Morgunblaðið - 04.07.1998, Page 54

Morgunblaðið - 04.07.1998, Page 54
54 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FOLK í FRÉTTUM ÚR myndbandinu „Carnaval de Paris“. 011 heimsins hljóðfæri Það var fallega gert af strákunum í Dario G að nefna hljómsveitina sína eftir fót- boltaþjálfaranum í smábænum sem þeir koma frá í Norður-Englandi. Hildur Lofts- dóttir spjallaði við Scott Rosser nú þegar lag þeirra „Carnaval de Paris“ hljómar um allan heim í tengslum við HM. DARIO G er þriggja manna bresk danspopp- sveit. Þeir hafa nýlega gefíð út sína fyrstu breið- skífu, „Sunmaehine", sem __ hefur hlotið fína dóma í Bretlandi. I fyrra gáfu þeir út lagið „Sunchime" sem varð mjög vinsælt, en í ár er það „Carnaval de Paris“ sem er óopin- bert lag Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í ár. Séreinkenni allra landa - Sömduð þið lagið „Carnaval de Paris“ sérstaklega fyrir Heims- meistai-akeppnina í fótholta ? í fyrra gáfu þeir út lagið „Sunchime" sem varð mjög vin- sælt, en í ár er það „Carnaval de Paris“ sem er óopinbert lag Heimsmeistara- keppninnar í fót- bolta í ár „Já, þegar við sömdum lagið í október sl. fyrir keppnina virtust flestir vera að semja lög sérstak- lega fyrir land sitt og lið. Við vild- um hinsvegar halda upp á sam- kundu allra þessara 32 þjóða og skrifuðum niður öll keppnislöndin og völdum hljóðfæri einkennandi fyrir hvert land og reyndum að skilja engan útundan. Grunnurinn er lag sem oft er sungið á fótbolta- völlum, og ofan á það settum við mandólín, sekkjapípur, panflautur og öll hin hljóðfærin. Það var mjög gaman að skrifa lagið en en ekki hlaupið að því að hljóðrita það svo vel yrði og það tók okkur heilan mánuð í hljóðverinu sem var reyndar mjög skemmtilegur.“ - Hvernig kom til að lagið er óopinbert lag keppninnar? „Um leið og lagið byrjaði að heyrast, tóku ýmsar sjónvarps- stöðvar, eins og í Þýskalandi, Frakklandi, á Spáni og í Suður-Af- ríku, lagið sem þemalag fyrir sjón- varpsþætti tengda keppninni. Það voru því fótboltaaðdáendurnir sem völdu lagið, og við félagarnir í Dario G erum náttúrlega mjög ánægðir með það.“ Bowie hjálpaði okkur - Hvernig gerðist það að David Bowie heyrist í titiilagi nýja disks- ins ykkar, „Sunmachine"? „Fyrst notuðum við hljóðbút úr laginu hans „Memory of a Free Festival" í laginu okkar „The End of the Beginning“, en vildum svo gera heilt lag með bútnum. Við báðum umboðsmann Bowies um leyfi til að nota hljóðbútinn og hann spilaði lagið fyrir Bowie sem leist vel á. Þá fengum við upphaf- legu hljóðupptökuna frá 1969. Það var frábært því fyrst hljóðsmöluð- um við af geisladisknum og áttum í erfiðleikum með að útiloka hin hljóðin. Nú var hins vegar eins og Bowie væri að syngja með okkur í upptökuverinu." - Afhverju völduðþið hann? „Bowie er auðvitað frábær tón- listarmaður, en aðalástæðan er að þessi hljóðbútur er svo góður og passaði gjörsamlega inn í það sem við vorum að gera. Þetta er mjög mikll heiður fyrir okkur því Bowie fær um tíu svipaðar fyrirspumir á viku, og er mjög vandlátur á hverj- ir nota tónlistina hans. Við vorum rosalega glaðir þegar hann sagði HLJÓMSVEITIN Dario G. að sér líkaði lagið okkar og vildi hjálpa okkur eins mikið og hann gæti til að koma þessu í kring.“ -Það eru fleiri söngvarar sem leggja ykkur lið á nýju plötunni... „Já, enginn okkar syngur en við erum allir útskrifaðir klassískir hljóðfæraleikarar. Við höfum alltaf unnið í tónlistariðnaðinum og þannig eignast góða kunningja í bransanum í gegnum ámm, sem er gaman að fá til að spila með okkur. Við spilum á píanó, hljómborð og tölvurnar, en urðum að fá vini okk- ar til að spila á sekkjapípur, mand- ólín og fleira í „Carnaval de Paris“. Það jafnast ekkert á við hljóðið í ekta hljóðfæri og það gefur tónlist- inni aukna dýpt. Á næstu plötu munu líka margir ólíkir hljóðfæra- leikarar koma við sögu.“ Alit mjög spennandi - Og söngvarar líka? „Já, alveg örugglega. Bowie er með okkur á nýjustu breiðskífunni, auk Vanessu úr Espiritu sem syng- ur lagið „Voices“ og alveg nýrrar söngkonu, Deepika, sem syngur lagið „Be My Friend". Það lag er samið undir indverskum áhrifum, svo við vildum endilega fá söng- konu sem var á þeirri línu. Deepika var þá nýkomin til Warner Bros. svo við báðum hana að syngja lag- ið, og ég held að hún hafi haft mjög gaman af. Það sama er að segja um lagið „Voices", okkur vantaði loft- kennda rödd, og báðum því Va- nessu að taka það að sér.“ - Hvert stefnir Dario G? „Við erum að gera það sem við stefndum að; að vera vinsælir og að fólk njóti tónlistarinnar okkar. Við erum samt bara að byrja; það er nýbúið að gefa út fyrstu breiðskíf- una okkar hér í Bretlandi. Þetta er allt ennþá mjög spennandi og við vitum ekki hvað gerist, en höldum áfram á þessari sömu braut.“ ÞAÐ ER aldrei að vita nema hinir fjölmörgu aðdáendur aðaldrag- drottningar í heimi, RuPaul, verði fyrir vonbrigðum með að sjá hana í skóauglýsingu sem hún situr fyr- ir í, því hún kemur fram sem karl- maður! Umboðsmaður RuPaul segir að bak við allan farðann hafi alltaf verið karlmaður og að heima hjá sér sé RuPaul ósköp venjulegur maður sem gangi um á boxer nærbuxum með fjarstýringuna f hendinni. Hann sé sköllóttur, að RuPaul breytir til safna skeggi, og að nú sé tími til kominn til að viðurkenna að kven- fötin voru bara til að skemmta fólki. I framtfðinni muni hann skemmta fólki bæði sem karl og kona. RuPaul Andre Charles ólst upp í Suður-Kaliforníu bara með kon- MYNPBÖND Fram- hjáhald Einnar nætur gaman (One Night Stand) I) r a in a ★V!á Framleiðendur: Mike Figgis, Annie Stewart, Ben Myron. Leikstjóri: Mike Figgis. Handritshöfundar: Mike Figg- is. Kvikmyndataka: Declan Quinn. Tónlist: Mike Figgis. Aðalhlutverk: Wesley Snipes, Nastassja Kinski, Kyle MacLachlan, Ming-Na Wen, Robert Downey Jr., Glenn Plummer, Amanda Donohoe. 97 mín. Bandaríkin. Há- skólabíó 1998. Myndin er öllum leyfð. MAX (Wesley Snipes), sem er leikstjóri á auglýsingum í Los Angel- es, kemur í heimsókn til vinar síns, Charlie (Robert Downey yngri), í New York, sem hefur greinst með alnæmi. Þar hittir hann Karen (Nastassja Kinski) og laðast þau hvort að öðru, sem verð- ur til þess að þau eiga eina óvænta ástríðuþrungna nótt. Ári seinna kemur Max aftur til New York til þess að kveðja Charlie, sem er að dauða kominn, og hittir hann Karen þar og kemst að því að hún er gift bróður Charlie, Vernon (Kyle MacLachlan). Figgis skaust upp á stjörnuhimin- in eftir hina niðurdrepandi „Leaving Las Vegas“ og biðu flestir spenntir eftir hvað hann myndi gera næst. Þetta er afraksturinn af eftirvænt- ingunni, MTV-athugun á framhjá- haldi, sem skortir allan kraft. Eini jákvæði punkturinn við myndina er leikur Robert Downey sem er einkar sannfærandi sem hinn samkyn- hneigði vinm-, Max. Það myndast ekki neinir straumai’ á milli Snipes og Kinski og myndin virðist vera al- gjörlega stefnulaus og þegar enda- lokin koma virðast þau hafa verið upphugsuð í skyndi. Einnar nætur gaman er yfirborðsleg mynd sem þykist vera miklu meira spennandi en hún í raun er. Ottó Geir Borg um í heimili. Hann hóf feril sinn sem bflasali í Atlanta, en gerðist svo meðlimur í pönkhljómsveit og var með móhíkanakamb. Það var ekki fyrr en vinur hans bað hann um að skemmta sem kona í brúð- kaupinu sfnu að hann fann sig, en nú ætlar hann að flikka aftur upp á karlinn í sér, og lítur víst vel út sem slfkur. Hann mætti m.a. á frumsýningu nýrrar kvikmynd- arAn Unexpected Life þar sem hann leikur hársnyrti, með gler- augu og í virðulegum jakkafötum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.