Morgunblaðið - 16.09.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Einhverja viðbótardollara gæti svo daman nælt sér í með því að leyfa fólki að koma við blettinn...
PRÝÐISVEIÐI er enn í Soginu
þótt nokkuð hafí dregið úr árangri
veiðimanna í kuldakastinu að und-
anfömu. Heildartalan í vikubyrjun
var 333 laxar af þekktustu svæðun-
um, Alviðru, Bfldsfelli, Ásgarði og
Syðri-Brú. Allt síðasta sumar veidd-
ust 252 laxar og svipað 1996 og þar
sem veitt er til 28. september er
Ijóst að talan í ár verður, og er
raunar þegar orðin, miklu hærri.
Pað er óvænt staða í Soginu, að
Bfldsfell er með mestu heildarveið-
ina, 111 laxa. Næst á eftir kemur
Alviðra með 102 laxa, Syðri-Brú
með 62 laxa og Ásgarður með 58
stykki. Veiðin í Ásgarði veldur
kannski mestu vonbrigðunum og ár
og dagur er síðan Bfldsfell sló Ás-
garð út. Venjan er sú, að Ásgarður
gefí betur framan af sumri, en
Bíldsfellið kemur sterkar inn er líð-
ur að hausti. Þetta hefur ekki verið
þannig í sumar og veiðin í Bíldsfelli
verið jöfn á meðan Ásgarður hefur
verið daufur. Besta veiðin er þó
klárlega í Syðri-Brú, því veiðin þar
er öll tekin á eina stöng. Nær allur
aflinn er auk þess tekinn úr einum
veiðistað, Landaklöpp. Heildarveið-
in er þó meiri í Soginu, því lax hefur
einnig verið að reytast upp á Torfa-
stöðum og í Þrastarlundi.
Lélegri vertíð í Gljúfurá lokið
Aðeins 152 laxar veiddust í
Gljúfurá í Borgarfirði í sumar og
þykir það lélegt á þeim vígstöðvum.
Veiðin í ánni hefur þó sveiflast mjög
síðustu árin og verið allt frá 73 löx-
um 1987 og 97 löxum 1990 upp í 356
laxa 1995. Kunnugir telja að lítið
hafí verið af laxi í ánni í sumar,
gagnstætt því sem var 1 flestum eða
öllum ám í sama landshluta. Áin
hélt meira að segja þokkalegu vatni
lengur en flestar í þuirkunum í júlí
vegna vatnsmiðlunar í Langavatni.
En er hún þvarr varð áin afar lítil
og ræfilsleg. Þegar úr rættist í
ágúst bjuggust menn við bata og þá
gekk vissulega eitthvað af Iaxi. En
bara miklu minna en reiknað var
með.
Nýlega var Gljúfurá boðin út,
þ.e.a.s. leigusamningur SVFR er út-
runninn og væntanlega upphefst
kapphlaup um ána. Léleg veiði í
henni í sumar kann þó að leika vissa
rullu í verkinu sem framundan er.
Mikill fiskur en róleg veiði
Þokkaleg veiði er í Grenlæk og
Jónskvísl um þessar mundir. Að
sögn Agnars Davíðssonar á Fossum
komu göngur upp á hundruð físka í
kjölfar vatnavaxtanna um mánaða-
mótin og var veiði mjög góð í fram-
haldi. Nú væri hins vegar róri-a yfir
veiðiskapnum, enda hefur verið
fremur svalt og bjart veður. „Það er
þó reytingur og menn eru yfírhöfuð
ánægðir. Þetta er vænn fískur, eng-
ir risar ennþá, en þeir stærstu all-
nokkrir 7 til 9 punda,“ sagði Agnar.
'Barbtf
■BBLIOIÍKKUR
OG FYLGIHLUTIR
Fást í
leikfangaverslunum,
boka-og
ritfangaverslunum,
stórmörkuðum og
matvörubúðum um
alit land
DREIFJNGARAÐJU
Sími: 533-1999, Fax: 533-1995j
Ráðstefna um kaupskipaútgerð
Stofnun auka-
skráningar
á Islandi?
Alþjóðleg ráðstefna
um kaupskipaút-
gerð með áherslu á
aukaskráningar kaup-
skipa verður haldin í
Súlnasal Hótels Sögu
fóstudaginn 18. septem-
ber. Fundarstjóri og
fundarboðandi er Sigurð-
ur Sigurgeirsson skipa-
rekstrarfræðingur hjá
Oceanic Shipping &
Chartering Ltd. í
London.
,Á- undanförnum miss-
erum hefur skapast tals-
verð umræða um öra
hnignun og fjöldaútflögg-
un kaupskiptaflotans á
Islandi. Þessari ráðstefnu
er ætlað að vera innlegg í
þessa umræðu og til
hennar hefur verið boðið
fyrirlesurum frá þeim
siglingaþjóðum sem sumar
hverjar hafa lagt út í nokkuð rót-
tækar aðgerðir eins og stofnun
aukaskipaskráninga (offshore
registers) með ákveðnum skatta-
fríðindum til að ná til baka
heimaflotanum og til að skapa
þriðja aðila viðskipti.
Við höfum gefið þessum fundi
nafnið Maritime Reykjavík en
þema fundarins er þróun far-
mennsku og kaupskipaútgerðar í
heiminum undanfarna áratugi
útfrá sjónarmiðum og reynslu
þriggja til fjögurra stærstu sigl-
ingaþjóða heims eins og Noregs,
Bretlands, Bahamaeyja og Kýp-
ur ásamt auðvitað íslandi."
- Hverjir hulchi fyrirlestra á
fundinum?
„Margir sem koma fram á
þessari ráðstefnu gegna lykil-
hlutverki í kaupskiparekstri,
hver í sínu landi og eru því óum-
deilanlega áhrifavaldar á heims-
markaði.
Þar má fyrstan nefna Jim
Buckley sem er forstjóri elstu og
frægustu skipakauphallar í
heimi, The Baltic Exchange í
London. Stór hluti skipa- og
farmviðskipta í heiminum fer
daglega um þessa kauphöll sem
á sér langa og merkilega sögu en
hún var eins og menn muna
sprengd í loft upp af IRA-sam-
tökunum fyrir sex árum.
Þá heldur John Dempster fyr-
irlestur en hann er í forsvari fyr-
ir þriðja stærsta siglingaflota
heims, Bahamas skipaskráning-
una. Henni er nú stjómað frá
London en þar fer stærsti hluti
skipaviðskipta heimsins fram.
Fulltrúi íslands á
ráðstefnunni er Olafur
Ólafsson forstjóri
Samskipa hf. Fyrir-
tækið hefur verið í
mikilli sókn undir
hans stjórn á síðustu
misserum. Hann mun
m.a. ræða þátttöku íslenskra
kaupskipaútgerða í alþjóðlegri
samkeppni og hugmyndir um
aukaskráningu á Islandi.
Einn framsögumaðurinn sem
mig langar að nefna sérstaklega
er Rolf Sæther forstjóri samtaka
Sambands norski-a kaupskipaút-
gerða með aðsetur í Ósló.
Noregur er meðal stærstu og
öflugustu siglingaþjóða heimsins
eftir að hafa stofnað NlS-skrán-
inguna fyrir um tíu ámm. Á
þeim tíma áttu Norðmenn við
svipað vandamál að stríða og Is-
lendingar eiga í dag þ.e. að kaup-
Sigurður Sigurgeirsson
► Sigurður Sigurgeirsson er
fæddur í Reykjavík 10. október
árið 1958. Haim er sjómanna-
skólagenginn, og starfaði um
árabil sem vélstjóri bæði á togur-
um og farskipum. Hann hélt síð-
an til London og Cardiff í fram-
haldsnám í skiparekstrarfræðum
og stjórnun. Hann útskrifaðist
árið 1990 og starfaði um skeið
hjá Eimskipafélagi fslands. Að
því loknu hóf hann störf hjá
Sumo Shipmanagement Ltd. í
London og starfaði þar sem for-
stöðumaður skiparekstrarsviðs.
Sigurður starfar nú sem skipa-
miðlari og forstöðumaður skipa-
rekstrardeildar hjá Oceanic
Shipping & Chartering Ltd. í
London.
Eiginkona Sigurðar er Lóa
Hjaltested og eiga þau tvö börn.
Ungt fólk fer
ekki í Sjó-
mannaskól-
ann í sama
mæli og áður
skipafloti þeirra var að hverfa úr
landi. Norðmenn gripu til þess
ráðs að stofna NlS-skráninguna
þar sem fyrirtækjaeigendur
fengu ákveðin skattafríðindi og
rýmri mönnunaiTeglur á skipum.
Engu að síður voru gerðar mjög
strangar öryggiskröfur.
Stofnun þessarar skráningar
gerði að verkum að norskir út-
gerðarmenn snéru til baka í stór-
um stfl með skip sín.
Þá er athyglisvert að þetta
hafði einnig í för með sér að
aukning varð á aðsókn í sjó-
mannaskóla í Noregi.“ Sigurður
segir að sér finnist stjórnvöld
alls ekki hafa sýnt þessari starfs-
grein næga virðingu á íslandi
síðustu áratugina og því hafi
menntun sjómanna og far-
mennska borið stóran skaða af.
- Með hvaða hætti?
„Það hefur nú þegar
skapast alvarlegt kyn-
slóðabil í faimanna-
stétt. Ungt fólk fer
ekki lengur til sjós í
________ sama mæli og áður.
Menn fara ekki lengur
í Sjómannaskólann sem á móti
hefur þurft að berjast fyrir til-
verurétti sínum á seinni árum.
Þetta er skammarlegt ástand
sem ætti ekki að viðgangast hjá
siglingaþjóð."
Fundurinn, sem hefst klukk-
an 13 næsta föstudag, er öllum
opinn. Sigurður segist vilja
hvetja farmenn og sjómenn
ásamt forystumönnum far-
manna svo og stjórnmálamenn
og forystumenn þjónustufyrir-
tækja sem auðsjáanlegra hags-
muna eiga að gæta að mæta á
þessa ráðstefnu."