Morgunblaðið - 04.07.1998, Side 37

Morgunblaðið - 04.07.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 37,*-' .1 I ■1 i 1 I I i J : I 4 •1 I I I 4 I I i Það hlýtur að vanta margar sell- ur í kollinn á þeim manni sem skrif- ar svona. I þeim hópi, sem Jakob F. Ás- geirsson á við, voru okkar helstu rithöfundar og skáld sem sannar- lega renndu styrkum stoðum undir íslenskt samfélag og menningu með glæsileik og náðu langt út fyrir landsteinana. I þessum hópi voru og verkalýðsleiðtogar sem beittu sér fyrir ýmsum umbótum á samfélagi okkar og við viljum út af lífinu halda í. I þessum hópi voru líka mennta- menn og vinnuseljendur sem vildu mannvænleg lífskjör sér og sínum til handa, m.a. til að geta menntað börn sín og menn eins og Jakob F. njóta góðs af í dag. Ég viðurkenni fúslega að það fer hver að verða síðastur að ná til þessara manna. Langflestir eru horfnir til feðra sinna, aðrir eru ým- ist alveg á grafarbakkanum eða gengnir af trúnni og telja sig hafa verið blekkta. Og svo bætist það við að gamlir, áhrifamiklir baráttu- menn gegn kommúnismanum, og það menn sem voru í fremstu víg- línu, neita að berjast við vindmyllur. Og það ætti Jakob F. Ásgeirsson einnig að gera þótt hann leiki Don Quijote snilldarvel. Höfundur er áhugamaður um sagu- fræði og á heima í Breiðholti. umferð gangandi fólks virkar heft- andi á þá sem hafa illt í hyggju. Listimar verða eitthvað um- komulausar. Það er kannski hægt að sjá og heyra fullt af góðum hlut- um, en þetta eru mikið einangraðir staðir hér og þar og oft verið að flytja þá til, þannig að það verður kannski að aka langa leið til að njóta einhvers listviðburðar, en svo er ekkert annað í kring, bara að aka aftur heim eða til einhvers annars staðar. Ástandið gerir það að verk- um að fólk hittist ekki mikið eða reglulega nema það sé beinlínis að vinna saman, það skapast engir pottar þar sem hugmyndir geijast og komast á kreik, íbúamir of ein- angraðir í sínum hverfum. Það sem hefur hjálpað hér í Reykjavík, þrátt fyrir takmörk okkar og kannski vegna smæðar, er nálægð fólks sem hefur skapað góðar aðstæður fyrir umræður innan og milli hópanna. Þéttir hópar og allnokkur blöndun þeirra hefur skapað alllíflegt um- hverfi og gerjun á þessu litla landi, en það er ekki erfitt að ímynda sér menningarlegan doða ef aðstæður þróast í ákveðna átt. Auðvitað verða borgaramir að ákveða hvernig þróunin verður. Það er alveg sama hvað stjórnvöld gera ef raunverulegur vilji borgaranna fylgir ekki, en ef þróunin gengur of langt gæti tekið langan tíma að snúa henni við. Þróun menningarkjarna tekur langan tíma. Það er ekki hægt að búa þá til á einhverju teikniborði, og þegar þenslan er svona hröð er enginn kominn til með að segja að nýju miðbæirnir eða verslunar- kjamarnir haldi stöðu sinni lengi, alltaf þarf fleiri bílastæði og betri aðkomu. Það tekur engann endi. Það væri sjálfsagt í lagi að hafa fleiri en einn kjarna eða miðbæ ef víst væri að þeir héldust á sínum stað, en það er mjög óvíst, svo vægt sé til orða tekið. Með aukinni sam- keppni gæti farið að halla á einn kjamann og þegar fer að halla und- an fæti, verslunarmiðstöðvar að sjú- skast, getur verið erfitt að ná aftur upp stemmningu. Fólk sem hafði vinnu í hverfinu sínu þarf þvf skyndilega að leggja á sig langferð til að komast í vinnuna í hinum enda borgarsvæðisins. Þegar kreppa kemur eða samdráttur í þjóðfélag- inu geta svo heilu svæðin drabbast niður. Ef hér á landi væm fleiri en ein borg væri málið kannski einfaldara. Þá gætu borgimar þróast á mis- munandi vegu eftir óskum íbúanna og mismunandi lífsstíl. En við eig- um bara eina borg og við verðum að fara að ákveða okkur hvemig við viljum hafa hana í framtíðinni. Höfundur er myndlistarmaður. Staðardagskrá 21 - Mikilvægt verkefni nýrra sveitarstjórna ÞESSA dagana era nýkjömar sveitar- stjómir um allt land að ýta úr vör, kynna sér mál og marka stefnu, m.a. í umhverfismál- um. Á síðustu árum hefur vægi umhverfis- mála farið hraðvaxandi jafnt innanlands sem utan, eins og marka má af almennri umræðu. Umhverfismál eru hápólitísk mál sem varða alla. Er þá sama hvort horft er á málin á heimsvísu eða skoðuð heima fyrir í einstök- um sveitarfélögum, enginn er undanskilinn, allir þurfa að marka sér stefnu og taka af- stöðu til umgengni við náttúruna, landnýtingar eða vemdunar. Ef hægt er að tala um „umhverf- isvitund“, virðist sem sveitarfélög séu almennt komin skrefi lengra en ríkisvaldið, en að almenningur sé jafnvel kominn skrefi lengra en sveitarstjómimar, í það minnsta í einstökum málaflokkum. Sem dæmi um þetta má nefna tilraun sem gerð var með flokkun og jarð- gerð lífræns úrgangs frá 100 heim; ilum í Hafnarfírði, 1994-1995. í skoðanakönnun sem gerð var í lok tilraunarinnar, sögðust 99% þátt- takenda geta hugsað sér þetta fyr- irkomulag til frambúðar og 1% sagði „alveg eins“. (Heimild: „Lífrænn úrgangur: Vannýtt auð- lind sveitarfélaga"; Bjöm Guð- brandur Jónsson, Sveitarstjómar- mál 1. tbl. 1996). Þrátt fyrir þessi skýru skilaboð um áhuga fólks, eru nú, þremur árum síðar, aðeins örfá sveitarfélög farin að huga að al- mennri jarðgerð á lífrænum úr- gangi. Það sem gæti orðið fyrirferðar- mest í umræðunni um umhverfis- mál á komandi kjörtímabili, er svokölluð „Staðardagskrá 21“. Þetta er þýðing á hugtakinu Local Agenda 21 og á rót sína að rekja til sam- þykktar umhverfís- ráðstefnunnar í Rio De Janeiro árið 1992. Segja má að þá hafi þjóðir heims horfst í augu við að mannkyn gæti ekki leyft sér óbreytta umgengni um auðlindir jarðar. Sameiginleg niður- staða ráðstefnunnar var sú, að leiðin til baka fælist í svokall- aðri sjálfbærri þróun og var samþykkt áætlun þar að lútandi, Agenda 21, eða Dagskrá 21. Local Agenda, eða Staðardagskrá er sá hluti Dag- skrár 21, sem snýr beint að sveit- arfélögum. Hugtakið sjálfbær þróun er nýtt og felur í sér framtíðarsýn sem í stuttu máli snýst um að skapa sam- félag þar sem ekki er gengið á höf- uðstól náttúrunnar, þ.e. að við sem nú lifum, uppfýllum okkar þarfir án þess að skerða lífsmöguieika komandi kynslóða. Grunnhugmyndin að Staðardag- skrá 21 felur í sér breytta for- gangsröð, ekki aðeins í umhverfis- málum heldur fyrir alla aðra þætti samfélagsins. í stað þess að láta efnahagslega hagsmuni ráða mestu, fá nú umhverfið og félags- legir hagsmunir jafnt vægi. Það þarf að vera tryggt að við allar stærri ákvarðanir í sveitarfélaginu sé horft tii þessara þátta ekkert síður en peningalegra sjónarmiða. Staðardagskrá byggir á framtíð- arsýn hvers sveitarfélags um sjálf- bæra þróun. Það felur í sér kröfu um langtímasjónarmið. Aðeins með því að horfa lengra en til eins kjör- tímabils í senn, er hægt að taka mið af þörfum komandi kynslóða. Lögð er áhersla á að þeir sem koma að gerð Staðardagskrár tengist sem flestum „sviðum“ sam- félagsins, s.s. menntun, heilsa, börn og unglingar, öryggismál, fjölskyldulíf, konur og sérhópar. Til að ná árangri í svo almennri þátttöku þarf að taka upp ný og breytt vinnubrögð og í einhverjum tilfellum geta sveitarstjómir þurft að slaka á valdataumunum. Til Ef hægt er að tala um „umhverfisvitund“, seg- ir Sigurborg Kr. Hann- esdóttir, virðist sem sveitarfélög séu al- mennt komin skrefi lengra en ríkisvaldið. lengri tíma skilar það sér margfalt til baka í aukinni samstöðu og al- mennari ánægju meðal íbúanna, svo vitnað sé í Chris Zydeveld sem hefur leitt vinnu hoUenskra sveit- arfélaga við gerð Staðardagskrár. Staðardagskrá tekur til málefna sem ganga þvert á samfélagið og fjallar því um lífsskilyrði og lífs- gæði íbúanna í víðustu merldngu. Sem dæmi má nefna, náttúrulegt umhverfi, vatn, sorp og mengun, landnýtingu og skipulag, húsnæðis- mál, skattlagningu, samgöngur og félagslegan stuðning. Flest sveitarfélög á íslandi í dag eru að kljást við sömu vandamálin og víða er reynt að bæta úr með átaksverkefnum hér og þar. Átak til að hreinsa bæinn, átak í vímu- vörnum, átak til heilsueflingar og þannig mætti lengi telja. Þó oft ná- ist ágætur árangur, vill stundum vanta yfirsýn og samræmingu í slíkum málum og ýmsum öðram. Gerð Staðardagskrár er leið til að tengja allt þetta saman og byggja á framtíðarsýn um betra samfélag þar sem ríkir virðing fyrir um- hverfinu og manneskjunum. Vera má að þetta hljómi eins og ein allsherjar töfralausn, en svo er auðvitað ekki. En svo mikið er víst að sveitarfélög standa frammi fyrir brýnni þörf fyrir breytt vinnu- brögð. Jafnvel í smáum sveitarfé- lögum er stór hluti íbúanna óvirkir þátttakendur og það ríkir lítil vit- und um sameiginleg markmið eða framtíðarsýn. Fáir einstaklingar bera uppi hitann og þungann af stjómun sveitarfélagsins og minni sveitarfélögin ná ekki að nýta sér kosti smæðarinnar, þ.e. almennari þátttöku og nálægð. Fyrir vikið verður enn fysilegra að komast í meira þéttbýli. Sveitarfélag sem hyggst hefja gerð Staðardagskrár, getur nýtt sér reynslu þeirra þúsunda sveitar- félaga annars staðar í heiminum sem eru komin vel á veg og nýtt sér handbækur og leiðbeiningar sem auðvelt er að nálgast. Það eru líka gleðitíðindi fyrir íslensk sveitarfé- lög að nú stendur yfir undirbúning-,r^ ur að verkefni umhverfisráðuneytis og Sambands sveitarfélaga um um- hverfisáætlanir sveitarfélaga. Þau sveitarfélög sem taka þátt í því munu geta nýtt sér það sem fyrstu skrefin að gerð Staðardagskrár. Ég vil að lokum hvetja nýjar sveitarstjómir um allt land, til þess að setja gerð Staðardagskrár 21 á stefnuskrá sína. Ekki vegna þess að það sé skipun að ofan og jafnvel ekki heldur vegna þess að ísland er komið talsvert langt á eftir öðr- ■* um löndum í þessum efhum, heldur fyrst og fremst vegna þess að vel heppnuð áætlun sveitarfélags um sjálfbæra þróun getur orðið grann- ur að betra samfélagi sem hlúir bæði að umhverfinu og íbúum sín- um og býður þeim betri möguleika til lífsfyllingar í víðasta skilningi. Höfundur er verkefnisstjóri um- hverfisverkefnis Egilsstaðabæjar. Sigurborg Kr. Hannesdóttir Seljum ríkisbankana TOLUVERT hefur verið rætt um ríkis- bankana að undan- förnu og hafa málefni Landsbankans að nokkra verið í brennid- epli. Lítið hefur hins vegar farið fyrir alvar- legri umræðu um skip- an og framtíð banka- mála hér á landi þótt fjaðrafokið nú í vor hafi af ýmsum sökum verið til þess fallið að vekja hana upp. Slík umræða er mjög knýj- andi enda er traust stjómun bankanna snar þáttur hvers blómlegs hagkerfis. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, skoraði á dögunum á ríkisstjóm íslands að hefja þegar að undirbúa sölu á Landsbankan- um og Búnaðarbankanum. Sala á hlutum ríkisins í umræddum fyrir- tækjum yrði mikið heillaspor og að mati undirritaðs er brýnt að í hana sé ráðist hið fyrsta. Að fara með annarra fé Það er gömul saga og ný að menn hafa tilhneigingu til að fara betur með eigið fé en annarra. Að öllu jöfnu starfa einkafyrirtæki því undir meira og skilvirkara aðhaldi og eftirliti en ríkisfyrirtæki. Eig- endur einkafyrirtækja bera beina ábyrgð á þeim - þeir hagnast ef fyrirtækinu gengur vel en tapa fé að öðram kosti. Fyrir hendi er beint samband milli ákvörðunar og kostn- aðar af henni en þetta samband er með öðr- um hætti þegar ríkis- fyrirtæki era annars vegar. Þannig hafa stjórnendur ríkisfyrir- tækja aldrei sömu hvatninguna til að reka fyrirtæki sín með arði. Og ekki nóg með það, stjómendur ríkis- fyrirtækja búa iðulega við aðstæður sem krefjast þess beint eða óbeint að þeir reki fyr- irtæki sín með óarð- bæram hætti. Æðsta stjóm slíkra fyrirtækja sam- anstendur yfirleitt af pólitískt skip- uðum einstaklingum, svo sem raunin er um ríkisbankana. Póli- tísk hagsmunagæsla verður því oft ráðandi í rekstri ríkisfyrirtækj- anna en brýnum viðskiptahags- munum er bylt fyrir borð. Hér er iðulega ekki við þá að sakast sem stjórna hverju sinni, heldur er það kerfið sem þeir búa við sem leiðir fyrr eða síðar til þess að ríkisfyrir- tækin fara út af sporinu. Með því að færa eignarhald ríkisbankanna til einstaklinga væri því tryggð mun skilvirkari stjómun þeirra. Engum blöðum er um það að fletta að þeir sem ættu hlut í bönkunum myndu refsa þeim sem færa illa með fé bankans og stjómendumir þyrftu aukinheldur ekki lengur að taka tillit til annarlegra pólitískra sjónarmiða. Breytingin myndi stuðla að hagkvæmari rekstri, betri þjónustu og koma í veg fyrir sóun. Viðbrögð við þenslu Undanfarið hefur mikil velmeg- un verið hér á landi, mikill hag- vöxtur og kaupmáttaraukning. Og ekkert bendir til þess að mál kunni að þróast á annan veg á næstunni. Sala ríkisbankanna myHdi lækka erlendar skuldir, segir Ingvi Hrafn Oskarsson, bæta ------------—7------------ lánskjör Islendinga erlendis og styrkja hagkerfí landsins. Margir hafa orðið til þess að vara við því að þensla kunni að verða í hagkerfmu af þessum völdum. Ýmsir hafa jafnvel gengið svo langt að fullyrða að nauðsynlegt væri að hækka skatta eða leggja á nýja til þess að spoma við þenslunni. Sjálf- sagt er rétt að vera á varðbergi vegna hættu á þenslu en skatta- hækkanir era fráleit viðbrögð. Al- menningur og fyrirtæki á Islandi era nú þegar skattpínd og ekki á þau ósköp bætandi, en eins og stendur fer hátt í helmingur vergr- ar landsframleiðslu beint í ríkis- Ingvi Hrafn Óskarsson kassann. Sala ríkisbankanna myndi slá-á hugsanleg þensluáhrif og er ólíkt skattahækkunum skynsamleg aðgerð þegar til framtíðar er litið. Er ástæða til að bíða? Sala ríkisbankana er brýn af mörgum ástæðum. Þegar hefur verið bent á að salan muni stuðla að hagkvæmari rekstri bankanna og hamla gegn hugsanlegum þensluáhrifum. Tekjumar af söl- unni ætti að nota til þess að greiða niður erlendar skuldir en alls ekki til að auka ríkisútgjöld. Á það hef- ur verið bent, m.a. af þeim sem meta lánshæfi Islands, að miklar erlendar skuldir eru helsti veikleiki á hagkerfinu okkar. Sala ríkis- bankanna myndi því lækka erlend- ar skuldir, bæta lánskjör íslend- inga erlendis, styrkja hagkerfl** landsins og búa í haginn fyrir kom- andi kynslóðir. Er ástæða til að bíða öllu lengur? Höfundur er hsískólnnemi. Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Hoykjavík, sími 551 4050 * X

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.