Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 35 MINNINGAR + Hans Kr. Ey- jólfsson fædd- ist í Bjarneyjum á Breiðafirði 15. okt. 1904. Hann lést á Droplaugar- stöðum 15. desem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Hansdóttir og Ey- jólfur Eyjólfsson, sem bjuggu í Bjarneyjum. Hálfs árs gamall var hann tekinn í fóst- ur til Margrétar Magnúsdóttur og Sigurvins Hanssonar sem var skipstjóri á ísafirði. Hjá fósturforeld- rum dvaldi hann til fjögurra ára aldurs, en þá slitu þau samvistir. Flutti fóstra hans þá til Reykjavíkur til dóttur sinnar Steinunnar Sigurðar- dóttur sem gift var Sveini Hjartarsyni bakarameistara á Bræðraborgarstíg 1. Þar ólst Hans upp með fóstur- börnum þeirra hjóna. Þegar Hans var 13 ára hóf hann störf í bakaríi Sveins og nam þar bakaraiðn. Að námi loknu í Iðnskóla Reykjavíkur fór hann til frekara náms í kökugerð og dvaldi hann í Kaupmannahöfn í þrjú ár hjá brauðgerðarhúsi í eigu Aage Hansen, sem einnig var aðalkennari Hans við fagskólann. Ut- skrifaðist hann úr skólanum með fyrstu verðlaun, en verðlaunin voru silfurbikar áletrað- ur. Að námi loknu kom hann aftur til starfa í bakaríi Sveins og starfaði eingöngu við köku- gerð. Eftir að Sveinn lést í nóv. 1944 sljórnaði Hans bakaríinu og starfaði þar sem yfirbakarameistari. Eftir 53 ára starf sem bakari hóf Hans starf sem móttökustjóri í for- sætisráðuneytinu og starfaði þar til ársins 1990. Hann tók virkan þátt í félagsstarfi iðn- greinar sinnar. Ennfremur var hann félagi í Oddfellow- reglunni. Hinn 24. maí 1930 kvæntist Hans Olöfu Jónsdóttur frá ísafirði, f. 26. febrúar 1910, d. 9. september 1994. Eignuð- ust þau þijú börn. Útför Hans Kr. fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, mánudag, og hefst athöfnin klukkan 10.30. Við sem unnum á Tjaldanes- heimilinu fyrir nokkrum árum munum vel eftir þeim hjónum Hans Kr. Eyjólfssyni og konu hans Ól- öfu Jónsdóttur. Dóttursonur þeirra, Kristinn Már, býr á Tjalda- nesi og komu þau hjónin oft til að heimsækja Kidda, og raunar alla piltana sem þar bjuggu. Þegar hjónin óku í hlaðið var Kiddi van- ur að kalla „afi Hansi og amma Lóa!“ og rétt á eftir tók allur skar- inn undir. Hans og Ólöf tóku því vel að vera afi og amma allra pilt- anna og stóðu sig óaðfinnanlega í því hlutverki. Dóttir þeirra, Lára Hansdóttir kennari, var oft í för með þeim. Hún var einn af stofnendum heimil- isins og hefur stutt það dyggilega frá byijun. Lára annaðist foreldra sína frábærlega vel þegar elli tók að mæða þau. Ólöf dó fyrir rúmum þremur árum eftir erfið veikindi og nú Hans, 93 ára að aldri. Hann bjó síðustu árin að Droplaugarstöðum við gott atlæti. En Lára var þó ætíð nálæg og hélt í hönd hans á dauðastundinni. Ég bið guð að blessa þessi mætu hjón, sem nú eru farin, og sömuleið- is Kidda, Láru, Braga, Grétar svo og aðra aðstandendur. Birgir Finnsson, fyrr- verandi forstöðumaður Tjaldanesheimilisins. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. fV. Briem.) HANS KR. EYJÓLFSSON + Þórður G. Jóns- son var fæddur 16. október 1916. Hann lést á Sjúkra- húsi Selfoss 8. des- ember siðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Guðfinnu Andrésdóttur og Jóns Þórðarsonar, bónda á Miðfelli í Hrunamannahreppi í Árnessýslu. Börn þeirra hjóna voru fimm, þau voru: Þóra, Helga, Þórð- ur, Steinunn og Þórður. Þau eru öll látin. Eina hálfsystur áttu þau, þeim sam- mæðra, Þórunni Kristjánsdótt- ur, sem er látin eins og hin Hann virtist hafa unnið sigur á veikindum er gerðu vart við sig fyrir nokkrum vikum. Leiðin lá heim að Miðfelli, en áður en hann hélt austur fyrir fjall vildi hann skoða tvær kirkjur, Hallgríms- kirkju og Grafarvogskirkju. Kirkj- urnar voru skoðaðar og sýndist mér að Þórður, sem var í lífinu mikill atorku- og dugnaðarmaður, hafa náð sér af þeim veikindum er hann háði baráttu við. Þó að enginn okkar þekkti stundina, þá hina hinstu, bjóst fjölskyldan ekki við því, hvorki ég eða þeir sem þekktu hann manna best, að kallið kæmi svo undur- fljótt. Þau systkinin voru mjög sam- rýmd, það var því mikill missir fyrir hann er Þóra systir hans lést árið 1990, en hún var fædd 14. janúar árið 1912. Búskaparhættir breyttust mjög í búskapapartíð Þórðar. Segja má að Þórður hafi breytt mýrlendi og móum í græn tún og akurlendi. Þórður var með blandaðan bú- skap, nautgripi, kindur, og á fyrri hluta búskaparins hafði hann yndi af hestamennsku, og var með nokkra hrossarækt. Var því oft fyrr á árum farið á fjall og um systkinin. Upp- eldisbróðir Þórð- ar er Andrés Blomkvist Helga- son, búsettur ásamt fjölskyldu sinni á Miðfelli III. Þórður var al- inn upp af for- eldrum sínum ásamt systkinum að Miðfelli II. Síð- ar tók Þórður við búi foreldra sinna að Miðfelli. Bjó hann þar myndar- búi ásamt systur sinni Þóru. Útför Þórðar fór fram í kyrrþey að ósk hins látna 16. desember. afrétti til að smala. Þórður og systir hans Þóra tóku við búinu árið 1950. Þórður var ákaflega dugmikill bóndi, atorku- samur. Hann bjó yfir ágætri skipulagsgáfu, skipulagði starf sitt vel. Hann vissi ávallt hvert hann stefndi og hvað hann vildi. Hann var nákvæmur, stundvís, gerði kröfur til sín og oft þá líka til samferðafólksins einkum hvað varðaði vinnu og vinnuframlag. Hann gat verið prakkari í sér, átti til að stríða frændfólkinu, sem svo mörg voru hjá honum til lengri eða skemmri tíma. Öll áttu þau, eins og ég sjálfur, góðar stundir hjá Þórði og Þóru, nutu þess að vera hjá góðu fólki í sveitinni, hvar sem oft ríkir friður og kyrrð, sem sveitin ein getur framkallað. í Miðfellshverfinu var og er gott samband á milli bænda, reyndar einstakt samband, að mínu áliti, hvar oft var gripið inn í verk hvors annars. Þar eignuð- ust menn gott og gefandi samfé- lag. Þórður hafði mikið yndi af því að spila brids. Greip hann í spil hvenær sem tími gafst til. Síðustu árin spiluðu hann og vinir hans saman, áttu góðar stundir saman. Þórður var greindur maður. Fylgdist hann vel með mönnum og málefnum. Fréttirnar í útvarpi og sjónvarpi voru efstar á lista, og ekki má gleyma því að íþróttir voru ofarlega á baugi hjá honum. Hann bjó yfir miklum lífskrafti allt fram á það síðasta. Okkur fjölskyldu hans er minnisstætt hve mikill kraftur hans og atorka var síðastliðið sumar þá er unnið var að fram- kvæmdum við Miðfell. Þá lagði hann gangstéttarhellur, gróf skurði, á þann hátt að ungur vel gerður maður hefði mátt vera stoltur af. Hann ræktaði bæði lík- ama og sál, tók þátt í morgunleik- fimi fyrir tilstilli ljósvakamiðla, og hann átti sína trú. Hann vildi ljúka verki sínu áður en hinsta stundin varð að raun- veruleika. Skoðaði kirkjur eins og áður sagði, en ekki aðeins þær heldur og aðrar merkar byggingar í Reykjavík einsog Ráðhúsið og Perluna. Ávallt kom hann sínu í verk. Að Miðfelli tók hann upp nýtízku- leg vinnubrögð. Gerði Miðfell nr. 2. að myndarbýli á mælikvarða þess tíma sem verkið var unnið. Fyrir rúmum áratug seldi hann jörðina og allan bústofn. Sjálfur bjó hann að Miðfelli, hélt eftir íbúðarhúsnæði og jarðarskika í kringum býlið. í sláturtíðinni vann hann eins og margir bændur á hans svæði í Sláturhúsi Suður- lands á Selfossi. Það var því aldr- ei setið auðum höndum, ávallt hafði hann eitthvað fyrir stafni. Með þessum orðum vil ég þakka þér, ágæti frændi, fyrir allar góðu stundirnar að Miðfelli. Þær þakkir eru bornar fram fyrir hönd okkar allra úr fjölskyldunni sem fengu að njóta samvista við þig og hana Þóru frænku. Guð blessi minninguna um þig, blessi minninguna um góðan dreng. Sigurður Kjartansson. Elsku frændi. Það verður mjög skrítið að geta ekki skroppið af og til í heimsókn í sveitina og fund- ið kyrrðina og friðinn sem alltaf einkenndi andrúmsloftið hjá þér. Mitt fyrsta heimili var einmitt í Miðfelli hjá ykkur Þóru og Jóni ÞÓRÐUR G. JÓNSSON Nú kveðjum við öðlinginn hann afa, besta vin og riddara mann- gæskunnar, hinn dáða dreng. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Það var heiður að eiga þig fyrir afa og langafa og það að hafa átt svo margar yndislegar samveru- stundir með þér, glaðværð þinni, og sönggleði. Ekki gleymir maður kökunum þínum enda fagmaður af fyrstu gráðu og oft sungið „Kanntu brauð að baka“ á danska vísu þar sem hluti af Danmörku varð eftir í hjarta þínu eftir náms- dvölina þar. Afi Hansi, leiðtogi og fyrirmynd alls hins besta, var höfðingi heim að sækja og ekki síður á heima- velli í Stjórnarráðinu. Þar var hann réttur maður á réttum stað en tíminn leið og þú varðst frá að hverfa og njóta ævidaga með ömmu Lóu, sem nú bíður eftir þér, elsku afi minn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Það eru fá orð til að lýsa svo góðum manni eins og honum afa en við mæðgur kveðjum hann og geymum í minningunni. Lóa Lára og Sara. langafa og var það fyrstu þrjá mánuðina, síðan vorum við með annan fótinn hjá ykkur. Frá sjö ára aldri og framundir fermingu var ég svo í sveitinni hjá ykkur á hveiju sumri. Það er reynsla sem ég hefði ekki viljað missa af. Það var oft líflegt hjá ykkur í sveitinni, enda ófáir kaupa- mennirnir sem voru hjá ykkur og við þijú, ég, Helga systir mín og Kjartan frændi okkar. Þær eru ófáar minningamar sem ég á úr sveitinni, en sterkust er sú minning að það var alltaf regla sem brást sjaldan að fimmtudagskvöldin voru spilakvöld, þá var spilað og hlustað á útvarpsleikritið. Kannski er það vegna þess að spilamennskan átti svo sterk ítök í þér. Ef við duttum niður í spila- mennsku nú á seinni árum gat það teygst frameftir kvöldi, jafnvel þótt um ólsen ólsen væri að ræða. Einnig var það hlutur sem þú helst ekki slepptir nú síðustu ár að fara og spila brids tvisvar í viku á Flúð- um, jafnt sumar sem vetur. Álltaf var stutt í glettnina hjá þér, en þú gast líka verið ákveðinn og vissir hvað þú vildir og fylgdist vel með öllum nýjungum í kringum þig- Annars finnst mér það lýsa þér best að börnin mín, Daníel og El- ísabet, sáu ekki sólina fyrir þér þegar þau voru nálægt þér. Elsku frændi minn, við yljum okkur við allar góðu minningarnar sem við eigum um þig. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Blessuð sé minning þín. Þuríður Guðjónsdóttir. Sælir eru hógværir því þeir munu landið erfa. Þessi orð, ein af upphafsorðum fyallræðunnar, eiga einkanlega vel við þegar minnast skal Þórðar Jónssonar í Miðfelli. Hann kom fram á kurteis- an og hógværan hátt og laus við allar orðræður. Við vorum svo lánsamar að fá að kynnast honum hin síðari ár er við réðumst til hans sem heimilishjálp. Ef ekki hefði til þess komið hefðum við aldrei kynnst mannkostum hans né eignast hann að vini. Þórður var einstakt snyrtimenni bæði utanhúss sem innan og lét Sumarmorgunn. Sólin lítur við, og sér að þú ert hér. Kaffiilmur. Kannski er sopi með af kærleika frá þér. Kvöld um vetur vindur þú þér burt og veist samt ekki hvert. Lóusöngur læðist eins og vor og hvíslar hvar þú ert. (Sigurður Ingólfsson.) Elsku afi okkar, afí Hansi, maður sem hefur lifað langa og góða ævi, er látinn. Maður sem hefur gefið fuglunum er farinn burtu með söngnum, maður sem bakaði forðum lífsins brauð er farinn burt með ilm- inum. Stundarkom af lífinu er liðið og fyrir þetta kom emm við þakk- lát. Maður sem lifír gleði heimsins í hjarta sér er góður maður og þann- ig maður var afi Hansi. Sérhver stund var honum ríkidæmi þess sem kann að njóta, þess sem elskar og þess sem leggur lífið að fótum sér með hveiju brosi, hveiju dansspori og hveiju glasi af lífsins veig. Afi Hansi er genginn sína leið, farinn til fundar við lóusönginn í hjarta sér, farinn að finna sumarið í eigin sál. Honum þökkum við allar þær stundir sem hann skilur eftir í okkar minningu, fyrir brotin af honum sem í okkur verða heild, fyrir ilm sem stöðugt angar og fyr- ir gleði sem aldrei deyr. Petra Bragadóttir, Ólöf Björk Bragadóttir, Hilmar Örn Bragason og fjölskyldur. sér annt um að halda húsinu sínu og garðinum sem best við og það tókst honum svo sannarlega. Nú síðastliðið sumar réðst hann í all- miklar framkvæmdir á húsi sínu með aðstoð frændfólks og góðra vina. Okkur breyskum mönnum hætt- ir alloft til að vanþakka það sem okkur er úthlutað í lífinu. í þeim efnum var Þórður undanskilinn og margt hægt af honum að læra. Orðið „ómetanlegt“ var honum tamt í munni. Honum fannst ómet- anlegt að búa í vel upphituðu húsi. Honum fannst ómetanlegt að eiga góða nágranna og einnig fannst honum ómetanlegt að geta ekið bíl sínum kominn á þennan aldur og hugsað um sig sjálfur. Síðast og ekki síst var honum það ómet- anlegt að eiga góða félaga, sem spiluðu saman brids tvisvar í viku allt árið um kring og vitum við að í þeim hópi verður hans sárt sakn- að. Þórður átti ekki stóra fjölskyldu en fyölskyldu sem reyndist honum vel, fólk sem hann kunni vel að meta. Nú er vinur okkar kominn til fyrirheitna landsins. Hann fékk þá ósk sína uppfyllta að þurfa ekki að liggja lengi sjúkur og farinn að kröftum. Á kveðjustund viljum við þakka Þórði ómetanleg kynni og biðjum algóðan Guð að blessa minningu hans. Lýstu þeim héðan er lokast brá heilaga Guðsmóðir himnum frá. (Stefán frá Hvítadal) Guðbjörg og Katrín. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess (minning(a)mbl.is) — vinsam- legast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.