Morgunblaðið - 26.06.1998, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Ljóska
Smáfólk
Óli Skans var ekki
rajög rómantískur,
Kalli.
Ég geymdi vals- Hvað með glæsibif- Hvernig stóð á Ekki bjóða okkur
inn fyrir þig, reiðina, Kalli? Við því að þú dast á fleiri dansleiki,
Kalli, en ég sá sáum heldur enga í Óla Skans? Kalli...
þig aldrei ... glæsibifreið ...
Margir eru í hjarta-
sorg eftir ballið ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Unglingavinna í Keflavík.
Hreinasta landið
Gerhard Hahner skrifar:
Ég hef dvalið um nokkurt skeið í hinu
yndislega landi ykkar. Fyrir fjörutíu
árum starfaði ég við blómaskreyting-
ar hjá Flóru í Austurstræti. Nú var
mér boðið af vini mínum, Friðfínni
Kristjánssyni, að vera viðstaddur út-
skrift dóttur hans en hún lærði á sín-
um tíma þýsku á heimili okkar.
Ég verð að koma einu á framfæri
við ykkur. Á öllum ferðalögum mín-
um um heiminn eru það ísland,
Ástralía og Singapore sem standa
uppúr hvað hreinlæti varðar. Ef litið
er á Evrópu í heild og Kanaríeyjar,
Um ánauð
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
LAUGARDAGINN 30. maí sl. birtist
á bls. 39 í Morgunblaðinu grein, er
ber heitið Að reykja eða ekki reykja.
Höfundur: Valgeir Skagfjörð, leikari
og fyrrverandi reykingamaður.
Ég vil byrja grein mína með því
að óska Valgeiri, vini mínum, inni-
lega til hamingju með að vera laus
undan ánauð tóbaksins. Hann hefur
hafið nýtt og betra líf, ef svo má að
orði kveða, með því að segja skilið
við vindlinginn fyrir fullt og allt.
Sú var tíð, að við Valgeir unnum
við sömu stofnunina, nefnilega
Bamaskóla Akraness, sem nú hefur
breytt um heiti og nefnist Brekku-
bæjarskóli. Öllu breyta þeir, sagði
kerlingin forðum. Nú þekki ég ekki
lengur heiti nema fárra skóla. Heit-
um margra þeirra hefur verið breytt,
víst til samræmis við breytta tíma.
I Barnaskóla Akraness voru reyk-
ingar kennara ekki leyfðar innan
dyra stofnunarinnar, þegar við Val-
geir störfuðum þar, en það var vet-
urinn 1979-1980. Þau, sem þetta iðk-
uðu og gátu raunar ekki verið án
þess, að þeim sjálfúm fannst, fóru út
fyrir skólann og púuðu í gríð og erg.
Þeirra á meðal var Valgeir sem þá
var orðinn forfallinn reykingamaður,
þótt aðeins rúmlega tvítugur væri.
Mig minnir raunar, að eingöngu
karlar úr hópi kennara hafi réykt
þama. Og ég verð að segja, að mér
fannst grátlegt að horfa upp á þessa
vesalings menn híma úti í jafnvel
verstu veðrum, til að fullnægja þess-
ari tilbúnu löngun sinni, því að eng-
inn er fæddur með þeim ósköpum að
kreista reyk úr tóbaksvindlingi og
sjúga hann niður í lungun.
Og fyrst ég minnist á Valgeir Skag-
íjörð, get ég ekki látið hjá líða að
segja dálítið frekar frá reykingum
svo dæmi sé tekið, er sóðaskapurinn
með því mesta sem gerist í heiminum.
Ég hef aldrei séð jafnmikið af ungu
fólki taka þátt í að hreinsa landið og á
Islandi. Haldið þessu áfram og sýni
þýsku stjóminni og Þjóðveijum
hvemig á að ganga um landið. Ég
held hins vegar að ungmenni okkar
myndu aldrei fást til starfa af þessu
tagi né heldur stjómmálamenn.
GERHARD HAHNER
Ostermoorweg 70
D-25474 Bönningstedt
Þýskalandi
tóbaksins
hans. Vona ég, að það styggi hann
ekki. Ég vissi, að hann reykti mikið
og minntist ég stundum á það við
hann, víst til að fá hann til að leggja
þennan óvana niður. Hann sagði mér
eitt sinn, að reykingamar væra að
verða sér til ama. - Nú, hvemig þá,
spurði ég. - Er eitthvað að þér? - Jú,
sagði hann. Ég vakna á nóttunni, með
þennan líka kveljandi hósta. - Þú ætt-
ir að fá þér eitthvað að drekka, sagði
ég, og vita, hvort hóstinn minnkar
ekki. Það sagðist Valgeir hafa reynt,
en það hefði ekki borið árangur. -
Nú, hvað gerðirðu þá, spurði ég. Þá
kom svar, sem ég man vel enn, og
sýnir kannski betur en nokkuð annað,
hvers konar vítahringur reykingar og
öll tóbaksnotkun í raun er. Valgeir
sagði: - Ég fæ mér bara sígarettu, þá
snarhættir hóstinn!
Hér er að lokum ljóð, sem ég setti
eitt sinn saman um það að reykja
eða ekki reykja.
Efþúreykir:óspart
umhverfi þitt spillist,
þrek og heilsa þverrar;
þá er hætta af eldi.
Ilm- og bragðskyn bilar;
bætast á þig hrukkur.
Fjármunum er fargað;
fordæmi slæmt er gefið.
Efþúreykirekki:
afreksgeta meiri,
öndun auðveldari,
andrúmsloftið hreinna.
Breytt og betri líðan,
blóðið örar streymir.
Fersk og fyhri skypjun;
fijálsari þín tilvera.
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, Reykjavik.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.