Morgunblaðið - 04.07.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 27
MARGMIÐLUN
Kryddpíubrjálæði
Spice Girls-lögum.
Þegar dansinn hefur loksins verið
æfður, sem er ekki minna erfiði en
að raða saman lagi, kemstu inn í
herbergi þar sem dansinn er svo
tekinn upp.
Þegar lagbútunum er tjasl-
að saman hoppar kryddpía á
milli níu svífandi flata. Ef
hún stappar niður fæti á fleti
heyrist lagbútm- og stappi
hún aftur tekur tölvan lag-
bútinn upp. Þannig er hægt
að taka upp marga búta og
búa til heilt lag. Aftur á móti
er ekki hægt að stroka út
búta og ef gerð eru mistök
þarf að byrja upp á nýtt eftir
að hafa eytt mörgum, kannski
tugum mínútna í að tjasla þeim
saman. Þetta gerir leik-
inn pirrandi og ekki er ■'
óalgengt að maður slökkvi
bara á tölvunni eftir fyrstu
mistökin.
Ef fólk fær leiða á því að
reyna að búa til lög er hægt að
sjá búta úr viðtölum við Spice
Girls, sjá þær á sviði og sjá
hvernig dansarnir urðu til. Þar sem
frekar algengt er að maður verði
leiður á leiknum er líkiegt að fólk
kunni viðtölin utan að eftir nokkra
daga.
Ef einhver lesenda ákveður að
kaupa þennan leik ætti hann að
vera tilbúinn með afþurrkunarklút-
inn vegna þess að Spice World á eft-
ir að safna miklu ryki.
Ingvi M. Arnason.
Leikur
Spice World, leikur fyrir PlayStation
frá Sony í Evrópu. Leikurinn er fyrir
einn leikanda og skilur minniskort.
NÝLEGA gaf Sony út leik með
þema öllu ólíkt því sem hefur sést
til þessa í leikjaheiminum. Leikur-
inn er um Spice Girls, kryddpíurn-
ar, og kominn tíma til að hugleiða
hvar þetta Spice Girls-æði á eftir að
enda.
Markhópurinn sem Spice World
var hannaður fyrir, sem er án efa
nokkuð undir sjálfræðisaldri, hefur
kannski nokkru meiri þekkingu á
Spice Girls en undirritaður, samt
finnst honum ólíklegt að jafnvel
hinn allra harðasti aðdáandi þeirra
geti skilið leikinn og markmið hans
strax.
Hægt er að velja um allar fimm
kryddpíurnar, jafnvel Geri, og eru
þær ekki síður litríkar í leiknum en
í raun og veru.
I raun finnst manni meira eins og
maður sé að spila frekar slappt tón-
listarforrit en leik í Spice World.
Þannig er ekki hægt að komast inn í
dansæfingaherbergið í leiknum, þar
sem búin eru til myndbönd, nema
maður hafi fyrst gengið í gegnum
mikla erfiðleika til að búa til al-
mennilegt lag úr tugum lagbúta úr
Sýndar-
leikmenn
og borð
Quake breytist
í netleik
SÝNDARLEIKMENN má víða
fínna og menn keppast við að
smiða þá sifellt fullkomnari og
betri. Helstu bot-ar eru Era-
serBot, sem finna má á slóðinni
http://impact.frag.com og CRBot
sem er á slóðinni
http://www.planetquake.com/cr-
bot/. EraserBot er meðal annar
þeirrar náttúru að hægt er að
stilla hvaðeina í fari hans í með-
fylgjandi textaskrá og þannig má
til að mynda hafa hann vígreifan
eða -deigan. Hægt er að keyra
marga bot-a samtímis, jafnvel
marga tugi, og fer í raun aðeins
eftir vélaraflinu.
Þeir sem verða sér úti um slíka
aðstoðarmenn þurfa vitanlega
borð til að keyra þá í. Nokkur
borð eru í síðustu uppfærslunni af
Quake II, 3.14. hana má sækja á
slóð Id,
http://www.idsoftware.com/ en
betri kostur eru borðin Capture
The Flag, sem er póstaleikur og
finna má á slóðinni
http://www.captured.com/ og
Jailbreak! sem er á slóðinni
http://www.planetqu-
ake.com/rxn/jail/. Með skránum
fylgja yfirleitt leiðbeiningar um
notkun, en á Panet Quake-slóð-
inni er gríðarlegt magn upplýs-
inga um Quake-heiminn eins og
hann leggur sig.
MAGNAÐASTI leikur seinni tíma
er Quake. Ekki er bara að grafíkin
var byltingarkennd og drungalegt
andrúmsloftið svo þrúgandi að lá
við sturlun, heldur var það sá mögu-
leiki að spila leikinn yfir net sem
gerbreytti leikjaheiminum. Quake
var fyrsti leikurinn sem hægt var að
spila yfir net af einhverju viti og
Quake II fetaði sömu slóð. Quake
III verður síðan aðeins til sem net-
leikur ef marka má yfiriýsingar ID
hugbúnaðarhússins.
Netleikur í Quake er ógleyman-
leg lífsreynsla eins og þeir vita sem
reynt hafa og gaf leiknum nýja vídd.
Um leið skipti hann bardaga-
leikjafíklum í tvo hópa; þá sem helst
vildu fá flókinn leik með miklum
söguþræði og svo hina sem eiga
enga ósk heitari en komast í al-
mennilega orrustu við lifandi leik-
menn. Quake II var ætlað að svara
þörf hinna fyrrnefndu að miklu
leyti, en smám saman hefur ID for-
kólfum snúist hugur, kannski vegna
þess að samkeppnin er geysihörð og
fer harðnandi á því sviði.
Quake III kemur til með að heita
Quake Arena og verður aðeins fyrir
netleik, enda segir guðfaðir Quake,
John Carmack, það gefa fyrirtæk-
inu færi á að einbeita sér að net-
leiknum, tengingum og stöðugleika
yfir netið, aukinheldur sem það ein-
faldar hönnun leiksins; ekki er
lengur þörf á borðum sem tekur
nokkra daga bara að ganga í gegn-
um, því netleikir ganga út á allt
annað. Vissulega þurfa borðin að
vera stór og flókin, en ekki um of.
Þau þurfa ekki heldur að vera
mörg; í raun aðeins eitt borð fyrir
hvert leiksafbrigði, hvort sem það
er póstaleikur eða virkisleikur, og
ekki þarf að hafa áhyggjur af
skrímslum; leikendur sjá um þá
hlið mála.
Þó Quake sé fyrst og fremst
merkilegur leikur fyrir það sem
gerst hefur í kringum hann, við-
bætur leikenda og þróunina í net-
leiknum, vilja ekki allir leika hann
yfir net eða þá þeir hafa ekki
nettengingu. Þá má fara í sýndar-
netleik; í stað þess að leikandinn
tengist netinu getur hann ræst á
vélinni hjá sér sýndarleikmenn, eða
bot, sem tölvan sér um að keyra.
Það má reyndar líka gera í Quake
II og ýmsir nota slíka leikmenn til
að æfa sig í netleik. Vissulega er
notkun á slíkum „gervimönnum"
aldrei sambærileg við það að keppa
við lifandi leikmenn, en ætti að
duga bærilega, ekki síst í ljósi þess
að bot-ar verða sífellt öflugri og
erfiðari viðfangs.
SKYRTA
VESTl
SKYRTA
JAKKl
60NGUSKÖR
f: GðNGUSKÓR
!poki med stól
ÞÍN FRÍSTUND - OKKAR FAG
BiLDSHÖFÐA - Bíldshöfða 20 - Sími: 510 8020
GóðurATX-LXturn <
300 mhz Pentium llörgjörvi ’
64 MB SDRAM vinnsluminni
4.3 GB Ultra DMA harður diskur
15" hágæða skjár
32 hraða geisladrif
8MB Matrox Productiva skjákort
16 bita hljóðkort
280 Watta hátalarar
33.6.K BPS mótald m/ fax og símsvara
4 mánaða internetáskrift hjá Islandia
Windows lyklaborð r—"ú
Logitech PS/2 mús \ A C
WINDOWS 98 stýrikerfi \ l"
G rafískur skjár
Léttur og nettur:
137 gr. & 19mm þykkur
60 mínútur frítt* I
TALhólf \
SMS textaskilaboð
*60 mín.
fylgja öllum
þjónustu-
leiðum TALS.
Frlmínút-
urnar gilda
til 14.08 /
Motorola SlimLite
GSM TALkori
BT • SKEIFAN 11 • SÍMI 550-4444 • PÓSTKRÖFUSÍMINN 550-4400