Morgunblaðið - 26.06.1998, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
I kvöld uppselt lau. 27. júní kl. 23 fimmtudag 2. júlí
lau. 27. júní kl. 20 uppselt laus sæti föstudag 3. júlí
sunnudag 28. júnl laugardag 4 júlí
laus sæti
Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Miðasala sími 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá lcl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
TÓNLEIKARÖÐ
30/6. kl. 20.30
Þorsteinn Gauti og
Steinunn Bima
Miðasalan opin 12—18.
Sími í miðasölu 530 30 30
LEIKSKÓLINN sýnir ÞÆTTI ÚR
SUMARGESTUM
e. Maxím Gorkí
FYRIRHUGAÐAR SÝNINGAR
26. júní 5. sýning
27. júní 6. sýning
28. júní 7. sýning
30. júní 8. sýning
1. júlí 9. sýning
2. júlí Lokasýning
Sýningar hefjast kl. 20:00
Sýnter í LEIKHÚSINU Ægisgötu 7.
Miðaverökr. 500,-
Mitopantanir I síma: 561-6677 & 898-0207
milli kl. 16-19.
LEIKSKÓLINN
FÓLK í FRÉTTUM
FÖSTUDAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA
Stöð 2 ► (Myth of the Male Orgasm,
‘93), er ekki á bláu línunni, einsog
nafnið gæti gefið til kynna, heldur
kanadísk gamanmynd fyrir sjónvarp
sem nú er frumsýnd hérlendis.
Leikstjóri John Hamilton. Með Mark
Camacho, Miröndu DePencier. IMDb
gefur 8,2, lítur ekki hengslalega út.
Stöð 2 ► Áskrifendur fá tækifæri til
að endurnýja kynnin eða upplifa í
fyrsta sinn gamanmyndina góðu, The
Love Bug (‘69). Það á ekki illa við,
þar sem Volkswagen er að
endurreisa gömlu Bjölluna í allri
sinni dýrð (?), en hún fer með
aðalhlutverkið í þessari vinsælu
Disneymynd ásamt Dean Jones,
Buddy Hackett og David Tomlinson.
Bjallan „Herbie" sér um sig sjálf og
gott betur, þegar henni er rænt frá
ástkærum eiganda sínum. Hún er
sannkallaður prakkaii. Leikstjóri er
Disneymyndasmiðurinn snjalH,
Robert Stevenson. -k-k-k'A
Stöð 2 ► Spyr ég enn og aftur:
Ætlar ekki Elísabet drottning að fara
að koma sér það því að aðla einn
mesta stórleikara aldarinnar, Albert
Finney? í The Browning Version
(‘94) vinnur hann enn einn leiksigur í
hlutverki illa þokkaðs kennara sem
sættist við sjálfan sig, lausláta kerlu
sína og skólameistarann. Heldur
myndinni á lífi. kk'A
Stöð 2 ► Það má enginn missa af
hörkukerlingunni Gloriu (‘80), sem
Gena Rowlands túlkar af
sannkölluðum fítonskrafti í þessari
eftirminnilegu mynd bónda síns,
Johns heitins Cassavetes. Gloria
tekur til sinna ráða og býður sjálfri
Mafíunni birginn þegar hún ógnar lífi
lítils drengs. Það verður forvitnilegt
að sjá til Sharon Stone í
endurgerðinni, sem er væntanleg
síðla á árinu. kkk
Sýn^ (The Fearless Vampire Killers,
‘67). Sjá umsögn í ramma.
SýnÞ Gamanhrollurinn Buffy, the
Vampire Slayer (‘92) naut talsverðra
vinsælda unglinga sem bíómynd. Hér
er gert mikið grín að
vampíruhefðinni. Ung glansgella og
bekkjardrottning (Kristy Swanson)
kemst að því að hún er komin af
blóðsugudrápurum að langfeðgatali
og verður að snúa sér frá glaumnum
og gleðinni að alvöru lífsins.
Upphefst skálmöld mikil. Donald
Sutherland lífgar uppá gamanið. ★ til
★ ★★, svona eftir sálarástandinu.
SjónvarpiðÞ NewJack City (‘91),
kk'A er ofbeldisfull ádeila á
hrikalegt eituriyfjavandamálið í
fátæktarhverfum stórborganna.
Lögreglan í New York ræður tvo
fyrrverandi harðjaxla úr lögregluliði
borgarinnar til að hafa hendur í hári
forsprakka dópsalanna. Með Wesley
Snipes, Ice T og þeim ágæta
Thalmusi Rasúlala. Leikstjóri Mario
Van Peebles.
Grínast að blóð-
suguhefðinni
SýnÞ Aðspurður sagði Roman
Polanski, þá gestur hér á kvik-
myndahátíð, að uppáhaldsmynd
sín á ferlinum væri The Fe-
arless Vampire Killers (‘67).
Hún hefði verið gerð á hans
mestu hamingjuárum. Hann
hefði verið fullkomlega afslapp-
aður og ástfanginn af sinni
fógru eiginkonu, Sharon Tate.
Ekki enn farinn að starfa í
Hollywood, með öllum þeim
ægilegu eftirmálum og listrænu
sigrum sem því fylgdu. Polanski
gerir hér feiknagott grín að
Drakúlasögninni og gömlum
vampíruhefðum. Prófessor í
vampírufræðum (Jack McGowr-
an) heldur ásamt aðstoðar-
manni sínum (Polanski) til fund-
ar við sjálfan Drakúla í höll
hans í Transilvaníu. Ætlunin er
að koma greifanum endanlega
fyrir með tréfleyg, hvítlauk og
vígðu vatni. Félagarnir eru ekki
miklir kunnáttumenn og standa
í miklu stímabraki áður en yfir
lýkur. Polanski leikstýrir á
hressilegu nótunum, handrit
hans og hins góðkunna sam-
starfsmanns hans við fjölda
kvikmynda, Gerards Brach, er
bráðskemmtilegt. Kvikmynda-
takan í höndum sjálfs Douglas
Slocombe. Polanski stendur sig
ekkert síður sem pasturslítill
hjálparkokkur og McGowran er
kostuleg fjandafæla. kkk.'Æ
Sæbjörn Valdimarsson
Morgunblaðið/Linda Mansfield
ÞEIR eru vígalegir bílarnir og
margt sem þarf að huga að við
rásmarkið.
inn. Þetta er heldur ekki erótísk
mynd, en þarna eru fjölmörg cljörf
kynlífsatriði og sagan gerist hjá fólki
sem er á valdi holdlegra fýsna. Af
fyrstu viðbrögðum að dæma virðist
þetta reyndai' vera mjög kynferðis-
leg mynd hjá mér. Það er
líka hafið yfir vafa að að-
alpersónumar hafa mjög
sterka návist og sterkt
líkamlegt aðdráttarafl.
Ég mundi segja að Kvikt
hold væri tilfinninga-
þrungið drama, íburðar-
mikið og
nautnalegt,
og eigi ým-
islegt skylt
við bæði
tryllinn og
hinn klassíska
harmleik,"
segir Pedro
Almodovar, vin-
sælasti kvik-
myndagerðarmaður
Spánar og einn vinsælasti
leikstjóri Evrópu í dag.
I aðalhlutverkum
myndarinnar eru hin
ítalska Francesca Neri og
Spánverjarnir fjórir, Javier
Bardem, Liberto Rabal,
Angela Molina og Jose Sancho, eru
meðal þekktustu leikara Spánar.
Vafalaust er Angela Molina þeirra
þekktust en Molina hefur unnið með
leikstjórum eins og Bunuel, Wert-
muller, og Ridley Scott.
Draum-
urinn
rættist
DRAUMURINN rættist hjá
Freddy Hallgrímssyni, sem er af
íslenskum ættum, þegar hann
fékk að vera meðlimur í viðgerð-
arliði í Indianapolis 500
kappakstrinum. Freddy,
sem er sonur íslending-
anna Hallgríms og Ernu
Friðriksson, býr eins og
foreldrar hans á Staten
Island í New York.
„Þetta var ógleyman-
Ieg lífsreynsla," sagði
hann.
„Ég hef aldrei
komið nálægt
„Indy“-bíl fyrr en á
þessu ári og ég hafði
aldrei séð 500. Núna
er ég kominn með
algjöra bíladellu.
Þetta er eiginlega
ólýsanlegt. Ég gat
varla trúað því að ég væri á
staðnum, hvað þá í viðgerðar-
liði.“
Freddy hefur verið í viðgerðar-
liði í keppnum á lægri stigum allt
frá byijun áttunda áratugarins
en aldrei náð svona langt áður.
KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur tekið til
sýninga spænsku myndina Kvikt hold, nýj-
ustu mynd leikstjórans Pedro Almodovars.
VICTOR kom í heiminn í strætisvagni og fær þess vegna ókeypis í
strætó það sem hann á eftir ólifað.
Ást og sekt
SÖGUHETJAN er 20 ára sonur
vændiskonu, Victor Plaza (Li-
berto Sabal), sem er dæmdur
fyrir að skjóta lögreglumann. Það
gerist í íbúð Elenu (Francesca Neri),
eiturlyfjasjúkrar dóttur ítalsks
diplómata í Madríd. Victor hafði í
einfeldni þegið boð um að heimsækja
Elenu eftir að hún hafði afmeyjað
hann á diskóteki nokkrum dögum
áður. Hann hélt að þau væru ást-
fangin. Þegar hann mætir kannast
hún ekki við hann og er pirruð af því
að þetta er hann en ekki eiturlyfjsal-
inn sem hún var að biða eftir. Það er
verið að sýna myndina Æfing fyrir
glæp eftir Bunuel í sjónvarpinu og
hún dregur upp byssu. í átökum
milli þeirra hleypur af skot sem
verður til þess að nágrannar hringja
í lögregluna og tilkynna að verið sé
að nauðga konu.
Tveir lögreglumenn eru sendir á
staðinn. Þeir tveir eiga jafnilla sam-
an og Elena og Victor. David er sett-
legur og heiðarlegur og reynir með
misjöfnum árangri að halda aftur af
félaga sínum, hinum ofbeldis- og
áfengisfulla Sancho. Sancho er nýbú-
inn að misþyrma Clöru (Angela Mol-
ina), eiginkonu sinni, en hefur ekki
fengið útrás íyrir grunsemdir sínar
um að hún haldi framhjá sér. Hann
er þess vegna að leita sér að vand-
ræðum á vaktinni og það er gáleysi
hans sem verður til þess að David
verður fyrir skoti og Victor er
dæmdur í fangelsi.
Þegai' Victor losnar sex árum
seinna er hann staðráðinn í að
hefna sín. Móðir hans er dáin og
hann þiggur í arf sparifé hennar
af vændiskonulaununum og íbúð
í vonlausu hverfi í borginni.
En á þessum tíma hefur Elena
snúið við blaðinu. Hún er hætt í
eiturlyfjunum og er búin að
stofna heimili fyrir munaðar-
lausa og er búin að gifta sig
engum öðrum en David sem
lamaðist eftir skotárásina í
íbúðinni hennar. David er auk
þess orðinn landsfræg hjóla-
stólakörfuboltahetja. Fundum
þeirra og Victors ber saman að nýju
þegar hann fer að vitja leiðis móður
sinnar í kirkjugarðinum og gengur
þar fram á líkfylgd föður Elenu og
sér hana, David, og líka Sancho og
Clöru.
Enn einu sinni fléttast líf þessa
fólks saman. Og það kemur í ljós að
upphafleg kynni þeirra í íbúð Elenu
höfðu á sér fleiri hliðar en virtist í
fyrstu og hjónin tvö og Victor vefa
saman flókinn vef ástar og sektar-
kenndar.
„Það er eins með Kvikt hold og all-
ar mínar myndir að það er ekki auð-
velt að skipa þeim niður á bás,“ segir
höfundurinn Almodovar, sem byggir
þessa sögu lauslega á samnefndri
skáldsögu eftir Ruth Rendell en
sækir sér þar einkum innblástur og
útfærir
FRANCESCA Ncri leikur E1
enu.
söguna á eigin hátt. í bókinni lim-
lestir geðsjúkur nauðgari lögiæglu-
mann en Victor er dæmigerð hetja í
mynd eftir Almodovar; sakleysingi
sem er hálfgert fómarlamb ytri að-
stæðna.
í tilraun sinni til að skipa mynd-
inni niður á bás heldur Almodovar
áfram og segir: „Hún er ekki
spennumynd og ekki lögreglumynd.
Samt eru þarna lögreglumenn og
byssuskot og sekir menn sem eru í
raun saklausir. Þetta er heldur ekki
síð-vestri, þótt mig langi tU þess að
búa til svoleiðis mynd einhvern dag-
Frumsýning