Morgunblaðið - 26.06.1998, Síða 11

Morgunblaðið - 26.06.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 11 FRÉTTIR Biskup um jafnréttismál Þjóðkirkjunnar Hefur ekki stað- ið sig sem skyldi í RÆÐU sinni við setningu jpresta- stefnunnar gerði biskup Islands, herra Karl Sigurbjömsson, jafnrétt- ismál að umræðuefni og sagði Þjóð- kirkjuna ekki hafa staðið sig sem skyldi í þeim efnum. Hann minntist á jafnréttisáætlun kirkjunnar, en jafn- réttismál voru m.a. til umræðu á prestastefnu á miðvikudag. „Þjóðkirkjan er bundin ákvæðum jafnréttislaga og hefur auk þess und- irgengist samþykktir Lúterska heimssambandsins hvað varðar jafna stöðu karla og kvenna. Eg bið menn að minnast þess þegar valið er í trúnaðarstöður og kosið á kirkjuþing og í nefndir og ráð. Þjóðkirkjan hef- ur langt frá því staðið sig sem skyldi í þessum efnum, þótt formannskjör í Prestafélaginu sé vissulega góð skilaboð. Við verðum að vinna að úr- bótum á öllum þeim sviðum sem okk- ur eru tiltæk á vettvangi kirkjunn- ar,“ sagði biskup meðal annars í ræðu sinni. I markmiðum jafnréttisáætlunar kirkjunnar er lögð áhersla á fjögur eftirtalin málefni: Jafnréttisfræðslu og endurskoðun málfars í kirkjulegri boðun og starfi; jöfnun launa og aðstöðu kvenna og karla innan kirkjunnar þar sem óréttmætur munur er íyrir hendi; að jafna aðild kirkjunnar að nefnd- um og ráðum kirkjunnar; að jafna aðild kirkjunnar að yfir- stjóm kirkjunnar; leiðir til að taka á kynferðislegri áreitni. Guðfræðileg rök fyrir jafnrétti I jafnréttisáætluninni eru færð guðfræðileg rök fyrir jafnrétti kynj- anna innan kirkjunnar og m.a. vitnað til þess að Jesús hafi ekki boðað mis- rétti heldur jafnrétti sem konur og karlar væru sköpuð til. Þá er minnt á aðild Þjóðkirkjunnar að Alkirkjuráð- inu og Lúterska heimssambandinu, sem bæði hafa hvatt kirkjur til að starfa að jafnrétti. Þá segir m.a. svo í áætluninni: „Hvatning heimssamtakanna mið- ar að því að bæði konur og karlar safnaðanna og stjórnendur kirkn- anna opni augu sín fyrir því að konur og karlar njóta ekki jafnréttis, spyrji í alvöra og einlægni um orsakirnar og geri sér grein fyrir þeim. Þær spurningar eru undirstaða breyt- inga. Konur þurfa að fá rými til starfa á þeim sviðum sem hafa verið þeim lokuð og til að taka þátt í ákvörðunum, og körlum ber réttur til að taka þátt í þeim störfum sem hafa verið ætluð konum bæði heima og heiman. Þess vegna er í þessari jafnréttisáætlun fylgt samþykkt Lúterska heimssambandsins um að í ráðum og nefndum kirkjunnar verði eigi minna en 40% kvenna og eigi minna en 40% karla.“ ÞESSI einfaldi lyftubúnaður, sem tengdur er vökvakerfi dráttarvélar- innar, er notaður til að tæma úr tunnum á vagna og verður hann not- aður við flokkun úrgangsefna hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur. Sumarvinna skólafólks 8 milljónir í aukafjár- veitingu ALLS hafa verið ráðnir hjá Reykjavíkurborg og fyrirtækj- um hennar 1.317 skólanemar. Er þetta nokkru færra en árið á undan en þá voru ráðnir 1.514. Enn liggja þó fyrir hjá borg- arkerfinu umsóknir ungmenna sem ekki hafa fengið vinnu og hefur borgarráð samþykkt 8 milljón króna aukafjárveitingu vegna þeirra. Ók á ljósa- staur ÖKUMAÐUR á Akureyri ók á ljósastaur um tvöleytið á mið- vikudag og fékk sloirð á enni og kvartaði undan eymslum í hálsi. Að sögn lögreglunnar á Akureyri missti ökumaðurinn stjórn á bíl sínum með þessum afleiðingum. Var hann fluttur til skoðunar á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Kirkju- garðarnir hefja flokk- un úrgangs HAFIN er markviss flokkun garðaúrgangs hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma í líf- ræn og ólífræn efni. Hafa verið keyptar sérstakar tunnur til flokkunarinnar og er hún fyrsta skref Kirkjugarðanna að því marki að endurvinna lífrænan úrgang. Staðið verður þannig að flokk- uninni að sérmerktum tunnum verður komið fyrir á völdum stöðum víðs vegar um garðana og er gert ráð fyrir að bæði starfsmenn garðanna og aðstand- endur, sem hirða um ieiði ástvina sinna, flokki úrgang í tunnurnar. Flokkað er annars vegar í ólíf- ræn efni, svo sem plast, pappa og gler, og hins vegar í lífræn efni, svo sem jarðveg, gras, iauf og fleira. Næsta sumar er stefnt að því að heíja moltugerð úr lífræn- um úrgangi. Keypt hafa verið vökvadrifín lyftitæki sem hægt er að setja með handhægum hætti á kerrur og vagna til að flytja úrganginn. KÆRU ECCO EIGENDUR ----------------- ÚTVARP SUÐURLAND FM 96,3 OG 105,1 FROSTRÁSIN FM 98,7 VIÐ DRÖGUM í DAG í BEINNI ÚTSENDINGU Á ÚTVARP MATTHILDI HVER KEMST í SÓLINA í SEPTEMBER? Samviiwuleriir Lanisýa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.