Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 D 11
oað heibga
BOOSKortib ,.
Fsssgfösr*
tynntust írnA Þau
ST1 r°ðrark/úbbi.
„ÞÚ SAGÐIR aö það ætti að vera
rómantískt," sagði Heinz Dintheer
þegar hann og Anneco ter Velde
settust til borðs á huggulegum
matstað í október síðastliðnum. Þá
vissi hún strax hvað til stóð. Hún
vissi Kka hverju hún ætlaði að
svara og hvaða dag hún vildi gift-
ast honum. Hann bað hennar á 47
ára afmælinu hans og þau ganga í
hjónaband á fertugsafmælinu
hennar, 26. júní næstkomandi.
Veturinn hefur farið í að skipu-
leggja. Anneco er hol-
lensk en hefur búið í
Sviss síðan 1981 og
er komin upp á lagið
með að skipuleggja
hlutina í smáatriðum.
Þau óku til dæmis
með stoppúr leiðina
sem þau ætla að
aka í kvöldmatinn á
brúðkaupsdaginn.
„Hlutirnir verða að
ganga rétt fyrir
sig,“ sagði hún, en
brosti þó að
nákvæmninni.
Það er algengt í Hollandi að fólk
tilheyri engri kirkju eins og Anneco
og gifti sig hjá borgardómara.
Hjónavígslan er hátíðleg og vinir
og kunningjar eru viðstaddir. „Hér í
Sviss eru flestir í trúarsöfnuði og
gifta sig fyrst hjá borgardómara og
nokkrum dögum seinna í kirkju,“
sagði Anneco. „Hátíðlega athöfnin
á sér stað í kirkjunni
og á eftir er haldin
veisla. Við giftum
okkur bara hjá
hreppsstjóra og ég
veit að athöfnin
verður miklu styttri
en tíðkast I
Hollandi. En það
verður að hafa það. Mínir nánustu
koma þaðan til að vera viðstaddir
athöfnina og svaramennirnir verða
með okkur. Vinir okkar bíða vænt-
anlega fyrir utan og bjóða upp á
vínglas þegar við komum út.“
Ógleymanlegur
undrunarsvipur
Vinir þeirra vissu ekki fyrr en fyrir
rúmu ári að þau væru par. Þau
kynntust upp úr 1990 þegar Ann-
eco flutti frá Zurich til St. Gallen og
gekk í róðrarklúbb sem Heinz hafði
lengi verið meðlimur í. Þau voru
bæði í sambúð og veittu hvort
öðru enga sérstaka eftirtekt. Það
var ekki fyrr en þau voru bæði búin
að vera á lausu í nokkur ár að þau
fóru að draga sig saman. „Það var
í október fyrir einu og hálfu ári,“
Svissneskt
brúökaup
sagði Anneco.
„Róðrartímabilið var
liðið og þess vegna
vissu sameiginlegir
félagar okkar ekkert
fyrr en við báðum þá
að hjálpa okkur að flytja saman.
Undrunarsvipurinn sem kom á þá
er ógleymanlegur!"
Félagar þeirra úr róðrarklúbbn-
um ætla að standa heiðursvörð
með árar þegar þau koma út frá
hreppstjóranum. Það verður boðið
upp á hvítvínsglas en síðan leggja
brúðhjónin, svaramennirnir og hinir
nánustu (um 20
manns) af stað í
ökuferð um kantón-
una Thurgau í
glampandi, gulri
Saurer-rútu frá
1934. Heinz er frá
Thurgau og sæll
með sína kantónu.
Saurer-ökutækin voru framleidd
þar á sínum tíma en annars er
kantónan aðallega þekkt fyrir epla-
og aðra ávaxtarækt.
Ferðin á brúðkaupsdaginn liggur
fyrst á einfaldan veitingastað þar
sem boðið verður upp á eplavín og
ostbita. Síðan verður ekið um
fagra sveitavegi til Ermatingen þar
sem faðir Anneco býður upp á
kvöldverð í hótel Adler. Napóleon
gisti þar fyrir tæpum 200 árum og
hótelinu hefur ekki hrakað síðan.
Þar verður melónu-kokteill, Riesl-
ing-súpa, egli (vatnafiskur), kálfa-
hryggur með sveppasósu og brúð-
kaupsterta borið fram. „Og vín frá
Bachtobler," bætti Heinz við. „Einu
skilyrðin sem ég set eru að það sé
enginn laukur ( matnum og vínin
séu frá Thurgau."
Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir
Heinz Dintheer hlakka eins og börn
Veislan í Sviss. Hún verður
haldin í róðrarklúbbnum daginn
eftir hjónavígsluna. „Anneco vildi
hafa hana þar,“ sagði Heinz. Allir
róðrarbátarnir verða teknir út og
bátageymslan skreytt í hollensk-
um og svissneskum litum. Anneco
ætlar að raða um 130 manns til
borðs.
„Ég verð að gera það. Þetta
verður svo misjafn hópur að ég vil
ákveða hvar fólk situr. Ég vil ekki
að harðar kvenréttindakonur lendi
við hliðina á karlrembum og allt fari
í háaloft undir rnatnum."
Opið laugardag 10—16.
\c#Hl/ISIÐ
Mörkinni 6, sími 588 5518
<sm
ítalskir eðalskartgripir
einstaklega vel unnir og
fallegir skartgripir
feam/zd
/eonatd
WATHCE9 AND ACCESSORIES
KRINGLUNNI 8-I2 REYKJAVÍK
SÍMI: 588 7230 FAX: 588 7232
WWW.LEONARD.IS
DUTY FREE STORE KEFLAVlK AIRPORT
SlMI: H25 0800 FAX: 588 7232
WWW.LEONARD.IS