Morgunblaðið - 04.07.1998, Page 47

Morgunblaðið - 04.07.1998, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 47 I DAG Federico Garcia Lorca - minningarorð Frá Tryggva V. Líndal: EFTIR að hafa lesið rainningargrein Einars Braga rithöfundar um mynd- listarmanninn og íslandsvininn Diet- er Roth þykir mér sem einnig megi minnast annars listamanns og Is- iandsvinar með minningargreinar- I formerkjum, þótt sá hafí verið öllu fjarlægari í tíma og rámi; nefnilega spænska skáldsins Federico García Lorca, sem á hundrað ára fæðing- arafmæli um þetta leyti. Telja má Lorca til íslandsvina, eftir að fjölmargir íslendingar hafa látið sig ævi hans og örlög slíku skipta að þeir hafa fundið sig knúna | til að þýða einhver af Ijóðum hans eða leikritum, eða þá að skrifa um I lífshlaup hans. Má þar (auk undirrit- I aðs) nefna rithöfundana Einar Braga, Hannes Sigfússon, Geir Kristjánsson, Kristján Árnason, Helga Hálfdanarson, Baldur Óskarsson, Guðberg Bergsspn, Por- geir Þorgeirsson, Magnús Ásgeirs- son, Karl Guðmundsson, Berglindi Gunnarsdóttur, Jóhann Hjálmars- son, Jón Hall Stefánsson, Hallberg | Hallmundsson og Ömólf Árnason; og að auki nokkur tónskáld. Má því telja líklegt að Lorca hafí | hreyft við íslenskum listamönnum engu síður en Dieter Roth,_ þó að Lorca hafi vísast aldrei til Islands komið. Ekki komst Lorca að heldur svo I I I langt að eignast íslenska konu né að geta með henni börn. Þó má telja að minning hans hafi greypst í íslenska menningarvitund til jafns við marga hérlenda listamenn sem áttu börn og buru. Þriðja röksemdin fyrir minning- argi-ein um Lorca er að svipleg endalok hans ásamt sorglegum blæ í verkum hans hafa verkað á íslenska lesendur líkt og andlátsfregnir nú- tímans af innlendum listamönnum. Um það leyti sem aldarafmæli Lorca stóð sem hæst var ég staddur á Þingvöllum. Bar ég þar augum legstein Jónasar Hallgrímssonar, þjóðskáldsins okkar; sem fróðlegt er að bera Lorca saman við: í Þeir dóu báðir á svipuðum aldri, og með um aldar millibih. Höfðu þeir, hvor með sínu móti, marga þá eiginleika sem þjóðhetjur mega piýða; svosem að bíða örlagaþrung- inn dauðdaga. Færði ég þetta í tal við íslenska alþýðukonu, eina af eldri kynslóð sem ég mætti þar á Þingvöllum. En henni var þá vel kunnugt um Lorca eftir alla hátíðar- umfjöllunina um hann að undan- förnu og orðaði þetta sem svo: „Fólk þarf að hafa eitthvað til að tráa á.“ Þar hitti hún einmitt naglann á höfuðið. Því þeir eru báðir í verkum sínum gefandi tilfinningamenn sem auðvelt er að samsama sig við. Og kiingumstæður dauða þeirra urðu hvorar með sínum þjóðlegum hætti: Jónas var okkar tímanna tákn af því hann þjáðist af heimþrá, fátækt og heilsuleysi. Úr ljóðum hans má merkja samúð með bændum og fá- tæklingum Islands. Lorca var hinsvegar barn auð- stéttarinnar spænsku sem gat lifað þess konar listamannalífi sem var að verða algengt á vesturlöndum þá, en sem fasistar slógu svo á frest í nokkra áratugi. Auk þess var hann orðaður við vinstri stefnu og auð- sýndi samúð með hinum undirokuðu hópum Spánar, svosem verkafólki, konum, sígaunum, gyðingum, negr- um; og jafnvel samkynhneigðum og hreyfihömluðum; samkvæmt nýj- ustu túlkunum. Dagur Þorleifsson rithöfundur hefur að auki vakið athygli mína á að fleiri en Lorca meðal menningar- vita heimsins höfðu klumbufót; svos- em Byron lávarður, Jósef Göbbels og sjálfur Ödipus konungur goðsög- unnar (Ödipus mun þýða geitifótur; bólginn fótur). Byron átti auk klumbufótarins það sammerkt með Lorca að vera kynhverfur, upptekinn af dauðan- um, hugfanginn af rómantískri for- tíðarhyggju; sem og að hann dó ung- ur í styrjöld. Þykir mér að vel mætti athuga sambandið milli heilsuleysis þessara manna allra og áhuga þeirra á dauð- anum, eins og hann birtist í skrifum; svo og varðandi aldúrtila þeirra. Eru þeir þar í hópi margra annarra rómantískra skálda sem dóu ung að árum. Til dæmis var Lorea mikið fyrir að ríða á hesti, en gat ekki sjálfur hlaupið. Styrkir þetta tengslin við hestinn sem svo fyrirferðarmikið feigðartákn í ljóðum hans? Líkt og Jónas leitaði Lorca fanga bæði lengra aftur í sögu þjóðar sinn- ar og meira til erlendrar framúr- stefnu en þá var algengast. Einnig var hann, líkt og Jónas, óvenju fjöl- hæfur; Lorca í listum, Jónas í vís- indum; og báðir sýndu þeir áhuga á varðveislu þjóðhátta. Verk þeirra eru þrungin þjóðernisrómantík. Báðir voru þeir frjálslyndii- þjóðern- issinnar í stjórnmálum, þótt hvorug- ur væri flokkspólitískur. Báðir voru þeir í raun dæmigerðir fyrir há- skólaborgara síns tíma. Kristin barnatrá á sér líka sinn sess í verk- um beggja. Báðir voru þeir og ein- hleypir og barnlausir. Fyrst og síðast voru þeir þó báðir miklir listamenn. Við getum kannski þakkað fyrir að þeir skuli báðir hafa dáið innan við fertugt: Ef þeir hefðu lifað tvö- falt lengur er hætt við að þeir hefðu loks orðið slíkir jöfrar, að fáir eða engir hefðu getað samsamað sig við þá sem alþýðlegar þjóðhetjur. Einnig gæti það hafa reynst að þeir væru þegar búnir að syngja sitt feg- ursta sem ljóðskáld. Ef þeir hefðu lifað lengi hefðu þeir hugsanlega einnig orðið að deila sessi sínum með öðrum keppinaut- um. Mannfræðimenntun mín býður mér að spá því, að Lorca hefði þró- ast frá að vera fyrst og fremst frægt leikskáld til þess að verða að lokum einn af mörgum kvikmyndahand- ritahöfundum Spánar; og eitt af mörgum ágætum ljóðskáldum landsins. Og Jónas hefði kannski orðið sprenglærður náttúrufræði- prófessor við Hafnarháskóla, sem hefði veitt Jóni Sigurðssyni harða keppni um frelsishetjutitilinn. Þá hefðum við öll sem eftir lifum fengið færri tilefni til að spá í eyð- urnar hjá þessum stórmennum! TRYGGVIV. LÍNDAL, skáld og þjóðfélagsfræðingur í Reykjavík Stöðvum strauma áfengiselfunnar Frá Árna Helgasyni: . Vínið hrindir mennskri mynd, magnar lyndi skitið, gerir yndið allt að synd og steinblindar vitið. ( ( ( < ( ( < ( ( ÞETTA lærði ég í æsku og gildi þess hefi ég fengið sannað gegn um árin. Hvar sem áfengið nær tökum hefir það skilið eftir sig djúp sár bæði hjá einstak- lingum og fjöl- skyldum. Eg hefi alltaf séð það betur og betur eftir því sem árin líða hversu stór skörð það hefír Árni Helgason se^ ' raðil okk- ar, íslensku þjóð- arinnar, og það böl sem af nautn þess leiðir er óútreiknanlegt. Því var ég ekki hissa á þegar útvarpið sagði frá skýrslu vísindamanna og lækna í Frakklandi um áhrif áfengis sem taldi meira að segja að áfengið væri jafn hættulegt til nautnar og heróín, kókaín og jafnvel hass. Og þá var nú ekki dregið úr hversu tóbaksnotkun væri hættuleg allri heilbrigði. Tó- bakið er lífshættulegt, sagði í skýrsl- unni, jafnt og áfengi og talið að notkun þess væri varasöm. Já, þessi efni væru efst á blaði og þyi’fti að berjast gegn þeim svo sem kostur væri. Þessi skýrsla kom mér ekkert á óvart, en fréttastofan taldi að þetta þyrfti að bera undir læknana á Vogi; sjálfsagt hafa þeir miklu meira vit á þessu en vísindamennirnir i Frakklandi, enda sögðu þeir strax að skýrslan væri bara bull. En skýi'ðu það ekki frekar. Ég var undrandi yfir þessum orðum yfir- manns Vogar. Eg hélt að hann hefði þá reynslu af áfenginu, að hann ætti að fagna þeim sem bentu á eyðilegg- ingu þá sem áfengið hefði valdið í þeirra landi og taka til athugunar orð þeirra sem hafa rannsakað þetta böl í sínu landi. Kannski þykir þeim á Vogi betra að fá alla þá sjúklinga til meðferðar sem áfengið hefir farið verst með, heldur en byrgja brunn- inn áður en barnið er dottið ofan í hann. Ég man ekki ailar þær tölur sem fylgdu rannsókn þessara frönsku sérfræðinga, en þær voru hræðilegar. I dag tala forystumenn þjóðarinnar um að útrýma fíkniefn- um fyrir árið 2002. En hvernig er ekki skýrt frá, enda meðan áfengið leikur lausum hala er ekki von til þess að fíkniefnum verði útrýmt; það hljóta allir hugsandi menn að sjá. meðan hvert veitingahús fær að selja þetta hættulega efni og opin- berar veislur eru fullar af þessu fíkniefni og otað að öllum er ekki von á góðu. Á skal að ósi stemma, var sagt hér fyrrum og það hefir ekki rýrnað í giidi. Það er talað um boð og bönn. Þau eigi ekki að eiga sér stað og fólk hvatt til að virða þau ekki og hefir hver ríkisstjórn á fætur annarri rýmkað reglur um notkun og með- ferð áfengis. En hvað hefir skeð og hvað segir reynslan okkur? Hún er ólygnust og sýnir skýrt og skorin- ort, að með hverri tilslökun vaxi vandinn af notkun áfengis og ann- arra vínuefna sem verða fylgifiskar. En hitt er ekki rætt að löggjafar semja lög sem banna eitt og annað en á það er ekki minnst. Og hvað segir Kristur? Talar hann ekki um í Fjallræðunni hvað við eigum að gera til að öðlast eillft líf? Talar hann ekki einnig um glötunina og varar okkur við djöflinum og öllu hans athæfi? Vissulega, hann vill leiðbeina okkur inn á hinn mjóa veg, en hann fara svo fáir, segir frelsar- inn okkur, og er það ekki áfengið sem þar stendur oft í vegi og leiðir okkur afvega? Jú og aftur jú, því ekki leiðir það okkur á hina einu og sönnu braut, braut lífsins. Þetta er vissulega umhugsunar- efni fyi-ir okkur og að ég tali ekki um ráðamenn þjóðarinnai'. Væru þeir meira samtaka í góðum málum, væri bjartara framundan í landinu okkar. Ég man eftir því að meðan bann- lögin voru í gildi fundu áfengisdýrk- endur þeim allt til foráttu, meðal annars að þau væi-u alltaf brotin og ekki virt. En hvaða lög eru ekki brotin og reynt að fara í kringum þau, ef menn sjá sér gróðavon í því? Samt er alltaf verið að setja lög og reglur, handa fólki að fara eftir. Eigum við ekki að kenna þjóðinni að fara eftir lögum og reglum og mætti ekki sú kennsla vera eitt af verkum skólanna. Hvað sem öllu líður verðum við að stöðva strauma áfengiselfunnar. Þð eru nógu margir efnilegir þegnar sem hafa beðið þar skipbrot. Við skulum minnast þess að heimilin eru hornsteinai' þjóðfélagsins og þar er oftast ógæfunnar að leita. Foreldrar, sem bera ábyrgð á uppeldi barna sinna, bregðast þar oft, hleypa óvin- inum inn og koma honum svo ekki út aftur. Siðvæðing þarf að koma hér til skjalanna og hún svo mikil að enginn bregðist. Eins og fólk sópar sín hý- býli verður það að sópa áfengisósóm- anum burt. Ef það tekst má búast við vímulausu landi, en fyrr ekki. ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Guðspjall dagsins: Verið miskunnsamir. Lúk. 6 ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfs- fólks Áskirkju er bent á guðsþjónustu í Laugarneskirkju. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Altaris- ganga. Fermdur verður Þorbjöm Gylfason frá Goldboro í Norður-Kar- ólínufylki í Bandaríkjunum. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14. Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Org- anleikari Marteinn H. Friðriksson. Bátsferð úrSundahöfn kl. 13.30. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón- usta kl. 10.15. Organisti Kjartan Olafs- son. Sr. Kjartan Öm Sigurbjömsson. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Bjarni Jónatansson. Sr. Ólafur Jóhannsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og bamasamkoma kl. 11. Mótettukór Hallgrimskirkju syngur. Organisti Dou- glas A. Brotchie. Sr. Jón Daibú Hró- bjartsson. Að lokinni messu kl. 12.15 verður opnuð sumarsýning í anddyri kirkjunnar á vegum Listvinafélags Hall- grímskirkju með myndverkum eftir Tryggva Ólafsson. Órgeltónleikar kl. 20.30. Karsten Jensen, organisti við Skt. Matthæus-kirkjuna í Kaupmanna- höfn, leikur. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organisti Ólafur W. Finnsson. LAUGARNESKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20.30. Kór Laugameskirkju syngur. Organisti Gunnar Gunnarsson. Auður Birgisdóttir leikur á þverflautu. Barna- samvera meðan á prédikun stendur. Prestur sr. Bjarni Karlsson. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Halldór Reynisson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Prestur sr. Sigurður Grétar Helgason. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta í Safnaðarheimili Árbæjarkirkju kl. 11. Organleikari Kristín G. Jónsdóttir. Prestarnir. BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Þátttakendur í norrænu þjóðdansa- móti annast ritningarlestur og flytja tónlist. Organisti Daníel Jónasson. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Messur falla nið- ur frá 1. júlí til 9. ágúst vegna sumar- leyfa starfsfólks. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta - helgistund kl. 20.30. Upp- hafsbæn: Sigurbjörg Skúladóttir. Ritn- ingarlestur: Sigríður Jónsdóttir. Organisti Lenka Mátéová. Umsjón Guðlaug Ragnarsdóttir. Prestarnir. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Sigurður Arnar- son. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti Hörður Bragason. Prestarnir. HJALLAKIRKJA: Vegna framkvæmda í Hjallakirkju og sumarleyfa er fólki bent á helgihald í öðmm kirkjum pró- fastsdæmisins. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11. Kór Kópavogskirkju syngur ásamt Hareidblandakor frá Noregi sem er hér í heimsókn. Organisti Guð- mundur Sigurðsson. Ægir Fr. Sigur- geirsson. SELJAKIRKJA:Guðsþjonusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Ing- veldur Ýr Jónsdóttir syngur einsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN, Rvík: Kvöldmessa kl. 20.30. Altarisganga. Athugið breyttan messutíma. Kirkjukaffi í Safnaðarheim- ilinu að lokinni messu. Organisti Pavel Smid. Hjörtur Magni Jóhannsson safn- aðarprestur. FRÍKIRKJAN VEGURINN Smiðjuvegi 5, Kópavogi: Samkoma á sunnudag kl. 20. Mikil lofgjörð, predikun orðsins og fyrirbæn. Þeir sem gengið hafa I kirkjuna nýlega veröa boönir velkomn- ir. Brotning brauðsins. HVÍTASUNNUKIRKJAN Flladelffa: Brauösbrotning kl. 11. Ræðumaður Er- ling Magnússon. Almenn samkoma kl. 20. Ræðumaöur Stanley Webb frá Bandarikjunum. HJÁLPRÆÐISHERINN:Hjálpræöis- samkoma I umsjá Miriam Óskarsdótt- ur. VÍDALÍNSKIRKJA: Helgistund kl. 20.30. Organistl Jóhann Baldvlnsson. Prestur sr. Bjaml Þór Bjamason. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Halldóri Óskarssyni organlsta þakkað vetrarstarfið og Úlrik Ólason boðlnn velkomlnn tll starfa að nýju. Slgurður Helgl Guðmundsson. rir HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 20.30. Ath. breyttan tíma. Eyjólfur Eyjólfsson leikur á flautu. Félagar úr Kór Hafnarfjarðarkirkju syngja. Organisti: Natalía Chow. Prestur: Séra Gunnþór Ingason. Prédikunarefni: Ljósið. BESSAST AÐAKIRK JA: Kvöldguðs- þjónusta sunnudaginn 5. júlí kl. 20.30. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnað- arsöng undir stjórn Johns Speight. Organisti er Þorvaldur Björnsson. Hans Markús Hafsteinsson. LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Síð- asta samkoma kirkjunnar fyir sumarfrí í Bíldshöfða 10, 2. hæð, kl. 20. Lofgjörð, heilög kvöldmáltíð og fyrirbænir í lok samkomunnar. Sr. Friðrik Schram predikar. ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta á sunnudag kl. 14. Organleikari Ingunn Hildur Hauksdóttir. Sóknarprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagur 5. júlí kl. 14. Fermingarguðsþjónusta. Fermdar verða Audrey Rostohar, Há- túni 31, Keflavík, og Jóhanna Árna- dóttir, Smáratúni 16, Keflavík. Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Organisti Einar Öm Einarsson. Kór Keflavíkur- kirkju syngur. Starfsfólk kirkjunnar. HVERAGERÐISKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. KOTSTRANDARKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Jón Ragnarsson. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 10.30. Morgunbænir þriðjudaga-föstudags kl. 10. Sóknarprestur. HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa: Kvöldmessa nk. sunnudag kl. 21. Kristinn Á. Friðfinnsson. ODDAKIRKJA á Rangárvölium: 4. sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Messa kl. 14. Halldór Óskarsson org- anisti kemur til starfa á ný eftir vetrar- langt leyfi. Sóknarprestur. STRANDARKIRKJA: Helgistund sunnudaginn 5. júlí kl. 14. Sóknar- nefnd. SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa verður sunnudag kl. 17. Tónlistarflutningur hefst í kirkjunni 20 mínútum fyrir messuupphaf. Fyrir messuna og í messunni verða flutt tónlistaratriði úr dagskrá helgarinnar á vegum sumar- tónleikanna. Flutt verða ný verk eftir tónskáldin Báru Grimsdóttur og Elínu Gunnlaugsdóttur við gamla sálmatexta auk þess sem sungið verður stólvers úr fomu íslensku söguhandriti í nýrri útsetningu Snorra Sigfúsar Birgisson- ar. Sönghópurinn Hljómeyki syngur. Einsöngvari Hallveig Rúnarsdóttir. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Prestur sr. Egill Hallgrímsson. EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl. 10.30. STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl. 14. Stokkseyringafélagið kemur til messu. Sóknarprestur. LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum: Göngumessa! Rútuferðir frá Landa- kirkju kl. 10.45. Messan hefst undir krossinum við gíg Eldfells og endar við hraunjaðarinn á Skansinum. Gos- lokanna fyrir 25 árum minnst með þakkargjörð. Blásarakvartett sér um undirleik. Kór Landakirkju leiðir söng- inn. Barnakórinn Litlir lærisveinar koma fram. Kórstjórar Guðmundur G. Guðjónsson og Helga Jónsdóttir. Kl. 10 verður hressingarganga frá Landa- kirkju upp á Eldfell, sem svo samein- ast göngumessunni. Áróra Friðriks- dóttir leiðir gönguna. Samtalspredikun verður flutt. Fjölmennum og lofum Guð næsta sunnudag. AKRANESKIRKJA: Engin guðsþjón- usta sunnudag vegna sumarleyfis starfsfólks kirkjunnar. Næst verður messað 9. ágúst nk. Sóknarprestur. HALLGRÍMSKIRKJA í Saurbæ: Messa kl. 14. Sóknarprestur. LEIRÁRKIRKJA: Messa kl. 11. Sókn- arprestur. Fríkirkjan í Reykjavík Kvöldmessa kl. 20.30. Altarisganga. Athugiö breyttan messutíma. Kirkjukaffi í Safnaðarheimilinu að lokinni messu. Organisti Pavel Smid. Allir hjartanlega velkomnir. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.