Morgunblaðið - 04.07.1998, Síða 34

Morgunblaðið - 04.07.1998, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Sólarferð og heilsugæsla „Það er hœgt að kæra sig ekki um sól- arlandaferð, en það er ekki hægt að kæra sig ekki um heilsugæslu. “ Spumingar um það hvort ekki megi „bjóða upp á valkosti" í heil- brigðisþjónustu, líkt og í annarri þjónustu, vekja spurningar um það hvaða gildi liggi umræddri þjónustu til grundvallar. I Reykjavíkurbréfi síðastliðinn sunnudag segir Morgunblaðið meðal annars að veita ætti fólki kost á að velja á milli til dæmis þess hvort það fer í sólarlandaferð eða leitar til læknis á eigin kostnað. Sólarlandaferðir og heilbrigð- isþjónusta eiga það sameiginlegt að vera gæði. Lífsgæði. En sól- arlandaferðir VIDHORF Eftir Kristján G. Arngríms- son og heilbrigðis- þjónusta eru ekki gæði af sömu „tegund“, ef svo má að orði komast. Mismuninn má leiða í ljós til dæmis með því að benda á, að ef maður kærir sig ekki um að fara í sólarlandaferð þá bara fer maður ekki í sólar- landaferð, en þótt maður kæri sig ekki um að fara til læknis þá verður maður samt að fara. Morgunblaðið segir ennfrem- ur að maður ætti að eiga þess kost að tryggja sjálfan sig, rétt eins og maður getur kaskó- tryggt bílinn sinn. Þama virðist röksemdafærslan rata út í sams- konar ógöngur og nefndar eru hér að ofan. Morgunblaðið virð- ist gera ráð fyrir því að maður sjálfur sé samskonar „hlutur" og bíllinn manns, og maður geti í raun ráðið því hvort maður tryggir sjálfum sér heilbrigðis- þjónustu eða ekki. Munurinn á þessum tveim tegundum gæða, sólarlandaferð- um og heiisugæslu, er að heilsu- gæsla hefur annað gildi en sólar- landaferðir og bflar. Það er að segja, heilbrigði er æðra sólar- landaferðum og bílum (þótt allt séu þetta gæði) og því er saman- burður óraunhæfur. Þetta er ekki spurning um skoðun og hefur ekkert með pólitík að gera. Óhætt er að fullyrða að heilbrigði sé í sjálfu sér æðra og mikilvægara en sólarlandaferðir. Það sem hér að framan er nefnt, um hvað mann kunni að langa í og hvað ekki, er fyrst og fremst einföld aðferð til þess að sýna („myndskreyta") það sem átt er við. Onnur leið til þess að ýta enn frekari stoðum undir þá kenn- ingu að heilbrigði sé æðri gæði en sólarlandaferð (án tillits til skoðana) er að benda á að heil- brigði er forsenda sólarlanda- ferðar, en sólarlandaferð er ekki forsenda heilbrigðis. Það er að segja, heilbrigði er djúpstæðari gæði en sólarlandaferð. Allt ber þetta að sama brunni, og leiðir í ljós að samanburður á heilbrigði og sólarlandaferðum felur í sér hugtakarugling. Að baki þeirri fullyrðingu að heilbrigði og sólarlandaferðir séu sambærileg gæði virðist liggja það gildismat, að heil- brigðisþjónusta sé markaðsvara, rétt eins og sólarlandaferðir eru markaðsvara. Og á markaði eru allar vörur sambærilegar. En það er bara ekki hægt að þröngva heilbrigðisþjónustu í sama mót og markaðsvörum, fyrst og fremst vegna þess að heilbrigði er, eins og nefnt er hér að ofan, mikilvægara en flest annað. Ýmis rök hafa verið tínd til gegn því viðhorfi að heilsugæsla sé markaðsvara; að minnsta kosti sé hún ekki „eins og hver önnur“ markaðsvara. Um það leyti sem Bill Clinton hóf for- setaframboð sitt í Bandaríkjun- um 1991 og var að velta því fyrir sér hvaða stefnu hann ætti að taka í heilbrigðismálum höfðu sérfræðingar bæði demókrata og repúblíkana í stefnumótun komist að niðurstöðum sem voru um margt samhljóma. Frumforsenda allrar umræðu um heilbrigðismál skyldi vera sú, að mati þessara sérfræðinga, að „markaður“ fyrir heilsugæslu virki ekki með sama hætti og markaður fyrir til dæmis bfla - eða yfírleitt nokkuð annað. I fyrsta lagi kemur ekki til greina að sumir „neytendur“ hafi einfaldlega ekki efni á heil- brigðisþjónustu, en ekkert mæl- ir gegn því að einhverjir hafi ekki efni á að fá sér bíl. Stjórn- málamenn úr flestum, ef ekki öllum, flokkum eru sammála um að sem mestur jöfnuður skuli ríkja meðal þegnanna er kemur að nauðsynlegri heilsugæslu. Það er ekki viðunandi að hinir efnameiri geti keypt sig fram fyrir þá efnaminni. I öðru lagi má nefna, að þegar kemur að heilsugæslu hafa „við- skiptavinimir“, það er að segja sjúklingamir, oft ekki tíma, kannski ekki þekkingu, og jafn- vel hreinlega ekki heilsu til að „velja“ upp á eigin spítur. Þeir þurfa yfirleitt - svo ekki sé meira sagt - handleiðslu sér- fræðinga. Auk þess er áhættan við að velja „vitlaust" mun meiri í heilbrigðisþjónustu en við kaup á sólarlandaferð. Það em læknar og hjúkranar- fólk sem ráða mestu um og taka oft ákvarðanir um hvaða „þjón- ustu“ (meðhöndlun) „neytand- inn“ (sjúklingurinn) skuli njóta. En þegar maður kaupir sér sól- arlandaferð er það ekki ferða- skrifstofufólkið og flugmennim- ir sem ákveða hvert maður skuli fara. (Þótt líklega færi maður lítið án þeirra aðstoðar.) Við liggur, að ef sldlgreina ætti heilbrigðisþjónustu á mark- aðsforsendum væri nær að líta á sjúklingana sem markaðsvöru en sem neytendur, þar sem það era jú þeir sem allt snýst um. Þeir sem velja á þessum „mark- aði“ væru þá í rauninni læknarn- ir og hjúkranarfólkið. Og í Bandaríkjunum era það einnig sjúkratryggingafélögin sem velja, og þau vilja síður tryggja gamalt fólk og sjúklinga, því þessir hópar era mun líklegri til að kosta tryggingafélögin pen- inga. Það virðist því flest benda til þess að veraleg hætta sé á, að aukið valfrelsi í heilsugæslu geti einungis orðið að veraleika ef misrétti er einnig aukið. AÐSENDAR GREINAR Ríkisútvarpið í að- draganda kosninga SJÁLFSTÆÐISMENN og aðr- ir sem ekki sættu sig við niðurstöð- ur borgarstjómarkosninganna í vor hafa haldið því fram að ríkis- fjölmiðlarnir beri þar nokkra ábyrgð. Eru þeir sakaðir um að hafa lagst á sveif með Reykjavíkurlistanum og gefið hefur verið í skyn að slíku verði ekki unað. Enda við menn að eiga sem hafa örlög Ríkisútvarpsins í hendi sér og hafa hing- að til haft sína henti- semi. En það er önnur saga. Fullyrðingar um hlutdrægni hafa lítið verið rökstuddar en útvarpsstjóri mætti gagnrýninni með því að fela Hagvangi að gera úrtakskönnun meðal almennings og stjórnmálamanna á því hvort fólk sé þeirrar skoðunar að fréttastofur útvarps og sjónvarps hafi verið áreiðanleg- ar í fréttaflutningi sínum í aðdrag- anda kosninganna. Slík könnun kann að vera góð svo langt sem hún nær. Niðurstöður hennar sýna að fréttastofur Ríkisútvarpsins njóta trausts umfram aðrar og 86 prósentum þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni finnst fréttaflutningur þeirra af kosningamálum og kosn- ingaundirbúningi sveitarstjórnar- kosninganna í heild áreiðanlegur. Það er þó engan lærdóm hægt að draga af niðurstöðum könnunar- innar, m.a. þar sem allan saman- burð vantar við umfjöllun fyrri ára. Sama má segja um talningu Fjöl- miðlavaktarinnar - Miðlunar ehf. sem tekið hefur saman yfirlit yfir umfjöllun ljósvakamiðlanna um borgarmálefni sem þó sýnir með óyggjandi hætti að lítill munur er á fjölda viðtala ríkisfjölmiðlanna við borgarstjóraefni Reykjavíkurlist- ans og D-listans. Síðustu þrjá mán- uðina fyrir kosningar, tímabilið mars-maí, var rætt 28 sinnum við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og 27 sinnum við Árna Sigfússon í fréttatímum hljóðvarps og sjón- varps. Minni gat munurinn ekki verið. Fréttir í mars, aprfl, maí Talning Miðlunar nær yfir níu mánaða tímabil, frá 1. september 1997 til loka maí 1998. Þar era skráð og flokkuð viðtöl og ummæli borgarfulltrúa í ljósvakamiðlunum. Það er ástæða til þess að vekja at- hygli á niðurstöðunum þótt slá verði vamagla við einfaldri taln- ingu ekki síður en viðhorfskönnun. í henni felst ekki mat á uppbygg- ingu eða innihaldi umræðu, lengd frétta, röðun í fréttatíma, o.s.frv. Sömuleiðis eru ekki sérgreind við- töl við borgarstjóra sem fram- kvæmdastjóra sveitarfélagsins, en það hggur í hlutarins eðli að oft hljóta að vera til umfjöllunar mál- efni sem hafa frétta- og upplýs- ingagildi fyrir almenning en kalla ekki á pólitískt andsvar minnihluta. Lítum nánar á umfjöllun ríkis- fjölmiðlanna síðustu þrjá mánuði fyrir kosningar. í mars er ein frétt í Sjónvarpinu um borgarmál og sjö um kosningar og málefni R-lista og D-lista. Sjónvarpið er með sjö við- töl í mars við borgarfulltrúa og frambjóðendur í Reykjavík, talar fjórum sinnum við borgarstjóra, Ingi- björgu Sólrúnu Gísla- dóttur, tvisvar við Árna Sigfússon og einu sinni við Onnu Geirsdóttur þegar hún ákvað að skipa 9. sæti Reykjavflcurlistans. Um það er einnig rætt við Ingibjörgu Sólránu Gísladþttur. Viðtölin við Árna og Ingi- björgu Sólrúnu skipt- ast þannig að talað er við bæði um niðurstöð- ur skoðanakönnunar 3. mars og rætt við bæði á kosningafundi með stjórnmálafræðinem- um 20. mars. Að auki er rætt við borgarstjóra um kaupstefnu í Færeyjum þar sem á þriðja tug ís- lenskra fyrirtækja kynnti fram- leiðslu sína. Borgarstjórinn í Fullyrðingar sjálfstæð- ismanna um dekur við Reykj avíkurlistann eiga ekki við rök að styðjast, að mati Krist- ínar A. Arnadóttur, sem rekur hér umfjöll- un ríkisfjölmiðlanna fyrir síðustu borgar- stj órnarkosningar. Reykjavík opnaði þá sýningu. Þennan mánuð vora borgarmálefn- in tilefni fimmtán frétta hjá Frétta- stofu útvarps. Sjö þeirra era um málefni Reykjavíkurborgar og átta era um málefni framboðanna tveggja. Fimm sinnum var talað við Ingibjörgu Sólránu Gísladóttur í fréttum hljóðvarps og einu sinni við Árna Sigfússon. Þau fjögur við- töl sem á milli ber eiga sér stað 11. mars þegar gengið var frá skipan Önnu Geirsdóttur í níunda sæti Reykjavíkurlistans, 25. mars og 31. mars um hálendisframvarp félags- málaráðherra og 23. mars um leiguíbúðir Reykjavíkurborgar. I aprfl era átján fréttir hjá Fréttastofu útvarps, átta um al- menn borgarmál og tíu um R-lista og D-lista. Fréttastofa útvarpsins talaði sex sinnum við Árna Sigfús- son og fimm sinnum við Ingibjörgu Sólránu Gísladóttur. Fréttir sjón- varpsins era alls þrettán, þar af þrjár um almenn borgarmál. Fréttastofa sjónvarps tekur á þessum tíma þrisvar viðtal við Árna og fimm sinnum við Ingi- björgu Sólránu. Viðtölin lúta að stefnumálum beggja listanna, fylgiskönnunum, launamisrétti, skólamálum og tillögu borgarstjóra að heimila almenna atkvæða- greiðslu meðal borgarbúa í tiltekn- um málum. Þau tvö viðtöl við borg- arstjóra þar sem ekki er jafnframt talað við oddvita D-lista era um samvinnu sjúkrahúsanna í Reykja- vík og um stefnukynningu Reykja- víkurlistans, en sambærileg um- fjöllun var á öðram tíma um stefnumál D-lista. í maí er talan hnífjöfn. Ná- kvæmlega jafnoft er talað við borg- arstjóraefni beggja lista í frétta- tímum Ríkisútvarpsins. Á vegum Fréttastofu útvarps fimm sinnum og í fréttatímum sjónvarpsins sjö sinnum. Þess ber að geta að í frétt- um hljóðvarps er oftar talað við aðra frambjóðendur R-lista en D- lista eða alls sex sinnum. Þau viðtöl snúast um gagnrýni á R-listann. Standa verður faglega að verki Hér er aðeins litið til umfjöllun- ar fréttastofa Ríkisútvarpsins vegna fullyrðinga sjálfstæðis- manna um dekur við Reykjavíkur- listann. Aðrir fjölmiðlar era þó fyllilega þess virði að vera skoðaðir með tilliti til framgöngu sinnar fyr- ir kosningar. Morgunblaðið er þar kapítuli út af fyrir sig, blaðið sem kinnroðalaust kallar sig blað allra landsmanna og sá ekki ástæðu til sérstakra frétta um sigur Reykja- víkurlistans í höfuðborginni 1998, en sló sigri sjálfstæðismanna 1990 upp í fímmdálki á forsíðu blaðsins! Það er að vísu augljóst að undir- rót óánægjunnar hjá mörgum ligg- ur í því að sjálfstæðismönnum fannst ekki nóg fjallað um mál ein- stakra frambjóðenda Reykjavíkur- listans. Af því að það töldu þeir henta sínum hagsmunum. Hún snýst um það að ekki tókst að etja fréttastofum ríkisfjölmiðlanna á foraðið með sama hætti og ýmsum öðram fjölmiðlum. Það ætti að vera Ríkisútvarpinu kappsmál að hreinsa sig af þeim áburði að hafa gert einu framboði óeðlilega hátt undir höfði í fréttum sínum fyrir kosningarnar í vor. Þau rök að einstakir starfsmenn séu venslaðir tilteknum starfs- mönnum Reykjavíkur era auðvitað langsóttari en svo að svöram taki. Með sömu rökum, en þó ekki jafn- langsóttum, ætti útvarpsstjóri, fyrrverandi borgarstjóri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík, að lýsa vanhæfi sínu til þess að gerast úr- skurðaraðili í pólitískum málum sem Sjálfstæðisflokkurinn setur á dagskrá. Þar ætti að fara að vilja meirihluta Útvarpsráðs sem sam- þykkti tillögu um að ávirðingar í garð fréttastofa Ríkisútvarpsins yrðu kannaðar með þeim hætti að borin yrðu saman vinnubrögð fréttastofanna nú og í tvennum síð- ustu borgarstjórnarkosningum með tilliti til aðkomu frambjóðenda í fréttatímum og fréttatengdum þáttum. Þessa umræðu þarf að nálgast með hlutlægum hætti. Allt annað er hættulegt hugmyndum um frelsi og sjálfstæði fjölmiðla. Höfundur er nðstoðnrkona borgnr- sljóra. Kristín A. Ámadóttir WjSðj má . Hí/í&tStf & wí BHr ■ Borð- dúkar Uppsetningabúðin Hverfisgötu 74, sími 552 5270.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.