Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JANIJAR 1998 27
I framtídinni held ég að fólk kaupi
sér bíla til að eiga í langan tíma.
Menn vanda betur valið í dag
vegna þess að það er orðið svo
kostnaðarsamt að skipta um bíl.
menn gerist lærlingar hjá meistara
og útskrifíst frá þeim.
„Það hefur lengi verið áhugamál
og draumur bílgreinarinnar í land-
inu að eignast fullkomna aðstöðu til
menntunar starfsmanna sinna,“
segir hann. „Sá draumur hefur nú
ræst með tilkomu Bílgreinaskólans
sem hefur tekið til starfa með að-
stoð margra fyrirtækja í greininni.
Hann er tvímælalaust í fremstu röð
slíkra skóla á Norðurlöndum. Þar
er hægt að mennta ungt fólk vel,
þannig að eftir námið og á meðan á
því stendur fái það verklega
kennslu á verkstæðunum. Menn
koma ekki lengur úr 10. bekk og
fara á samning á verkstæðum eins
og áður var.
Vinnulöggjöfín hefur líka haft
áhrif til batnaðar. Hér áður íyrr
gátu menn hætt fyrirvaralaust til að
fara til starfa við virkjanir, í síld eða
loðnu, til að ná sér í mikla peninga á
stuttum tíma, og komið síðan aftur.
Maður gat lítið annað gert en að
klappa þeim á baldð og óska þeim
velfamaðar. Þetta hafði þó sína
kosti og tíðkaðist í mörgum grein-
um; menn fengu þjálfun og voru
gjaldgengir á ný, því verkefni voru
oft næstum óþrjótandi. Nú þurfa
menn hins vegar að segja upp með
lengrifyrirvara og það er gagn-
kvæmt.“
Fjöldi þeirra sem hafa hlotið
menntun sína hjá Birgi hefur starf-
að hjá honum til lengri og skemmri
tíma og starfsandi ávallt verið góð-
ur. „Ég hef ávallt lagt mig fram um
að fá það besta út úr hverjum
starfsmanni," segir hann, „þannig
að allir; starfsmaðurinn, viðskipta-
vinurinn og fyrirtækið njóti þess
besta. Það er engin starfsemi betri
en starfsmennirnir sem starfa við
fyrirtækið. Það er góð regla að
reyna helst að finna starfsmenn
sem geta tekið að sér starf næsta
manns með litlum eða engum fyrir-
vara og treysta honum, án þess að
fara yfir mörkin í álagi og ábyrgð.
Enginn starfsmaður má vera
ómissandi til lengdar"
Starfsaðstaðan hefur gerbreyst
„Starfsaðstaða bifvélavirkja og
bílamálara hefur líka breyst mikið.
Efni í burðarvirki og boddýhluta
hefur breyst það mikið að ekki er
hægt að nota gömlu hefðbundnu
viðgerðaraðferðimar, heldur verður
í vaxandi mæli að skipta þeim út.
Það sama á við um málninguna sem
hefur breyst mikið til batnaðar. Áð-
ur urðu menn að handblanda liti og
hræra þá saman en í dag er þetta
unnið með nákvæmri tölvuvigtun og
án þess að menn hafi eitthvert inn-
grip í þetta.
Síðan er það lyktin. Eins og allir
vita, hefur sterk lykt einkennt
starfsaðstöðu bílamálara og vafa-
laust hafa margir borið skaða af
vinnu við slíkar aðstæður til margra
ára. Þetta gerbreyttist með tilkomu
vandaðra sprautuklefa og skilnings
málara á notkun hlífðaráhalda og á
næstu árum verða vatnsleysanleg
efni notuð í auknum mæli til bíla-
málunar. I staðinn fyrir að þynna
málninguna með þynni, verður not-
að vatn. Það er verið að þróa þessa
aðferð sem verður bylting fyrir bíla-
málara, ásamt öðrum mengunar-
vömum.“
Hvað með útblástursmengun?
„Miðað við tækniþróunina sem
orðið hefur á undanfömum ámm á
eftir að verða algengara en ekki að
bílar skili útblæstri sínum hreinni
en andrúmsloftið er í sumum stór-
borgum nú til dags.“
Nú hefur þú farið í gegnum
nokkrar stórar sveiflur í rekstri
Bflakringlunnar, einkum á árunum
1995-1997 - og ljóst að gríðarlegar
breytingar eiga sér stað í allri þjón-
ustu við bíla.
Hvernig er staðan í dag?
„Fyrirtækið heldur áfram í þjón-
ustu eins og verið hefur en með
minni bflasölu en áður. Rekstrar-
grundvöllurinn er góður, þrátt fyrir
þá erfiðleika sem við höfum farið í
gegnu.. Við munum í auknum mæli
leggja áherslu á verslunina en hún
hefur verið efld til muna, bæði hvað
varðar varahluti, verkfæri og máln-
ingu. Hún var upphaflega innkaupa-
deild fyrir fyrirtældð en hefur þró-
ast yfir í að vera þjónusta fyrir
aðra. Meginstarfsemi fyrirtækisins
mun þó áfram vera í réttingum og
bflamálun. Við höfum yfir að ráða
meira en 3000 fm. húsnæði sem
nýta þarf betur og er áhugi fyrir að
leigja út hluta sýningarsalarins
undir bílasölu, verslun eða bflaþjón-
ustu.“
IMuddnám
Kvöld og helgarnám
Hefst þann 12. janúar
næstkomandi.
■ Nómiðlekur l'/iár.
■ Kennt er klassískt nudd, slökunarnudd,
íþróttanudd, heildrænt nudd og nudd við
vöðvaspennu.
■ Útskriftarheiti: Nuddfræðingur.
■ Námið er viðurkennt af Félagi islenskra
nuddfræðinga.
■ Kynningarkvöld mánudaginn 5. janúar næst-
komandi kl. 20.30. Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar alla virka
daga kl. 13 -17
í símum 567 8921 og 567 8922.
NuddskóLi Guðœunöan
dQ£ rOfnasmiöjan
... á réttri hillu
GRIFFILL Skeifunni, Reykjavík
SPORTBÚÐ GRAFARVOGS Reykjavík
APÓTEK Smiðjuvegi, Kópavogi
•«YU»
GULLSÓL Mörkinni, Reykjavík
MAWA
TÖLVU OG RAFEINDAÞJÓNUSTAN Selfossi
B.T. TÖLVUR Grensásvegi, Reykjavik
SMranzf
S p a c e w
(TTlNor-Dan
1^0*4 Gluqqar-Hurðir
Verslanir þessar eru í hópi þeirra sem völdu innréttingar frá H. F. Ofnasmiðjunni á
nýliðnu ári. H. F. Ofnasmiðjan er umboðsaðili fyrir fjölmörg heimsþekkt vörumerki
og erum við jafnframt stolt af því að geta komið til móts við væntingar viðskiptavina
okkar með íslenskri hönnun, sérsmíði og þjónustu.
H. F. Ofnasmiðjan þakkar viðskiptin á árinu 1997 og óskar
viðskiptavinum farsæls komandi árs.
Verslun Háteigsvegi 7 - Sími 511 1100. Verksmiðja Flatahrauni 13 - Sími 555 6100.
CONSTRUCTOR GROUP
GLOBAL STORAGE SOLUTIONS
[UPerstorp
ftmm’
HL
DISPUY
iipergo Lundia