Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 D 5
PRESTURINN skellihlæjandi þegar brúðhjónin kyssast.
BIRNA og Gestur með synina Guðjón og Egil á
Ljósmyndastofu Suðurtands.
í SUÐUR-NÝJABÆ
í Þykkvabæ búa ný-
gift hjón, þau Birna
Guðjónsdóttir og
Gestur Ágústsson.
Þau voru gefin
saman eftir níu ára
sambúð 18. apríl sl.
í Þykkvabæjarkirkju.
Þau eiga tvo syni,
Guðjón 7 ára og
Egil 5 ára. Svo
skemmtilega vildi til
að móðir Birnu varð
sextug og foreldrar
Gests áttu 42 ára
trúlofunarafmæli
sama dag.
Að sögn Bimu voru
þau búin að ganga
með þetta í magan-
um í tvö ár, en endan-
leg ákvörðun var tek-
in um síðustu áramót.
„Sennilega var þetta
orðinn hæfilegur
reynslutími og tími
kominn til að taka
skrefið, ég held að
það verði erfiðara
hjá fólki eftir því
sem lengra líður á
sambúðina. Mig
hefur alltaf dreymt
um að gifta mig í
kirkju að viðstöddu fjölmenni og
hafa svolítið umstang, en Gestur
vildi í upphafi bara láta þetta fara
leynt," segir Birna. „Ég féllst þó á
að fara Birnu leið og sé aldeilis
ekki eftir því, þetta var fallegur
dagur og næst á eftir fæðingu
sona okkar það eftirminnilegasta í
lífi rnínu," bætir Gestur við.
Ákveðið öryggi
Þau voru sammála að það væri
góð tilfinning að vera gift og þvi
fylgdi ákveðið öryggi, „ekki síst fyr-
ir syni okkar, þá Egil og Guðjón.
Það var reyndar um-
stangsins virði að
fylgjast með þeim við
undirbúninginn og í at-
höfninni sjálfri, þetta
var mikil upplifun og
ekki síður stór dagur
fyrir þá eins og okkur.
Við höfðum strax
mótað okkur hugmyndir
um hvernig að málum
skyldi staðið, ég vildi
helst fá að gera sem
mest sjálf og með hjálp
fjölskyldu og vina feng-
um við útkomu sem við erum
hæstánægð með. Ég bakaði sjálf
ásamt móður minni og systur, en
keypti reyndar brúðartertuna í
Kökuvali á Hellu. Veislan var í sam-
komuhúsinu í Þykkvabæ og ég
skreytti salinn kvöldið áður.“
Ræðan vakti
kátínu
Að morgni brúðkaupsdagsins
fór ég í förðun og hárgreiðslu á
Hellu og að því loknu ókum við á
Selfoss með drengina í myndatöku
á Ljósmyndastofu Suðurlands.
Yngsta systir mín söng einsöng í
athöfninni, systir Gests, Sigríður,
var veislustjóri, og flutti hún okkur
kveðju i bundnu máli. Faðir minn
kom með bílinn sinn skreyttan
borðum og þannig var mest allt
heimafengið nema reyndar fatnað-
urinn, hann leigðum við hjá Brúð-
arkjólaleigu Katrínar," sagði Birna.
Það sem stendur þó uppúr að
þeirra sögn er athöfnin sjálf í kirkj-
unni, en sr. Auður Eir Vilhjálms-
dóttir gaf þau saman. „Hún Auður
hefur lag á að láta manni líða svo
vel hérna í kirkjunni okkar, og ræð-
an vakti almenna kátínu. Það var
svo létt yfir öllu og heimilislegt yfir-
bragð að eftir var tekið.
Og til að kóróna allt var
tónlistin frábær, kirkjukór
Þykkvabæjarkirkju söng
við undirleik organistans
okkar, Nínu Morávek,
Anna Kristín systir min
söng einsöng, lagið
„Brúðkaupið" sem Ellý
Vilhjálms gerði vinsælt
og Helga Árnadóttir frá
Hellu lék á þverflautu.
Systur okkar beggja
ein systurdóttir
Gests lásu ritningarorð,
þannig að fjölmargir fjölskyldu-
meðlimir og aðrir lögðu sitt af
mörkum til að gera okkur daginn
ánægjulegan."
„Eftir athöfnina var gestunum,
rúmlega eitt hundrað manns,
boðið til veislu í samkomuhúsinu
á staðnum. Síðar um kvöldið átt-
um við rólega stund heima með
örfáum nánum ættingjum og kus-
um svo að eyða brúðkaupsnótt-
inni í okkar eigin hjónarúmi sem
var reyndar fullt af hrísgrjónum
sem einhver ónefndur ættingi
hafði laumað undir sængina,"
sögðu þau Birna og Gestur að
lokum.
Eiqðu bjarta framlíá
meSSERTA.
V
HÚSGAGNAHÖLUN
Bfldshöföi 20 -112 Rvfk - S:510 8000
h h .ft. L-
l^eqar pu q itTir piq
.. ver
vera
r a
a
id.
om