Morgunblaðið - 30.05.1998, Side 16
j 16 D LAUGARDAGUR 30. MAÍ1998
MORGUNBLAÐIÐ
Frí innpökkun •
Sérskreytum og pökkum myndum
til tækifærisgjafa - fyrir brúðkaup og
i LAUGARDAL afmaeli. Listaverkakort fylgir mynd
Engjateigur 17 • Sími 568 0430 hverrL
Opið: mánudaga - föstudaga kl. 12-18 • laugardaga kl. 11-14
Efst
á óskalista
brúðhjónanna!
mest selda heimilisvélin í 50 ár
• 5 gerðir hrærivéla í hvrtu, svörtu, bláu, rauðu og gráu
• Fjöldi aukahluta
• Islensk handbók fylgir með uppskriftum
• Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir
• Sérstök brúðkaupsgjöf:
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með ísaumuðu nafni
sínu og brúðkaupsdegi
Þú gefur ekki gagnlegri gjöf
Einar
Farestveit&Cohf
Borgartúni 28 ® 562 2901 og 562 2900
„ÉG HEF smám saman verið að
færa mig yfir í svokallaða millirétti.
Eins og nafnið ber með sér eru
réttirnir ekki jafn þungir og venju-
legir aðalréttir með tilheyrandi
meðlæti. Milliréttir henta við flest
tækifæri, t.a.m. skírnarveislur, af-
mælis- og stúdentsveislur, og eru
kjörnir fyrir síðdegisbrúðkaup,"
segir Jóna Gunnhildur Ragnars-
dóttir veitingakona á Reyðarfirði.
Jóna Gunnhildur er nánast
sjálflærð í faginu. Eftir að hafa sótt
nokkur matreiðslunámskeið til að
fóta sig í byrjun fór hún að prófa
sig áfram upp á eigin spýtur. Einn
uppáhaldsefniviður Jónu Gunn-
hildar er fiskur. „Ég hef sérstakt
dálæti á síld og fiski og hef gaman
af því að grafa mat. Huga þarf að
undirbúningnum í tíma enda þarf
maturinn oft að liggja í leginum í
tvo til þrjá daga. Útkoman er þess
virði og grafinn matur skapar
veisluborðinu ákveðna sérstöðu
miðað við hefðbundin köld borð,“
segir hún.
Engum dylst að henni þykir
gaman að bjóða upp á hreindýra-
kjöt. „Hreindýrakjöt er afar bragð-
mikið og skemmtilegt. Gallinn er
hins vegar sá að oft er erfitt að
nálgast kjötið og kaupa þarf
þónokkurt magn í einu,“ segir hún
og fellst á að gefa lesendum upp
nokkrar af uppáhaldsuppskriftun-
um sínum.
GRAFLAXRÚLLA MEÐ
REYKTUM SILUNGI
Graflaxflak er skorið örþunnt eftir
endilöngu, sett á plastfilmu, tvö
stykki hlið við hlið.
Fylling
300 g reyktur silungur úr
Mývatnssveit
2 stifþeyttar eggjahvítur
1 dl sýrður rjómi
1 dl þeyttur rjómi
8 blöð af matarlími - mýkið
í köldu vatni
Silungurinn er rifinn niður. Rjóma,
sýrðum rjóma, eggjahvítu, blandað
saman við silunginn. Eftir að mat-
arlímið hefur verið leyst upp í
nokkrum dropum af koníaki eða
vatni er því bætt við hræruna. Öðr-
um helmingi hrærunnar er smurt
yfir laxaflökin, salatblöð lögð yfir,
og hinum helmingnum smurt ofan
á. Að því loknu er flakinu rúllað
upp eins og rúllutertu og komið
fyrir í ísskáp yfir nótt. Skorið í
sneiðar áður en borið er fram.
DJÚPSTEIKTAR
HREINDÝRABOLLUR
MEÐ BLÁBERJASÓSU
500 g hreindýrahakk
2 tsk púðursykur
1A bolli brauðrasp
1 egg
1 tsk salt
% tsk pipar
75 g rifinn gráðostur
1 rifinn laukur
Hrærið öllu vel saman, mótið bollur
og djúpsteikið fallega brúnar.
Bláberjasósa
Takið bláberjasultu úr einni krukku,
bætið smá púrtvíni út í og hitið,
þykkið með kartöflumjöli eða
maizena.
Skyrsíld
300 g skyr
2 dl þeyttur rjómi
1 smátt saxaður laukur
1 dós af marineraðri síld
- best frá KK matvælum
Þerrið síld og lauk. Hrærið skyri og
rjóma vel saman og bætið síld og
lauk út í. Borið fram með rúg-
brauðsteningum.
Snjóboltar
400 g smátt saxaðar döðlur
200 g súkkulaði
1 dl rjómi
30 g palmínfeiti
5 msk sérrí
4 msk flórsykur
Hitið saman rjóma, súkkulaði, pal-
mínfeiti og döðlur. Bætið síðan við
sérríi og flórsykri og hrærið vel.
Kælið og mótið í kúlur. Kúlunum
er að lokum velt upp úr flórsykrin-
um.
GRAFINN HREINDÝRA-
VÖÐVI MEÐ
RIFSBERJASÓSU
Hyljið vöðva úr læri með grófu salti
í sjö klukkustundir. Blandið síðan
saman:
2 msk salt
1Vx msksykur
1 msk sítrónupipar
2 msk sinnepsfræ
1/a msk mynta
1 msk rósmarín
2 msk timjan
1 msk dillfræ
1 Vá msk rósapipar
Skolið saltið af kjötinu og þerrið.
Þekið kjötið því næst með krydd-
blöndunni og dreifið Vá dl af
koníaki yfir allt saman. Látið kjötið
standa í kæliskáp í tvo sólarhringa.
Takið svo kjötið og frystið, skerið
svo kjötið hálffrosið í þunnar
sneiðar. Rúllið sneiðunum upp og
setjið í litla smjördeigsbolla, setjið
smá sósu í miðjuna og skreytið
með t.d. dilli og kokkteilberi.
Rifsberjasósa
1 dós sýrður rjómi
2 msk rifsberjahlaup
1/a dl púrtvín
Þeytið vel saman.
Þórarinn Guömundsson matreiðslumeistari - Veisluföng í allar veislur og samkvæmi fyrir 6 manns og fleiri. Alhliða borðbúnaðarleiga. Faglegar ráðieggingar og tilboð samdægurs.
una heim í stoíli
kaupið, afmælið og útskriftina
matseðill í suðrænum stfl, léttur og ódýr!
þess sem við kynnum í tilefni sumarsins, er nýr
og spennandi veislumatseðill með mörgum
valmöguleikum. Réttirnir eru bæði heitir og kaldir auk
þess sem léttir réttir eru fjölbreyttari en áður.
VERÐ FRÁ 980- KRÓNUM Á MANN.
VHSLUSMIÐJAN
Álfheimum 74, Glæsibæ, sími 588-7400