Morgunblaðið - 04.07.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 19
ERLENT
Miðhluti Flórída-ríkis í Bandarrkjunum í ljósum logum
Skógareldarnir
nálgast Orlando
Eldarnir í Flórída magnast enn og nálgast
borgina Orlando óðum. Ríkisstjóri Flórída
hvatti fólk í gær til að biðla til æðri máttar-
valda nm rigningu en veðurfræðingar telja
nánast engar líkur á þvi að ríkisstjórinn
verði bænheyrður 1 bráð.
Orlando, Ormond Beach. Reuters.
HLUTI íbúa Orlando hefur nú orð-
ið að yfirgefa heimili sín meðan ráð-
þrota slökkviliðsmenn reyna hvað
þeir geta að berjast gegn útbreiðslu
eldanna, án mikils árangurs. Veður-
fræðingar telja óvenjumikla
þurrkatíð geta varað fram í septem-
ber og þykir það ekki gefa ástæðu
til bjartsýni.
Verst er ástandið í Brevard-,
Volusia og Flagler-sýslu í mið-
Flórída en þar er talið að nú hafi
rúmlega sjötíu þúsund manns orðið
að yfirgefa heimili sín. Um fjögur
þúsund slökkviliðsmenn eru að
starfi á þessu svæði og reyna þeir
að hefta frekari útbreiðslu skógai--
eldanna. Bandaríkjastjórn lofaði í
gær aðstoð upp á 60 milljónir doll-
ara, um 4200 milljónir ísl. kr., og var
liðsstyrkur á leiðinni frá Kalíforníu
til að berjast við eldana.
Að minnsta kosti fimmtíu heimili
voru talin ónýt í gær í Brevard-
sýslu en heildarskemmdir verða
ekki metnar fyrr en eldamir eru yf-
irstaðnir. Hafa hundruð manna
flykkst í sérstök hjálparskýli eða
þurft að leita ásjár hjá ættingjum
og vinum. Nánast allir íbúar borg-
anna Daytona Beach og Ormond
Beach hafa á síðustu dögum þurft
að yfirgefa heimili sín og í gær
keyrðu lögreglubílar í gegnum Fla-
gler-sýslu og hvöttu íbúa til að hafa
sig á brott hið fyrsta.
Barist við náttúruöflin
Menn sem vinna að slökkvistarf-
inu sögðu í gær að þessi barátta við
náttúruöflin væri nú upp á líf og
dauða. „Við höfum enga stjóm á
þessu“, sagði slökkviliðsstjóri Or-
mond Beach. „Og við munum ekki
ná neinni stjóm á þessum aðstæð-
um fyrr en okkur berst rigning í
einhverju formi.“
Þurrir vindar feykja eldunum
fram og á daginn yljar sólin enn
frekar þannig að nýir eldar kvikna.
Sagði einn slökkviliðsmanna að oft
á tíðum stæðu þeir frammi fyrir
ekki einum risaeldi heldur ótal-
mörgum smærri eldum. f hvert
sinn sem þeim tækist að vinna á
einum sprytti annar upp jafnóðum,
um hundrað á degi hverjum. „Ég
held að fólk vanmeti móður nátt-
úru“, sagði Jack Conner, einn
slökkviliðsmannanna, í samtali við
dagblaðið Orlando Sentinel. „Suma
hluti ráðum við einfaldlega ekki
við.“
Lawton Chiles ríkisstjóri var í
fyrrakvöld beðinn um að útvega
frekari slökkvibúnað en slökkvi-
liðsmenn áttu í erfiðleikum með að
verja borgirnar Daytona Beach og
Ormond Beach frá því að verða
eldinum að bráð. Chiles sagði hins
vegar að öllu væri til tjaldað, t.d.
væru tveir þriðju allra tiltækra
þyrlna í suðausturhluta Bandaríkj-
anna nú við störf á eldasvæðinu.
Slökkviliðsmönnum hefur að und-
anförnu borist liðsauki frá fjörutíu
öðrum ríkjum Bandaríkjanna en
hefur ekki dugað til því aðstæður
eru allar hinar erfiðustu og hafa
sumir þeirra brunnið illa af eigin
ELDARNiR i FLORiDA
Tugir þúsunda manna hafa þurft
að flýja heimiii sín f Mið-Flórída
er stjórnlausir skógareldar færast
nær og nær borgum og bæjum.
Þjóðvegi lokað
Flestum íbúa í Ormond
b| Beach og Daytona Beach
sagt að yfirgefa heímili sín.
(búar borganna Mims
og Scottsmoor hafa
. yfirgefið heimili sín.
JohnFKennedy
geimferðamiöstöðin
Miamii
4 ATLANTS-
HAF
Skógareldar hafa brennt yfir hundrað
hektara lands síðan 1.júní síðastliðinn. -'í
svita enda getur hitinn í fullum
slökkviliðsbúningi náð um 90 gráð-
um á Celsíus, að sögn Joans Hell-
ers, talsmanns lögreglustjórans í
Brevard.
Fólk beðið að spara vatn
Ohemjumiklu vatni hefur verið
varpað á skógareldana og hafa íbú-
ar á mörgum stöðum í Mið-Flórída
verið beðnir að minnka við sig
neyslu drykkjarvatns. „Við biðjum
fólk nú að reyna að komast hjá fata-
þvotti, sturtuböðum og öðru þvílíku.
Við förum einnig fram á það við fólk
að það noti ekki síma, boðtæki og
farsíma því björgunarfólki hefur
gengið illa að halda sambandi
hverju við annað í starfi sínu“, sagði
Heller.
Hótel á svæðinu hafa nú opnað
.. Reuters
SLOKKVILIÐSMAÐUR snýr ráðþrota frá skógareldi eftir
að hafa árangurslaust reynt að slökkva hann.
dyr sínar fyrir þeim er flýja eldana,
þeim að kostnaðarlausu. Ekki virt-
ust þó ferðamenn ætla að láta
eldana gjörsamlega eyðileggja þjóð-
hátíðardaginn fyrir sér og sögðu að-
ilar í ferðaþjónustu að þeir sem
hringdu til að afla sér upplýsinga
væru í fæstum tilfellum að afboða
komu sína, meira væri um að menn
vildu vita hverjir þjóðveganna væru
ekki opnir.
Gefast ekki upp
Kappakstri sem fram átti að fara
í Daytona í dag, þjóðhátíðardaginn,
var á fimmtudag frestað en búið var
að selja í öll 143.000 sæti vallarins.
Var ekki talið að kappakstursbraut-
inni sjálfri stafaði hætta af skógar-
eldunum en óttast var að bílaum-
ferð keppninni tengd myndi gera
slökkvistarf í nágrenninu erfiðara.
Chiles ríkisstjóri sagði Flórída-
ríki aldrei fyrr hafa þurft að eiga við
svo erfiða skógarelda, hvað þá að
'veðrið væri svo óhagstætt til
slökkvistarfs. Er rætt um að aldrei
hafi gengið eins miklir þurrkar yfir
Flórída-ríki og hafa meira en hund-
rað hektarar lands brunnið í eldun-
um. Hafa þrjátíu og tveir þurft að
þola meiðsl vegna þeirra. En
slökkviliðsmenn vildu engan bilbug
láta á sér finna þrátt íyrir að starf
þeirra virtist nánast vonlaust.
Sögðust þeir ætla að reyna til
hins ýtrasta að verja heimili fólks
og ekki síður líf þess og limi. Sviðin
jörðin eftir skógareldana hti út eins
og helvíti sjálft en þeir myndu snúa
aftur til helvítis þar til þeir ynnu
sigur á náttúruöflunum.
Serbar ná
Kijevo á
sitt vald
Reuters
I garðálfa-hnefaleikaham
Kijevo, Berlin. Reuters.
SERBNESKAR öryggissveitir
náðu bænum Kijevo í Kosovohéraði
á sitt vald í gærmorgun, en skæru-
liðasveitir aðskilnaðarsinnaðra
Kosovo-Albana höfðu setið um bæ-
inn undanfamar tvær vikur. Serbar
segja að mannfall hafi orðið í röðum
uppreisnarmanna, en það hefur
ekld fengist staðfest.
Richard Holbrooke, sendimaður
Bandaríkjastjórnar, kallaði Kijevo í
síðustu viku „hættulegasta stað í
Evrópu“, og sagðist hafa áhyggjur
af því að átök um bæinn gætu leitt
til allsherjarstyrjaldar á
Balkanskaga. Fréttaskýrendur
telja að taka Kijevo sé sálfræðilegur
sigur fyrir serbneska herinn, sem
hefur staðið höllum fæti í barátt-
unni við skæruliðasveitir Kosovo-
Albana á undanfórnum mánuðum.
Javier Solana, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins (NATO),
sagði blaðamönnum í Berlín í gær
að bandalagið myndi ekki líða það
að Kosovo-deilan magnaðist í alls-
herjarstríð á Balkanskaga. Hann
sagði að nauðsynlegt væri að semja
tafarlaust um vopnahlé og hvatti til
þess að samningaviðræður hæfust á
ný um friðsamlega lausn.
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka-
lands, hefur mátt láta í minni pok-
ann fyrir Gerhard Schröder,
kanzlaraefni þýzkra jafnaðar-
manna, í skoðanakönnunum, en
þegar kemur að vali Þjóðverja á
garðdvergum hefur kanzlarinn
vinninginn.
Alls hafa verið framleiddar
fjórtán mismunandi útgáfur af
Kohl-garðdvergum, en aðeins ein
slík er til í mynd Schröders. Það er
þessi hér, hnefaleikaútgáfan, sem
kynnt var í Bonn í gær. í tilefni
kosningaslagsins milli Kohls og
Schröders, sem verður leiddur til
lykta 27. september nk., geta
þýzkir kjósendur nú prýtt garða
sína með köppunum í hnefaleika-
ham (Schröder t.v.).
Nú þegar líkur eru taldar á því
að Schröder komizt í eitt valda-
mesta embætti Evrópu veita
reyndar fleiri en garðálfaframleið-
endur honum aukna athygli. Bóka-
forlag í Frankfúrt hyggst daginn
eftir kosningarnar gefa út bók í
stíl bandarísku metsölubókarinnar
„Primary Colors“, sem ljallar um
það hvernig maður með lygilega
líku nafni og Schröder olnbogar
sér leið á toppinn.
EÞ hotar Banda-
ríkjunum vegna
dauðarefsinga
Washington. The Daily Telegraph. ■■■hhhmhhmhbh
E VROPUÞIN GIÐ hefúr hótað
Bandaríkjunum að leggja sitt af
mörkum til að beina fjárfestingum
frá þeim, í því skyni að þrýsta á
um að dauðarefsingar verði
afnumdar þar.
í bréfi til Georges Bush, rílds-
stjóra í Texas, sem Alan Donnelly,
formaður þeirrar nefndar Evrópu-
þingsins í Strassborg sem sinnir
tengslum við Bandaríkjaþing,
skrifar undir, segir: „Við höfum
áhýggjur af því að sú almenna for-
dæming, sem áframhaldandi beit-
ing dauðarefsingar í vissum ríkj-
um Bandaríkjanna vekur í Evrópu
og víðar, muni einnig hafa efna-
hagslegar afleiðingar."
Evrópusambandslöndin fimmt-
án fjárfesta sem nemur um 30.000
milljarða króna á ári í Bandaríkj-
unum. En í bréfi Donnellys segir
að mörg fyrirtæki séu vegna
þrýstings frá hluthöfum og al-
menningsálitinu byrjuð að velta
fyrir sér þeim möguleika að tak-
marka fjárfestingar í Bandaríkj-
unum við ríki sem ekki beita
dauðarefsingum.
Síðastliðinn föstudag, daginn
eftir að hann fékk umrætt bréf í
hendur, sýndi Bush ríkisstjóri
óvanalega miskunn með því að
leyfa að dauðadómi raðmorðingja
nokkurs, Henry Lee Lucas, yrði
breytt í lífstíðarfangelsi. Talsmenn
ríkisstjórans vísa því á bug að
nokkurt samhengi sé á milli Evr-
ópuþingmannabréfsins og ákvörð-
unar hans.
Samkvæmt niðurstöðum brezkr-
ar skoðanakönnunar frá árinu
1996 eru um 76% Breta fylgjandi
því að dauðarefsing verði tekin
upp aftur.