Morgunblaðið - 04.07.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 45
; Islendingafé-
lag stofnað í
Iowa-fylki í
Bandaríkj-
i unum
I STOFNAÐ hefur verið félag ís-
( lendinga í Iowa-fylki í Bandaríkjun-
um. Tilgangur og markmið féiags-
ins er að efk samkennd og félags-
anda meðal íslendinga í Iowa, segir
í fréttatilkynningu frá félaginu.
Aðsetur félagsins er í Iowa City
sem er um 70 þúsund manna há-
skólabær. í Iowa City og nágrenni
búa nú um 50 íslendingar í um tólf
fjölskyldum.
Flestir tengjast háskólanum Uni-
( versity of Iowa sem er um 27 þús-
( und nemenda háskóli, stofnaður
1846. Hann fagnaði því 150 ára af-
mæli sínu 1996 eins og lowa-fylki
sjálft. í Iowa City er eitt stærsta
háskólasjúki-ahús í öllum Banda-
ríkjunum. Par eru nú 10 læknar í
framhaldsnámi.
Netfang félagsins er: sig-
sigDuIowa.campus.mci.net.
Vinningshafí
spurningaleiks
Bændaskólans
á Hvanneyri
MJÖG vinsælt er hjá skólum að
fara í vorferðir á bóndabýli til að
kynnast búfénu og
lífinu í sveitinni.
Nú í vor eins og
svo oft áður komu
nokkrar skólahóp-
ar að Hvanneyri í
Borgarfirði. Þar
fengu krakkamir
að skoða kýrnar í
fjósinu, nýfæddu
lömbin í fjárhúsinu
og Ullarselið, þar sem þeim var
( sýnt hvernig unnið er og valið úr
ullinni. Mesta kátínu vakti þó bú-
' vélasafnið þar sem krakkarnir
| fengu að stíga upp í gamlar búvélar
og fræðast um notkun ýmissa gam-
alla verkfæra.
í lok heimsóknarinnar fengu allir
fræðsluhefti um Hvanneyrarstað og
spumingar um það sem þeir höfðu
fræðst um í heimsókninni. Margir
sendu svör og var eitt þeirra dregið
úr þeim réttu. Sú heppna varð Sól-
t rún Sandra Guðmunsdóttir sem
kom að Hvanneyri með Hóla-
> brekkuskóla í Reykjavík. Hún fékk
( í vinning gistingu fyrir fjóra að
sumarhótelinu á Hvanneyri. Starfs-
lið Bændaskólans óskar henni til
hamingju með vinninginn og þakkar
öðram vel fyrir komuna.
Farin
; til Parísar
( Á HVERJU ári stendur Alliance
Frangaise í París fyrir Evrópski-i
frönskukeppni. Styrktaraðili keppn-
innar er stórfyrirtækið Orangina.
Nú í ár tóku 40 lönd þátt í keppn-
inni með yfir 10.000 þátttakendum.
Þeir sem taka þátt eru mennta-
skólanemendur.
Keppnin fór fram hjá Alliance
t Frangaise í Reykjavík í samvinnu
við Félag frönskukennara á íslandi.
' Eins og í fyrra gátu nemendur utan
{ af landi tekið þátt í sínum skólum
en í ár var tækifærið ekki gripið.
Tóku 10 nemendur þátt í keppninni;
einn frá Fjölbrautaskólanum v/Ár-
múla, einn frá Kvennaskólanum í
Reykjavík, þrír frá Verzlunarskóla
Islands og fimm frá MR.
Menningarfulltrúi Franska sendi-
ráðsins, Victor Cherner, og fram-
i kvæmdastjóri Alliance Frangaise,
' Colette Fayard, völdu þrjár bestu
$ ritgerðirnar og sendu þær til
( Frakklands. Voru þetta ritgerðir
Hrefnu Sigurjónsdóttur frá MR,
Sólrún
Sandra
FRÉTTIR
;
'y . JT ö
rv.; • .
Morgunblaðið/Einar Gunnarsson
SVEINN Runólfsson, Hulda Valtýsdóttir og Guðmundur Bjarnason við skógræktarstörf.
Gróðursett í Vinaskógi
VINASKÓGUR í Þingvallasveit
er eitt af 100 skógræktarsvæð-
um, sem skógrækt hófst á með
Landgræðluskógaátakinu árið
1990. Landgræðsluskógar eru
samstarfsverkefni Landgræðslu
ríkisins, Skógræktar ríkisins,
Skógræktarfélags fslands og
landbúnaðarráðuneytis.
Laugardaginn 27. júní sl.
komu saman í Vinaskógi um 40
félagar úr nálægum skógrækt-
arfélögum og gróðursettu í
sjáifboðaliðastarfi um 800 birki-
tré.
Með í hópnum voru Guð-
mundur Bjarnason landbúnað-
arráðherra, Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri og Hulda
Valtýsdóttir, formaður Skóg-
ræktarfélags íslands, og gróð-
ursettu þau tré á sérvalinn stað
til staðfestu hinu góða sam-
starfi sem verið hefur um fram-
kvæmd Landgræðsluskógaverk-
efnisins.
Alls hafa verið gróðursettar
um 9,5 milljónir plantna á veg-
um Landgræðsluskóga víðsveg-
ar um íslands.
Nýtt kaffíhús
í Mosfellsbæ
NÝTT kaffihús hefur verið opnað í
Mosfellsbæ, Þverholti 2, Kjarnan-
um, og ber nafnið I túninu heima.
Það er titill á einum hluta ævi-
sögu Nóbelsskáldsins heitins enda í
hans heimabæ. Eins eru eigendur
þaðan en þeir era Gunnar S. Ás-
geirsson og Dagný B. Davíðsdóttir.
Kaffihúsið verður opnað kl. 7.30
virka daga en kl. 9 um helgar og því
verður lokað kl. 21 alla daga.
í boði eru m.a. súpur, salöt, rún-
stykki, smurt brauð, tertur, kaffi/te,
heitt kakó o.m.fl.
---------------
Sýning
framlengd
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram-
lengja sýningu Ólafar Sigríðar Da-
víðsdóttur og Páls Heimis Pálsson-
ar í Galleríi Horninu til sunnudags-
ins 12. júlí.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
11-23.30, sérinngangur þó aðeins
kl. 14-18.
LEIÐRÉTT
Rangt ártal
RANGT ártal var í frétt á bls. 20 í
blaðinu sl. fimmtudag, um vígslu
Blöndalsbúðar. Guttormur Pálsson
keypti land fyrir Skógræktarfélagið
árið 1944 en ekki 1994 eins og mis-
ritaðist.
Bæjarstjórn mót-
mælir nafnbreytingu
á Keflavíkurflugvelli
A FUNDI bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar 23. júní sl. var eftirfar-
andi bókað:
„TÖLUVERÐAR breytingar hafa
átt sér stað á undanfórnum misser-
um í tengslum við farþegaflug á
Keflavíkurflugvelli. Breytingar
hafa verið gerðar á fyrirkomulagi
verslunar á Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar og þjónusta við flugvélar að
nokkru leyti orðin frjáls. Markaðs-
ráð Keflavíkurflugvallar hefur nú
skilað skýrslu sem inniheldur
stefnumótun til framtíðar. Bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar lýsir
ánægju sinni með margar þær
hugmyndir sem fram koma í
skýrslunni og miða að því að auk
starfsemi á flugvellinum.
Bæjarstjómin getur þó engan
veginn sætt sig við þá tillögu sem
fram kemur í niðurstöðum Mark-
aðsráðsins að breyta þurfi nafni
flugvallarins í Reykjavík-Keflavík
Airport, þessari tillögu mótmælir
bæjarstjóm Reykjanesbæjar
harðlega. Einnig vilja bæjaryfir-
völd lýsa undrun sinni á að enginn
Suðurnesjamaður hafi setið í
Markaðsráðinu þar sem flugvöllur-
inn er einn stærsti og mikilvægasti
vinnustaður á Suðurnesjum og
brýnt að sjónarmið heimamanna
komi fram í stefnumótum til fram-
tíðar.
Kjartan Már Kjartansson, Þor-
steinn Erlingsson, Böðvar Jónsson,
Skúli Þ. Skúlason, Björk Guðjóns-
dóttir, Ólafur Thordersen, Jóhann
Geirdal, Ellert Eiríksson, Steinþór
Jónsson, Sveindís Valdimarsdóttir,
Guðbjörg Glóð Logadóttir.
Morgunblaðið/Golli
ÞAU áttu bestu ritgerðirnar í Evrópsku frönskukeppninni.
Elísabet Önnu Vignh' frá Verzló og
Agnars Bjarnasonar frá MR. Dóm-
nefnd í París valdi síðan bestu rit-
gerðirnar frá hverju landi fyrir sig.
Frá Islandi var það Agnar Bjarna-
son sem bar sigur úr býtum. Hann
er 20 ára gamall og er nemandi
Héðins Jónssonar.
Sigui-vegari hvers lands fær í
verðlaun 10 daga dvöl í París í júlí
og er íslenski keppandinn þegar
farinn. Þar munu allir sigurvegar-
ar hittast og skemmta sér saman.
Allir þátttakendur munu fá bóka-
gjöf frá Alliance Frangaise í
Reykjavík.
KONUR úr Lionsklúbbnum Eir afhenda Lísu Wium fyrir hönd Vímulausr-
ar æsku ávísunina. Talið frá vinstri: Freygerður Pálmadóttir, Lísa Wium,
Camilla Th. Hallgrímsson, Eyrún Kjartansdóttir og Gumiur Axelsdóttir.
Styrkja forvarnir
gegn fíkniefnum
LIONSKLÚBBURINN Eir hefur á
hverju ári styrkt baráttu gegn eitm--
lyfjum með ýmsum hætti svo sem
forvarnir gegn vímuefnum.
Kennsluverkefni Lions Quest sem
notað er í grunnskólum og heith' á ís-
lensku „Að ná tölum á tilveranni" er
hið besta sem völ er á til að kenna
ungu fólki að taka sjálfstæðar
ákvarðanir og segja nei takk við hin-
um ýmsu freistingum og vímuefnum.
Samtökin Vímulaus æska hafa staðið
dyggilega á bak við þetta kennslu-
verkefni og unnið forvarna- og leið-
beinendastarf gegn eiturlyfjum.
Stjórn Lionsklúbbsins Eir ákvað
að styrkja Lions Quest námsefnið
um 100.000 kr. og leiðbeinendastarf
Vímulausrar æsku um aðrar 100.000
kr.
Til sölu blár Renault Clio RN árg. 93,
ekinn aðeins 21.000 km, vel með farinn bíll,
sami eigandi frá upphafi. Vetrardekk fylgja.
Sanngjarnt verð.
Upplýsingar í síma 562 4482.