Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 36

Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ 36 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 Jt------------------------ MINNINGAR DIETER ROTH + Dieter Roth fæddist í Hannover í Þýska- landi 21. apríl 1930. Hann varð bráð- kvaddur í Basel í Sviss 5. júní síðast- liðinn og fór útför hans fram í kyrr- þey. „Reyni stöðugt. Mistekst alltaf. Gildir einu. Reyni aftur. '' Mistekst aftur. Mistekst betur.“ (Sam- úel Beckett.) Árin 1984-86 áttum við Dieter Roth saman löng samtöl, þar sem við brutum til mergjar endurminn- ingar hans og viðhorf til lífs og list- ar. I hita þeirra samtala flökraði stundum að mér að þeir væru bræð- ur i andanum, leikskáldið írska sem vitnað er í hér í upphafi og fjölhag- inn þýsk-svissnesk-íslenski. Báðir settu samasemmerki milli þjáningar og tjáningar, og litu á samskipti listamanns og almennings sem ým- ist viðunandi eða óviðunandi mis- skilning. Við lestur á opinskáum dagbókum Dieters, sem öllum var -* frjálst að glugga í - svo óvæginn var hann gagnvart sjálfum sér og heið- arlegur gagnvart öðrum - kom stundum upp í huga mér angistar- full einræðan í bók Becketts, Hið Ónefnanlega, þar sem sögumaður situr í stórri krukku, með rusl upp í háls, og talar linnulaust um það hve ómögulegt sé að tala, og jafn ómögulegt að þegja, en umfram allt talar hann um þögnina. Þessir tveir snillingar eiga líka sammerkt að þótt ævistarf þeirra sé wuð mestu reist á örvæntingu og böl- sýni, er listrænn lýsingarháttur þess hvetjandi, ögrandi, jafnvel uppöi-vandi, þökk sé þeim aga sem báðir beittu sjálfan sig í framsetn- ingu efnisins. Kaldhæðnisleg umrit- un þeirra á hinu viðtekna og venju- bundna er ósjaldan „ýkt fyndin“, eins og yngri kynslóðin mundi orða það, og - það sem mestu máli skipt- ir - gegnsýrð ljóðrænum krafti. Undir niðri eru þeir Beckett og Di- eter á höttum eftir miðli - bók, mynd, hlut, einhverju - sem rofið gæti einangrun þeirra og komið hinu „ónefnanlega" til skila. Mér fannst oft eins og Dieter væri að upplagi rithöfundur og , heimspekingur sem fyrir einskæra slysni hefði rekist inn í heim mjmd- listar. Orðið, textinn var hans fyrsta ást, ef svo má segja, og það var á náðir orðs og texta sem hann leitaði í æ ríkara mæli síðustu árin. Hann var tvímælalaust með best lesnu mönnum sem ég hef fyrirhitt. Orðið „djúplestur“ öðlaðist nýja merkingu í mínum augum við að skoða skruddur eftir helstu rithöfunda sem Dieter átti, svo uppfullar voru þær af spumingamerkum, upp- hrópunarmerkjum, athugasemdum og jafnvel útstrikunum. Dieter stóð uppi í hárinu á sérhverjum rithöf- undi sem hann las, frá Sófóklesi til Gunters Grass. Til að mynda fór Ni- .^.etszche svo rækilega í taugarnar á honum fyrir „neikvæða" lífsskoðun sína að hann fór í gegnum heildar- útgáfuna á verkum hans og strikaði út öll neikvæð orð sem hann fann með breiðum, svörtum penna. Bf ég man rétt, fór þetta ritúal ævinlega fram á saleminu. Aðrir textar hlutu enn verri örlög, voru soðnir í mauk og gerðir að „bókmenntabjúgum." Dieter var hugfanginn af íslensku og íslenskum bókmenntum, þótt hann lærði aldrei málið til hlítar. Hann var raunar þeirrar skoðunar að hollt væri að tjá sig á tungumáli * sem maður kynni ekki til hlítar, því við það yrði til nýr og frjór texti. Skoðanir hans á íslenskum bók- menntum eru lýsandi fyrir lífsvið- horf hans. Hann kunni ekki að meta skáldverk sem reyndu að færa „hrærigraut hversdagslífsins" í list- ræna spennitreyju. Þórbergi Þórð- arsyni fyrirgafst hins vegar allt, svo miklar mætur hafði Di- eter á ærslafullu hug- arflugi hans. Einhvem tímann sagðist hann hafa gengið Þórberg uppi í því augnamiði að tjá honum aðdáun sína, en orðið klumsa þegar til kastanna kom og reynt að kyssa skó hans. Þórbergi varð svo bilt við að hann tók á rás heim undan þess- um „brjálaða Þjóð- verja.“ Nei, hans menn vora alþýðuskáldin, til að mynda Tryggvi Emilsson. Mestan og einlægastan skáldskap á Islandi taldi Dieter sig samt finna í minn- ingargreinum Morgunblaðsins og Tímans sáluga. Þar skynjaði hann „hrærigraut hversdagslífins" ómengaðan, einlægan og heiðarleg- an. Hefði hann sætt sig við þessi fáu minningarorð frá minni hendi? Eg býst ekki við því. Hér vantar æði mikið upp á heildarmyndina af þeim óendanlega margbrotna persónu- leika sem Dieter Roth var, útlistan- ir á örlæti hans, sjúklegri tor- tryggni, tilfinningasemi, umburðar- lyndi, dómhörku, viðkvæmni og sársaukafullri hreinskilni. Avæning af þessu öllu er að finna í viðtölum okkar, en þar segir Diet- er á einum stað: „Þegar ég var ung- ur, þá ætlaði ég að verða alvöru listamaður. Þá fór ég að gera eitt- hvað sem mér fannst ekki vera list, og þannig verður maður listamaður, frægur og þekktur. Með því að vilja ekki vera listamaður, geta það jafn- vel ekki. Þetta er kallað framför! Enginn vill vera þar sem listin er, enginn vill vera það sem hann er, heldur hleypur eitthvað annað. Þannig verður maður frægur fyrir það að vera ekki það sem maður ætti að vera!“ Aðalsteinn Ingólfsson. „Þetta er bara fallegur maður og geðugur." Séra Bjöm, teinréttur í dökkum jakkafötum, tók ofan og heilsaði tengdasyninum. Sá var krúnurakaður, í molskinnsbuxum, peysu og svörtum, skósíðum leður- frakka. diter rot var kominn til Is- lands. A Islandi lágu malargötur, hús klæddust bárajárni og áratuga skömmtun á nauðsynjavöra var ný- aflétt. Bólstruð sófasett og pólerað húsgögn prýddu hýbýli manna, og á hátíðum lagði um þau ógleymanleg- an ávaxtailm. Vopnaður vinnu- lampa, íslenskri eiginkonu og möppu með teikningum og grafík, öslaði útlendingurinn krapið, hús úr húsi í leit að verkefnum. I hönd fóra margir langir og launalitlir dagar. Heima á eldhúsborði hóf frúin skartgripagerð og fékk þar kær- kominn félaga. Upp stytti þegar Halldór gullsmiður Sigurðsson bauð þeim aðstöðu á verkstæði sínu að Skólavörðustíg 2. í versluninni var nú kynnt ný og framandi lína þeirra hjóna, og síðan hönnun og sérsmíði diters af módelhringum úr silfri. Eitt verkefni leiddi til annars. Þyngst vóg áhugi Harðar Ágústs- sonar sem útvegaði diter ýmislegt að gera við teikningar og fjölþætta hönnun, sótti hann á vespunni sinni suður undir Hafnarfjörð og skilaði aftur að loknum vinnudegi. I möppu diters, þeirai litlu, var fleira að finna. Þar lágu bókavísar með leik hans við ljóðið, úr stöfum, merkjum og táknum sem sköpuðu sjónræn form með ljóðfletinum. Reyndar áleit Karl Einarsson Dunganon að þessi „ideogrömm í anda konkretista" væru heldur lak- ari en glasakvæðin hans sjálfs, sem sýndu ákveðið yrkisefni í mynd- formi er algjörlega féll að efni ljóðs- ins, án þess að nokkram stöfum eða orðum væri hnikað í ljóðlínunni. Dunganon var í heimsókn í Stóra Kanúkastræti með Gamlagarð og Sívalaturninn í annan endann. I heimsókn hjá séra Birni sem sum- arið 1970 fékk að dvelja á Garði eins og forðum, og hafði þá ekki utan farið eftir Hafnarárin á tímum heimsstyrjaldarinnar íyrri. Þar mynntust þeir nú landarnir. I hin- um enda götunnar við háskólann og Frúarkirkju stendur pensjónat KFUK. Þar bjó undirrituð. Öllu fyrr, eða um miðjan 6. áratuginn sat í gangi gistiheimilisins ung íslensk kona á tösku sinni og beið gistingar. Ætlun hennar var að þjálfa sig áfram í starfi og vinna með börnum á sjúkrahúsum; þerapíu í gegnum myndlist. Sú hending að herbergið var enn upptekið réð því að hún var drifin á dansleik þá strax um kvöld- ið, í pallíettum og öðra prjáli. Skemmtun þessi reyndist vera í til- efni af þjóðhátíðardegi Svisslend- inga. Þar voru karlar í kjól og hvítt og konur klæddust síðu. Við borðið, gegnt þeirri íslensku, sat maður sem gerði allt öfugt við það sem til var ætlast. Hann hlaut að vera gal- inn. Þegar dagskrá hátíðarinnar gerði ráð fyrir að fólk stæði upp og syngi þjóðsönginn eða hrópaði húrra, sat hann. En um leið og aðrir vora sestir, spratt hann á fætur, söng þjóðsönginn og hrópaði húrra! Þó fóru leikar svo að þegar leið að jólum flutti sú íslenska inn til mannsins, teiknarans diter rot, að Grábræðratorgi 13. Fyrstu árin á Islandi var vinnu- stofa diters heima við. Verk hans vora hágeómetrísk, sterk, hrein og tær. Hann var samkvæmur sjálfum sér svo vandvirkni og aga lýsti ekki aðeins af verkum hans heldur einnig af lífi hans öllu, um leið og hann gekk þvert á viðteknar venjur. Húsmóðirin vann úti og eldri dama aðstoðaði við heimilishaldið. ,Á ég ekki einhvern tíma að pressa spari- föt bóndans?" spurði hún eitt sinn eftirvæntingarfull, tvísté og néri saman höndum. „Ja-a, hann á nú bara engin,“ var svarið. Heimilis- hjálpin brast í óstöðvandi hlátur en fékk að stoppa í endalaus pör af fín- um ullarsokkum og snúa krögum á léreftsskyrtum, því enn var diter á peysunni. Þar átti hann hauk í homi sem Guðríður tengdamóðir hans var, en hún sá um prjónaskapinn. Sú umhyggja hennar var sannar- lega endurgoldin, diter var tengda- foreldrum sínum einstaklega góður. I þeim presthjónum virtist renna eitthvert tatarablóð og stóðu þau í stanslausum flutningum. Alltaf var diter boðinn og búinn að létta undir í smáu og stóru og fyrstur mættur að mála og flytja fyrir þau. Það varð svo þegar heimasætan, sem fylgdi konunni og diter fékk á fæti, var tekin í kristinna manna tölu að þáttaskil urðu í klæðaburði lista- mannsins. Jakkaföt vora keypt á út- sölu og í þau skyldi hann. Ferming- arbarnið fór í kirkjuna með túperað hár, meðan mamman tróð stjúpan- um í tauið. Svo vel tókst til að aldrei fór hann úr þeim aftur eftir það. Á þessum áram var diter reglu- maður, og á heimili einstakt snyrti- menni eins og alla tíð, þægilegur og kurteis. Hann var athugull og óþreytandi við að beita hugviti sínu og handleikni til að bæta vinnuað- stöðu, nýta rými, hagræða og auð- velda leik og störf heimilisfólksins. Fljótlega fóru frænkur og fleira fólk að gera sér ýmis erindi til að hitta hinn flinka mann, fræga hönnuð og hagleikssmið. En viti menn. Við þeim blöstu bara ópússaðar spýtur, kassar og annað álíka dót. Því sam- kvæmt hreintrúarstefnu diters sem hentaði konu hans að vísu ágætlega, skyldi hún henda nær öllu sem hún átti og helst ekkert að fá sér í stað- inn. diter var þá þeirrar skoðunar að menn skyldu ekki eiga meira en það sem þeir gátu borið með sér. Rúmin voru skrúfuð saman úr fjór- um plönkum og léttar þverspýtur límdar á borða sem lágu ofan á og eftir langhliðunum. I flutningum var lítið mál að rúlla upp í stranga borðunum með þverspýtunum og skrúfa plankana í sundur og leggja þá saman. Hver og einn gat þannig borið rúmið sitt undir handleggn- um. Hægindastólar vora með svip- uðu sniði, en allir borðstofu- og vinnustólar vora tómir trékassar, fengnir fyrir lítið frá Áfengisverzl- un ríkisins. Sama var að segja um hillur og lausa skápa. Útvarp var ekkert á heimilinu og því síður dag- blöð. Engar gardínur fyrir gluggum og óþarfa skraut var klippt af föt- um. I þessum sjálfvalda kalvinisma var hugmyndin um fjárhagslegan ávinning goðgá næst, svo skóla- stúlkunni reyndist nær ómögulegt að reikna orðadæmin sem fyrir vora lögð og flest fjölluðu um mikinn gróða kaupmannanna. En diter var umhugað um uppeldi hennar og út hrukku af sakramentinu Enid Blyton og Andrés Önd sem reyndar átti eftir að lenda undir pylsugerð- arhnífi meistarans. Barninu opnuð- ust ótrúlegir heimar. I útlöndum vora eplin græn! I útlöndum var úr- gangur óviðráðanlegt vandamál. í útlöndum teiknuðu menn æðisleg hús úr gleri um kletta, tré og fossa. Svo var ungfrúin sett í spilatíma. En hún fann sig ekki í hreinum Béla Bartók og bar sig frekar eftir be- bopi og boogie. Með fyrstu ferð diters til Bandaríkjanna varð ekki aftur snúið. I stökkum og stæðum stóðu nú á stofugólfinu ásamt öðr- um félögum, þeir Lester Young, „Fatha“ Hines, Mingus og Monk, Gillespie og Charlie Parker. Fyrir verðandi ungling átti landið enn eft- ir að rísa. Ferðir diters urðu fleiri svo ofan á bættust plötur frá glæ- nýju útgáfufyrirtæki; Tamla Motown. Og ekki varð langt að bíða uns fyrstu lög Rolling Stones bitu hlustirnar. Um gáttina var einnig einatt gestagangur erlendra lista- manna sem stuttan stans höfðu á leið yfir Atlantshafið, heimsálfa í milli. diter eignaðist auðveldlega vini og heimilið var ekki síður móts- staður margra Islendinga. Einhvern tíma var sagt um diter að hann væri gróflega heiðarlegur við sjálfan sig og aðra. Líklegast má þetta til sanns vegar færa. diter var gegnheill og gjörsamlega frábitinn allri sýndarmennsku og skinhelgi. Ef til vill var það einmitt þessi eig- inleiki og ofurmannlegt energí sem gerðu honum lífið og samskiptin við aðra oft erfiðari en þau hefðu ella þurft að vera. Fátt særði diter eins og ef honum fannst að honum væri gert rangt til, hann vera misnotað- ur, eða menn ganga á lagið. Ótti um það hefur vafalaust aukist eftir að hann efnaðist og á reyndi að greina kjamann frá hisminu. diter var ósínkur á sjálfan sig og örlátur á hugmyndir og aðra rausn, en óneit- anlega viðkvæmur og vandmeðfar- inn. I anda Dadaista, og e.t.v. síðar þeirra Fluxusfélaga, hafði diter ein- læga óbeit á öllum hernaði, og var jafnt í lífi sínu sem list í eilífu andófi við vestræn gildi. Auk hins evr- ópska arfs átti hann sjálfur hræði- legar minningar frá loftárásum bandamanna á Hannover. í skólan- um á morgnana vantaði iðulega ein- hvem bekkjarfélagann. Spumingin var aðeins ein: „Hvenær verður sætið mitt autt?“ Kennarinn kallaði nemendur upp að virtist af handa- hófi og barði þá með priki á fram- rétta fingurna. í Hitlersæskunni var einnig kvalafullt líf þar sem eldri strákarnir sáu um að herða þá yngri með harðfylgi og niðurlæg- ingu. Heima þéraðu þeir bræðurnir foreldrana og ávörpuðu þau helst ekki að fyrra bragði við matarborð- ið. Þegar að því kom að þjóna föður- landinu, gat diter ekki hugsað sér að gegna herskyldu. Og undan henni slapp hann með ýmsum kúnstum rétt eins og aðrir góðir dátar. Um miðjan 7. áratuginn fer diter sem gestakennari til New Haven. Hjónabandið fjarar út og áfram einnig það hóf sem áður einkenndi daglegt líf hans og allan stíl. Við tóku ár taumleysis í mat og drykk svo lífskyndill Dieters brann í báða enda. En þrátt fyrir þetta og þann aukna auð og veraldlega gengi sem stöðug og óslitin vinnusemi hans, snilli og listræn færni færðu honum, varðveitti hann ætíð þá alúð og um- hyggju sem mölur og ryð fá ei grandað. diter rot var kvæntur móður minni Sigríði Björnsdóttur myndþerapista. Hjá þeim ólst ég upp í þessu sérkennilega samblandi af bullandi bóhemisma og einsýna ofuraga. Ákveðið skeið er á enda runnið, enginn varð aftur samur sem einu sinni kynntist diter. Og einhvers staðar úti á óravegu minn- inganna ómar klarinetta gamla Goodmans: „Let’s play the blues“. Guðríður Adda Ragnarsdóttir. Óneitanlega er stórt skarð fyrir skildi í listheiminum við óvænt frá- fall Dieters Roths á besta aldri. Hann hafði ekki einungis víðtæk og varanleg áhrif á þróun íslenskrar myndlistar og bókverkagerðar síð- ustu fjóra áratugi, heldur var hann líka virtur atkvæðamaður og áhrifa- valdur á alþjóðavettvangi. Þess varð ég meðal annars áþreifanlega var þegar ég bjó í Berlín fyrir tveimur áratugum. Meðal þýskra lista- manna var nafn hans sveipað svip- uðum ljóma og nafn Josephs Beuys, og listasöfn sýndu verk hans jafnan á bestu stöðum í húsakynnum sín- um. Dieter var einkennilega mót- sagnakenndur maður, fullur af efa- semdum um hlutverk listarinnar, sífrjór og leitandi tilraunamaður, strangheiðarlegur gagnvart sjálfum sér og öðrum, einstaklega látlaus og ljúfur í persónulegri viðkynningu. Manni leið ósjálfrátt vel í návist hans, þó hann vekti stundum þá kennd að hann hefði séð gegnum hégóma heimsins og teldi mannlega viðleitni tilgangslitla. Mig minnir að fyrstu kynni okkar Dieters hafi orðið fyrir tilstilli svil- ans Ragnars Bjömssonar, sem stundum bauð til fjölmennra og fjörlegra áramótasamkvæma. Þar hitti ég þau hjónin Sigríði Bjöms- dóttur og Dieter, sem þá nefndi sig diter rot. Á þeim árum hafði hann vægast sagt ekki úr miklu að moða og var þakklátur fyrir verkefni sem honum áskotnuðust. Eitt þeirra var kápa á aðra ljóðabók mína, „Hafið og kletturinn“ (1961). Þótti kápan í meira lagi frumleg, meðþví á hana voru prentuð svörtu letri í viðeig- andi föllum öll nafnorð sem fyrir komu í bókinni, en um miðja kápuna vora nöfn höfundar og bókar einsog rauður borði í sömu leturstærð. Fyrir neðan „borðann" stóðu orðin á haus. Dieter hafði vit á að láta höf- undinn orðtaka bókina og raða orð- unum í stafrófsröð! Ekki var þessi nýbreytni öllum að skapi, til dæmis ekki útgefandanum Ragnari í Smára, enda ekki líkleg til að örva sölu á kverinu, en mér fannst gam- an að tiltækinu. Ári síðar tók ég við ritstjórn Les- bókar Morgunblaðsins, sem varð til þess að ég fékk þegar stundir liðu tækifæri til að fela Dieter mynd- skreytingar við ýmsar smásögur. Á árinu 1963 birtust þannig fimm myndskreytingar eftir hann við sög- ur eftir George Moore, Richard Hughes, Aksel Sandemose og J.K. Huysmans. Árið 1964 birtust ekki færri en átta myndverk hans við sögur eftir Bertolt Brecht, Steinar Sigurjónsson, John Steinbeck, Fa- bio Fiallo, Tom Masson og fleiri. Fyrir hirðuleysi og handvömm hafa frammyndir allra þessara verka glatast, en þau eru sögulegur þáttur í umsvifum Dieters á Islandi. Eftirað hann hvarf af landi brott urðu samfundir okkar miklu strjálli, en ég heimsótti hann stundum í vinnustofuna í Mosfellssveit þegar hann var staddur hérlendis og hitti hann við tvö tækifæri í Berlín. Frá þessum árum á ég eitt bókverkanna sem síðan hafa gert garðinn íræg- an. Það er nafnlaust lausblaðaverk í litríkri kápu og tileinkað Vera dótt- ur hans á barnsaldri. Hefur það að geyma furðulegt safn af prentuðum, vélrituðum og skrifuðum textum, teikningum, ljósmyndum og skiss- um á marglitum og misjafnlega þykkum blöðum. Ugglaust er það frumlegasta bókverk í mínum fór- um og látlaus uppspretta heilabrota og hugrenninga. Annað óvenjulegt bókverk, til- einkað Dieter Roth, eignaðist ég í Berlín. Það er eftir seinni konu hans, Dorothy Iannone, og nefnist „Danger in Dusseldorf (or) I Am Not What I Seem“ (1973). Þar segir frá þeim hjónum Önnu og Otto Ha- se í mjög óhefðbundnum stíl, enda batt Dorothy ekki bagga sína sömu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.