Morgunblaðið - 30.05.1998, Side 10
MORGUNB LAÐIÐ
10 D LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
Góðar með rjóma
Vöfflujárn og rjómasprautur
í miklu úrvali
A v IK !■ ^
CVerð frá 4,990. kr)
omkOi
PAS prentsmiðja
bjjður
'œmmi'i
Að koma til okkar i Grjótajborpið og lita á
möguleikana sem 75 ára reynsla i
hoÓskortaprentun hýÓur upp á.
PÁS prentsmiðja stofnuð 1922
Mjóstræti 6 • Grjóta})orpi • 101 Reykjavíb
Sími: 551 4352 • Fax: 562 2488
Netfang: pasprent@isJandia.is
3rúðkaup úti
Hreindýra-
skinn og
íslenskar jurtir
BRÚÐKAUPSDAGURINN er stór
dagur. Allt það tilfinningaflóð og
umrót sem fylgir þessum eina
degi er mikið og verður aldrei að
fullu birt, heldur geymt í hjörtum
og hugum elskendanna. En
hvernig á að búa svo um slíkan
dag að hann verði sérstakur og
eftirminnilegur í minningunni?
Sumir vilja hafa glans og glæsi-
legheit á meðan aðrir vilja ekkert
prjál, heldur einungis látlausa at-
höfn og einfaldleika. Svo eru það
þeir sem unna náttúrunni og vilja
helst hvergi annars staðar vera og
velja sér hana sem vettvang til að
bindast elskunni sinni í þvi um-
hverfi sem þeir unna mest.
Ást í íslenskri
náttúru
„Gólfið undir fótum þér er
jörðin, loftið yfir höfði þér er him-
ininn. Þú horfir upp til himins og
fyllist lotningu yfir óendanleika til-
verunnar. Þú finnur að framtíð þín
er traust sem jörðin og björt og
við sem himinninn."
Þetta er jörðin
sem ég ann
- En hvernig á að tengja brúð-
kaup við íslenska náttúru?
Guðrún Sigurðardóttir í Tóm-
stundaiðjunni á Egilsstöðum hef-
ur auga fyrir að nýta það sem til
fellur í náttúrunni og ýmislegt af
því dóti sem maðurinn hefur skilið
eftir. Hún hefur verið að þróa
ýmsar skreytingar og finnst tilvalið
að nota náttúruafurðir í brúðar-
skraut. Mosi, börkur, lyng, njóli,
hvönn, gaddavír, tunnubotnar,
járnplötur og þakrennur, allt í
bland við blóm og blúndur og
annað fíngert náttúruvænt hráefni.
Guðrún segir að í þau þrjú ár, sem
hún hefur unnið sérstaklega með
þessar endurnýttu afurðir, sé fólk
farið að vakna og sjá hvað hægt
sé að gera. Margir færa henni
gamla ryðgaða tunnubotna og
annað „drasl" í stað þess að
henda því. Guðrún litur á þetta
sem endurnýtingu og segir fólk
kunna að meta þessa tegund af
skreytingarlist, margir segi þetta
vera „flott efni“.
Signý Ormarsdóttir fatahönnuð-
ur, sem vinnur mikið úr hreindýra-
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
ÍSLENSK brúðhjón í fötum úr hreindýraleðri, ástfangin i ísienskri náttúru.
Biómvöndur brúðarinnar er úr járni, rósum og íslensku lyngi.
leðri, segir að sér
finnist spennandi
aö vinna úr
hreindýraleðrinu þvi
það sé hráefni úr
nánasta umhverf-
inu. Hún vinnur líka
úr ýmsu öðru
hráefni og blandar
þessu jafnvel sam-
an. Hún hannar
brúðarkjóla úr
hreindýraleðri og
eins og sjá má á
myndinni er brúð-
guminn í buxum úr
hreindýraleðri.