Morgunblaðið - 30.05.1998, Síða 8
8 D LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
irbúa
Saumastofan
Nálaraugað
Fífuhjalla 6, 200 Kópavogi,
sími 554 3938.
Sérsauma íslensba
þjóðbúninga kvenna fyrir
öll hátíðleg tækifæri.
Jófríður Benediktsdóttir,
klæðskera- og kjólameistari.
ÞAU ákváðu að láta gifta sig á
gullbrúðkaupsdegi foreldra
brúðgumans. Brúðguminn, Viðar
Austmann Jóhannsson, segir það
hafa haft tilfinningalegt gildi fyrir
sig að ganga upp að altarinu á
gullbrúðkaupsafmæli foreldra
sinna en hann og Írís Fjóla Bjarna-
dóttir gengu í hjónaband hinn 23.
ágúst í fyrra.
„Foreldrar mínir eru einstök
hjón og mjög samrýnd. Þau njóta
lífsins saman eftir
að hafa komið upp
börnum. Það var
mjög gaman að
geta fagnað með
þeim þennan dag“,
segir Viðar.
„Við vorum með
veisluna á Hótel
Sögu og fengum
tvær svítur, eina
fyrir okkur og eina
fyrir foreldra mína. Eftir okkar
veislu sem heppnaðist frábærlega
var síðan haldið upp á þeirra
tímamót. Viðmótið og þjónustan
sem við fengum þennan sólar-
hring á Hótel Sögu var frábær."
Bauð henni í
Húsdýragarðinn
- Hvernig kynntust þið?
„Það var nú eiginlega fyrir milli-
aöngu sameiginlegra vina,“ segir
Iris. „Hlutirnir gerðust hratt en
fyrsta stefnumótið okkar ákvað
Viðar að yrði í Húsdýragarðinum.
Vinir Viðars höfðu á orði að hann
hefði valið Húsdýragarðinn svo ég
vendist vinum hans þegar þar að
kærni!" Viðar samsinnir þessu
ekki heldur segir að þegar hann
hafi falast eftir stefnumóti hafi hún
verið á leið í Húsdýragarðinn með
dóttur sína og hann hafi boðist til
að sækja þær og bjóða þeim
þangað.
Útbjó sjálf
brúðarvöndinn
Brúðarvöndinn sá íris um að út-
búa ásamt mágkonu sinni. „Mig
langaði til að hafa skreytingarnar
eftir mínu höfði, vildi t.d. hafa
brúðarvöndinn venjulegan blóm-
vönd. Á bílinn, í kirkjuna og í sal-
inn útbjó ég ásamt vinkonu minni
slaufur úr satíni og blúndum."
Vinur þeirra í fornþílaklúbbnum
lánaði þeim btlinn sinn og ók þeim
á brúðkaupsdaginn og séra Sig-
urður Árnason gaf þau saman [
Háteigskirkju. Systur brúðhjón-
anna tóku á móti gestum og
pabbi írisar, Bjarni Guðmundsson,
leiddi hana inn kirkjugólfið.
Stóri
dagurinn
„Þetta var alveg frábær dagur,"
segja þau svo til samtímis þegar
við rifjum upp brúðkaupsdaginn.
Þau verða svolítið skrítin á svipinn
þegar ég spyr hvort Viðar hafi ekki
séð kjólinn fyrr en í kirkjunni.
„Jú, ég sá hann
og þér að segja þá
valdi ég kjólinn,"
upplýsir Viðar stolt-
ur þegar myndir úr
brúðkaupinu eru
skoðaðar. fris bætir
við að hún hafi
viljað að Viðar væri
ánægður með kjól-
inn og því haft hann
með í ráðum. „Ég
var sjálf búin að fá augastað á
tveimur öðrum kjólum en Viðar sá
þennan og ég féll fyrir honum en
ekki fyrr en ég var búin að máta
hann.“
Átti gott samband við
stjúpforeldra
Viðar og fris áttu sitt hvort barn-
ið þegar þau kynntust, Viðar á
Ernu Rán sem er að verða tvítug
og íris á Sunnu Mary sem er átta
ára.
-Var ekkert mál að sameina
þessa flóknu fjölskyldu?
„Jú, vissulega komu upp spurn-
ingar í því sambandi en Erna Rán
er orðin fullorðin og meira að
segja ekki svo mikið yngri en ég.
Við kviðum því mest að hitta hvor
aðra en erum góðar vinkonur í
dag“, segir íris.
Hvað snertir Sunnu Mary þá
hafði ég aldrei áhyggjur af því að
Viðar yrði henni ekki góður. Ég bý
sjálf að því að hafa átt stjúpmóður
og stjúpföður og bæði reyndust
þau mér mjög vel. Ég hef engar
forsendur fyrir því að ætla að
hann muni verða síðri í því hlut-
verki.“ Viðar og fris eignuðust svo
Margréti Ýr Austmann í byrjun
þessa árs.
Fjölskylduráðgjöf
„Áður en við giftum okkur horfð-
um við á foreldra mína og veltum
fyrir okkur hvað við gætum gert til
að eiga möguleika á farsælu
hjónabandi sem entist í yfir
fimmtiu ár“, segir Viðar. „Við lok-
I hjónaband
á gullbrúð-
kaupsdegi
foreldra
brúðgumans
AÐ brúðhjónin stígi brúðarvalsinn í
brúðkaupsveislunni setur
skemmtilegan svip á brúðkaupið.
Kara Arngrímsdóttir, annar eig-
andi Dansskóla Jóns Péturs og
Köru, segir æ algengara að
verðandi brúðhjón komi í einn til
tvo einkatíma til að læra að dansa
valsinn eða hressa upp á fyrri
kunnáttu í valsi. Stundum komi
foreldrar beggja með í danstímann.
Með því móti geti þrjú pör hafið
dansinn í brúðkaupsveislunni. Aðrir
Á BRÚÐKAUPSDAGINN. Brúðhjónin Iris Fjóla Bjarnadóttir og Viðar Austmann Jóhannsson ásamt Ernu Rán,
dóttur Viðars, og Sunnu Mary, dóttur irisar. Með þeim á myndinni eru foreidrar Viðars þau Þórhalla Karlsdóttir
og Jóhann Eymundsson.
um ekkert augunum fyrir því að
helmingur hjónabanda endar með
skilnaði. Tvö af hverjum tólf
hjónaböndum eru hamingjurík en
hin tíu eru byggð á öðrum for-
sendum.
Við ákváðum því að fara í fjöl-
skylduráðgjöf hjá Fjölskylduþjón-
ustu kirkjunnar til að undirbúa
okkur fyrir hjónabandið. Við
vildum fá aðstoð til að skilja hvort
annað og geta sett okkur í spor
hvors annars. Við kunnum oft ekki
að leysa ágreining á sanngjarnan
hátt, þetta snérist yfirleitt um að
vinna og tapa.“
Betra
hjónaband
sláist svo smám saman í hópinn. f
öðrum veislum stígi aðeins
brúðhjónin dans.
Kara segir að mjög gaman sé að
vinna með pörunum. „Dagurinn
tengist spenningi og tilhlökkun. Við
smitumst auðvitað af því og reyn-
um að gera stundina hérna eins
skemmtilega og hægt er - passa
upp á að fólk fari ekki að kvíða fyr-
ir að stíga dansinn. Að sporin séu
einföld og dansinn verði smekkleg-
ur,“ segir hún og tekur fram að ef
hún hitti pörin eftir giftinguna lýsi
þau oft yfir sérstakri ánægju
með að hafa skellt sér í
danstíma.
Oftast nægir brúðhjónum
að koma í einn hálftíma
einkatíma til að læra valsinn og
kostar hver tími 1.300 kr. Stundum
koma pörin aftur rétt fyrir brúð-
kaupið. Ekki hefur verið tekið
hærra verð fyrir fleiri pör, t.a.m.
þrjú í sama tíma.
Morgunblaðið/Kristinn
GUÐNÝ Danivalsdóttir og Egill Lár-
usson endurnýjuðu kunnáttu sina í
valsi fyrir brúðkaupið.
íris bendir á að upprunafjöl-
skyldur þeirra séu ólíkar og vænt-
ingarnar sem þau hafi verið með
til sambandsins hafi ekki alltaf
verið þær sömu.
Þau eru sammála um að ferðirnar
þeirra til fjölskylduráðgjafans hafi
skilað sér í betra hjónabandi en
ella. „Mörg pör kannast við að
geta deilt endalaust vegna heimil-
isverkanna og telja að makinn sé
með stanslaust nöldur og leiðindi.
Á tímabili var okkar „skitastuðull"
mjög ólikur en okkur tókst að
nálgast hvort annað á þeim vett-
vangi.
Við erum viss um að flest pör
hefðu gott af því að undirbúa sig
fyrir hjónabandið með þessum
hætti. Tveir einstaklingar eru
aldrei eins og við teljum það
styrkleikamerki að vilja leggja
vinnu í sambandið áður en gengið
er upp að altarinu."
ÍRIS Fjóia Bjarnadóttir og Viðar
Austmann Jóhannsson.
ÞÓRHALLA Karlsdóttir og Jóhann
Eymundsson fyrir 50 árum.
HRI'SGRJÓNUNUM rigndi yfir þau.
VANTAR ÞI C3 SAL FYRIR
hríifiUaupiö
VEISLUSALUÍL
F ÓSTBRÆÐRA
FÓSTDMÐRAHCIMILINU, LANOHQLTBVCDI 109-1 1 1