Morgunblaðið - 30.05.1998, Side 2
h
2 D LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
4 Hún saumar brúðarkjólinn sjálf
5 Heimilislegt sveitabrúðkaup
6 Óvænt brúðkaup
8 Þau undirbjuggu hjónabandið
9 Hin hetjulega fyrirætlun
10 Náttúrulegt brúðkaup
11 Brúðkaup á fertugsafmælinu
12 Blómin í brúðkaupinu
13 Hár og förðun
14 Brúðhjónum fylgt eftir
16 Milliréttír
i ®
t
17 Tónlistin í brúðkaupinu
18 Brauðveislur að ná vinsældum
19 Rúsínuhús og kökukona
20 Fylltu húsið af börnum
22 Fyrstu hjónabandsárin
23 Höfum alltaf verið samrýnd
24 Brúðarkjólar
27 Fjölskylduráðgjöf
HÉR á landi eru gefin saman 1.200 til 1.300 hjón á hverju
ári. Pör lofa frammi fyrir Guði og mönnum að standa sam-
an í blíðu og stríðu. Loforðið er fagurt og oft reynir í sjálf-
um undirbúningnum að brúðkaupinu á hvort pörin eru til-
búin að taka tillit til óska og drauma hvors annars.
Sumum þykir við hæfi að efna til látlauss brúðkaups.
Aðrir eiga sér drauma um hátíðlegt kirkjubrúðkaup með
tilheyrandi gleðskap. Ef vel á að vera þurfa báðir að fá
að hafa áhrif á ytri umgjörð brúðkaupsins eins og á
aðrar ákvarðanir.
Efnt er til flestra brúðkaupa að vori og sumri. Ef sá
tími hefur orðið fyrir valinu er algengt að farið sé að
huga að sjálfum undirbúningnum haustið áður, ef ekki fyrr. Fyrsta
skrefið felst oftast nær í því að velja prestinn og ákveða tímasetn-
ingu, huga að klæðnaði og veitingum.
Dagurinn er dagur brúðhjónanna og ekkert ætti að varpa
skugga á hátíðina. Gleðin liggur í loftinu í
bland við hátíðleikann og örlítinn ótta við
hvernig muni ganga að standa við lof-
orðið.
Að ganga í hjónaband er
stórt skref. Farsælt
hjónaband er ekki
sjálfgefið heldur
krefst ómældrar
vinnu. Hjónin
verða að vera til-
búin að taka
saman höndum um verkefnið og leita eftir að-
stoð ef þörf þykir.
í blaðinu er rætt við nýgift hjón sem ákváðu að
leita til fjölskylduráðgjafa áður en þau gengu í
hjónaband og undirbúa sig fyrir
framtíðina. Af öðru efni má
nefna að rætt er við tvenn
hjón sem hafa verið gift í
áratugi. Þau eru sammála
um að lykillinn að farsælu
sambandi hjóna sé gagn-
kvæm virðing, reglusemi
og samheldni.
Hjónabandið er stórt verkefni
og til þess ættum við að ganga
eins og hvers annars verkefnis í lífinu,
glöð og full bjartsýni.
HÖFUNDAR: Aðalheiður Högnadóttir, Aldís Hafsteinsdóttir, Anna Bjarnadóttir, Anna Ingólfsdóttir,
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, Guðbjörg R. Guðmundsdóttir, Sigrún Davíðsdóttir
LJÖSMYNDIR: Anna Ingólfsdóttir, Aðalheiður Högnadóttir, Ásdís Ásgeirsdóttir, Jón Svavarsson,
Kjartan Þorbjörnsson, Kristinn Ingvarsson, Hallfríður Bjarnadóttir, Þorkell Þorkelsson
H Ö N NIIN: Sigrún Thorarensen
UMBR0T: Sigurbjörg Arnarsdóttir
FORSÍÐft: Myndina tókÁsdís Ásgeirsdóttir. Kökur áforsíðu og á bls 2 eru bakaðar af
Jóhannesi Felixsyni hjá Bakaríi Jóa Fel.
\
I
I
Í
Í
i
i