Morgunblaðið - 26.06.1998, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Bæjarstjórnarfundur á Akranesi
Tillaga um stuðning
við hvalveiðar felld
TILLAGA um stuðning við þingsá-
lyktunartillögu um hvalveiðar var
felld á bæjarstjórnarfundi Á Akra-
nesi síðastliðinn þriðjudag.
Tillagan var borin fram af D-lista
mönnum og flutti Elínbjörg Magn-
úsdóttir svohljóðandi tillögu fyrir
þeirra hönd: „Baejarstjórn Akra-
ness lýsir yfir stuðningi við tillögu
til þingsályktunar um hvalveiðar
sem lögð var fram á 122. löggjafar-
þingi 1997-1998, þingskjal 982, 577.
mál.“ Tillagan var felld með 5 at-
kvæðum gegn fjórum.
Hættum
liundruðum starfa
Guðmundur Páll Jónsson, Fram-
sóknarflokki, var einn þeirra sem
greiddi atkvæði gegn tillögunni.
Hann segir gildar ástæður fyrir því
að fella hana. „Við íslendingar þmf-
um að vinna heimavinnu okkar miklu
betur en við höfum gert, til þess að
geta stigið það skref af alvöru að
hefja hvalveiðar að nýju. Það myndi
ldppa fótunum undan mörkuðum
Hækkun á
bensín-
gjaldi
hækkar
bensínverð
VERÐ á bensínlítra hækkaði
19. júní síðastliðinn vegna
hækkunar bensíngjalds sem
rennur í ríkissjóð.
Hækkaði lítraverðið um 0,93
krónur og með virðisauka-
skatti verður hækkunin alls
I, 20 krónur.
Geir Magnússon, forstjóri
Olíufélagsins, tjáði Morgun-
blaðinu að frá því í aprílbyrj-
un 1992, þegar verðlag á olíu-
vörum var gefið frjálst, og
þar til 19. júní hefði útsölu-
verð á 95 oktana blýlausu
bensíni hækkað um 14,20
krónur.
Hlutdeild opinberra gjalda
af þessari hækkun samkvæmt
útreikningum Olíufélagsins er
II, 80 krónur á lítra eða um
83% af hækkuninni. Hjá Olíu-
félaginu kostar 95 oktana
bensín nú frá 71,40 upp í
75,40 krónur.
okkar fyrir unnar sjávarafurðir að
hefja veiðar nú. Viðbrögð sölumanna
okkar og kaupenda staðfesta þetta.
Með því að hefja hvalveiðar nú hætt-
um við hundruðum starfa sem við
höfum nú við fiskvinnslu og stígum
skref aftur á bak þar sem við erum
að reyna að vinna okkur neytenda-
markaði en ekki selja eingöngu hrá-
efni. Ef við getum ekki selt afurðim-
ar þá þjónar það engum hagsmunum
að hefja þessar veiðar," sagði Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að ekki megi taka
þessari afstöðu þannig að þeir sem
greiddu atkvæði gegn tillögunni séu
á móti hvalveiðum. „Þessi afstaða
okkar mótast af því hvar við erum
stödd í þessari baráttu okkar nú.
Við þurfum að taka ákvarðanir á
stjómvaldsvísu um hvort við eigum
að ganga aftur í Aiþjóðahvalveiði-
ráðið og vinna því vísindalegt fylgi
að við hefjum veiðar á ný í sátt við
alþjóðsamfélagið. Það er okkar vilji
að hægt verði að veiða hval og nýta
hvalafurðir, líkt og við gerðum, en
það verður ekki nema í sátt við al-
þjóðasamfélagið."
Allt mælir með hvalveiðum
Gunnar Sigurðsson, oddviti
D-lista, segir það þeirra skoðun að
allt mæli með því að hefja hvalveið-
ar að nýju. Öll helstu samtök í land-
inu, Alþýðusambandið, Sjómanna-
sambandið og fleiri hafi mælt með
því og eðlilegt sé að veita stuðning.
Akranesbær hafi stutt þetta síðast
þegar þingsályktunartillaga var
lögð fram, síðan hafi engin efnisleg
breyting orðið í stöðunni nema að
það sé orðið enn meira áríðandi að
hefja hvalveiðar sem fyrst. „Rann-
sóknir sýna líka að hvalveiðar em
nauðsyn með tilliti til jafnvægis í
sjónum, hvalurinn er farinn að
ganga á fiskistofna. Hvað varðar
markaðsstöðuna þá er nærtækt að
h'ta til Norðmanna. Þeirra hvalveið-
ar hafa ekki skaðað markaðsstöðu
þeirra svo það ætti ekki að vera fyr-
irstaða," sagði Gunnar Sigurðsson í
samtali við Morgunblaðið.
Ályktun á prestastefnu um
jafnréttismál kirkjunnar
Prestar og starfs'
menn skyldaðir
til jafnréttis-
fræðslu
MEÐAL ályktana sem sam-
þykktar voru á prestastefnu
sem lauk í gær var ein þess
efnis að fagnað er kynningu á
jafnréttisáætlun og hvatt til
þess að gengið verði frá end-
anlegri gerð hennar sem fyrst.
Telur prestastefnan brýnt að
fram fari fræðsluátak og að
allir starfsmenn kirkjunnar
verði skyldaðir á námskeið.
í ályktuninni er m.a. talið
brýnt að fræðsluátak fari fram
fyrir presta og starfsmenn
kirkjunnar um jafnréttismál.
Er talið nauðsynlegt að gera
þetta að skyldu. Sérstök
áhersla verði lögð á að kynna
ákvæði jafnréttislaga og al-
þjóðasamþykkta er varða þessi
mál fyrir þeim er velja í störf
Þungur rekstur
Morgunblaðið/Golli
og skipa í nefndir á vegum
kirkjunnar. Þá fagnar presta-
stefnan þeirri afstöðu biskups
að vinna verði að úrbótum á
öllum sviðum á vettvangi kirkj-
unnar.
Prestastefnu lauk í gær með
því að umræðuhópar um
starfsreglur skiluðu niðurstöð-
um sínum og siðan voru önnur
mál rædd og var þá framan-
greind álylrtun samþykkt. Séra
Sigurður Árni Þórðarson, upp-
. lýsingafulltrúi prestastefnu,
sagði alla umræðu hafa verið
málefnalega og einlæga. Kvað
hann það hafa einkennt presta-
stefnu að þessu sinni hversu
vönduð og einlæg umræðan
hefði verið og hún raunar ver-
ið mun meiri en oft áður.
Vöxtur útlána
svipaður og
1987-88
VÖXTUR peningamagns í umferð
og aukin útlán banka á síðasta ári
og á fyrri helmingi þessa árs er
svipaður þeim vexti sem var á árun-
um 1987-1988, að því er fram kemur
í Hagvísum, sem Þjóðhagsstofnun
gefur út.
Frá byrjun síðasta árs og fram á
mitt þetta ár nam vöxtur peninga-
magns á föstu verðlagi 11,7% og út-
lán hafa aukist um 13,2% yfir sama
tímabil. Þessi hraði vöxtur að und-
anfómu endurspeglar mikla aukn-
ingu tekna og eftirspurnar, að mati
sérfræðinga Þjóðhagsstofnunar.
--------------------
FÉLAGARNIR Dofri Jónasson og Páll Jónsson
kepptust við að koma kúnum á Kalastöðum í fjósið
á réttum tíma. Þessar tvær reyndust þungar í
rekstri og Páll brá á það ráð að ýta aðeins á aðra
þeirra. Hann segist alltaf sækja kýrnar, það sé al-
veg ágætt en sumar séu latar.
íslendingum
fjölgaði um
2.342 milli ára
MANNFJÖLDI á landinu 1. des-
ember 1997 var 272.069, samkvæmt
tilkynningu frá Hagstofu íslands.
Hinn 1. desember 1996 voru ibúar
landsins 269.727. Þeim fjölgaði því
um 2.342 eða 0,87% milli ára. Fjölg-
un íbúa milli áranna 1995 og 1996
var 0,72%.
Laugavegi 18 • Simi 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfmi 510 2500
T/M1 * IMf
Kjonn gjot
til vina erlendis
Hér er fjallað um þær 23 tegundir hvala
sem sést hafa við íslandsstrendur og helstu |
einkennum þeirra lýst í máli og myndum.
Glæsilega myndskreytt og litprentuð.
Fæst á fslensku, ensku 09 þýsku
4>
FORLAGIÐ
Hitasótt komin í þrjú hross á Akureyri
Mikilvægft að veikin blossi
ekki upp fyrir landsmót
HITASÓTT hefur stungið sér
niður í einu hesthúsi á Akureyri
en þar eru þrír hestar veikir.
Sigríður Björnsdóttir, dýra-
læknir á Hólum, sagði að veikin
væri ekki eins smitandi og var
fyrr á árinu og hestamenn hefðu
einnig verið afar varkárir, því
hefði veikin ekki borist jafnhratt
yfir og áður.
Veikin hefur verið að breiðast
út í Skagafirði, en Sigríður sagði
að ástæðan væri að halda hefði
þurft kynbótasýningar og úr-
tökumót vegna landsmótsins, en
sá tími væri nú liðinn. Sigríður
sagði að með því að gæta ítrustu
varúðar á næstu dögum og halda
samskiptum milli hrossa í al-
gjöru lágmarki yrði möguleiki á
að hægja verulega á útbreiðslu
veikinnar að nýju þannig að ekki
komi upp neyðarástand. „Eins
og staðan er nú sýnist mér að
það muni takast," sagði Sigríð-
ur.
Smithætta er mest á náttstað,
þar sem hrossum er gefið, að
sögn Sigríðar, og hafa ráðstaf-
anir verið gerðar til að draga úr
samskiptum milli hrossa á
landsmótinu, einkum hrossa frá
svæðum þar sem smithætta er
mikil. „Það ríður verulega á að
veikin blossi ekki upp nú fyrir
landsmót og ég tel að menn séu
tilbúnir að takast á við það og
halda veikinni í skefjum," sagði
Sigríður.
Hún benti á að fæstir hest-
anna á landsmótinu yrðu smit-
berar, það yrðu einkum hestar
úr Skagafirði og af Vesturlandi
og yrðu eigendur þeirra að gæta
sérstakrar varúðar.