Morgunblaðið - 04.07.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.07.1998, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Máli samkeppnisráðs vegna kaupa Myllunnar á Samsölubakaríi vísað frá Samkeppnisráð hlíti ákvörð- unum áfrýjunarnefndar Stærsta hug- búnaðarsam- stæða lands- ins mynduð FJÖGUR íslensk tölvufyrirtæki hafa tekið höndum saman og mynd- að stærstu hugbúnaðarsamstæðu landsins. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins er um að ræða fyrirtækin Tölvumyndir, Hópvinnukerfí, Almennu kerfis- fræðistofuna og Forritun. Unnið hefur verið að stofnun samstæðunnar um nokkurt skeið. Fyrr á þessu ári keyptu Tölvu- myndir helmingshlut í Hópvinnu- kerfum en fyrir átti fyrirtækið 50% í Forritun og 100% í Skyggni. ---------------- Gjaldeyris- forði Seðla- bankans rúmlega 33 milljarðar GJALDEYRISFORÐI Seðlabank- ans jókst um rúma 3,8 milljarða króna í júní og nam í lok mánaðar- ins 33,3 milljörðum. Erlendar skammtímaskuldir bankans eru óverulegar og breyttust lítið í mán- uðinum að því er fram kemur í fréttatilkynningu. A gjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í júní 4,7 milljörðum króna. Gengi ís- lensku krónunnar, mælt með vísi- tölu gengisskráningar, hækkaði í júní um 0,3%. Samkvæmt fréttatilkynningunni jókst heildareign bankans í mark- aðsskráðum verðbréfum um 0,1 milljarð króna í júní og er þá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst lítið og ríkisbréfaeignin lækkaði lítillega. Ríkisvíxlaeignin jókst um 0,1 millj- arð króna og nam í mánaðarlok 3,1 milljarði. ---------------- Irsk krá leyfír aftur reykingar Dyílinni. Reuters. FYRSTA írska kráin sem bannaði reykingar fyrir fjórum mánuðum hefur ákveðið að leyfa viðskiptavin- um sínum að reykja á ný, þar sem viðskiptavinum hefur fækkað. „Bæði ferðamenn og heimamenn komu hingað, en þeir voru ekki nógu margir,“ sagði Ronnie Grean- ey, eigandi krárinnar An Tobar (Brunnurinn) í Galway á vestur- strönd írlands við blöðin Examiner og Irísh Times. Greaney tók þá tímamótaákvörð- un að breyta krá sinni í reyklaust svæði þegar viðskiptavinum fjölgaði eftir að hann bannaði reykingar í tilraunaskyni tvö kvöld í febrúar. Þótt sumum þætti ágætt að drekka bjór í reyklausu andrúms- lofti fækkaði viðskiptavinum þegar reykingamenn fóru að venja komur sínar í aðrar krár. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur vísað frá máli samkeppnisráðs þar sem krafa var gerð um að ógiltur yrði úrskurður áfrýjunamefndar samkeppnismála um að fella úr gildi fyrri ákvörðun samkeppnisráðs um ógildingu yfírtöku Myllunnar- Brauðs hf. á Samsölubakaríi. Málinu var vísað frá á þeirri forsendu að samkeppnisráði væri samkvæmt lög- um ekki heimilt að vera aðili máls með þeim hætti sem hér um ræðir, enda hefði það ekld lögvarða hags- muni af því að fá umræddan úrskurð áfrýjunamefndarinnar felldan úr gildi. Samkvæmt samkeppnislögum væri hlutverki samkeppnisráðs lokið þegar það hefði tekið ákvörðun um tiltekið málefni. Þeirri ákvörðun mætti skjóta til áfrýjunamefndar samkeppnismála og yrði samkeppn- isráð að hlíta úrskurði hennar á sama hátt og önnur lægra sett stjómvöld yrðu að hlíta ákvörðunum æðra settra stjómvalda. SMÁRABLÓM, ný blómaversl- un, hefur verið opnuð við Dal- veg 16c í Kópavogi. Þetta er fyrsta blómabúðin í Smáranum og að sögn eigenda hennar, Gróu Mariu Þorvaldsdóttur, sem er á meðfylgjandi mynd, og Ingólfs Garðarssonar, verður áhersla Iögð á persónulega þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki um hvað eina sem tengist blómaskreytingum í gleði eða sorg. „Við leggjum áherslu á að hafa ávallt á boðstólum gott úrval af blómvöndum, blómakörfum, krönsum, krossum og kistu- skreytingum. Þá er einnig mik- ið úrval gjafavöru og sérsmíð- aðra muna úr smíðajárni, sem við hönnum og smíðum sjálf.“ Gróa segir að íslenski blómamarkaðurinn verði sí- fellt litskrúðugri enda geri fs- Málið er þannig vaxið að 19. des- ember sl. seldi Mjólkursamsalan Myllunni-Brauði hf. öll hlutabréf í Samsölubakaríi hf. Samkeppnisráð ákvað á fundi sínum 20. febrúar, sem hófst kl. 15:15, að ógilda yfir- töku Myllunnar-Brauðs á Samsölu- bakaríi. Var sú ástæða gefin að yfir- takan leiddi til markaðsyfirráða Myllunnar-Brauðs, hún drægi veru- lega úr samkeppni og væri andstæð markmiði samkeppnislaga. Forsvarsmenn Myllunnar-Brauðs bentu aftur á móti á að yrði ekki af samruna fyrirtækjanna myndu þau halda áfram að tapa peningum og líklegt væri að Samsölubakarí kæm- ist fljótlega í þrot að óbreyttu. Osk- uðu þeir eftir endurupptöku sam- keppnisráðs á málinu en því var hafnað í mars. Málinu var þá skotið til áfrýjun- arnefndar samkeppnismála og ákvað hún í lok apríl að fella úr gildi fyrri ákvörðun samkeppnis- lendingar stöðugt meiri kröfur til gæða og fjölbreytni blóma. „Fólk gefur oftar blóm en áður og oft án sérstaks tilefnis, nema til að gleðja og sýna væntumþykju. Það skiptir því miklu máli að hafa nógu marg- ar tegundir á boðstólum. Þá hefur það stóraukist á síðustu árum að verslanir, fyrirtæki og stofnanir skreyti húsakynni sín með blómum og við erum vel í stakk búin til að sinna þeim markaði. Blómaskreyt- ingar hafa tvímælalaust góð áhrif á viðskiptavini fyrir- tækja og auka vinnugleði starfsfólks. Við erum reiðubú- in að veita fyrirtækjum alla ráðgjöf í þessum efnum og tökum t.d. að okkur blóma- skreytingar í fyrirtækjum fyr- ir fast verð svo eitthvað sé nefnt,“ segir Gróa. ráðs um ógildingu yfirtökunnar. Úrskurðurinn byggðist á því að lögboðinn tveggja mánaða frestur, sem samkeppnisyfirvöld hafa til að taka ákvörðun um ógildingu, hafi verið liðinn þegar samkeppnisráð tók ákvörðun sína 20. febrúar. Fréttir af yfirtökunni hafi birst í fjölmiðlum 19. desember og telur áfrýjunarnefndin því að samkeppn- isyfirvöldum hafi verið kunnugt um jrfirtökuna frá þeim degi. Engu breyti í þessu sambandi þótt þeim hafi ekki borist tilkynning um kaupin fyrr en tveimur dögum síð- ar. Samkeppnisráð féllst ekki á þá túlkun nefndarinnar að fresturinn hæfist þegar fréttir birtast í fjöl- miðlum og ákvað að skjóta úr- skurðinum til dómstóla. Niðurstaða dómsins var sú að samkvæmt samkeppnislögum væri hlutverki samkeppnisráðs loldð þegar það hefði tekið ákvörðun um tiltekið málefni. Þeirri ákvörðun TÆKNIVAL hf. hefur skýrt frá því að Ijóst þyki að um taprekstur verði að ræða hjá fyrirtækinu á fyrstu sex mánuðum ársins. Astæðan er sögð vera mikill kostn- aður sem fylgt hefur örri stækkun Tæknivals að undanfómu sem og fjárfesting í þekkingu sem muni skila auknum tekjum síðar. Gert er ráð fyrir hagnaði af rekstri fyrir- tækisins á árinu samkvæmt endur- skoðaðri rekstraráætlun. Rúnar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Tæknivals, segir að nú sé unnið að víðtækri endur- skipulagningu Tæknivals sem hafi óhjákvæmilega mikinn kostnað í fór með sér. „Fyrirtækið er á miklu breytingaskeiði og mikill kostnaður hefur fylgt örri stækkun þess að undanfömu. Til skamms tíma höfum við lagt mesta áherslu á sölu vélbúnaðar en með þeim breytingum, sem nú standa yfir, munum við jafnframt leggja mikla áherslu á þekkingar- og lausna- þjónustu fyrir tölvur og hugbúnað. Að sjálfsögðu em þessar breyting- ar á grunnskipulagi kostnaðarsam- ar og tímafrekar en þær munu fyrst skila sér á seinni hluta þessa árs. Samkvæmt endurskoðaðri rekstraráætlun er gert ráð fyrir að velta Tæknivals aukist í ár og verði í kringum þrjá milljarða króna og eftir sem áður er gert ráð fyrir hagnaði af rekstrinum á árinu.“ Mannabreytingar í tengslum við umrædda endur- skipulagningu hjá Tæknivali hefur mætti skjóta til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og yrði samkeppn- isráð að hlíta úrskurði hennar á sama hátt og önnur lægra sett stjórnvöld yrðu að hlíta ákvörðun- um æðra settra stjórnvalda. „Hvergi í samkeppnislögum er heimild handa stefnanda [sam- keppnisráði] til að vera aðili máls með þeim hætti sem hér um ræðir, enda hefur hann ekki lögvarða hagsmuni af því að fá úrskurð stefnda [áfrýjunarnefndar sam- keppnismála] felldan úr gildi, held- ur ber honum að hlíta honum í sam- skiptum sínum við stefndu, Myll- una-Brauð hf. og Mjólkursamsöluna í Reykjavík. Þegar af þessari ástæðu er málinu vísað frá dómi og skal stefnandi greiða stefndu, Myll- unni-Brauði hf. og Mjólkursamsöl- unni í Reykjavík, hvorum um sig 200 þúsund krónur 1 málskostnað." Arngrímur ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn. verið ákveðið að Lárus Einarsson verkfræðingur, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Alpan hf. á Eyrar- bakka, taki við starfi forstöðu- manns íyrirtækjasviðs af Gunnari Olafssyni. Gunnar tekur hins vegar við starfi aðstoðarframkvæmda- stjóra Tæknivals og er það nýtt starf. Fólk Nýr forstöðu- maður banka- eftirlits Seðla- bankans VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur sett Ragnar Hafliðason forstöðu- mann bankaeftirlits Seðlabanka ís- lands frá 4. júlí ---------— Þórður Ólafsson Æ 1947 á Siglu- Ragnar Hafliöason firði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1967 og varð viðskipta- fræðingur frá HÍ 1972. Hann hefur starfað við bankaeftirlit Seðla- bankans frá árinu 1976 að frátöld- um árunum 1981-85 þegar hann vann við endurskoðun. Undanfarin ár hefur Ragnar verið aðstoðarfor- stöðumaður bankaeftirlitsins. Sem kunnugt er samþykkti Al- þingi í byrjun júní sl. lög um fjár- málaeftirlit, sem fela í sér samein- ingu bankaeftirlits Seðlabankans og Vátryggingaeftirlitsins. Sam- kvæmt lögunum tekur hin nýja stofnun til starfa í byrjun næsta árs og um leið verður starfsemi bankaeftirlits Seðlabankans og Vátryggingaeftirlitsins lögð nið- ur. Húsnæðissparnaður í breyttri mynd? FJARMALARAÐUNEYTIÐ hefur til skoðunar tillögur Sambands íslenskra viðskiptabanka um að taka upp húsnæðissparnaðarreikninga á ný, þó með nokkuð breyttri mynd frá þeim reikning- um sem lagðir voi-u niður í lok ársins 1996. Finnur Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Sambands viðskiptabankanna, segir hugmynd- imar sprottnar í framhaldi af fréttum um aukna þenslu í landinu og þeirri skoðun sérfróðra manna að nauðsynlegt sé að stemma stigu við þróuninni áður en illa fer, með auknum sparnaði í landinu. „Tillögurnar ganga út á að taka aftur upp hús- næðissparnaðarreikninga en þó með talsvert víð- tækari áherslum en áður. Þannig er gengið út frá því að fólki gefist ekki eingöngu kostur á að leysa til sín uppsafnaðan sparnað til húsnæðiskaupa, heldur geti það fengið fjármunína til afnota í mun breiðari tilgangi. Sem dæmi mætti nefna einstak- linga sem hyggjast fara út í atvinnurekstur og þurfa á fjármagni að halda, fólk sem verður fyrir örorku eftir slys gæti leyst út inneign sína, jafn- framt því sem lagt er til að fólki gefist færi á að greiða niður kostnað vegna menntunar, hvort sem um er að ræða sína eigin eða ættingja sinna.“ Geir H. Haarde fjármálaráðherra staðfesti við blaðamann Morgunblaðsins að skipaður hefði verið starfshópur undir stjórn Steingríms Ara Arasonar, aðstoðarmanns ráðherra, til að fara yf- ir þessi mál. Nefndinni er ætlað að skoða allar þær tillögur sem fram hafa komið og og snúa að því að auka þjóðhagslegan spamað. Þar era bæði tillögur Sambands viðskiptabankanna til skoðun- ar sem og þær hugmyndir sem fram hafa komið fráASÍ ogVSÍ. Morgunblaðið/Golli Ný blómaverslun í Smáranum Tæknival gefur afkomuviðvörun Útlit fyrir tap á fyrri hluta ársins í i I f. I I i 1. I I I I I I . t I I § [ I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.