Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 21

Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 21
MÖRGlÍNBLAÐÍÐ LISTIR SÚNNÚDÁGUR 4. JANÚAR Í9& & Morgunblaðið/Ómar Bogason FÉLAGAR í Karlakórnum Jökli frá Hornafirði yljuðu íbúum Djúpa- vogs með söng sínum hátíðarnar. Jólatónleikar Karlakórsins Jökuls Morgunblaðið. Djúpavogur. KARLAKÓRINN Jökull frá Hornafirði hélt jólatónleika í Djúpavogskirkju sunnudaginn 28. desember. Þetta er annað árið í röð sem karlakórinn Jökull heldur tónleika í nýju kirkjunni. Kórfélögum finnst hljómburður í kirkjunni ein- staklega góður og var ákveðið að taka þessa tónleika upp. Nýr flygill var nýlega tek- inn í notkun í kirkjunni og hefur hann mikla þýðingu fyr- ir allt tónlistarlíf á staðnum og gerir það að verkum að tónlistin nýtur sín til fulls, t.d. þegar listamenn eins og Karlakórinn Jökull, Jóhann Marávek og Guðlaugu Hestnes sækja Djúpavogsbúa heim. Það var að frumkvæði Daní- els Arasonar, kórstjóra kirkjukórs Djúpavogs og kór- félaga, sem nýi flygillinn var keyptur. Veglegir styrkir til kaupanna komu m.a. frá sveit- arfélaginu, fyrirtækjum og einstaklingum á staðnum og er hann að fullu fjármagnað- ur. Fótgönguliðar framtíðarinnar K\MK>ri\niit ltfóborgin, K r i n g I u b f ó , Sambfóin Álfabakka „STARSHIP TROOPERS" ★★1/2 Leikstjóri Paul Verhoeven. Handrits- höfundur Ed Neuineier. Kvikmynda- tökustjóri Jost Vacano. Tónlist Basil Poledouris. Aðalleikendur Casper Van Dien, Dina Meyer, Denise Ric- hards, Jakc Busey, Clancy Brown, Michael Ironside, Neil Patrick Harr- is. 128 mín. Bandarísk. TriSt- ar/Touchstone. 1997. HOLLENSKI leikstjórinn Paul Verheven flytur áhorfendur nokkr- ar aldir fram í tímann í geimstríðs- gríninu Starship Troopers, sem byggist á kunnri vísindaskáldsögu eftir Robert A. Heinlein. Jarðarbú- ar eru nú allir sameinaðir undir einræðisstjórn og eiga í útistöðum við illvígar risapöddur sem herja á jörðina með loftsteinum. Kvikmyndahúsgestir eru ekki með það á hreinu hvert Verhoeven stefnir, fyrri klukkutímann eða svo. Myndin hefst á skólaslitaballi í Buenos Aires þar sem afar falleg ungmenni eru að útskrifast. Síðan tekur alvara lífsins við. Ruðnings- kappinn Rico (Casper Van Dien) gengur í fótgöngulið stjörnustríðs- hersins til að vera í námunda við sína heittelskuðu Carmen (Denise Richards), en lendir hins vegar í fé- lagsskap Dizzyar (Dina Meyer), annarrar svellandi skólasystur þegar Carmen yfirgefur hann til að gerast flugmaður á ofurgeimskip- um framtíðar. Það er ekki fyrr en eftir hlé að Hollendingurinn stígur á pinnann og rífur Starship Troopers upp úr gaggómyndaplaninu. Eftir þjálfun- arbúðiraar verður Rico leiður á hermennskunni og er að snúa aftur heim þegar pödduherinn gerir árás á jörðina og gjöreyðir heimaborg- inni hans. Okkar maður snýr þá aftur og fremur hetjudáðir í bar- dögum við hinar herskáu vélpödd- ur í útgeimi. Það er ráðlegast að slökkva á heilabúinu og fylgjast sinnulaus með gangi mála í Starship Troopers. Vera ekki að velta fyrir sér hvers vegna þessi órafjarlægu kvikindi eru yfirieitt að abbast upp á jarðarbúa, hvers vegna við bombaderum þau ekki með ger- eyðingarvopnum, eða bara þeim lofthernaði sem reynist svo árang- ursríkur í einu atriði myndarinnar. Þess í stað eru hennenn geimaldar að krytja fjendur sína niður í lífs- hættulegu návígi með vélbyssum sem óþjóðalýður stórborga sam- tímans liti vart við. O.s.frv., o.s.frv. Verhoeven ætlar sér greinilega að skemmta okkur og tekst það svona rétt bærilega, þegar maður er búinn að kyngja því að vera ekki að horfa á alvöru stjömustríðshas- ar heldur ofbeldisfulla, gjörsam- lega glórulausa framtíðar stríðssa- tíru í teiknimyndastíl, sem minnir því miður meira á Mars Attach ogMelrose’s Place en Star Wars, að maður tali ekki um hinn frá- bæra geimtrylli Verhoevens sjálfs, Total Recall. Það sem helst gleður augað er frábær tölvutækni sem sér okkur fyrir miður geðslegum óvinum, sem eiga það m.a. til að sjúga heilabúið úr andstæðingun- um. Spurning hvort það verður til að hressa upp á gi’eindarvísitöluna. Dísætur og tilþrifalaus leikhópur- inn, þar sem B-myndaleikararnir Clancy Brown og Michael Ironside hressa einir upp á tilveruna, gæti eins vel verið unnin í tölvunum líka, minnir meira á brúður en menn, það er sjálfsagt partur af fjörinu. Sæbjörn Valdimarsson Góökaup í heimitistœkhim Bjóðum næstu daga nokkrar gerðir heimilistækja á mjög góðu verði. Nokkrir útsöludagar í ársbyrjun: Frystikistur Verð frá Kæliskápar Verð frá ►vottavélar VérðÍrá Kæliskápar úr stáli 23.840- 42.655.- Helluborð Verð frá 45.980.- 17.000.- Saumavélar Verð frá 39.805.- 37905.- Bökunarofnar með blæstri og grilli Verð frá 28.405.- Þvottavélar 5 kg., ryðfrí tromla og pottur. Verð frá 39.805.- Verðin eru miðuð við staðgreiðslu. Einnig er boðið upp á VISA/EURO raðgreiðslur. háfar, viftur og ýmis smátæki. Notið tækifærið, gerið góð kaup núna! PFA cHeimilistœkjaverslun Grensásvegur 13-108 Reykjavík - Sími 533 2222

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.