Morgunblaðið - 26.06.1998, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
GUÐMUNDUR
ELÍASSON
+ Guðmundur Elí-
asson mynd-
höggvari fæddist í
Reykjavík 13. janúar
1925. Hann lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 12. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Ehas
Hjörleifsson múr-
arameistari, f. 1899
á Eyrarbakka (af
skaftfellskum ætt-
um), d. 1938 í
Reykjavík, og eigin-
kona hans, Ingibjörg
Guðmundsdóttir frá
Tungu í Gaulveijabæjarhreppi.
Systkini Guðmundar voru 1)
í París í júlí 1952 síðdegis sat ég
á Café Select og las dagblað yfír
kaffibolla þegar ungur maður,
grannur og hávaxinn, staðnæmdist
í anddyrinu, horfði á mig, gekk síð-
an til mín og spurði hvort ég væri
íslenskur. Þegar ég hafði jánkað
því tók hann mig tali. Var þar
Hreinn Steingrímsson. Varð sá
fundur okkar til þess að degi eða
tveimur síðar kynntist ég Guð-
mundi Elíassyni, sem ég hafði áð-
ur haft spumir af.
Guðmundur var þá á Grand
Chaumiere-listaskólanum, sem
Ossip Zadkine hélt (og þá einnig
Gerður Helgadóttir). Á fyrsta vetri
hans þar sagði Zadkine eina högg-
mynd Guðmundar bestu mynd
skólaársins (að Elín Pálmadóttir
greindi frá í bók sinni, Gerði). Og
að minnsta kosti einu sinni sýndi
Guðmundur höggmyndir á sýningu
Salon de Mai í Grand Palais, og var
w þá höggmyndar eftir hann getið i
listablaðinu Arts.
Hjörleifur, verslun-
armaður, f. 1922, d.
1988; 2) Katrín, f.
1925, gift Ólafi
Bjömssyni héraðs-
lækni á Hellu; 3) Elí-
as Ingibergur, f.
1926, bæjarfógeti á
Siglufirði og Akur-
eyri; 4) Margrét full-
trúi, f. 1928; 5) Bald-
ur, f. 1937, dr. sc.
tech., starfandi í
Sviss. Með Evu
Skaftadóttur eign-
aðist Guðmundur
dóttur, ólöiú Helgu.
Utför Guðmundar fór fram
frá Fossvogskirkju 19.júní.
Á ofanverðum sjötta áratugnum
og framan af hinum sjöunda bar
fundum okkar Guðmundar alloft
saman á fórnum vegi eða á kaffí-
húsum, og áttum við að hluta hinn
sama kunningjahóp. Aftur bar
fundum okkar alloft saman síðustu
fjögur eða fimm árin.
Hann var mjög vel að sér um nú-
tíma-myndlist, sagði vel frá og gat
verið mjög gamansamur þegar sá
gállinn var á honum. Hvað sem olli
hafði hann ekki frama sem mynd-
höggvari eftir að hann kom heim.
Og hann sýndi verk sín sjaldan. Að
mér er sagt munu hvað þekktastar
höggmynda hans vera bijóstmynd-
ir hans af Jóni Sigurðssyni og Jó-
hannesi Kjarval.
Allmarga vetur var Guðmundur
myndlistarkennari í framhalds-
skóla, og hann vann líka aðra
vinnu. - Með þessum fáu orðum er
kvaddur hlédrægur og gáfaður
maður, mörgum minnisstæður.
Haraldur Jóhannsson.
BJARGEY
GUÐJÓNSDÓTTIR
+ Bjargey Guð-
jónsdóttir fædd-
ist í Efri-Miðbæ,
Norðfirði, 23. febrú-
ar 1934. Hún lést á
heimili sínu í Gauta-
borg 8. júní síðast-
liðinn og fór útför
liennar fram frá
Norðfjarðarkirkju
24. júní.
Elsku Bjargey
frænka. Mig langar
bara til að skrifa nokk-
ur orð, ég er í Noregi
og gat ekki komið til að kveðja þig.
Mér var mjög svo brugðið þegar ég
fékk upphringingu frá Islandi um
þá frétt að þú værir dáin. Ég og
fjölskylda mín áttum von á því að
hitta þig í sumar. Ég bæði kveið því
og hlakkaði til að hitta þig því þú
varst búin að vera veik svo lengi.
En það bíður betri tíma, og þá veit
ég að þér h'ður vel. Minningamar
-í-streyma frá góðum tíma sem við
áttum með þér þegar
við bjuggum í Svíþjóð.
Það var svo gott að
koma til þín, það var
alltaf svo gott að borða.
Þú tókst börnunum
mínum, þeim Daníel og
Brynju, sem ég átti þá,
svo vel, þú varst bara
Bjargey amma fyrir
þau því þau áttu bara
ömmu og afa heima á
íslandi. Og alltaf muna
þau eftir því.
Þú varst svo yndis-
leg, vildir allt fyrir alla
gera. Dóttir mín, hún
Þórdís, grét þegar hún frétti af því
að þú værir dáin, hún hlakkaði svo
til að kynnast þér.
Elsku Guðjón, Binni og Hafdís,
elsku amma, pabbi, Sigga, Dulla og
Inga Rósa og fjölskyldur, missir
ykkar er mikill og bið ég góðan guð
að styrkja ykkur og megi minningin
um yndislega konu lifa.
Aldís Guðmundsdóttir og
fjölskylda, Noregi.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfínu,
ekki sem viðhengi.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect
einnig nokkuð auðveld úrvinnslu.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-
4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt
til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
FRÁ fyrsta mótinu í Bikarkeppni Fáks í kappreiðum um hvítasunnuna.
Morgunblaðið/
Bikarkeppni Fáks heldur áfram
Kappreiðar í beinni tít-
sendingu um helgina
Reynt hefur verið að endurvekja kappreið-
------y---------------------------------
ar á Islandi. Asdís Haraldsdóttir fjallar
um bikarkeppni Fáks, sem sjónvarpað
verður um helgina.
BIKARKEPPNI Hestamannafé-
lagsins Fáks í kappreiðum 1998,
sem hófst um hvítasunnuhelgina,
heldur áfram á laugardaginn. Rík-
issjónvarpið sendir keppnina beint
út og hefst útsendingin klukkan 12
á hádegi. Keppt verður í 150 og 250
m skeiði og 350 og 800 m stökki og
verður veðbankinn opinn.
Mikill áhugi hefur verið fyrir því
á undanfórnum árum að endurvekja
kappreiðar á Islandi. Á árum áður
þóttu Hvítasunnukappreiðar Fáks
með vinsælustu viðburðum í borg-
inni. Frægir knapar og kappreiða-
hestar komu þai- fram og fólk fjöl-
mennti til að sjá spennandi keppni.
Góð stemmning
um hvítasunnuna
Ákveðið hefur verið að halda sex
mót í sumar og er mótið á laugar-
daginn annað í röðinni. Að sögn
Sverris Árnasonar, eins skipuleggj-
enda bikarkeppninnar, náðist góð
stemmning á fyrsta mótinu um
hvítasunnuna. Öllum mótunum
verður sjónvarpað beint í Ríkis-
sjónvarpinu, en enn sem komið er
er aðeins hægt að veðja á staðnum.
Reglur um stigagjöf eru þannig
að gefín verða stig eftir sætum á
hverju móti á eftirfarandi hátt: 1.
sæti gefur 20 stig, 2. sæti gefur 17,
3. sæti gefur 15, 4. sæti gefur 13 og
5. sæti gefur 11 stig.
Fyrir 6.-15. sæti eru gefin stig
frá 10 og niður í 1. 16. sæti gefur
ekkert stig.
Hestamir hlaupa tvisvar á hveiju
móti og reiknast betri tíminn til
stiga. Þetta gildir um allar keppnis-
greinar nema 800 metra stökk. Þar
hlaupa hestamir einu sinni í riðla-
keppni og fjórir bestu tímamir gefa
þátttökurétt í úrslitum. Ástæðan
fyrir því er sú að svo langur tími er
liðinn síðan keppt var í alvöru í þess-
ari grein að framkvæmdanefnd mót-
anna vill ekki á þessu stigi leggja
það á hestana að hlaupa í tveimur
riðlum og svo í úrslitahlaupi.
Heildarstig hestanna reiknast
eftir besta árangri þeirra á fímm af
þessum sex mótum.
Fjórir efstu í úrslitakeppni
Úrslitakeppni fer fram á hverju
móti þar sem keppt er um peninga-
verðlaun. Rétt til þátttöku í úrslita-
keppninni eiga þeir hestar sem hafa
fjóra bestu tímana í viðkomandi
grein. Úrslitakeppnin reiknast ekki
til stiga og hefur aldrei áhrif á stöðu
hesta í heildarstigakeppni bikar-
mótanna nema í 800 metra stökki.
Sextán hestar á hverju móti fá
rétt til þátttöku á því næsta. Tíu
efstu fá sjálfkrafa rétt til þátttöku í
sinni grein, en keppt er um hin sex
sætin í sérstakri undakeppni degin-
um áður eða valið inn samkvæmt
nánari reglum sem framkvæmda-
nefnd tilkynnir þegar skráning
hefst í næsta mót.
Síðasta mótið í september
Dagsetning mótanna er ákveðin í
samráði við dagskrárstjórn Sjón-
varpsins. Gert er ráð fyrir að næsta
mót verði 18. júlí, síðan 8. ágúst, 29.
ágúst og 12. september. Þessar
dagsetningar eru þó enn óstaðfest-
ar. Öll mótin fara fram á kappreiða-
velli hestamannafélagsins Fáks á
Víðivöllum.
Héraðssýning kynbota-
hrossa á Króksstaðamelum
Stóðhestar 6 vetra eldri
1. Fiðringur frá Stóru-Ásgeirsá, f.:
Orri, Þúfu, m.: Syrtla, Sigríðar-
stöðum, b.: 7,83, h.: 7,89, a.: 7,86,
eigandi og knapi Elías Guð-
mundsson.
Stóðhestar 4 vetra
1. Hrafnar frá Efri-Þverá, f.: Gust-
ur, Grund, m.: Hofstaða-Bnínka,
Hofsstöðum, b.: 7,58, h.: 8,09, a.:
7,83, eigandi Margrét H. Guð-
mundsdóttir, knapi Halldór P.
Sigurðsson.
Hryssur 6 vetra og eldri
1. Éreyja frá Þóreyjarnúpi, f.: Odd-
ur, Selfossi, m.: Lýsa, Þóreyj-
arnúpi, b.: 8,18, h.: 8,06, a.: 8,12,
eigendur Halldór G. Guðnason
og Guðrún Bjarnadóttir, knapi
Jóhann B. Magnússon.
2. Kolfinna frá Þóreyjarnúpi, f.:
Oddur, Selfossi, m.: Éluga, Þór-
eyjamúpi, b.: 8,03, h.: 8,16, a.:
8,09, eigandi Guðrún Bjamadótt-
ir, knapi Jóhann B. Magnússon.
3. Hekla frá Þóreyjamúpi, f.: Frey-
faxi, Þóreyjarnúpi, m.: Stóra-
Blesa, Þóreyjarnúpi, b.: 8,10, h.:
7,96, a.: 8,03, eigendur Halldór G.
Guðnason og Ami Þorkelsson,
knapi Halldór G. Guðnason.
4. Rauðhetta frá Lækjarmóti, f.:
Kolfinnur 1020, Kjarnholtum, m.:
Sjöfn 6005, Miðsitju, b.: 7,88, h.:
8,14, a.: 8,01, eigandi Sonja L.
Þórisdóttir, knapi Þórir Isólfs-
son.
5. Skerpa frá Kúskerpi, f.: Smári,
Borgarhóli, m.: Lipurtá,
Kúskerpi, b.: 7,83, h.: 8,13, a.:
7,98, eigandi og knapi Jóhann B.
Magnússon.
6. Sál frá Grafarkoti, f.: Stígandi,
Sauðárkróki, m.: Ótta, Grafar-
koti, b.: 8,05, h.: 7,77, a.: 7,91, eig-
endur Indriði Karlsson og Her-
dís Einarsdóttir, knapi Herdís
Einarsdóttir.
Hryssur 5 vetra
1. Vaka frá Efri-Þverá, f.: Gustur,
Grand, m.: Hera, Brekku, b.:
7,63, h.: 7,90, a.: 7,76, eigandi og
knapi Halldór P. Sigurðsson.
Hryssur 4 vetra
1. Ásjóna frá Grafarkoti, f.: Hervar
963, Sauðárkróki, m.: Harpa
4345, Hnjúki, b.: 7,65, h.: 7,56, a.:
7,60, eigendur Indriði Karlsson
og Herdís Einarsdóttir, knapi
Herdís Einarsdóttir.
2. Smella frá Höfðabakka, f.: Gust-
ur, Grund, m.: Ósk, Hafnarfirði,
b.: 7,50, h.: 7,70, a.: 7,60, eigendur
Sverrir Sigurðsson og Sigrún K.
Þórðardóttir, knapi Svemr Sig-
urðsson.
3. Glæta frá Grafarkoti, f.: Hrannar,
Kýrholti, m.: Hjálp 4913, Stykk-
ishólmi, b.: 7,70, h.: 7,41, a.: 7,56,
eigendur Indriði Karlsson og
Herdís Einarsdóttir, knapi Her-
dís Einarsdóttir.
4. Ilja frá Grafarkoti, f.: Hervar 963,
Sauðárkróki, m.: Kveikja, Þor-
bergsstöðum, b.: 7,78, h.: 7,31, a.:
7,54, eigendur Indriði Karlsson
og Herdís Einarsdóttir, knapi
Herdís Einarsdóttir.