Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 47
FÓLK í FRÉTTUM
S l-'.l NN Mag'mísdóttir
silng' af mikilli innlifmt í
Arseli ú diiíi'uuum.
Listafólk framtíðarinnar
► LISTAVIKA var
haldin fyrir skömmu
ífélagsmiðstöðinni
Árseli í Reykjavík.
Fjölbreytt dagskrá
var í boði og gátu
allir fundið eitthvað
við sitt hæfí. Krakk-
arnir sýndu hæfí-
leika sína á lista-
sviðinu og greini-
legt að þar á meðal
voru margir upp-
rennandi listamenn
sem komu frain. Af
því sem boðið var
upp á má nefua
stuttmyndagerð,
fatahönnun, leiklistar-
UTVARP Seeli
meðaI^rTslTþtXaIkffum! °S ^ HeÍða
námskeið, dúkristun, listförðun auk
þess sem útvarp Sæla var starfrækt alla
vikuna. Rúsínan í pylsuendanum var
svo kaffihúsakvöld þar sem afrakstur
vikunnar var sýndur með glæsilegri
tísku-
sýningu, lifandi tónlist spiluð og
sungið. Lesin voru upp ljóð og smásög-
ur eftir unga höfunda í Árseli og boðið
var upp á kakó og kökur.
MYNDBÖNP
Sannleikur-
inn falinn
Náið samband
(Intimate Relations)_
Gamanmynd
★★★
Framleiðandi: Boxer Films/Paragon
Entertainment. Leikstjóri og hand-
ritshöfundur: Philip Goodhew. Kvik-
myndataka: Andrés Garréton Tónlist:
Lawrence Shragge. Aðalhlutverk:
Julie Walters, Rupert Graves og
Laura Sadler. 99 mín. Bretland. 20th
Century Fox/Skífan. Útgáfud.: 17.
des. Myndin er bönnuð börnum yngri
en 12 ára.
UNGUR maður kemur í smábæ á
Englandi og leigir herbergi hjá hjón-
um með unga dóttur. Húsmóðirin er
ófullnægð og er fljót að tæla unga
manninn til fylgilags. Þegar dóttirin
heimtar að fá
sömu athygli og
móðir sín flækjast
málin og allt end-
ar með hryllileg-
um glæp.
Þetta er sönn
saga frá 1956 og
það virðist hálf-
skrýtið að gera
grínmynd um
sorglega atburði,
en leikstjórinn gerir það vel og út-
koman er bæði fyndin og átakanleg.
Enskir smáborgarar verða óspart
fyrir barðinu á honum og notar hann
tónlist og myndatöku til að undir-
strika fáránleikann. En gamanið
gránar og seinni helmingur myndar-
innar er mun alvarlegri og lang-
dregnari um leið. Það kemur dálítið
furðulega út að skipta algjörlega um
stíl.
Persónurnar eru mjög lifandi og
leikaramir eru vægast sagt frábær-
ir. Julie Walters nær einstökum tök-
um á mömmunni sem sér hlutina
eins og hún vill að þeir séu. Hún sýn-
ir það enn og aftur hversu góð leik-
kona hún er. Hin unga Laura Sadler
er einnig mjög sannfærandi sem
furðuleg unglingsstúlka með mikla
kynhvöt sem hún blygðast sín ekki
fyrir. Rupert Gi’aves leikur unga
manninn. Mér hefur alltaf fundist
hann mjög skemmtilegur og skil
ekki af hverju hann fær ekki meira
að gera. Það er vai’la að hann hafi
sést síðan í „Maurice“ árið 1987.
Hann er mjög góður en angist hans
og vanlíðan í seinni hluta myndar-
innar kemur ekki nógu vel fram,
hvort sem það er honum eða handrit-
inu um að kenna. Saman eru þessu-
leikarar óborganlegir og einstaklega
eftirminnilegur þríhyrningur.
Náið samband er sérkennileg og
skemmtileg mynd um alvarlega
hluti. Hún er sneisafull af gráu
gamni, djúpum tilfinningum og höfð-
ar sjálfsagt til breiðs áhorfendahóps.
Hildur Loftsdóttir
SAMWÍi