Morgunblaðið - 04.07.1998, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Það er búið að hagræða frú, það er enginn ráðherra, við Sigga erum búnar að læra þessar tvær
setningar: „Málið er í athugun" og „Það er verið að athuga málið“.
Landssamband
veiðifélaga 40 ára
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
VALDÓR Bóasson, formaður Landssambands stangaveiðifélaga, færði
Böðvari Sigvaldasyni, f.h. Landssambands veiðifélaga, Ijósmynd af
Glanna í Norðurá eftir Rafn Hafnfjörð.
Morgunblaðið Grund, Skorradal
„ÞEGAR við veiðiréttareigendur
komum saman á Hvanneyri á aðal-
fund samtaka okkar, eru liðin 40 ár
frá stofnfundi þeirra í Borgamesi í
júní 1958. Þessum tímamótum ber
að fagna og minnast um leið með
upprifjun þess helsta sem á daga
landssambandsins hefur drifið á
liðnum áratugum.“ Þetta voru upp-
hafsorð formanns Landssambands
veiðifélaga, Böðvars Sigvaldasonar,
í ársskýrslu sinni á aðalfundinum
sem haldinn var á Hvanneyri.
Formaðurinn, Böðvar Sigvalda-
son, rakti helstu atriði í 40 ára sögu
sambandsins. Hann sagði m.a.: „Að-
dragandi þess að samtökin voru
stofnuð var sá, að Veiðifélag Árnes-
inga beitti sér fyrir því að haldinn
var fundur í Borgarnesi í júm' 1957
til að ræða stofnun landssambands
veiðifélaga. Fundarstjóri þar var
Björn Sigurbjamarson, þáverandi
formaður Veiðifélags Amesinga.
Niðurstaða fundarins leiddi til þess
að stofnfundur landssambandsins
var haldinn ári síðar í Borgarnesi, í
júní 1958. Til stofnfundarins komu
fulltrúar sjö veiðifélaga, en formað-
ur undirbúningsnefndar var Þórir
Steinþórsson, en einnig var í nefnd-
inni Jörundur Brynjólfsson....
Fyrsti formaður Landssambands
veiðifélaga var Þórir Steinþórsson,
Reykholti og var hann formaður til
ársins 1967, að Sigurður Sigurðsson,
Stóra-Lambhaga tók við og var for-
maður til 1973. Hermóður Guð-
mundsson, Arnesi, varð formaður
1973 og gegndi því starfi til ársins
1977, en þá tók við Þorsteinn Þor-
steinsson, Skálpastöðum og var for-
maður til 1982. Frá þeim tíma hefur
núverandi formaður, Böðvar Sig-
valdason, gegnt starfinu. Alls hafa
því 5 menn setið á stóli formanns á
40 áram.
Þess skal getið að frá 1958-1970
vora stjórnarmenn þrír, en eftir það
fimm talsins. Jafnframt er tryggt í
samþykktum félagsins, að stjórnar-
menn komi frá hinum ýmsu lands-
hlutum.
Fimm heiðurs-
félagar kjörnir
Heiðursfélagar: Til þessa hafa 5
menn verið kjömir heiðursfélagar
Landssambandsins, en þeir era:
Þórir Steinþórsson, Reykholti, Jör-
undur Brynjólfsson, Kaldaðamesi,
Bjöm J. Blöndal, Laugarholti, Hin-
rik A. Þórðarson, Utverkum og
Halldór Jónsson, Miðhúsum.
Að lokum þakkaði formaðurinn
öllum þeim sem lagt höfðu sam-
bandinu hð á þessum 40 áram,
minntist látinna stjómarmanna, og
vonaðist til að það myndi eflast hér
eftir sem hingað til.
Aðalræðu kvöldsins flutti Flosi
Ólafsson, varaformaður Veiðifélags
Reykjadalsár. Þótt varaformaðurinn
vildi ekki láta kynna sig sem skemmti-
kraft, þá voru undirtektir veislugesta
slíkar, að margur skemmtikraftur
mætti vel við una. „Ræðan“ verður
ógleymanleg þeim sem á hlýddu.
Þeir tveir menn sem sátu stofn-
fund, og enn era á lífi vora kallaðir
fram og tóku við gjöf úr hendi for-
mannsins. Báðir fengu bókina „Perl-
ur í náttúru Islands".
Einari Hannessyni vora einnig
þökkuð 51 árs störf að veiðimálum á
70 ára æviferli, en Einar starfaði á
árunum 1947-1988 hjá Veiðimála-
stofnun, en frá árinu 1988 til 1998
hjá Landssambandi veiðifélaga. Var
honum færð vatnslitamynd frá Með-
alfellsvatni að gjöf, eftir Jónas Jóns-
son, listmálara.
Valdór Bóasson, formaður Lands-
sambands stangaveiðifélaga, kom
færandi hendi og afhenti stóra ljós-
mynd af Glanna í Norðurá með
kveðju frá höfundi ljósmyndarinnar,
Rafni Hafnfjörð og stangaveiðifélag-
inu.
Tvö heillaskeyti bárast afmælis-
baminu frá Jónasi Aðalsteinssyni,
hrl., og Gauki Jörandarsyni, um-
boðsmanni Alþingis.
Hátíðarsamkomunni lauk síðan
með söng þeirra Gunnars Arnars,
Snorra og veislustjórans, Ragnars
Olgeirssonar.
Olympíuleikarnir í eðlisfræði á Islandi
100 heimili
bjóða gestunum
til kvöldverðar
Bergþóra K. Ketilsdóttir
lympíuleikarnir í
eðlisfræði standa
nú yfir í Reykja-
vík. Leikarnir eru hinir
29. í röðinni og er ísland
minnsta ríkið sem haft
hefur umsjón með fram-
kvæmdinni til þessa. Alls
koma 56 lið víðsvegar að
úr heiminum til keppni,
fimm í hverju liði en
keppendur eru 15-19 ára
gamlir. Hverju liði fylgja
tveir fararstjórar.
Iþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkurborgar hefur
séð til þess að fá hverju
liði íslenskan fylginaut á
svipuðu reki sem jafn-
framt er leiðsögumaður
hvers hóps.
Einn liður ólympíuleik-
anna er fólginn í heim-
boðum keppnisliða og farar-
stjóra til fjölskyldna á Reykja-
víkursvæðinu, þar sem gestirnir
eiga stund með íslenskum fjöl-
skyldum. Bergþóra K. Ketils-
dóttir kerfisfræðingur hjá Ný-
herja hefur umsjón með heim-
boðunum fyrir hönd fram-
kvæmdanefndar leikanna.
- Hvaðan er hugmyndin að
heimboðunum komin?
„Hugmyndin um heimboð
hefur tíðkast síðan á ólympíu-
leikunum í Astralíu og Kanada
en hún felur í sér að gefa kepp-
endum kost á því að dvelja með
íslenskri fjölskyldu eina kvöld-
stund, þiggja léttar veitingar og
kynnast gestgjöfum sínum bet-
ur. Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra er gestgjafi fyrir
hönd Islands og höfum við átt
mjög gott samstarf við mennta-
málaráðuneytið um fram-
kvæmdina.
Mælt var með því að boðið
yrði sem einfaldast til þess að
allir ættu notalega kvöldstund.
Sendar vora upplýsingar mn við-
komandi keppnislið eða land til
allra gestgjafa ásamt leiðbein-
ingum um sérstakar þarfir,
væru þær fyrir hendi. Sumir
gestanna era gi-ænmetisætur,
svo dæmi sé tekið. Einnig var
fólk beðið um að veita ungmenn-
um ekki áfenga drykki. Við ráð-
leggjum fólki að hafa boðið með
svipuðum hætti og ef það væri
að bjóða vinafólki heim. Hjarta-
hlýjan skiptir mestu máli.“
- Hvernig var undirbúningi
að heimboðunum háttað?
„Þegar undirbúningur hófst
var ljóst að hafa þyrfti samband
við mikinn fjölda hugsanlegra
gestgjafa; einstaklinga, ræðis-
menn og fulltrúa
sendiráða. Sendiráðin
eru níu þannig að
stærsti hluti heim-
boðanna er til al-
mennra borgara. Við-
tökurnar hafa verið mjög góðar
svo sýnt er að 96 aðilar verði
gestgjafar á suðvesturhorninu
og Vesturlandi. Keppendur eru
boðnir heim í kvöld og liðsstjór-
ar þriðjudagskvöldið 7. júlí, með
aðstoð Félags raungreinakenn-
ara og Ragnhildar Þórarins-
dóttur matvælaverkfræðings.
Einnig hefur Barbara Nagano
hjá þýska sendiráðinu aðstoðað
við að útvega gestgjafa. Gest-
irnir munu síðan dreifast um
Akranes, Kjós, Þingvallasveit
og suður í Kaldárbotna. Margir
► Bergþóra K. Ketilsdóttir
fæddist árið 1954 í Keflavík.
Hún lauk námi í kerfisfræði í
Kaupmannahöfn árið 1976 og
starfaði sem kerfisfræðingur í
Danmörku og Englandi áður
en hún fluttist heim til starfa
hjá IBM, síðar Nýherja, árið
1982. Bergþóra er gift Þor-
steini I. Sigfússyni prófessor
og formanni framkvæmda-
nefndar ólympíuleikanna og
eiga þau þrjú börn.
gestgjafa stefna á útigrill, aðrir
fara með gesti sína í sumarbú-
staði, fjöruferðir eða göngut-
úra.“
- Hvernig voru gestgjafarnir
valdir?
„Þetta eru mikið til vinnufé-
lagar, kunningjar og að hluta
fjölskylda. Margir eru vinnufé-
lagar Þorsteins I. Sigfússonar,
formanns framkvæmdanefndar-
innar, éða raungreinafólk frá
Háskólanum. Einnig hefur
þetta spurst út svo nokkrir hafa
boðið sig fram.“
- Hvað hefur undirbúningur-
inn tekið langan tíma?
„Ég byrjaði á þessu í febrúar
með vinnunni en ætli megi ekki
segja að aðalátakið hafi verið í
maí og júní. Tveimur vikum fyr-
ir leikanna var búið að útvega
95% gestgjafanna og nú er ég
meira að segja komin með
biðlista, skyldi einhver heltast
úr lestinni."
- Hvers vegna er áhuginn
svona mikill að þínu mati?
„Margir taka þetta að sér því
þeirra eigin börn hafa verið
skiptinemar eða eru á leiðinni
út sem slíkir. Sumir vilja bjóða
gestunum heim því þeir ferðast
mikið, hafa gaman af
því að geta haldið
tengslum og finnst
þetta spennandi verk-
efni. Flestir eru líka
með unglinga á heim-
ilinu sem þykir eftirsóknarvert
að fá slíka gesti. Á þriðjudags-
kvöldið er 40 hópum fullorðinna
síðan boðið í heimsókn, það er
leiðbeinendum og fararstjórum.
Þeir fara flestir á heimili raun-
greinakennara.
Við létum útbúa svuntur með
merki ólympíuleikanna sem
krakkarnir færa gestgjöfunum
svo þeir haldi aftur minjagrip
um heimsóknina. Við erum
mjög þakklát þessu fólki sem
vill bjóða gestunum heim af fús-
um og frjálsum vilja.“
Hjartahlýjan
skiptir
mestu máli