Morgunblaðið - 26.06.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 47
I
I
I
I
I
I
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
<
(
<
<
(
<
<
<
<
<
<
BRÉF TIL BLAÐSINS
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju.
Drengjakór
Laugarneskirkju
Frá Elsu Pétursdóttur:
HINN 8. júní sl. hélt Drengjakór
Laugarneskirkju tónleika í Lang-
holtskirkju undir stjórn Friðriks S.
Rristinssonar, þar sem drengirnir
sungu fyrir fullu húsi dagskrá þá
er þeir fluttu síðan aftur í söng-
ferðalagi á Englandi. Þar sem ég
hef ekki séð neina umfjöllun um
þessa yndislegu tónleika í neinu
dagblaðanna vil ég vekja athygli á
þessum metnaðarfulla hópi
drengja og stjórnanda þeirra.
Þetta voru þeirra langbestu tón-
leikar, sem ég hef heyrt þá flytja.
Efnisskráin var smekklega valin og
hnitmiðuð. í byrjun sungu
drengirnir án undirleiks og komu
þá vel fram hreinar og ungar radd-
ir þeirra. Maríuvers eftir Pál ís-
ólfsson tók á sig alveg nýja mynd í
meðferð drengjanna og var enn
yndislegra. Lofgjörðarsálmur eftir
Þorkel Sigurbjörnsson við sálm
eftir Sigurbjörn Einarsson vakti
athygli. Síðan rak hver perlan aðra
og var skemmtilegur stígandi í
söngdagskránni og getu drengj-
anna, en undirleikari þeirra var
Peter Máté. Svo bættust eldri fé-
lagar í hópinn og saman sungu þeir
sterkari og enn erfiðari verk. í lok-
in var slegið á létta strengi með
nokkrum Bítla-lögum í tilefni af
væntanlegri Englandsför. Þetta
voru stórskemmtilegir tónleikar og
það hefur eflaust verið mikil lífs-
reynsla fyrir þessa ungu drengi að
standa frammi fyrir þéttsetinni
Langholtskirkju, syngjandi á
nokkrum tungumálum.
Ég vil óska stjórandanum, Frið-
riki S. Kristinssyni, og drengjunum
hans til hamingju, svo og öðrum,
sem að þessu starfi standa.
ELSA PÉTURSDÓTTIR,
Neðstaleiti 5, Reykjavík.
Hvílíkt öryggi!
ABS hemlakerfi |
Framtíðarbíllinn Sirion «
Frumsýndur 25. - 28. júní
www.mbl.is
Í„Undraverð
hættuatriði..
tórskemmtileg
Roger Ebert
Jackie Chan
viðjafnaniegur
Hann er
iðpunkturinn
Dave Corbet
Jackie Chan er mættur
til leiks á ný og hefur
aldrei verið betri.
Frábær, fyndin og
frumleg áhættuatriði.
EKTA HASAR OG GRÍN
I
MR.
LAUGARAS - -
BIO