Morgunblaðið - 04.07.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.07.1998, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þórður Friðjónsson, forsvarsmaður íslands í viðræðum við Norsk Hydro Búist við ákvörðun um framhaldið í lok september ÞÓRÐUR Friðjónsson, settur ráðu- neytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu, segir að undirbúningur vegna hugs- anlegs álvers norska fyrirtækisins Norsk Hydro hér á landi sé enn í gangi í fullri alvöru og að búist sé við því að á fundi í samræmingar- nefnd íslands og Norsk Hydro í lok september verði farið yfir gögn og útreikninga sem verða unnir í sumar og nánari ákvarðanir teknar um framhaldið. Þórður leiðir viðræðurn- ar fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. „Ef niðurstöður af þeirri vinnu, sem hefur verið hrint í framkvæmd og verið er að vinna í sumar, verða jákvæðar - eins og mér finnst frekar líklegt þótt aldrei sé hægt að ganga út frá neinu sem vísu í þeim efnum - reikna ég með að tekin verði ákvörð- un um að fara í nánari athuganir. Þær eru býsna kostnaðarsamar og menn vilja vera nokkuð vissir um að ná landi áður en lagt yrði í þær,“ sagði Þórður. Hann sagði að þeir þættir, sem nú eru til skoðunar og skipta langmestu máli, væru spurningar, sem snúa að eignarhaldi og fjármögnun orkufyr- irtækis og álverksmiðjunnar. „Þetta er töluvert viðamikið verk- efni því að hugsunin að baki er sú að þessar framkvæmdir verði algjör- lega á viðskiptalegum grunni og að þeim komi margir aðilar. Síðan er verið að kanna ýmsa þætti, sem varða umhverfismálin, og í þriðja lagi ýmsa þætti, sem snúa að innri gerð efnahags- og atvinnulífs á Austurlandi, sem geta skipt miklu máli fyrir staðsetningu stórfyrir- tækis af þessu tagi. Það er fleira, sem er verið að skoða, en þetta eru viðamestu atriðin sem við viljum hafa skýr fyrir okkur áður en tekn- ar verða frekari ákvarðanir um framhaldið. Þetta ferli tekur sinn tíma. Eg hef stundum líkt þessu við það þegar ungt fólk er að draga sig saman. í sjálfu sér veit enginn í byrjun hvort eitthvað verður úr en eftir því sem lengra líður fá menn skýrari mynd af því hvort um fram- hald verður að ræða eða ekki. Þetta er á þeim grunni. Ef halda mætti þessari samlíkingu áfram yrði eitt- hvað, sem mætti líkja við trúlofun, á fyrri hluta næsta árs, ef niðurstöður úr öllum þessum athugunum verða jákvæðar. En það er aðeins lengra í giftinguna," sagði Þórður Friðjóns- son. Hann sagði aðspurður að sjálfsagt væru einhverjir þeirrar skoðunar að þetta verkefni væri of viðamikið fyr- ir íslenskan markað og virkjana- þörfin svo mikil að illa væri farið með kvóta Islands samkvæmt Kyoto-samkomulaginu að verja hon- um í þetta verkefni. „Sjálfsagt eru einhverjir þeirrar skoðunar og þetta er þá eitthvað sem menn þurfa að takast á um hér innanlands ef þær skoðanir eru sterkar. En það er ekk- ert í viðræðunum ennþá, sem bendir til þess að það geti ekki orðið af var- anlegu samstarfi milli þessara aðila. Báðir aðilar eru að vinna af heilum hug með það markmið að leiðar- ljósi,“ sagði Þórður. Morgunblaðið/Sigurgeir Harður árekstur HARÐUR árekstur varð á gatna- mótum Víkurvegar og Vestur- landsvegar rétt fyrir klukkan 21 í gærkvöld þegar jeppi og fólksbíll skullu saman. Tveir karlmenn voru fluttir á slysadeild en voru meiðsli þeirra ekki talin alvarleg. Annar bfllinn skemmdist mikið og hinn töluvert. Þeir voru báðir fjarlægðir með kranabíl. Hátíðarhöld í 25 ára frá Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. HÁTÍÐARHÖLD vegna 25 ára goslokaafmælis í Eyjum hófust með glæsibrag síðdegis í gær. Skrúð- ganga fór frá Friðarhöfn að Stakkagerðistúni þar sem Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri setti afmælis- hátiðina formlega. Þrátt fyrir að veðurguðimir hafi ekki verið í hátíðarskapi og talsvert hafi rignt með- an skrúðgangan var á ferð létu Eyjamenn og gestir Eyjum vegna goslokum það ekki á sig fá og ijölmenntu í gönguna. Karni- valstemmning var í skrúðgöngunni og götuleikhús sá um ýmsar uppákomur til skemmtunar fyrir göngumenn sem skemmtu sér konunglega. f gærkvöld var síðan dagskrá hátiðarhaldanna haldið áfram á fjórum stöðum og alla helgina verður síðan samfelld skemmtidagskrá í Eyjum. Morgunblaðið/Arnaldur MIKIL hálka myndaðist þegar rigndi á nýlagt malbikið. Miklabraut Hálka á nýju malbiki NOKKUR hætta skapaðist við að- rein frá Miklubraut að Reykjanes- braut í gærmorgun þegar hálka myndaðist á nýlögðu malbiki eftir að byrjaði að rigna. Fjölmargir ökumenn lentu í vandræðum þegar bifreiðir þeirra tóku að rása á göt- unni og enduðu nokkrar þeirra óskemmdar uppi á umferðareyju. Tvö óhöpp voru þó tilkynnt lög- reglu þar sem bifreiðir höfðu farið utan í ljósastaur og kvartaði annar ökumaðurinn um eymsl í handlegg. Fljótlega eftir að hálkunnar varð vart settu gatnamálayfirvöld upp skilti þar sem varað var við aðstæð- um og hámarkshraði lækkaður í 30 kflómetra. Ekki er vitað til að óhöpp hafi átt sér stað eftir það. -----M-*------ 121 umsókn um flug- mannsstörf ALLS sótti 121 flugmaður um störf 10 til 15 flugmanna hjá Flug- leiðum sem auglýst voru nýverið en umsóknarfrestur rann út um síðustu mánaðamót. Níu konur eru meðal umsækjenda. Af 200 flug- mönnum Flugleiða í dag eru 5 kon- ur. Jens Bjamason, flugrekstrar- stjóri Flugleiða, segist búast við að fyrstu flugmennirnir verði ráðnir með haustinu. Hann segir að fyrst þurfi að fara yfir umsóknir og gögn til að kanna hvort allir hafi tilskilin réttindi sem krafist er tfl starf- anna. Þeir sem standist það eigi kost á inntökuprófi og síðan fari hópurinn í gegnum ýmis próf í nokkrum þrepum næstu vikur og mánuði þar tfl eftir stendur hópur 10 til 15 flugmanna sem ráða þarf. Ráðningamar nú eru einkum vegna aukinna verkefna frá og með næsta vori þegar ný þota bætist í flugflotann. Verður að hafa þetta langan fyrirvara á ráðningum vegna þjálfunar, bæði þeirra sem ráðnir verða og flugmanna sem flytjast milli tegunda. Mun slík þjálfun standa frá hausti og fram eftir næsta vetri. Sérblöð í dag 16IÍBUR ÁLAUGARDÖGUM LLöDÖII HIVI '98 á Netinu Danir stóðu sig vel gegn heimsmeisturunum / B4 Frakkar lögðu ítali í víta- spyrnukeppni á HM / B3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.