Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 4
4 D LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Vönduð og skemmtileg
tónlist í veisluna.
Tríó. dúett eða einleikur eftir þörfum
Pálmar Ölason - planö, harmonikka, hljómb.
Hrafnkell Pálmarsson - fiðla, gítar
Sveinn Aki Sveinsson - kontra- og rafbassi
Upplýsingar í s. 554-3866/899-0242
eða e-mail: hrafnkell@gardabaer.is
—
1
Hvcrnig fyndist ykkui
að heyra lagið ykkar
sungið í brúðkaupinui
Tck ;u> mcr cinsöng í
brúökaupsvcislu m
og athöfnum.
Dargurlög. Klassík. Ias>>,.j
ÍHrólfur S;cmundsson
harítónsöngvari.
Sími 552 1271.
símboði 842 4925.
CAPPUCCINO
VÉLIN
BRÚÐARGJÖFIN í ÁR!
KAFFIVÉL SÆLKERANS!
Pavoni kaffivélarnar hafa
verið framleiddar fró 1905
og ætíð rómaðar fyrir gæði
ogendingu. Þærfóstbæði
úr stóli og kopor og með
Pavoni í eldhúsinu heima getur
þú lagað afbragðs te, espresso,
súkkulaði og coppuccino
hvenær sem er.
KAFFIBOÐ ef
Grettisgötu 64 ( Barónstígsmegin )
símor: 562 10 29/899 30 34
www.mbl l.is
SINN er siður í landi
hverju og það á líka við
um brúðkaup. Á alnet-
inu er að finna ýmsar
upplýsingar um siði og
venjur við slík tækifæri.
Siður frá
miðöldum
Blóm eru snar þáttur í
brúðkaupi. Frá miðöld-
um er sá siður að
brúðguminn beri í
hnappagatinu blóm úr
brúðarvendinum, en
það var tákn ástúðar
þegar maður bar lit
sinnar heittelskuðu.
Hver litur hefur sina
merkingu. Appelsínu-
gulur táknar hreinleika,
trúfesti og ástarhug.
Rauði liturinn segir ein-
faidlega: Ég elska þig.
Hrísgrjónin talin
HÚN var fjórtán og hann sextán
ára þegar þau fóru að leiðast um
götur Hveragerðis
og hvorugu datt þá
í hug að átta árum
síðar myndu þau
ætla að ganga í
hjónaband.
Hinn 11. júlí
næstkomandi verða
Ása Kristín Óskarsdóttir og Halldór
Sveinsson gefin saman í Hall-
grímskirkju af sr. Maríu Ágústs-
dóttur. „Á aðfangadag fyrir hálfu
öðru ári fór ég á hnén í votta viður-
vist og bað hana að giftast mér,“
segir Halldór þegar þau eru spurð
hvenær þau hafi ákveðið að ganga
í hjónaband. Ása segir bónorðið
hafa komið sér á óvart því þau hafi
í raun aldrei rætt um brúðkaup en
hún þurfti ekkert að hugsa sig um
og nú eru þau farin að huga að
undirbúningi stóra dagsins.
Títuprjónar um allt
Ása segist strax hafa verið
ákveðin í að sauma brúðarkjólinn
sjálf. Hún lærði fatasaum í mennta-
skóla og hefur gert töluvert af því
að sauma á sig um árin og jafnvel
á Halldór líka. „Ég er vanur því að
hafa títuprjóna um allt hús,“ skýtur
hann inn í og brosir.
En hefur hann þá
séð kjólinn? „Ég
kemst ekki hjá því
að sjá efnisbúta hér
og hvar, þeir eru um
allt hús. Ég hugsa
að ég fái samt ekki
að sjá hana í kjólnum fyrr en í kirkj-
unni.“
Þau ætla að mestu leyti sjálf að
sjá um veitingarnar með aðstoð
ættingja og vina en alls verða um
170 gestir í veislunni, sem verður
haldin í sal Ferðafélags íslands.
Unnu ferð
til Bali
Þegar Ása og Halldór eru spurð
hvort til standi að fara í brúðkaups-
ferð kemur í Ijós að þau duttu al-
deilis í lukkupottinn fyrir skömmu.
„Ég skráði okkur í brúðkaupsleik
á útvarpsstöðinni Matthildi og
reyndar tveir vinir okkar líka,“ segir
Ása og bætir við að þegar
brúðhjón ársins hafi síðan verið
dregin út í beinni útsendingu hafi
þeirra nöfn komið upp úr pottinum.
„Ég átti alls ekki von á að við
yrðum dregin út“, segir Halldór.
„Ég var nú samt að hlusta á þátt-
inn og langaði að fylgjast með
hverjir yrðu dregnir úr pottinum. í
sama mund og á að fara að til-
kynna úrslit þá hringir síminn. Ég
lét símann bíða aðeins því ég vildi
fyrst heyra úrslitin en þá var
auðvitað verið að reyna að ná í mig
vegna þess að okkar nöfn komu úr
pottinum.
Þetta var náttúrlega rosalega
skemmtilegt, við unnum hálfs
mánaðar brúðkaupsferö til Bali
með öllu tilheyrandi, giftingarhring-
ana, morgungjöfina, freyðivín fyrir
hundrað manns, málverk, vegg-
klukku, blómin, borðbúnað, fáum
bíl að láni þennan dag, fáum Ijós-
myndatöku og sængurverasett",
seair Halldór.
Ása segir að upphaflega hafi
þau hugsað sér að fara til Ástralíu
því þau voru með skiptinema það-
an og ætluðu að heimsækja hann.
„Það var hinsvegar svo dýrt að við
ákváðum að láta það bíða aðeins.
Við förum hins vegar til Balí og það
er ekki annað hægt en að hlakka
mikið til.“
Kynntust
sem
unglingar
Finnskur siður er að
telja hrísgrjónin í hári
brúðarinnar eftir að hún
hefur fengið skvettu af
þeim yfir sig á leið úr
kirkjunni. Fjöldi grjón-
anna segir til um vænt-
anlegan barnafjölda.
Önnur leið til að ráða
í frjósemina er að
tengdamóðirin lætur
undirskál á höfuð brúð-
arinnar þegar hún stigur
fyrsta dansinn með
brúðgumanum. Undir-
skálin fellur á gólfið og
brotin eru vísbending
um hve mörg afkvæmi
hjónakomin eignast.
Göng I veisluna
f Armeníu þekkist það
að brúðarmeyjar og -
sveinar myndi tvær
samhliða fylkingar sem
skrúðgöng fyrir
brúðhjónin á leið í veisl-
una.
Með mömnnu
og pabba inn
kirkjugólfiö
Brúðir á Filippseyjum
kjósa sumar að vera
gefnar af báðum for-
eldrum sínum. Þá geng-
ur brúðurin með fööur
og móður inn
kirkjugólfið.
enskur
EINN fárra séríslenskra brúð-
kaupssiða felst í því að konur
skipi sér á bekk vinstra megin og
karlar hægra megin við kirkju-
brúðkaup. Siðurinn á rætur að
rekja langt aftur í aldir eða frá því
venja var að kirkjugestir kysstust í
lok guðsþjónustu. Alls óviðeigandi
þótti að karlar kappkostuðu að
tylla sér á bekk með álitlegri konu
í því skyni að stela frá henni kossi
eftir að hlýtt hafði verið á guðsorð.
Þess vegna var ákveðið að skipa
svokallaðan kvennabekk vinstra
megin ( kirkjunni og láta karlana
sitja hægra megin. Siðurinn hefur
verið aflagður við aðrar kirkjulegar
athafnir en giftingar.
LISTAVERK I BRUÐARGJOF
Hvergi meira urval af íslenskri myndlist
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14, sími 551 0400 og í Kringlunni, sími 568 0400