Morgunblaðið - 26.06.1998, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 26.06.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 23 Ku Klux Klan fer í kröfugöngu í Jasper Jaspcr. Reuters. KÚ KLIJX Klan-samtökin hafa fengið leyfi bæjaryfirvalda í Jasper í Texas til að efna til kröfugöngu í dag þar sem yfirburðir hvíta kynstofns- ins verða boðaðir. Jasper komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu er þrír hvítir menn myrtu svertingja á hrottalegan hátt með því að draga hann á eftir biffeið sinni um þriggja km leið. Morðið vakti geysihörð viðbrögð, sérstak- lega á meðal svertingja, sem hafa krafist þess að þremenningarnir verði dæmdir til dauða. Þrátt fyrir þetta segist lögreglustjóri bæjarins ekki geta neitað samtökunum um leyfið. Ku Klux Klan eru þekktustu sam- tök kynþáttahatara í Bandaríkjunum en einkennisklæði félagsmanna eru hvítir kjrtlar og hettur. Samtökin fordæmdu morðið á James Byrd í síðustu viku en segjast nú sjá sig knúin til þess að mótmæla samtök- um svartra, er hafi ráðist vopnuð inn i bæinn og haft í hótunum við hvíta íbúa hans. Vísa samtökin til þess er Byrd var borinn til grafar, en þá komu fulltrúar tveggja samtaka svartra, Svörtu hlébarðanna og Svörtu múslimanna, vopnaðir til Ja- sper og sóru þess eið að þeir myndu þjálfa svertingja til þess að berjast gegn árásum kynþáttahatara. Talsmenn Ku Klux Klan segjast munu verða óvopnaðir í kröfugöng- unni í dag, og dreifa bæklingum. Þeim verður heimilt að bera ein- kennistákn sitt, logandi kross, ef þeir vilja, en lögreglustjórinn í Ja- sper segist ekki geta bannað göng- una, þótt hann voni að enginn mæti. Reuters Fótboltabullum engin miskunn sýnd ÞRJÁR þýzkar fótboltabullur - Christian Wurger, 23 ára, Meik Krans, 30 ára, og Mario Buss, 23 ára - sem þátt tóku í slagsmálum við lögreglu í franska bænum Lens sl. sunnudag, þar sem fram fór leikur Þýzkalands og Júgósl- avíu í heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu, voru í fyrradag leiddir fyrir rétt þar og dæmdir í eins árs fangelsi án skilorðs. Kom þyngd dómsins nokkuð á óvart, þar sem saksóknari hafði ekki farið fram á meira en hálfs árs fangelsi. Samúðarbylgja með fórnar- lömbum þýzkra fótboltabullna f Frakklandi hefur gengið yfir Þýzkaland síðustu daga. Manfred Kanther, innanríkis- ráðherra Þýzkalands, hét því að bullunum sem gengu berserks- gang í Lens yrði ekki sýnd nein miskunn af hálfu þýzka dóms- kerfisins og þær verðskulduðu útskúfun úr þjóðfélaginu. Reiði almennings vegna máls- ins er svo mikil, að bæði stærsta sjónvarpsstöð landsins, ARD, og upplagsstærsta dagblaðið, Bild, efndu til almennrar Qársöfnunar í þágu Daniels Nivels, franska lögreglumannsins sem bullurnar börðu til óbóta í Lens. Hann liggur enn í dái á sjúkrahúsi. Stéttarfélag þýzkra lögreglu- manna hefur boðizt til að bera allan kostnað af heilsubótaror- lofí fyrir Nivel og Qölskyldu hans. Umfangsmikil viðhorfskönnun þýzkrar útvarpsstöðvar leiddi í ljós að nærri helmingur hlust- enda stöðvarinnar taldi rétt að þýzka knattspyrnulandsliðið hætti keppni í heimsmeistara- keppninni vegna ofbeldisverk- anna, sem Helmut Kohl lýsti þjóðarhneisu fyrir Þýzkaland. Æ algengara að flugmenn sofni undir stýri ÞAÐ verður sífellt algengara að flugmenn sofni undir stýri vegna aukinnar tæknivæðingar í stjórn- klefa og lengri vinnutíma, sam- kvæmt nýrri rannsókn banda- rísku geimferðastofnunarinnar (NASA). Flugmenn fljúga oft yfir heilar heimsálfur og þurfa lítið að gera í farflugshæðum, að sögn Davids Neri, sem stjórnaði rannsókn NASA á flugmannaþreytu. „Tæknin gerir mönnum nú kleift að fljúga langar vegalengdir og verja löngum tíma á lofti, en lík- amsklukkan gengur samt út frá því að við vökum á daginn en sof- um á nóttunni," sagði Neri. „Flugmenn eru jafn berskjaldað- ir og aðrir fyrir flugþreytu, vegna röskunar á dægursveiflunni.“ Aukin vinna eykur flug- þreytu flugmanna Hluti skýringarinnar á vaxandi flugþreytu flugmanna er að vinnutími þeirra hefur lengst. Hafa þeir orðið að taka á sig hluta þess vanda sem skapast hefur vegna síaukinnar fjölgunar farþega. „Flugferðum hefur fjölgað og reynt hefur verið að að nota sama flugmannafjöldann til að sinna þeim,“ segir sálfræðingur hjá NASA, Mark Rosekind. Flugslys eru hlutfallslega fátíð, en sérfræðingar segja að oft sé litið framhjá þætti flugþreytu í slysum þar sem erfitt sé að mæla hana. Þreyta hljóti að vera skýr- ingarþáttur í fleiri slysum en menn vilja vera láta, að sögn Rosekind. Láta mun nærri að mannlegi þátturinn sé meginá- stæða um 70% flugslysa. Til þess að draga úr flugþreytu flugmanna verður að endurskoða starfsreglur þeirra, að sögn Neri. Hann leggur jafnframt til að lýs- ing í stjómklefa verði stórbætt, að dregið verði úr sjálfvirkni í stjórn- og vélkerfum flugvéla og félagsleg samskipti í flugvélum verði aukin. Knublundur gæti aukið árvekni Samkvæmt gildandi reglum er flugmönnum bannað að fá sér kríu á flugi og standa upp og ganga um flugvélina nema þeir þurfi að sinna brýnu kalli náttúr- unnar. Rosekind segir að bannið við því að fá sér blund geti haft öfug áhrif því kerfisbundnir blundir í langflugi gætu í raun og veru orðið til að auka á árvekni flugmanna. Draga mætti einnig úr flug- mannaþreytu ef nýjum aðferðum yrði beitt við útreikninga á vinnu- tíma flugmanna. Viðtekin venja er að inn í 100 tíma hámarks vinnutímafjölda þeirra á mánuði sé ekki talinn með oft og tíðum langur tími sem fer í undirbúning flugsins af þeirra hálfu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.