Morgunblaðið - 04.07.1998, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hollend-
ingarnir
hjólandi
HOLLENSKU hjónin van der
Bliek eru búin að hjóla í tvær
vikur um Island. Þau hafa með-
al annars komið við á Þingvöll-
um, Laugarvatni, Gullfossi,
Geysi og Flúðum. Morgunblaðs-
menn hittu þau við bæinn Þor-
valdseyri um hádegisbil, en þau
höfðu lagt af stað frá Hvolsvelli
í morgunsárið. Hjónin segjast
alls ekki vera miklir hjólreiða-
garpar, mest ferðist þau um fót-
gangandi með bakpoka, þau
hafí reynt að ferðast um í rútum
en það gangi illa. „Þegar við
komum til Islands fyrir sjö ár-
um og keyrðum um í rútu missti
ég af öllu því ég svaf nærri all-
an tímann,“ segir frú van der
Bliek. Maður hennar tekur und-
ir þetta og segir hjólreiðarnar
góðan ferðamáta, þau séu fyrir
það fyrsta vakandi og svo skynji
þau umhverfið miklu betur,
pjóti gróðurilms og geti ráðið
ferðum sínum alveg sjálf. Þau
hafi t.d. skilið hjólin eftir á
Hvolsvelli í tvo daga og farið í
Þórsmörk. Þau segjast mest
hafa ferðast um Noreg, Sviss og
ísland, þau sæki þangað sem
fjöllin eru.
Morgunblaðið/Rax
HERRA og frú van der Bliek sækja þangað sem fjöllin eru
og hjóla til að halda sér vakandi.
Ragnheiður Hanson tónleikahaldari
segir að Rolling Stones komi í haust
Dagsetningin
var aldrei örugg
A HEIMASIÐU tónleikaferðar Roll-
ing Stones kemur hvergi fram að
hljómsveitin muni halda tónleika á ís-
landi í ágúst. Til stóð að sveitin héldi
tónleika í Sundahöfn laugardags-
kvöldið 22. ágúst, eins og greint var
frá á blaðamannafundi hinn 8. júní sl.
Á heimasíðunni kemur hins vegar
fram að sveitin muni halda tónleika í
Prag í Tékklandi umrætt kvöld.
Ragnheiður Hanson tónleikahald-
ari segir að dagsetningin, 22. ágúst,
hafi alltaf verið með fyrirvara. „Það
kom fram frá upphafi að stefnt væri
að tónleikunum 22. ágúst en mjög
líklegt væri að það myndi breytast.
Það væri vegna þess að Keith hefði
verið lasinn, Mick hefði misst rödd-
ina og því væri verið að endurskipu-
leggja tónleikahald sveitarinnar.
Hljómsveitin sagði við mig, að ef
eitthvað breyttist mundu þeir færa
dagsetninguna en kæmu samt,“
sagði Ragnheiður í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Eg vissi fyrir tveimur dögum að
hljómsveitin færi fyrst til Prag þar
sem auðveldara væri að komast
þangað frá Króatíu og að við mynd-
um þvi færast aftur. Ég sagði bara
„fínt“ þar sem ég var margbúin að
Atlanta boðið að leigja
eða kaupa Airbus-þotur
FULLTRUAR frá Airbus flug-
vélaverksmiðjunum evrópsku hafa
undanfamar vikur átt viðræður við
stjómendur Atlanta flugfélagsins
um hugsanleg kaup eða leigu á not-
uðum Airbus 300-600R þotum.
Hafþór Hafsteinsson, flugrekstrar-
stjóri Atlanta, segir að athugað
verði hvort Airbus þotur geti kom-
ið í stað Lockheed Tristar véla fé-
lagsins en að þetta sé aðeins laus-
leg hugmynd.
Kaupverðið 2,7
milljarðar á vél
Atlanta hefur sjö TriStar þotur í
þjónustu sinni en þær em þriggja
hreyfla og taka 362 farþega. Air-
bus 300-600R þotumar em tveggja
hreyfla og taka 360 farþega og seg-
ir Hafþór þær því talsvert hag-
stæðari í rekstri hvað varðar elds-
neytiskostnað, yfírflugs- og lend-
ingargjöld vegna lægri flugtaks-
þunga ásamt því að hafa tvo flug-
menn í stjómklefa í stað þriggja á
Tristar þotunum.
Airbus þotumar sem standa til
boða em fímm til tíu ára gamlar og
koma frá Emirates flugfélaginu
sem er að fá afhentar nýjar þotur.
Emirates hefur mjög gott orð á sér
í rekstri og viðhaldi flugvéla af
þessari gerð, að sögn Hafþórs.
Kaupverð Airbus 300-600R vél-
anna er um 2,7 milljarðar króna
hver, en leiguverð um 32 milljónir
á mánuði.
Fulltrúar Airbus vörpuðu fram
óformlegu tilboði um leigu eða
kaup á þessum vélum en hafa sam-
hliða því lagt mikla áherslu á að
bjóða Atlanta nýjar vélar til kaups.
Hafþór tjáði Morgunblaðinu að
þetta væm aðeins hugmyndir og
engra ákvarðana að vænta á næst-
unni. Hins vegar séu uppi stöðugar
athuganir á því hvaða flugvéla-
gerðir henti best rekstri félagsins á
hverjum tíma.
AIRBUS getur boðið flugfélögum ýmsar stærðir af þotum.
tala um að þetta gæti gerst, og
fannst það ekki nein frétt að dag-
setningin myndi breytast.“
Ragnheiður kveðst eiga von á
nýrri dagsetningu á næstu dögum og
þá muni hún tilkynna um breyting-
una.
-------»♦♦.-------
Þreytir
Viðeyjar-
sund
KRISTINN Magnússon sundkappi
ætlar að synda Viðeyjarsund í dag,
laugardag. Hann mun hefja sundið
frá bryggjunni í Viðey og taka land í
Reykjavíkurhöfn við Suðurbugt, sem
er á milli Miðbakkans og Ægisgarðs.
Sundið er um 4,5 kílómetrar og mun
bátur fylgja honum á sundinu.
Kristinn áætlar að leggja af stað
frá Viðey uppúr þijú á laugardaginn
ef veður leyfir. Hann reiknar með að
synda hvem kílómetra á 15 til 20
mínútum en hraðinn fari eftir
straumum og vindum.
Undirbúningur fyrir
Drangeyjarsund
Sundið er liður í undirbúningi fyr-
ir Drangeyjarsund sem Kristinn
hyggst þreyta síðar í sumar, en það
er 8 km. Hann syndir á hverjum degi
í sjónum í Nauthólsvík, frá tuttugu
mínútum á dag, upp í allt að einni og
hálfri klukkustund.
„Ég syndi Viðeyjarsundið aðallega
til að prófa andlegu hliðina, til að sjá
hvemig mér líður. Ég mun láta bát
fylgja mér, ég nenni ekki að standa í
neinni fífldirfsku og ætla að komast
lifandi frá þessu öllu saman. Aðal-
málið er að öryggið sé í lagi,“ sagði
Kristinn sem synti Bessastaðasundið
um daginn og lenti þá í nokkrum
vandræðum með að komast á land að
loknu sundinu.
-------♦-♦-♦-------
Borgarnes
Of hröö umferð
AÐ sögn lögreglunnar í Borgarnesi
var umferð alltof hröð miðað við
aðstæður þegar Morgunblaðið hafði
samband við hana síðdegis í gær.
Mikil rigning var í Borgarfirðinum
og slæmt skyggni en bílstjórar
virtust taka lítið tillit til þess. Hafði
lögreglan þegar mælt nokkra bíla
yfir hámarkshraða en vaxandi
umferð ferðafólks var þá um svæðið.
Leiðsögurit um
íjórar af vinsælustu
önguleiðum
andsins:
Gmmmmm
Landmannalaugar • Þórsmörk
Herðubreiðarlindir • Svartárkot
Snæfell • Lónsöræfi
Hvítámes • Hveravellir
Mál og menning
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfml 510 2500
Óvenjumikill þörungagróður í Norðfjarðarflóa
Freyðir brúnu frá bátnum
og er eins og leðja
MIKIÐ hefur verið um þörunga-
gróður í Norðfirði og öllum Norð-
fjarðarflóa að undanfömu. Að sögn
Finns Þórðarsonar trillusjómanns
hefur flóinn verið þakinn þessum
gróðri, sem hann lýsir sem rauð-
brúnum að lit. „Það má kannski
best skýra þetta með því að það
freyðir brúnu frá bátnum á siglingu
í stað hvíts eins og flestir þekkja.
Þetta er eins og leðja,“ sagði Finn-
ur.
Hann sagðist aldrei áður hafa
orðið var við þetta fyrirbæri í jafn-
miklum mæli, en gróðurinn ylli sjó-
mönnum þó engum vandræðum.
„Þetta hefur verið það mikið að fólk
í landi tekur eftir þessu og furðar
sig á því.“
Að sögn Finns er gróðurinn nú í
rénun eftir að hafa verið í blóma í
u.þ.b. tíu daga.
Toppar á vorin og haustin
Hjá Hafrannsóknastofnun feng-
ust þær upplýsingar að skilyrði fyr-
ir þörungagróður sem safnast í
flekki, eins og þama hefur gerst,
sköpuðust helst á vorin þegar sól
hækkar á lofti og svo aftur á
haustin. „Blóminn er mestur á vor-
in, þá tekur þessi gróður við sér, og
svo er annar toppur á haustin,"
sagði Ólafur S. Ástþórsson hjá Haf-
rannsóknastofnun og bætti því við
að ekkert væri óvenjulegt við að
svona gerðist.
Hann sagði þó að skilyrði gætu
skapast fyrir gróðurinn á sumrin og
það hefði líklega gerst þama þótt
hann gæti ekki sagt til um það fyrir
víst, enda væri sér ekki kunnugt um
að Hafrannsóknastofnun hefði feng-
ið sýni af gróðrinum til rannsóknar.
Að sögn Ólafs em þömngar sem
þessir agnarsmáir og geta fjölgað
sér mjög ört þegar skilyrði em
ákjósanleg.