Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 26

Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ fór ekki upp í Borgarnes án þess að hafa tvö varadekk með sér. Menn voru að fjárfesta í einu dekki á ári hér áður fyrr en nú kaupa margir ■ fjögur dekk á ári - enda er verð á I dekkjum aðeins brot af því sem var fyrir nokkrum árum. Astæðan fyrir verðinu voru háir tollar og menn voru að setja í þetta drauga sem kallaðir voru og gera við aftur og aftur. Við vorum að undrast yfir Könunum sem hentu því sem við kölluðum hálfslitin dekk...“ Hvað era draugar? „Draugar voru sérskomir, oft listavel gerðir, dekkjahlutar úr ■ óviðgerðarhæfum dekkjum sem síð- I an voru sett inn í bilað dekk. Þá voru gerðir skorningar í alveg slétt dekk til að uppfylla 1-2 mm mystur- dýpt - sem var að sjálfsögðu stór- hættulegt fyrirtæki. Petta dytti engum manni í hug í dag, enda ekk- i ert lítið öryggi að hafa dekkin í lagi. Umferðin og hraðinn hafa aukist svo gríðarlega.“ Þú talar um að menn kaupi frem- ur nýja bíla en notaða í dag og eigi ■ þá lengur. Förum við þá betur með ■ bílana okkar en áður var? „Það hafa alltaf verið til einstak- lingar sem fara mjög vel með bílana sína - svo vel að ég kann margar sögur um menn sem hafa hringt á verkstæðið hjá okkur tvisvar og þrisvar á dag til að athuga hvemig bíllinn hafi það, þótt þeir hafi ekki ■ heimsótt eiginkonurnar á spítala. í dag em hins vegar bílarnir bet- ur úr garði gerðir til tíu til tólf ára j endingar og þar með talið lakk, ef * þeir aðeins fá eðlilega hirðu. Það er mun auðveldara að hafa góða hirðu á bflnum sínum í dag. Mér hefur stundum orðið á að líkja bflum í dag sem auðveldlega endast í 10-12 ár en hrynja þá allt í einu við Jóa heitinn kennara í Garð- inum sem bjó við hestaheilsu á sál ' og líkama og var heimsmeistari öld- unga í spjótkasti og fleiri greinum. Eftir æfingu vel á áttræðisaldri hné ■ hann niður örendur með spjótið í ■ hendinni." Erum við of fljót á okkur að end- urnýja bílana? „Nei, en bflar em gerðir til að endast í 250-300 þúsund kílómetra akstur, þannig að bflar sem era búnir að lifa sitt fegursta eru í betra 1 ástandi þegar þeir em lagðir niður, L heldur en áður var. Enda er það nú svo að oft á fólk sem hefur farið vel með bflana sína, fremur erfitt með i að skilja að þeir séu í rauninni verð- ■ lausir þegar það ætlar að skipta þeim út. Það gerir sér oft ekki grein fyrir því hvað verð bíla hefur lækk- að og að það borgi sig ekki að leggja í mikinn kostnað við þá.“ Nú segir þú að bílar séu tækni- lega betri en áður var, stál, lakk, ryðvöm og hjólbarðar fullkomnari. Hvernig sérðu framtíðina í þjónustu við bfla fyrir þér? „Tæknilegar viðgerðir á mótor- j verki og slíku eiga eftir að ger- ■ breytast á næstu áram, þannig að bílaverkstæði eiga eftir að tengjast Reykjavík eða útlöndum með síma- línu og tölvuforritum og fá þaðan upplýsingar um hvað ami að. Þetta verður svipað og á landsbyggðar- sjúkrahúsum þar sem gerðar eru rannsóknir og teknar sjúkraskýrsl- ur. Greiningin fer síðan fram í Reykjavík og þaðan koma upplýs- ingar um hvað eigi að gera. Bíla- verkstæðin eiga eftir að breytast í ' slíkar greiningarstöðvar og vera í sambandi við hvert umboð fyrir sig.“ Sérðu fyrir þér að innkaupsverð nýrra bíla eigi eftir að lækka? „Nei. Það kostar mjög lítið að framleiða bíl. Fjöldaframleiðsluverð er 25-30% af söluverði hvers bfls frá framleiðanda. Hitt er alls konar gjöld sem era lögð á til að leggja vegi og endumýja vegakerfi í við- komandi löndum. Annars erum við ' alls ekki verst sett hvað bifreiða- verð varðar. Bílar eru mun dýrari í mörgum löndum." Bilgreinaskólinn og menntun bifvélavirkja Birgir hefur útskrifað 25-30 nem- endur í ýmsum greinum bílaþjón- ustu. Þeir hafa lokið sveinsprófi hjá honum, síðan ýmist unnið áfram hjá Bílakringlunni, eða hafið eigin rekstur. En Birgir segir að ekki sé lengur um það sé minna um það að Morgunblaðið/Þorkell Bíhi vei 'kstæði framtíðarinn- ar verða greiningarstöðvar eftir Súsönnu Svavarsdóttur vmsHpnMvnmuuF Á SUNNUDEGI ► Birgir Guðnason er Keflvíkingur, fæddur 1939. Hann stund- aði nám í Iðnskólunum í Keflavík og Reykjavík og lauk prófí í húsamálun. Hélt síðan til Danmerkur og nain málningarrekstr- arfræði við Den Tekniske Skole í Álaborg á árunum 1962-1965 og lauk meistaraprófi. Auk húsamálningar lauk hann prófi í bílamálun. Birgir kom aftur heim 1965 og stofnaði fyrirtæki það sem í dag heitir BG Bílakringlan, sem sérhæfir sig í húsa- og bílagreininni. BIRGIR Guðnason í BG Bflakringlunni í Keflavík segir starfsaðstöð- una hafa gjörbreyst á síðustu árum BG Bflakringlan er eitt af rótgrónustu fyrirtækjun- um í bflgreininni í Kefla- vík. Bflakringlan sérhæfir sig í réttingum, rúðuísetningum og bílamálun. Þá er rekin verslun með varahlutum, efnum og verkfærum til bifreiðaviðgerðar og bílamálunar, auk þess er þar afgreiðsla fyrir Isaga vörar, hjólbarðaverkstæði, al- mennt viðgerðarverkstæði og þjón- usta fyrir bfleigendur, ásamt bfla- leigu og era þeir margir Suður- nesmajennimir sem notið hafa þjónustu fyrirtækisins þau 32 ár sem það hefur starfað. Yfir 30 fyrir- tæki hafa verið stofnsett og lagt upp laupana í þessari grein sl. 30 ár en í dag era starfandi nokkur góð fyrirtæki sem náð hafa að festa sig í sessi. Um tíma vora flestir sem slörfuðu í greininni í Keflavík fyrr- um starfsmenn Bflakringlunnar til lengri eða skemmri tíma. Fyrsta sumarið sem Bflakringlan starfaði, unnu fimm manns við íyr- irtækið, en strax um haustið fjölg- aði þeim í tíu. Lengst af hafa um 25 manns starfað þar en í dag eru starfsmenn tuttugu. En hverjar era helstu breytingarnar sem Birgir hefur séð í rekstri, viðhaldi og þjón- ustu við bfla? „A fyrstu áranum sem við störf- uðum var helsta vandamálið varð- andi bfla hvað þeir ryðguðu illa og þurftu að fá mikið viðhald. Það var eitt sprautuverkstæði starfandi hér þegar ég byrjaði - og nýkomið í gang - svo það var nóg fyrir okkur að gera. Bflarnir vora illa ryðvarðir og vegirnir svo vondir að það var ekld til að bæta ástandið. Á þeim tíma vora bflar yfirleitt endur- byggðir einu sinni til tvisvar á með- an þeir voru í notkun - sem er óþekkt nú til dags. Vinnan á verk- stæðum var því gífurleg, auk þess sem mikil vinna fór fram í bílskúr- um bíleigenda um allan bæ. Það kom oft fyrir að maður seldi mönn- um sem vora að dunda við þetta sjálfir efni íyrir nokkra bfla yfir eina helgi. Þjónustan snerist ekkert síður um að veita ráð og selja efni. En þetta lagaðist eftir að farið var að ryðverja bílana betur og á síðari áram hefur efnið, það er að segja stálið sem notað er í bfla, stöðugt orðið betra svo það er und- antekning að bflar ryðgi í dag. Nú til dags era þetta eingöngu viðgerð- ir vegna tjóna af áföllum - og ef tjónið er verulegt era bflar oft seld- ir til niðurrifs." Uppvöxtur og sveiflutími Efnis- og varahlutasala var svo snar þáttur af starfseminni að árið 1970 ákvað Birgir að opna vara- hlutaverslun en þá hafði hann auk bflasprautunar bætt við viðgerðar- verkstæði. Um 1980 hafði fyrirtæk- ið sprengt utan af sér húsnæðið og Birgir ákvað að stokka upp fyrir- tækið í Grófinni og þangað flutti einnig verslunin árið 1988. í fram- haldi af því opnaði Birgir bflasölu á nýjum og notuðum bflum og síðar bflaleigu. „Fyrirtækið óx jafnt og þétt þennan tíma,“ segir Birgir, „allt fram til 1992, en þá hafði bflasala dregist veralega saman og 1995 seldi ég hluta af bílasölunni nýjum eigendum og leigði stóran sýningar- sal fyrirtækisins. Rekstur þess íyr- irtækis gekk illa og var lokað og rekstri hætt. Við höfum síðan verið að byggja upp aftur bflasöludeild fyrirtækisins hægt og bítandi og hluta fyrri bflasölu en við gætum vel hugsað okkur að fá til samstarfs nýjan aðila til reksturs bflasölunn- ar.“ Birgir segir miklar breyting- ar hafa átt sér stað bæði í sölu á nýjum og notuðum bflum á seinustu áram, samfara því að vinna á verk- stæðum hafi minnkað til muna. „Ástæðan er sú að í dag er mun auðveldara að kaupa notaða bfla en áður var og jafnvel enn auðveldara að kaupa nýja bfla vegna fjármögn- unar sem er nánast leiga á bflum. Hún er miðuð við greiðslugetu kaupandans og aðeins spurt hvað hann geti borgað mikið á mánuði. Síðan er afborgunarmánuðum fjölg- að í samræmi við það. Samfara þessu hefur orðið algert verðhran á notuðum bflum og í dag era nokkur þúsund bflar sem standa svo mánuðum skiptir á bfla- sölum. I framtíðinni held ég að fólk kaupi sér bfla til að eiga í langan tíma. Menn vanda betur valið í dag vegna þess að það er orðið svo kostnaðarsamt að skipta um bíl. Hér áður fyrr keyptu menn bíl á laugardegi og seldu á mánudegi en ábyrgðir og kostnaðurinn sem fylg- ir því í dag að selja notaðan bfl hef- ur lokað fyrir þessa lottóaðferð." Fjárfest í einu dekki á ári Birgir segir að þrátt fyrir verð- hran á notuðum bflum hafi ábyrgð söluaðila aukist. „Það er auðvitað hið besta mál,“ bætir hann við, „vegna þess að viðskiptavinurinn á kröfu á því besta og krafa markað- arins er vandaðri vinnubrögð. I dag era bílar sem betur fer svo vel úr garði gerðir að þeir geta vel enst í tíu til tólf ár ef ekkert alvarlegt kemur fyrir. Það er til dæmis al- gengt í dag að tíu til tólf ára bifreið sem er tekin til niðurrifs sé með ónotað varadekk. Það era ekkert mörg ár síðan fólk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.