Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 18
18 D LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er í rauninni sama hvort
brúðhjón eru með kaffiveitingar
eða mat í brúðkaupsveislunni
sinni, brúðarterta er yfirleitt alltaf á
boðstólum. Misjafnt er hvort um
sérstaka tertu er að ræða og þá oft
á mörgum hæðum eða kran-
saköku.
Hann Hafliði Ragnarsson hjá
Mosfellsbakaríi hlaut Islandsmeist-
aratitilinn í kökuskreytingum þetta
árið. Hann féllst fús-
lega á að gefa les-
endum uppskrift að
brúðartertu og
fræða verðandi
brúðhjón um það
sem helst er beðið
um í þessu sam-
bandi.
Brauðveislur að
ná vinsældum
„Það er tíska í
brúðkaupsveislum
eins og öllu öðru, en
auðvitað er líka margt
sem alltaf er sígilt,"
segir Hafliði.
„Það nýjasta sem við
höfum verið að gera er að bjóða
brauðveislumar og þeim hefur ver-
ið mjög vel tekið. „Þá er brauð í
aðalhlutverki á veisluborðinu, er
bæði skrautið og maturinn. „Við
bökum brauð sem eru hjartalaga,
eins og lauf, hálfmánar og svo
framvegis og erum með þau úr
mismunandi deigi.
Brauðinu er svo raðað fallega á
borðið og yfirleitt verður yfir-
bragðið dálítið gróft. Með þessu
eru bornar fram ýmsar olíu- og ed-
iksósur til að dýfa brauðinu í, ólífur
af ýmsum gerðum tilheyra, sól-
þurrkaðir tómatar, ætiþistlar, mat-
armiklar kjötpylsur sem gestir
skera sér af bita og svo framvegis.
Rauðvín er yfirleitt haft með brauð-
mat sem þessum. Á eftir fær fólk
síðan kaffi og brúðartertu."
Allt eftir óskum
brúðhjóna
Hafliði segir brúðarterturnar jafn
misjafnar og brúðhjónin eru mörg.
Brúðar-
terta
ómissandi
„Brúðhjónin koma með óskirnar og
það er starf okkar að verða við
þeim. Undan-
manninn. Hann segist leggja uppúr
því að fara sjálfur með tertuna á
staðinn og það er innifalið i
verðinu. ( sumum tilfellum er hann í
veislunni og sker tertuna fyrir gesti.
Ef bakarinn er ekki sjálfur á staðn-
um mæli ég eindregið með því að
fólk fái einhvern til að sjá um að
skera tertuna. Stemmningin verður
miklu meiri og það tilheyrir við
svona tækifæri.
Þegar Hafliði var
beðinn að gefa lesend-
um uppskriftir í kaffi-
veisluna brást hann vel
við. Uppskriftirnar eru
frá Hafliða og Eggerti
Jónssyni, sem er nýút-
skrifaður kökugerðar-
meistari frá Danmörku
og starfar líka hjá
Mosfellsbakaríi.
BAILYS
FRÓMAS
Hafliði segir að þessi
fylling sé tilvalin í
brúðartertu eða tertu
á kaffihlaðborðið
farið hefur mikið verið beðið um
brúðartertur með Bailys (líkjör)
frómasi en eins og ég segi er þetta
misjafnt. Þá getur fólk líka fengið
allskonar skraut. Mér finnst til-
hneiging vera í átt að sykurskrauti,
en úr sykrinum hef ég verið að
gera brúðhjón, svani, hjörtu og allt
mögulegt.
Hafliði segir að yfirleitt baki fólk
sjálft fyrir kaffiveislurnar en kaupi
síðan brúðartertuna sjálfa. En hvað
kostar brúðarterta fyrir 50 manna
veislu?
„Yfirleitt er selt samkvæmt
fjölda, en ef um kaffihlaðborð er að
ræða þarf að taka tillit til fjölda teg-
unda á borði og miða stærð brúð-
artertunnar útfrá því. Ástæðan er
sú að fólk er ekkert að borða risa-
sneiðar af tertu þegar það er hlað-
borð af kökum. Þá er tertan rétt til
að smakka."
Hafliði segir að algengt verð á
brúðartertu sem er fallega skreytt
sé á bilinu 350-420 krónur á
2 svampbotnar
1 banani
600 dl þeyttur rjómi
2 egg
80 g sykur
6 blöð matarlím Bailys likjör um 30 g eða eftir smekk
Smyrjið svampbotn með sultu eftir
smekk. Saxið niður bananann og
dreifið á botninn.
Setjið matarlímið í bleyti í kalt
vatn og þeytið saman eggin og
sykurinn. Setjið því næst matar-
límið í skál eða pott og bræðið í
vatnsbaði eða örbylgjuofni. Bætið
örlitlum likjör saman við matarlímið
til að kæla og blandið svo varlega
saman við eggin.
Þessu er því næst blandað sam-
an við rjómann. Einnig er gott að
saxa smá rjómasúkkulaði og
bianda samanvið. Setjið frómasinn
í tertuhringinn og seinni svamp-
ffieifmlan et okkm...
Brúáha upavaistu r:
í hoði eru hokteilmatur,
kaffihlaðhorð,
hvöJJverður, De luxe
herhergi og forcetahíllinn
er innifalinn í öllurn
hrúðhaupsveislum sem
halJnar eru hjá ohh ur.
I yfir 30 ár hefur VíhingasaJur Hótel LoftleiSa
verið vettvangur mannfagnaðar við margvíslegustu
tcehifceri.
Hönnun salarins tehur mið af \>ví að geta fjjónað
allt frá 20 manna hópum til mjög fjölmennra
veislna eða allt að 450 manns i stanJanJi
hohteilveislu.
qPú hefjut tilefjnið
við siáum um ailt hitt!
HíÓTEL LOFTLEIÐIR
ICELAWDAIR HOTELS
BorSapantanir i símum 5Ó2 7575 og 5050 025
Morgunblaöið/Kristinn
ÞÓ FÓLK sé kannski ekki með tertur í brúðkaupinu sínu þykir brúðartert-
an oftast ómissandi.
HAFLIÐI Ragnarsson og Eggert Jónsson kökugerðarmeistarar.
botninn ofaná. Geymið í kæli yfir
nótt. Skreytið með marsipani eða
rjóma.
EINFÖLD SÚKKULAÐI-
OG PERUTERTA
Súkkulaðikrem passar á 2 botna
Fyrri dagur:
Vx I rjómi
150 g rjómasúkkulaði
Hitið rjómann að suðu, takið pott-
inn af hitanum og setjið saxað
súkkulaðið út í. Hrærið vel saman
og setjið í skál og geymið í kæli yf-
ir nótt.
Seinni dagur:
2 svampbotnar
apríkósusulta
Vx dós perur
kremið úr kæli frá í gær
Takið 2 brúna svampbotna eða
góða súkkulaðibotna og smyrjið
hvorn botn með aprikósusultu.
Opnið perudós og skerið þær nið-
ur og dreifið á báða botnana.
Takið kremið úr kæli og þeytið
varlega upp og passið að ofþeyta
það ekki. Skiptið á botnana og
smyrjið út.
Skreytið t.d. með ferskum jarð-
arberjum og súkklaðispæni.
HEITUR BRAUÐRÉTTUR
1 fléttubrauð eða
annað gott brauð
1 dós sveppir
1 dós grænn aspas
6 sneiðar skinka
Vs. sveppa smurostur
500 dl rjómi
Brauðið er klofið langsum og tekið
innanúr því fyrir fyllingu. Steikið
skinku og sveppi á pönnu, sjóðið
upp rjóma og ost bætið svo rest-
inni út í. Látið krauma og þykkna á
lágum hita. Setjið fyllingu í brauðið
og pakkið inn í álpappír. Bakið í
ofni við 200°C í 15-20 mínútur.