Morgunblaðið - 26.06.1998, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.06.1998, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 141. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Níu daga heimsókn Bills Clintons Bandarfkjaforseta til Kína hafín Handtaka andófsmanna skyggir á upphaf Kínafarar Xian. Reuters. The Daily Telegraph. NÍU daga heimsókn Bills Clintons forseta Bandaríkjanna til Kina hófst í gær í borginni Xian en þetta er í fimmta sinn sem Bandaríkjafor- seti heimsækir landið. Við komuna lýsti forsetinn því yfir að höfuð- styrkur Bandaríkjanna fælist í „virðingu fyrir verðmæti, virðu- leika, getu og frelsi hvers borgara“ og að sömu gildi myndu verða horn- steinn „nýs Kína“. Skömmu áður en Clinton lenti, voru þrír kínverskir andófsmenn handteknir. Skyggði það óneitan- lega á upphaf ferðarinnar en hún hefur víða verið gagnrýnd, ekki síst af baráttumönnum fyrir mannrétt- indum, sem átelja hann fyrir að láta mannréttindamál víkja fyrir við- skiptahagsmunum. Hvorki kín- verskir né bandarískir embættis- menn segja mikilla tíðinda að vænta úr ferð Clintons og er talið að tákn- rænt gildi ferðarinnar verði mun meira en beinn árangur. Clinton, eiginkona hans, Hillary Rodham, og dóttirin Chelsea lentu í Xian um kvöldmatarleytið að kín- verskum tíma eftir átján stunda flug. Með í för eru ennfremur Mad- eleine Albright utanríkisráðherra, Robert Rubin fjármálaráðherra og William Daley viðskiptaráðherra. Clinton varkár í tali Tekið var á móti forsetanum með tilkomumiklum dansi, söng og trumbuslætti í hinni sögufrægu borg og var honum afhentur lykill að henni. Við komuna ávarpaði Clinton hóp útvalinna gesta. I ræðu sinni boðaði hann nýjar hugmyndir sem sæi stað í dögun nýs Kína. Sagði forsetinn mikilvægt að gefa öllum íbúum Kína „kost á að nýta getu sína til fulls“, slíkt væri for- senda framfara og árangurs. Forsetinn var að öðru leyti var- Reuters BILL Clinton Bandaríkjaforseti heilsar börnum í Xian í Kína í gær. Með forsetanum er Cheng Andong, hér- aðssfjóri í Shaanxi, en Clinton heimsækir fimm borgir þá níu daga sem ferð hans stendur. kár í tali en ræðu hans var ekki sjónvarpað eða útvarpað beint. Ræðuhöldum Clintons hefur verið stillt mjög í hóf og eini blaðamanna- fundurinn sem hann heldur verður í Hong Kong. Forsetinn mun hins vegar halda ræðu á Torgi hins himneska friðar á morgun, laugar- dag, þar sem forseti Kfna, Jiang Zemin, mun taka á móti honum. Þeirri ræðu verður heldur ekki út- varpað beint í Kína enda búist við því að Clinton muni kveða fastar að orði um mannréttindamál en hann gerði í gær. Sagði einn ráðgjafa Clintons að hann myndi hvetja Ji- ang til að leyfa opnari stjómmála- umræðu í Kína en nú er. Þessi liður heimsóknarinnar hef- ur verið harðlega gagnrýndur enda torgið í hugum margra tákn um mannréttindabrot kínverskra yfir- valda sem brutu friðsamleg mót- mæli námsmanna þar niður með grimmilegum hætti árið 1989. Þremenningamir sem handteknir voru í gær, Yang Hai, Yan Jun og Li Zhiying, höfðu hvatt Clinton til þess að ræða við andófsmenn í Kínaför- inni. Hefur eftirlit með öðmm and- ófsmönnum verið hert á meðan á heimsókninni stendur, að því er virðist til að koma í veg fyrir að þeir ræði við vestræna fjölmiðlamenn. Lítið var fjallað um heimsókn Clintons í kínverskum fjölmiðlum í gær og mannfjölda, sem safnast hafði saman á götum Xian, var dreift skömmu fyrir komu hans. Annað er uppi á teningnum í Bandaríkjunum en tæplega 1.000 fréttamenn fýlgja forsetanum. Sænska súrsíldin í hættu Ósló. Morgunblaðið. SVIAR hafa nú miklar áhyggj- ur af því að hin hefðbundna súrsfld (surströmming), sem talin er ómissandi á sænsk veisluborð, verði að öllum l£k- induni bönnuð á næstu dögum. Fari þar fyrir henni eins og munntóbakinu, er ekki hlaut náð fyrir augum framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins í aðildarviðræðum Svía að því. Svíar fengu á sínum tíma und- anþágu fyrir munntóbakið inn- an eigin landamæra en svo virðist sem embættismenn í Brussel muni ekki miskunna sig yfir súrsfldina. Sfldin er veidd í Eystrasalti, söltuð og látin geijast í viðar- tunnum í 10-12 vikur áður en hún er sett í niðursuðudósir. Hefur það vakið furðu margra að andstaða ESB við súrsfldina er ekki vegna þefs- ins af sænska þjóðarréttinum, heldur þess að hún hefur geij- ast í viðartunnum. Samkvæmt reglum ESB er ekki heimilt að geyma fisk, sem ætlaður er til sölu í mat- vöruverslunum, í trétunnum. Mótbárur Svía um að þeir hafi verkað og snætt fisk af þessu tagi frá sextándu öld hafa ekki verið teknar til greina. Eru þeir afar sárir vegna málsins, ekki síst þar sem litið er svo á að með þessu sé verið að svipta þá af- sökun til að skola niður bragðmiklum fiskinum með staupi af snafsi. Svíar vonuðust lengi vel til að reglum ESB yrði ekki framfylgt af hörku, þar sem súrsfldin hefur til þessa ekki verið eftirsótt útflutnings- vara. Engu að síður hóf ESB málarekstur gegn Svíum og í byrjun síðasta árs fengu þeir síðustu viðvörun og átján mánaða frest til að kippa þessum málum 1 lag. Rennur hann út 1. júlf nk. * Norður-Irar kusu sitt eigið þing í gær í fyrsta sinn síðan 1972 Dregur úr fylgi við Trimble IMF lánar Rússum Washinglon. Reuters. ÁKVEÐIÐ var á fundi Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (IMF) í gær að veita Rússum lán að andvirði 670 milljóna dala, um 47 milljarða ísL kr. IMF frestaði veitingu lánsins í síðustu viku þar til Ijóst væri að rússnesk yfirvöld myndu standa við loforð sín um efnahagsumbæt- ur. Fulltrúar IMF hafa kynnt sér boðaðar efnahagsaðgerðir stjórnar Sergeis Kíríjenkós síðustu daga og féllst sjóðurinn á lánveitinguna, auk þess sem greiðslufrestur á eldri lánum til Rússa hefur verið lengdur um eitt ár. Heimildarmenn Reuters sögðu hins vegar að frek- ari lán til Rússa hefðu ekki verið rædd á fundinum en fjármálaráð- herra Rússa lýsti því yfir í síðustu viku að Rússar þyrftu allt að 10 milljarða dala lán, sem nemur um 700 milljörðum ísl. kr. Belfast. Morgunblaðið. ÚTGÖNGUSPÁR í þingkosning- unum á Norður-írlandi, sem fram fóru í gær, benda til þess að tölu- vert hafi dregið úr fylgi Sambands- flokks Ulsters, flokks Davids Trimble. Fylgismenn friðarsam- komulagsins, sem gert var í apríl, njóta þó yfirgnæfandi stuðnings, ríflega 75%, samkvæmt útgöngu- spánni, en flokkar andvígir því hafa um 23% fylgi. Mestur stuðningur er við flokk hófsamra kaþólikka en vegna hins flókna kosningafyrir- komulags kann þessi spá þó að reynast ónákvæm. Úrhellisrigning, heimsmeistara- keppnin í knattspyrnu og dauf kosningabarátta er talin útskýra hvers vegna kosningaþátttaka var talsvert minni í kosningunum í gær en í þjóðaratkvæðagreiðslunni fyr- ir fimm vikum. Þó var vonast eftir því að hún hefði náð 70% á lands- vísu en það fæst ekki staðfest fyrr en talning hefst um níuleytið í dag. Má gera ráð fyrir fyrstu tölum um kaffileytið og vonast er til að taln- ingu Ijúki í kvöld en vel gæti farið svo að allar niðurstöður liggi ekki fyrir fyrr en á morgun. Samkvæmt útgönguspánni fær SDLP, flokkur hófsamra kaþ- ólikka, 25% fylgi, UUP, Sambands- flokkur Ulster, 20%, DUP, flokkur Ian Paisleys, 19%, Sinn Fein 13% og Alliance, miðjuflokkur kaþ- ólikka og mótmælenda, 8%. Sam- kvæmt þessu mun forsætisráð- herra væntanlega koma úr röðum hófsamra kaþólikka. Það sem kem- ur hins vegar mest á óvart er hve dregið hefur úr fylgi við flokk Trimbles en hann hefur verið stærsti stjómmálaflokkurinn á N- írlandi til þessa. Góðri útkomu „nei-manna“ spáð Paul Bew, prófessor við Queens- háskólann í Belfast og sérfræðingur í n-írskum stjórnmálum, sagðist í samtali við Morgunblaðið gera ráð fyrir því að niðurstaða kosninganna yrði með líkum hætti og í þjóðarat- kvæðagreiðslunni fyrir fimm vikum, þ.e. að flokkar hlynntir páskasam- komulaginu mjmdu hljóta rúmlega 70% greiddra atkvæða. David Trimble sagði á síðustu dögum kosningabaráttunnar að hann yi’ði harla undrandi ef fleiri en tveir tugir andstæðinga samkomu- lagsins næðu kjöri en Bew taldi hins vegar líklegra að nær 30 af þeim u.þ.b. 65 sambandssinnum sem næðu kjöri myndu reyna að hefta störf þess. „Eg geri ráð fyrir að Trimble vinni nauman meirihluta. Niðm-staðan verður kannski ekki áfall fyrir hann en því miður held ég að staða hans verði áfram erfið og starfsemi þingsins nýja muni ekki hefjast þrautalaust.“ Kosið er í 18 kjördæmum og verða valdir 6 fulltrúar í hverju, alls 108 fulltrúar. Þeir munu sennilega hittast á miðvikudag í næstu viku í Stormont-kastala. Valinn verður forsætisráðherra og aðstoðarforsæt- isráðherra og sett upp eins konar skuggai-áðuneyti fyrst um sinn. Ekki er gert ráð fyrir að ríkisstjóm hefji eiginleg störf sín fyrr en í haust og að loknum ýmsum lagabreyting- um og foiTnsatriðum mun hið nýja þing síðan hefja störf að fullu í upp- hafi næsta árs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.