gert að því þó svo að lausaganga skapi mikla hættu.“ En hvað um breytingar á vegalögum sem tóku gildi 1. janúar 1995? „Samkvæmt 56. grein í vega- lögum er nr. 45 er lausa- ganga búfjár bönnuð sé girt beggja vegna við stofn- eða tengiveg. Hins vegar hefur enn ekki reynt á hvort þessi lög séu rétthærri heldur en 88. gr. umferðarlaga sem kveður á um ótakmarkaða ábyrgð ökumanns. Slíkt mál er nú komið fyrir héraðsdóm og skammt að bíða þess að dómur falli. Ef 56. grein heldur ekki fyrir dómi þá er öll sú vinna sem lögð var í breytingar á vegalögum gagnlaus og ástandið mun þá enn haldast óbreytt," segir Sumarliði Guðbjömsson. Takmarkaðri bótaréttur erlendis Að sögn Sigmars Ármanns- sonar hjá Sambandi íslenski-a tryggingafélaga gilda svipað- ar reglur um skaðabótaá- byrgð ökumanna í nágranna- ríkjunum. „Hins vegar höfum við stöku sinnum orðið varir við nokkra undrun hjá erlend- um tryggingafélögum vegna skaðabótakrafna fyrir búfén- að. I tilfellum þar sem erlent ökutæki ekur á búfénað á ís- lenskum vegum ber samtök- um bifreiðatryggingafélaga hér á landi að bæta slíkt tjón Á ÁRI Árlega aka rúmlega eitt hundrað íslenskir öku- menn ó búfé. Þrátt fyrir breytingar á lögum um búfjórhald árið 1991 og á vegalögum árið 1995 fjölgar ákeyrslum á búfénað. Hugi Hreiðarsson kynnti sér tjónatölur, fjölda þess- ara slysa og ástæður þess að ekki hefur tekist að stemma stigu við þeim. ÁRIÐ 1995 var ekið á 56 hross. OFT reyna ökumenn að komast hjá ákeyrslu við búfé en missa þess í stað bifreiðina út fyrir veg. UM 130 ökumenn geta átt von á því að aka á skepnu á þessu ári. samkvæmt íslenskum reglum. Síðan endurkrefjum við skaðabæturnar hjá hinum er- lendu vátryggingafélögum þessara ökutækja. Sum þess- ara vátryggingafélaga hafa hins vegar leitað sérstakra skýringa á þessum kröfum þar sem bótaréttur eigenda búfjársins virðist sums staðar ekki jafn afdráttarlaus og hér á landi.“ Ökumenn i órétti I dag er aðeins hluti þjóð- vegar eitt girtur af beggja vegna vegar og enn eru marg- ir hreppar sem leyfa lausa- göngu. Af því leiðir að öku- menn eru víða ábyrgir aki þeir á skepnu og breytir þá engu hver tildrög slyssins eru. Vegna þessa hafa bænd- ur og búfjáreigendur getað fengið sauðfé og stórgripi bætta burtséð frá ástæðum slyssins. Ef ökumaður hverfur af vettvangi eftir ákeyrslu hafa margir bændur tryggingu sem bætir fyrir skepnuna. Með slíkri tryggingu dugar bónda að fá staðfestingu lög- reglu á því að hann hafi fund- ið dauða kind eða lamb í veg- kanti vegna ákeyrslu og fær hann þá bætur greiddar frá sínu tryggingafélagi. Þó svo að veghaldara sé í lögum heimilt að fjarlægja búfé á kostnað búfjárhaldara er slíkt afar fátítt. Nefnt hef- ur verið í þessu sambandi að verði bóndi uppvís að því að sauðfé hans sæki ítrekað á vegstæði, þar sem lausaganga er bönnuð, verði sá búpening- ur fjarlægður. Auk áfallins kostnaðar verði bóndinn jafn- framt sektaður enda séu hans búhættir ekki samkvæmt lög- um og ógnun við umferðarör- ygg>- Hér skal þó tekið fram að ekki er eingöngu við bændur að sakast. Mai'gir hafa bent á að frá upphafi hafa vegir verið lagðir um heimalönd bænda og þess vegna sé það veghald- ara að sjá um uppbyggingu og viðhald girðinga. Lengi hefur verið deilt um þetta mál eða þar til endurbætur voru gerð- ar á vegalögum árið 1995. Með þeim voru tekin af öll vafaatriði um ábyrgð og skyldur bænda. Með lögunum sér Vegagerðin, í samstarfi við viðkomandi bónda, um að koma upp girðingu í heima- löndum við tengivegi og þjóð- veg 1 en að því loknu er girð- ingin á ábyi’gð bóndans. Sumir halda því fram að með nýju lögunum sé gengið nokkuð hart að bændum sem séu margir illa staddir fjár- hagslega. Á undanförunum árum hafi kjör þeirra versnað og margir þein'a hafi einfald- lega ekki efni á því að halda gh'ðingum við. Þar þurfa stjórnvöld að athuga með hvaða hætti þau geta komið bændum til aðstoðar. Hreppar leyfa aftur lausagöngu hrossa „Alvarlegustu búfjárslysin eru oftast þegar keyrt er á hross. Við ákeyrslur lenda hross oft ofan á bifreiðinni, framrúða kurlast, þak leggst niður og dýrið kastast út fyr- ir veg (lögreglumaður)." Fram til ársins 1995 var sú regla að einungis þar sem lausaganga hesta var bönnuð og fjárheldar girðingar voru beggja vegna vegar gat öku- maður vænst þess að fá tjón sitt bætt. Þessar reglur höfðu gilt frá árinu 1973 með endurbótum vorið 1991 en þá var sveitarstjórnum gefnar rýmri heimildir til að fyrir- skipa bann við lausagöngu hrossa. Ef marka má fyrrnefnda könnun greinarhöfundar er ljóst að breytingar á búfjár- haldi hafa ekki skilað tilskild- um árangri. Ein skýi'ing kann að vera sú að ábyrgð hestaeigenda hefur verið lítil. Þrátt fyrir fyrrnefnd lög féllu margir dómar eigendum hesta í vil þó svo að girt væri beggja vegna vegar og lausa- ganga bönnuð. Þar kom til kasta 88. gr. umferðarlaga sem kveður á um algjöra ábyrgð ökumanna nema til komi stórfellt gáleysi tjón- þola. Til viðbótar voru sveit- arstjórnir og hreppar mis- fljótir að tileinka sér þessar nýju reglur og enn þann dag í dag leyfa margir hreppar lausagöngu stórgi’ipa. Dæmi um þetta má nefna Húna- vatnssýslu. Þar banna aðeins 3 hreppar af 12 lausagöngu hrossa (ath. fyrir samein- ingu), og aðeins einn bannar bæði lausagöngu sauðfjár og hrossa. I kjölfar endurbóta á lög- um um búfjárhald árið 1991 var oftar farið að kanna að- stæður og ástæður fyrir ákeyrslum. Það var síðan í janúar 1994 að undirréttur dæmdi tryggingafélagi í vil vegna bótakröfu bónda sem átti hross sem ekið var á. I framhaldi af því gekk Djúp- árhreppur í Rangárvallar- sýslu fram í því að aflétta sjö ára gömlu banni við lausa- göngu hrossa. Auglýsing þeirra birtist í Lögbirtinga- blaðinu í september 1994. Fleiri hreppar fylgdu þessu fordæmi. Flestar ákeyrslur á bundnu slitlagi Frá árinu 1990 hefur bund- ið slitlag lengst úr 890 km í 1.122. í kjölfarið hefur hraði aukist og umferð orðið meh’i. Samt sem áður virðist sem Vegagerðin sjái sér ekki hag í því að tryggja að koma upp fjárheldum girðingum með- fram vegum með bundnu slit- lagi. Þetta sést vel þegar lög- regluskýrslur úr umdæmi Skagafjarðar eru skoðaðar. Þar kemur í Ijós að af 72 árekstrum við búfénað sem urðu árin 1994 til 1996 urðu aðeins 3 þeirra á möl. Að sögn Gunnars Gunnars- sonar, framkvæmdastjóra Vegagerðarinnar, telur Vega- gerðin sig ekki skuldbundna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.