Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 35^
efni sem skaða innkirtla
(Endocrine Disruptive Chem-
icals), og beinist vaxandi athygli
að þeirri hættu sem af þeim getur
stafað, meðal annars vegna áhrifa
á eistu og framleiðslu kynfruma
hjá körlum sem og á ónæmiskerf-
ið. Knýjandi er talið að auka óháð-
ai- rannsóknir á áhrifum þessara
efna.
Kyoto og orkusparnaður
Loftslagsbreytingar og fram-
kvæmd Kyotobókunarinnar voru
að sjálfsögðu ofarlega á baugi í
Árósum. Þingmannafundur Globe
setti fram þá kröfu til þjóðríkja og
Evrópusambandsins að leggja í
Buenos Aires í nóvember 1998
fram skýra stefnu og áætlanir fyr-
ir næsta fund aðildarríkja Lofts-
lagssáttmálans frá 1992. Tryggja
beri skýrar samræmdar reglur
um sameiginlega framkvæmd í
niðurskurði gróðurhúsaloftteg-
unda, um viðskipti með losunar-
kvóta og þak á slík viðskipti sem
hlutfall af skuldbindingum þjóð-
ríkja.
Sérstakur þáttur á ráðstefnum
þingmanna og ráðherra í Arósum
var skilagrein fjölþjóðlegs starfs-
hóps um hagkvæma orkunýtingu
og orkusparnað. Atak á þessu
sviði er talið geta skilað marghátt-
uðum hagsbótum fyrir efnahag og
umhverfi, þar á meðal í glímunni
við gróðurhúsalofttegundir. Gagn-
rýndur var hægagangur á þessu
sviði og allssendis ófullnægjandi
áhersla og fyrirgreiðsla fjármála-
stofnana til að örva breytingar á
orkubúskap í Evrópu, ekki síst í
austanverðri álfunni. Sérstakar
áhyggjur komu fram vegna sam-
gangna og flutninga á landi sem
aukast stöðugt og með þeim álag á
umhverfið.
Lokaorð
Evrópska umhverfisráðstefnan
í Arósum var viðburður sem verð-
skuldar athygli alls almennings.
Næsta hliðstæð ráðstefna á undan
var haldin í Sofiu í Búlgaríu 1995
og framvegis er gert ráð fyrir slík-
um ráðherrafundum allra Evrópu-
landa á fjögurra ára fresti. Þungi
umhverfismála í stjórnmálaum-
ræðu fer vaxandi, en er þó langt
frá því að vera í réttu hlutfalli við
þörfina fyrir róttæka stefnubreyt-
ingu. Enn ráða blind markaðslög-
mál lögum og lofum í alþjóðavið-
skiptum og síaukinn hraði efna-
hagslegrar og fjármálalegrar
hnattvæðingar eykur hættuna á
að þróun heimsmála fari út af
sporinu með skelfilegum afleiðing-
um. Fiestir skynja þessa yfirvof-
andi hættu, en stjórnmál og dæg-
urumræða snúast um flest annað
en hvernig koma megi í veg fyrir
hana og hvernig gefa megi hug-
takinu sjálfbær þróun raunveru-
legt innihald. Orð og athafnir á
fundunum í Arósum voru þó lóð á
rétta vogarskál.
Höfundur er þingnmður.
Fylgstu með nýjustu
fréttum á fréttavef
Morgunblaðsins
www.mbl.is
BRIDS
Umsjón Arnór G.
I! agnarsson
Sumarbrids 1998
Fimmtudagskvöldið 18. júní var
spilaður Mitchell og urðu þessi pör
efst:
NS:
AronÞorfmnsson-GuðmundurPétursson 235
Una Amadóttir - Hjálmtýr R. Baldursson 233
Leifur Aðalsteinsson-TorfiÁsgeirsson 231
AV:
Erlendur Jónsson - Jón Ingþórsson 271
Jón Steinar Ingólfsson - Hermann Friðriksson 261
Dúa Ólafsdóttir - Sigrún Pétursdóttir 234
Nýtt þátttökumet
í Sumarbrids ‘98
Föstudagskvöldið 19. júní var
sett met í þátttöku þegar 32 pör
mættu til leiks og spiluðu Mitchell.
Efstu pör:
NS:
Bima Stefnisdóttir - Aðalsteinn Steinþórsson 378
Ólafur Pór Jóhannsson - Gísli Hafliðason 377
Óli Bjöm Gunnarsson - Bjöm Amason 365
AV:
Gísli Steingrímsson - Sigurður Steingrímsson 366
Sigrún Pétursdóttir - Amína Guðlaugsdóttir 366
Sigurður Þorgeirsson - Einar L. Pétursson 355
Tíu sveitir í útslætti!
Að loknum fóstudagstvímenningi
var að venju spiluð útsláttarsveita-
keppni. Tíu sveitir skráðu sig til
leiks og eftir mikla baráttu stóð
sveit Jóns Steinars Ingólfssonar
(Loftur Þór Pétursson, Pétur Stein-
þórsson og Úlfar Kristinsson, auk
Jóns) uppi sem sigurvegari. í öðru
sæti varð sveit Eggerts Bergsson-
ar, en með honum spiluðu Brynjar
Jónsson, Torfi Asgeirsson og Guð-
mundur Skúlason.
Sunnudagskvöldið 21. júní lauk
svo fimmtu spilaviku sumarsins.
Þessi pör urðu efst (meðalskor 216):
NS:
ÓliBjömGunnarsson-ValdimarSveinsson 320
GeirlaugMagnúsdóttir-Torfi Axelsson 257
Torfi Asgeirsson - Guðmundur Skúlason 250
AV:
Halldóra Magnúsd. - Jón Steinar Ingólfsson 263
Þorsteinn Joensen - Erlingur Einarsson 249
Bima Stefnisdóttir - Aðalsteinn Steinþórsson 242
Jón Steinar vann fimmtu vikuna.
Eftir harða baráttu á milli nokk-
urra spilara varð lokastaða fimmtu
spilavikunnar þessi í bronsstigum:
1. Jón Steinar Ingólfsson 52
2. Þorsteinn Joensen 51
3. Hermann Friðriksson 48
4-5. Geirlaug Magnúsdóttir 45
4-5. Torfi Axelsson 45
6-7. Bima Stefnisdóttir 42
6-7. Aðalsteinn Steinþórsson 42
Jón Steinar er enn efstur í heild-
ina.
Heildarstaðan í bronsstigum er
nú þessi:
Jón Steinar Ingólfsson 199
Vilhjálmur Sigurðsson jr. 151
Þorsteinn Joensen 148
Hermann Friðriksson 139
Cecil Haraldsson 127
Gylfi Baldursson 124
Friðjón Þórhallsson 12(f
Anton R. Gunnarsson 116
Spilað er öll kvöld nema laugar-
dagskvöld, alltaf byrjað klukkan
19:00. Mitchell-spilaformið er ríkj-
andi og eru ætíð notuð forgefin spil.
Á föstudagskvöidum er svo hin vin-
sæla útsláttarsveitakeppni að lokn-
um tvímenningi og hefst hún venju-
lega um kl. 23:00. Spilastaður er
húsnæði Bridgesambands íslands,
Þönglabakka 1 í Mjódd. Keppnis-
stjórinn, Matthías Þorvaldsson, að-
stoðar við myndun para þegar ,
menn mæta stakir. Allir eru vel-
komnir.
dagurinn
ESJUDAGUR Hjálparsveitar skáta í Reykjavík
og Skátabúðarinnar er nú haldinn í sjöunda sinn.
Lagt er upp frá bílastæðinu við Mógilsá frá kl. 10
og munu félagar úr HSSR verða göngufólki til aðstoðar.
Margt í gangi fyrir alla fjölskylduna
• „Grænlensku konurnar“ kynna búnað sinn, þar á meðal
Magellan GPS-tæki og Cintamani útivistarfatnað.
• Þeir fimmtíu fyrstu sem koma á staðinn íTeva skóm fá fría Teva boli.
• Annar óvæntur glaðningur.
• Vífilfell sér göngumönnum fyrir hressingu á uppleið.
• Skemmtileg þrautabraut.
• Vísbendingaleikur - viðurkenningar veittar fyrir lausnir.
Má bjóða
þér upp?
0% m
<f$08 *■
5
e
n
• Kapphlaup kl. 13. Keppt verður í tveimur aldursflokkum karla og kvenna.
(Þátttökugjald er 500 kr.)
Allir sem ná toppnum fá viðurkenningarskjal og freistandi tilboð frá Skátabúðinni.
Félagar HSSR sjá um að „stjórna aðgerðum“ til kl. 16.
Hittumst hress í Esjuhlíðum, sunnudaginn 28 júníl
Félagar í Hjálparsveit skáta í Reykjavík.
Toppurinn í sandölum
O R I 0 G
MAGELLAIM GPS
i *étt& dit
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
ÍÞRDTTIR FVRIR RLLfl
u grnl 4Jlj
:*
tr~