Morgunblaðið - 26.06.1998, Page 60
MewdCd
-setur brag á sérhvern dag!
Sporaöu
tímo,
sparaðu
peninga
^BLINAÐARBANKINN
traustur banki
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Farþegaskipti skemmtiferðaskipa
Góð
viðbót
VIÐ Miðbakka í Reykjavíkur-
höfn liggur farþegaskipið
Berlín en það er eitt þeirra
skipa sem breytt hafa reglu-
bundnum siglingum sínum
þannig að farþegaskipti fara
fram hér á íslandi. Þetta er
annað árið í röð sem þessi
háttur er hafður á en að sögn
Björns Gunnarssonar starfs-
manns umboðsaðila skipsins
er það afrakstur kynningar
íslenskra ferðaþjónustuaðila
á þeim kosti. Fjöldi erlendra
skemmtiferðaskipa mun
koma til landsins í sumar.
„Það hefur færst í vöxt að
skemmtiferðaskip á okkar
vegum ákveða að hafa far-
þegaskipti hér á landi í ferð-
um sínum til Grænlands. Það
hefur í för með sér að þau
kaupa í sífellt meiri mæli
vistir og þjónustu til farar-
innar, sérstaklega í kjölfar
lægra vöruverðs þeirra sem
afgreiða skipin,“ sagði Björn
Gunnarsson í samtali við
Morgunblaðið í gær.
10-12% aukning á milli ára
Lúther Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Skipa-
verslunar Stiklu/Bónuss, sem
meðal annars selur matvörur
í skemmtiferðaskip er
ánægður með þróunina og
segir pantanir þeirra sífellt
stækka.
„Við höfum tekið eftir
stærri pöntunum í kjölfar
farþegaskiptanna. Til dæmis
er aukning upp á 10 til 12% í
farþegaskipið Berlín miðað
við árið í fyrra,“ sagði Lúth-
er Guðmundsson.
Morgunblaðið/Ásdís
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Berlín kemur frá Þýskalandi og stansar
í tæpa þrjá daga vegna farþegaskipta.
Fjármálaráðherra um
uppsagnir hjúkrunarfræðinga
Horfum ekki á
þetta ástand
aðgerðalausir
VIÐRÆÐUR fóru í gær fram milli
fulltrúa hjúkrunarfræðinga og
stjórnvalda til að freista þess að
fínna flöt til að koma í veg fyrir að
yfir 60% hjúkrunarfræðinga á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Ríkis-
spítölum gangi út um næstu mán-
aðamót. Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra vildi ekki tjá sig um efnis-
innihald þeirra viðræðna sem átt
hefðu sér stað, en lagði áherslu á
að verið væri að vinna að lausn
þessa máls af mikilli alvöru. „Það
liggur í augum uppi að menn horfa
ekki upp á þetta ástand aðgerða-
lausir," sagði hann.
Lausn má ekki hafa keðjuáhrif
„Það er hins vegar mjög mikil-
vægt, hvað svo sem gert verður tiJ
þess að leysa þessa deilu, að það hafi
ekki þau keðjuáhrif í þjóðfélaginu að
það kollvarpi stöðugleikanum í efna-
hagsmálum og verðlagsmálum sem
hér hefur verið. En af því hafa menn
auðvitað verulegar áhvggjur," sagði
ráðherra.
Magnús Pétursson, ráðuneytis-
stjóri fjármálaráðuneytis, sagði til
viðbótar að viðræður við fulltrúa
hjúkrunarfræðinga í gær hefðu ver-
ið uppbyggilegar og að báðir aðilar
mundu skoða hugmyndir sem gengu
á íhilli þar til í dag. „Við eigum efnis-
lega ágætai- viðræður við félagið og
hjúkrunarfræðingar þurfa að melta
þetta eitthvað og skoða það sem
okkur fór á milli og við sömuleiðis,"
sagði hann en taldi ekki Jjóst hvort
þetta leiddi til niðurstöðu.
Oddur Gunnarsson, lögfræðing-
ur sjúkrahúsanna, tjáði Morgun-
blaðinu í gær að röð af ófrágengn-
um málum hefði verið sett í bið
meðan beðið var niðurstöðu Fé-
lagsdóms. Bjóst hann við að fund-
um vegna þessara mála yrði raðað
niður frá og með deginum í dag og
út næstu viku og kvaðst hann bú-
ast við að mál hjúkrunarfræðinga
fengi nokkurn forgang. Ekki er þó
endilega talið að fundir í úrskurð-
arnefnd myndu leiða til lausnar,
þar sem ljóst er að ræða þarf mál-
in hjá fjárveitingavaldi og ríkis-
stjórn til að kanna hvort mögulegt
verður að setja eitthvert meira
fjármagn í heilbrigðiskerfið.
Nefnd þriggja ráðuneytisstjóra
hefur látið vinna margvíslega út-
reikninga og kanna ýmsar leiðir
nánast dag og nótt síðustu sólar-
hringana.
Herdís Herbertsdóttir, hjúkrun-
ardeildarstjóri á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, segir að verið sé að
mynda sér hugmyndir um hvernig
greitt yrði fyrir þjónustu hjúkmn-
arfræðinga sem hætta, til að leggja
fyrir stjórn SHR. Er hugsanlegt að
þær verði lagðar fyrir stjómina í
dag. „Það er ekki hægt að reka
sjúkrahúsið án okkar,“ segir Her-
dís og segir hjúkrunarfræðinga
ekki ganga út á miðnætti 30. júní
og skilja sjúklingana eftir. Leggur
hún áherslu á að gengið verði frá
samningi um hugsanlega verktöku
hjúkrunarfræðinga komi til upp-
sagnanna.
■ Kallað í/10
Umferðarslys
í Bosníu
Islenskur
læknir
komst lífs af
VIÐAR Magnússon, læknir í ís-
ju^ensku heilsugæslusveitinni í Bosn-
íu, sakaði ekki þegar brynvarin
sjúkrabifreið sem hann var farþegi
í fór út af veginum og hvolfdi
skammt frá bænum Sanski Most í
Bosníu. Tveir létu lífið í slysinu.
Slysið átti sér stað síðdegis á
þriðjudag þegar bifreiðin var á
heimleið úr eftirlitsferð. Fór hún út
af veginum, féll niður þrjá metra
og lenti á hvolfi í árfarvegi. Sex
manns vom í bílnum og fómst öku-
maður bifreiðarinnar og túlkur
hópsins. Viðari tókst að komast út
úr bifreiðinni og í næsta þorp þar
•^►sem hann náði í hjálp.
Viðar er læknir í íslensku heilsu-
gæslusveitinni í Bosníu sem
starfar innan bresku heilsugæslu-
sveitarinnar, en Islendingar era
hluti af henni. Þar starfa auk Við-
ars einn íslenskur læknir, tveir
hjúkrunarfræðingar og þrír lög-
-«*3glumenn.
Miklar verðhækkanir og aukinn útflutningur til Evrópu og
Ameriku vega upp verðlækkun á Japansmarkaði
Útflutningur til A-Asíu hefur
dregist saman um helming
EFNAHAGSKREPPAN í Asíu er
farin að valda verulegum sam-
drætti á útflutningi Islendinga til
Austur-Asíu á þessu ári. Utflutn-
ingur til þessa heimshluta, aðallega
á sjávarafurðum, hefur dregist
saman um allt að helming miðað
við sama tímabil í fyrra. Á sama
tíma hefur verð á sjávarafurðum á
öðram markaðssvæðum fyrir sjáv-
arafurðir hækkað um nálægt 20%
og útflutningur á aðra markaði
aukist mun meira en nemur sam-
drættinum í Asíu. Er því áætlað að
heildarútflutningur landsmanna
aukist um 10-11% í ár frá síðasta
ári.
Mikilvægasti markaður Islands
fyrir sjávarafurðir í Asíu er í Jap-
an, sem er með um 80% af heild-
inni. Verð á afurðum til þessa
svæðis hefur lækkað í kjölfar geng-
islækkana, en á sama tíma hafa
miklar verðhækkanir orðið á sjáv-
arafurðum í Evrópu og Ameríku.
Rússland er einnig að verða mikil-
vægara sem markaður fyrir frysta
loðnu, en áður var hún einungis
flutt til Austur-Asíu.
Meiri möguleikar skapast á
öðrum mörkuðum
Ásgeir Daníelsson, hagfræðing-
ur á Þjóðhagsstofnun, segir að
miklar verðhækkanir hafi átt sér
stað í Vestur-Evrópu og á Amer-
íkumarkaði og þróunin þar verið
jákvæð. Útflytjendur hafi til
skamms tíma verið mjög háðir
Japansmarkaði við sölu einstakra
vörategunda s.s. á sjófrystri rækju,
heilfrystum karfa og frystri loðnu,
en þetta sé að breytast. „Jafnvel í
þessum greinum hafa menn nú
Verðmæti útflutnings
til Austur-Asíu
Milljarðar króna
4.5 | ■:
4,0--r—--------
3.5 — -----
3,0 - -----
2.5 — -----
Tímabilið
janúar-apríl
2,0
1,5
1,0
0,5
0
Japan Taiwan Önnur
lönd A-Asíu
meiri möguleika á öðram mörkuð-
um þegar Japansmarkaður verður
tiltölulega óhagstæðari vegna sam-
dráttarins þarna austur frá,“ segir
Ásgeir.
Hann bendir á að þessi jákvæða
þróun á mörkuðum í Evrópu og
Bandaríkjunum geri meira en að
vega upp þann samdrátt sem orðið
hefur á Ásíumarkaðinum. „I það
heila tekið sjáum við fyrst og
fremst jákvæða þróun á mörkuðum
að undanförnu, þrátt fyrir sam-
drátt í Austur-Asíu, en sá markað-
ur vegur 10-15% af heildinni," seg-
ir Ásgeir.
„Japanir eru miklir fiskneyslu-
menn og í fljótu bragði verður
ekki séð að þeir muni minnka
neysluna sem þessu nemur, en
hitt er ljóst að ef þeir vilja fá fisk
frá íslandi verða þeir að borga
miklu hærra verð fyrir hann en
þeir era reiðubúnir að gera í dag,“
sagði Ásgeir.