Morgunblaðið - 16.09.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998 45*'.
O pf ÁRA afmæli. Á
O tl morgun, fimmtudag-
inn 17. september, verður
áttatíu og fimm ára Guð-
mundur Ámundason, fyrr-
verandi bóndi á Ásum í
Gnúpveijahreppi. Hann
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
BRIPS
Umsjón 6iióiiiiindur
l’áll Armirxnii
VESTUR kemur út hjarta-
drottningu gegn sex spöð-
um suðurs:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
* K8
V K652
* ÁG92
* ÁD4
Suður
* ÁDG10752
VÁ7
♦ 10
*632
Vestui’ Norður Austur Suður
1 grand Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Hvernig er best að spila?
Fi-umgreining leiðir í ljós
að sagnhafi á ellefu
toppslagi og möguleika á
siag bæði í laufí og tígli. En
það liggur ekkert á að svína
laufdrottningu og hugsan-
lega er hægt að gera sér
mat út tíglinum með því að
taka ásinn og trompa. Ef
háspil kemur í slaginn, má
nota innkomuna á hjarta-
kóng til að spila tígulgosa
og henda laufi heima. Þá er
siemman örugg.
Betra er þó að bíða með
tígulinn og hreinsa upp
hjartað með tveimur
trompunum. Suður spilar
þá strax hjarta til baka á
kóng og trompar hjarta
hátt. Notar svo innkomuna
á spaðakóng til að trompa
hjarta aftur.
Norður
* K8 V K652 ♦ ÁG92 *ÁD4
Vestur Austur
♦ 93 * 64
VDG10 V 9843
♦ K853 ♦ D764
+ G975 * K108
Suður * ÁDG10752 y Á7
♦ 10 * 632
Þá eru trompin tekin og
tígultíu spilað. Ef vestur
lætur lítinn tígul, fer líka
lítið úr borði og austur er
endaspilaður. Vestur bjarg-
ar auðvitað engu með því að
leggja á tíuna, því þá drep-
ur sagnhafi, spilar tígulgosa
og hendir laufi heima. Og er
rétt sama þótt vestur fái
slaginn.
Hér munar mikið um
tígultiuna. En hver væri
besta spilamennskan ef
suður ætti smátt einspil í
tígli?
Árnað heilla
O A ÁRA afmæli. í dag,
Omiðvikudaginn 16.
september, verður áttræð
Elín Rdsa Guðbjörnsdóttir,
Grettisgötu 32, Reykjavfk.
Hún tekur á móti gestum í
Sjálfstæðissalnum, Hamra-
borg 1, Kópavogi, sunnu-
daginn 20. september, frá
kl. 15.
A ÁRA afmæli. í dag,
Uw miðvikudaginn 16.
september, verður sextugur
Gunnar B. Mattason, véla-
maður, Faxabraut 42b,
Keflavík. Hann starfar hjá
Slökkviliði varnarliðsins,
flugþjónustudeild. Eigin-
kona hans er Indíana Jóns-
dóttir. Þau verða að heiman
á afmælisdaginn.
Með morgunkaffinu
ÞAÐ er ekkert mál að
drepa dreka, en öll pappírs-
vinnan fyrir dreka- og um-
hverfisverndarsamtökin
finnst mér óþolandi.
/Vi C'c'
ÉG er sammáia þér Jdnas
minn. Við bíðum í ár með
að kaupa nýja bílinn.
OG kveikjarinn virkar ekki
heldur. 74S
HOGNI HREKKVISI
STJ ÖRJVU SPA
eftir Franccs llrake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins: Þú ert
kappssamur og kannt að
fylgja málum þínum eftirí
höfn.
Hrútur ^
(21. mars -19. apríl)
Það fer vel á því að þú sækir
þin mál af festu hvort sem
um leik eða starf er að ræða.
Þú ert lukkunnar pamfíll og
átt það skilið.
Naut
(20. apríl - 20. maí) í*t
Einbeittu þér að þvi að reyna
að sjá fyrir sem flesta hluti
varðandi verkefni þitt. Sýndu
lipurð en stattu þó fast á þínu
þegar við á.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það væri ekki vitlaust að
blanda geði við nýtt fólk og
vikka sjóndeildarhringinn.
Gættu þess þó að reka kind-
umar ekki of hratt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú eru það fjármálin og fjöl-
skyidan sem þú þarft að beina
athyglinni að. Með réttu
háttalagi getur þú sinnt þessu
hvorutveggja svo vel fari.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert glaður og fullur starfs-
orku. Notaðu hana öðrum til
góðs og þú munt hafa meiri
áhrif á gang mála en jafnvel
þig sjálfan dreymir um.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (DfL
Nú þarftu að gefa sjálfum þér
sérstakan gaum og koma Iagi
á öll þín mál. Haltu þig við
raunveruleikann og þá fer
allt vel.
Vog xnr
(23. sept. - 22. október)
Mundu að gjörðir þínar geta
haft margs konar áhrif í um-
hverfi þínu. Það er umfram
allt nauðsynlegt að þú beitir
fyrst og fremst skynseminni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Hugsaðu þig vel um áður en
þú lætur til skarar skríða.
Taktu það með í reikninginn
að þú ert langþreyttur og
hættir til fljótfærni þess-
vegna.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) SvP
Nýir möguleikar opnast og
þú ert vel í stakk búinn til að
greina í milli og velja þá leið
sem farsælust er. Búðu þig
undir slíka ákvarðanatöku.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) mÉ
Það má vera að þú ráðir ekki
öllu um framvindu mála en
þú hefur þitt að segja og get-
ur að réttu lagi látið að þér
kveða.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Farðu frekar eftir þínu eigin
áliti heldur en annarra orðum
því hinir sjá sér hag í því að
þú komir ekki þínu í verk.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þér finnst þú einangraður um
of og líður illa þess vegna.
Hristu af þér slenið og
brjóstu út því þú hefur þá
hæfileika sem til þarf.
Gönguferð
um Skerja-
fjörð
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð meðfram
strönd Skerjafjarðar í kvöld, mið-
vikudagskvöldið 16. september.
Farið verður frá Hafnarhúsinu kl.
20 niður á Fræðslutorgið á Mið-
bakka og síðan með Almennings-
vögnum suður í Fossvogsbotn að
Nesti.
Þaðan verður gengið kl. 20.30
með strönd Reykjavíkurborgar og
Seltjarnarnesbæjar út í Bakkavör.
Þar verður val um að ganga yfir
Nesið til baka niður á höfn eða fara
með SVR, sem einnig er hægt að
gera víðar á leiðinni.
Tilgangurinn með þessari og
næstu ferðum Hafnargönguhóps-
ins er að minna á að ströndin er
eitt áhugaverðasta svæðið sem völ
er á til að ganga og sigla meðfram í
tæra sjávarloftinu, sem hressir
bæði líkama og sál, segir í fréttatil-
kynningu.
Allir eru velkomnir.
www.mbl.is
LJSPJ
ÖNDUNAR-
GRÍMUR
HEFUR t>Ú KYNNT ÞÉR...
ARBONNE
INTERNATIONAL
Jurtasnyrtivörur
án ilmefna
fyrir húð og hár.
Útsölustaðir um land allt
íþróttaskóli KR
hefur göngu sína aftur
15. september
Kennt verður í íþróttahúsi KR. Gengið inn norðanmegin.
Skólastjóri skólans er Baldur Þorsteinsson, íþróttakennari.
Skráning og upplýsingar í félagsmiðstöðinni Frostaskjóli
s. 562 2120 og við upphaf fyrsta tíma.
Stundatafla
3- 4 ára laugardaga kl. 10.00
4- 5 ára laugardaga kl. 11.00
6-7 ára þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14.30-15.30
8-9 ára þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15.30-17.00
MARITIME REYKJAVIK
Alþjóðleg ráðstefna um kaupskipaútgerð með áherslu á
aukaskráningar kaupskipa verður haldin í Súlnasal á Hótel Sögu
föstudaginn 18. sept. nk. og hefst kl. 13.00
FRAMSÖGUMENN
Halldór Blöndal samgönguráðherra.
Ávarp
Jim Buckley forstjóri The Baltic Exchange, London
AIþjóðleg skiþaskrá á Islandi?
Rolf Sæther, forstjóri
The Norwegian Shipowners Association, Oslo
Reymla Norðmanna af NIS skipaskráningunni
John Dempster, forstjóri
The Bahamas Maritime Authority, London
Bahamas skiþaskráningin — Árangursrík opin skráning
Ólafur Ólafsson forstjóri Samskipa hf. Reykjavík
Staða íslands og þátttaka í alþjóðlegum siglingum
Tor Erik Andreasse, aðstoðarforstjóri
Skuld tryggingarfélagsins, Oslo
Eru aukaskráningar gjaldgengar hjá tryggingarfélögum?
Andreas Chrysostomou, framkvæmdastjóri skipaskráningar-
deildar hjá Cyprus High Commission, London
Siglingaþjóðin Cyprus
Fundarstjóri og fundarboðandi er
Sigurður Sigurgeirsson, skiparekstrarfræðingur
Oceanic Shipping &. Chartering LTD. London.
Stjörnuspána á að iesa sem
(lægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Fundurinn er öllum opinn og eru farmenn og
forustumenn farmanna hvattir til að fjölmenna.