Morgunblaðið - 16.09.1998, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fjölmenni við endurvígslu
Olafsfj arðarkirkj u
Langþráðum
áfanga náð
MIKIÐ var um dýrðir og hátíð í bæ
þegar Ólafsfjarðarkirkja var endur-
vígð, en áætlað er að tæplega 300
manns hafi verið viðstaddir hátíðar-
messu af þessu tilefni. Herra Karl
Sigurbjörnsson, biskup Islands,
enduiTÍgði kirkjuna og sr. Sigríður
Guðmarsdóttir þjónaði fyrir altari.
Kirkjukór Ólafsfjarðar söng ásamt
því að Elísabet F. Eiríksdóttir og
Stefán Ólafsson sungu einsöng.
Sóknarnefnd, byggingarnefnd,
prestar og biskupar gengu í skrúð-
göngu til kirkjunnar og báru inn
helga muni hennar. Beðið var fyrír
húsi og söfnuði og að því loknu vígði
biskup íslands kirkjuna. Að lokinni
messu var kirkjugestum boðið í kaffí
í félagsheimilið Tjarnarborg. Tveir
fyrrverandi sóknajTirestar Ólafs-
fjarðarkirkju, þeir Ulfar Guðmunds-
son og Svavar A. Jónsson, aðstoð-
uðu við vígslu og altarisgöngu.
Haldið í stílinn
I kaffisamsæti að lokinni messu
rakti Óskar Þór Sigurbjörnsson,
formaður byggingarnefndar Ólafs-
fjarðarkirkju, sögu kirkjunnar og
endurbyggingar hennar. Hönnun
kirkjunnar hefur verið unnin í sam-
ráði við húsfriðunarnefnd rfldsins.
Kirkjan sem var vígð fyrir um 83 ár-
um og var síðasta verk Rögnvalds
Ólafssonar arkitekts hefur verið
lengd um þrjú gluggabil, skipt um
gluggaþak, söngloft, kirkjubekki og
altari. Við þessar breytingar hefur
verið reynt að halda stíl arkitektsins
eftir fremsta megni.
Kirkjan rúmar 100 til 130 manns
en við fjölmennar athafnir gefst
kostur á að opna inn í safnaðarsal-
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
HERRA Karl Sigurbjörnsson biskup íslands endurvígði Ólafsfjaröarkirkju við hátíðarmessu síðastliðinn
sunnudag. Hinir helgu munir kirkjunnar voru bornir til kirkju. Tæplega 300 manns sóttu hátíðarmessuna.
inn. Þar geta setið a.m.k. 120 manns
og séð vel til kirkju.
Margir tóku til máls og var greint
frá ýmsum gjöfum sem kirkjunni
hafa borist og einnig að þessa dag-
ana eru að berast stórar gjafir til
hennar. Fanney Hauksdóttir, arki-
tekt kirkjunnar, afhenti húsið form-
lega með því að reiða fram forláta
lykil að kirkjudyrunum.
Fyrsta athöfn að lokinni vígslu fór
fram síðar um daginn en þá gengu í
hjónaband þau Bylgja Rúna Ara-
dóttir og Hinrik Karl Hinriksson.
Næstkomandi sunnudag verða
fyrstu tónleikarnir í hinni nývígðu
kirkju. Þar koma fram Hörður
Askelsson orgelleikari og Inga Rós
Ingólfsdóttir sellóleikari.
Nú er bara
að nota hana
Að sögn Sigríðar Guðmarsdóttur
sóknarprests var vígsla kirkjunnar
söjguleg stund fyrir Ólafsfirðinga.
„Eg er stolt af kirkjunni minni og
söfnuðinum, stolt af arkitektunum,
iðnaðarmönnunum, bygginganefnd-
inni en allir hafa unnið frábært starf
og sóknarnefndinni sem hefur stutt
dyggilega við bakið á ldrkjustarfinu
við erfiðar aðstæður í vetur. Mikið
fjölmenni kom til kirkju, bæði bæj-
arbúar og gamlir Ólafsfirðingar
annars staðar frá sem vildu eiga
með okkur þessa gleðistund. Allir
lögðu sig fram, athöfn og kirkjukaffi
gengu eins og best verður á kosið.
Nú er þessum langþráða áfanga
náð, kirkjan er komin og er söfnuð-
inum til prýði. Nú er bara að nota
hana,“ sagði Sigríður að lokum.
Atskákmóts Islands
Þór og Gylfi
jafnir
UNDANRÁSIR Atskákmóts ís-
lands á Norðurlandi voru teíldar á
Akureyri um síðustu helgi. Efsth' og
jafnir að vinningum urðu þeir Þór
Valtýsson og Gylfi Þórhallsson með
7,5 vinninga af 10 mögulegum og
verða þeh- að tefla til úrslita um þátt-
tökurétt í úrslitamóti sem fram fer í
Reykjavík síðar. I þriðja sæti varð
Ólafur Kristjánsson með 7 rfnninga.
Hraðskákmót verður haldið í
skákheimilinu við Þingvallastræti 18
sunnudaginn 27. september og er
það svonefnt startmót félagsins á
skákmótum komandi vetrar. Með því
hefst eiginleg vetrarstarfsemi fé-
lagsins.
Æfingar fyi-ir börn og unglinga
hefjast í skákheimilinu á laugardag,
19. september, kl. 13.30.
----------------
Sýningu að ljúka
SÝNINGU Bernharðs Steingríms-
sonar í Betri stofunni í verslunar-
miðstöðinni Sunnuhlíð lýkur um
helgina.
Verkin eru flest unnin á síðustu
tólf mánuðum, um er að ræða fígúra-
tívar myndir, margar með kómísku
ívafi auk nokkurra erótíski’a mynda.
Þetta er fimmta einkasýning
Bernharðs en hann hefur jafnframt
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Sýningin í Betri stofunni er opin
frá kl. 13 til 19.
AKSJÓN
Miðvikudagur 15. september
12.00^-Skjáfréttir
18.15^-Kortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag. Endur-
sýndur kl. 18.45, 19.15, 19.45,
20.15, 20.45.
21 .OO^ Bæjarsjónvarp Kók í
bauk. Frumsýning á kvikmynd
eftir Svein Thorarensen.
HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra og kona hans, Kristrún Ey-
mundsdóttir, með grænlensku gestunum við heimskautsbaug í Grímsey.
Blaðbera
vantar í eftirtalin hverfi:
Holtin og Skarðshlíð.
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
► Morgunblaðið
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavik þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Græn-
lenskur
ráðherra
heimsækir
Grímsey
SAMGÖNGU- og ferðamálaráð-
herra Grænlands, Peter Gron-
vold Samuelsen, og kona hans,
Kristine Skifte Heilmann, eru
stödd hér á landi í boði Halldórs
Blöndal samgönguráðherra. Með
þeim í fór eru Thorkild Videbæk
ráðuneytisstjóri og Ulrik Josef-
sen, aðstoðarmaður grænlenska
ráðherrans.
Ráðherrarnir voru í heimsókn
á Akureyri sl. mánudag og áttu
fund með Kristjáni Þór Júlíus-
syni bæjarstjóra. Einnig skoðaði
sendinefndin verksmiðjur Sk-
innaiðnaðar hf. og Strýtu hf.,
Menntaskólann á Akureyri og
Dvalarheimilið Hlíð, auk þess
sem farið var í skoðunarferð um
bæinn.
Nýtt píanó vígt
Seinni part mánudagsins var
flogið til Grímseyjar þar sem
ráðherrarnir fóru í skoðunarferð
um eyna og borðuðu kvöldverð
með heimamönnum. Að lokum
voru haldnir tónleikar í tilefni
þess að Grímseyingar voru að
eignast nýtt píanó. Það var Anna
Guðný Guðmundsdóttir sem vígði
hljóðfærið og lék einnig með
Signýju Sæmundsdóttur sem
söng fjölda íslenskra og erlendra
sönglaga. Þá söng hópur barna
úr Grímsey í upphafi og við lok
tónleikanna.
Morgunblaðið/Kristján
HÖRÐUR Blöndal, nýr hafnarstjóri á Akureyri, t.h., og Pétur Ólafs-
son, íjármála- og skrifstofustjóri, í nýjum og glæsilegum húsakynnum
Hafnasamlags Norðurlands við Fiskitanga á Akureyri.
Hafnasamlag Norðurlands
Nýr hafnarstjóri
í nýju húsnæði
HÖRÐUR Blöndal byggingaverk-
fræðingur tók í gær við starfi hafn-
arstjóra Hafnasamlags Norður-
lands en hann var valinn úr hópi tíu
umsækjenda. Undir hafnarstjóra
heyi’ir rekstur hafnanna á Akur-
eyri, Grenivík og Hjalteyri. Skrif-
stofa Hafnasamlags Norðurlands
hefur verið flutt úr húsnæði Eim-
skips við Oddeyrarbi-yggju, í nýtt
og glæsilegt hús við Fiskitanga á
Akureyri.
Hörður mun aðeins vera í hálfu
starfi fyrsta mánuðinn þar sem
hann er Ijúka verkefnum hjá Rækt-
unarsambandi Flóa og Skeiða.
Hörður var áður framkvæmdastjóri
Dagsprents hf. á Akureyri.
Hörður sagði að nýja starfið legð-
ist vel í sig. Hann sagði miklar
framkvæmdir hafa átt sér stað í
hafnarmálum á Akureyri og að næg
verkefni væru framundan. „Eg á
eftir að koma mér inn í hlutina og
horfi hér á fullt borð af pappírum
sem ég á eftir að fara í gegnum,"
sagði Hörður.
Verkfræðin mun nýtast vel
Hörður lærði byggingaverkfræði
við Háskóla íslands og fór í fram-
haldsnám í Gautaborg í Svíþjóð í
vega- og framkvæmdafræði. Hann
sagði verkfræðina koma til með að
nýtast sér vel í hinu nýja starfi.
Þá hefur Pétur Olafsson verið
ráðinn fjáiTnála- og skrifstofustjóri
Hafnasamlags Norðurlands og tók
hann við því starfi um síðustu mán-
aðamót. Pétur var áður fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnufélags
Akureyrar, KA.