Morgunblaðið - 16.09.1998, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hagnaður SPRON
52 milljónir króna
^^BJBJB^BBBB Sparisjóður Reykja- J&JB BJB B víkur o g nágrennis Úr árshlutauppgjöri 1. janúar til 30. júní
Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting
Vaxtatekjur Milljónir króna 833,8 651,9 +28%
Vaxtagjöld 537,6 355,7 +51%
Hreinar vaxtatekjur 296,2 296,2 0%
Aðrar tekjur 260,2 162,4 +60%
Hreinar rekstrartekjur 556,4 458,6 +21%
Önnur gjöld 444,0 343,8 +29%
Framlög í afskriftarreikning 45,7 25,4 +80%
Skattar 14,9 27,4 ■46%
Hagnaður tímabilsins 51,8 62,0 ■16%
Efnahagsreikningur 30/6 '98 31/12 '97 Breyling
\ Eignir: | Milljónir króna
Sjóður og kröfur á innlánsstofnanir 1.910,0 1.935,3 ■1%
Útlán 10.264,1 9.964,2 +3%
Markaðsverðbréf og eignarhi. í fél. 4.742,3 5.596,1 -15%
Aðrar eignir 601,4 536,9 +12%
Eignir samtals 17.517,8 18.032,5 ■3%
Skuldir og eigid fé: 338,2 1.088,4 ■69%
Skuldirvið lánastofnanir
Innlán 12.512,6 10.895,1 +15%
Lántaka 2.578,7 4.083,1 ■37%
Aðrar skuldir 128,6 171,3 -25%
Reiknaðar skuldbindingar 352,8 336,0 +5%
Víkjandi lán 349,8 254,0 +38%
Eigiðfé 1.257,1 1.204,6 +4%
Skuldir og eigið fé samtals 17.517,8 18.032,5 ■3%
Framkvæmdastjóri Norð-
vesturban dalagsins hættir
vegna ágreinings
HAGNAÐUR af rekstri SPRON á
fyrstu sex mánuðum ársins nam
um 52 m.kr. eftir skatta samkvæmt
árshlutareikningi fyrirtækisins. I
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
segir að hagnaðurinn svari til þess
að arðsemi eigin fjár SPRON hafi
verið 8,8% sem er 0,8% hærra en
rekstraráætlun ársins 1998 gerii'
ráð fyrir.
Samkvæmt tilkynningunni hafa
innlán aukist um 1.617 m.kr. eða
um 15% fyrstu sex mánuði ársins
og voru 12.512,65 m.kr. hinn 30.
júní sl. Útlán námu 10.264,1 m.kr.
og höfðu aukist um 3% frá
áramótum. Eigið fé fyrirtækisins
nam fyrstu sex mánuði ársins
1.257,1 m.kr. Hreinar vaxtatekjur
sparisjóðsins, þ.e. vaxtatekjur að
frádregnum vaxtagjöldum námu
296,2 m.kr. sem er sama fjárhæð
og fyi'stu sex mánuði ársins 1997.
I fréttatilkynningunni segir að
rekstur SPRON á fyrri hluta þessa
árs hafi einkennst af auknum
umsvifum og miklum fjárfestingum
vegna breytinga á húsnæði og
nýjum tölvu- og afgreiðslukerfum.
Starfsmönnum hafi fjölgað vegna
nýrrar starfsemi sem m.a. miðar að
aukinni markaðssókn og þá hafi
ýmsar skipulagsbreytingar verið
gerðar í fyrirtækinu, segir í
fréttatilkynningunni.
Miklar framkvæmdir
og fleiri viðskiptavinir
Stjórnendur SPRON eru
ánægðir með niðurstöðutölur
rekstrar- og efnahagsreiknings og
áætlanir gera ráð fyrir að afkoman
í lok ársins verði enn hagstæðari.
Guðmundur Hauksson
sparisjóðsstjóri segir útkomuna
vera í samræmi við áætlanir.
„Við gerðum ráð fyrir miklum
kostnaði á tímabilinu. Við stöndum
í miklum framkvæmdum, við erum
bæði að stofna ný svið og höfum
verið að byrja með nýja starfsemi.
Einnig höfum við fjárfest mikið í
tölvu- og hugbúnaði. Á móti þessu
kemur að mikil aukning er á
tekjuhliðinni og við höfum bætt við
okkur mörgum nýjum
viðskiptavinum," sagði Guðmundur
í samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður um útlitið það sem
eftir lifir árs segir hann það gott þó
að samkeppni verði áfram mikil.
„Afleiðing harðnandi samkeppni
kemur fram í því að vaxtamunur
heldur áfram að minnka og það
gerir kröfur til fyrirtækja um að
halda betur á spöðunum og skila
betri árangri, bæði í afkomu- og
markaðsmálum.“
KOLBEINN Þór Bragason, fram-
kvæmdastjóri Norðvesturbanda-
lagsins hf., hefur sagt upp störfum.
Ástæður uppsagnarinnar eru, að
sögn Kolbeins, ágreiningur við
sláturhússtjóra Sláturhússins á
Hvammstanga, sem er eitt þriggja
sláturhúsa innan bandalagsins, auk
þess sem persónulegar ástæður
spila inn í uppsögnina. Kolbeinn
mun halda áfram störfum þangað
til nýr framkvæmdastjóri verður
ráðinn.
Kolbeinn segir ákvörðun sína
hafa verið tekna í fullu samráði og
sátt við stjóm félagsins.
Kolbeinn hefur verið fram-
kvæmdastjóri félagsins frá stofnun
þess, eða síðan í ágúst í fyrra þegar
fjögur sláturhús sameinuðust í
einu félagi.
HLUTHAFAFUNÐUR
Boðað er til hluthafafundar í Vaka hf. og verður hann haldinn í húsnæði
félagsins að Ármúla 44 í Reykjavík, fimmtudaginn 24. september 1998 og
hefst kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum, þ.a. stjórn verði veitt heimild
. til hlutafjáraukningar.
2. Önnurmál löglega upp borin.
Dagskrá fundarins ásamt endanlegum tillögum, liggja frammi á
skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis, viku fyrir hluthafafund.
Vaki hf.
ÁRMÚLI 44 - 108 REYKJAVÍK - ÍSLAND
SÍMi: 568 0855 - FAX: 568 6930 - E-MAIL: VAKI®VAKI.IS
/
Bankaráð Búnaðarbanka Islands hf.
*
Oskað eftir hluta-
fjárútboði í ár
BANKARÁÐ Búnaðarbanka ís-
lands hf. ákvað á fundi sínum í gær
að óska eftir því við viðskiptaráð-
herra að haldinn verði hluthafa-
fundur í bankanum til að ákveða út-
boð nýs hlutafjár. Bankaráðið vill
stefna að því að auka hlutafé bank-
ans á þessu ári og gætu þá hluta-
bréf í bankanum að nafnverði um
600 milljónir komið á markaðinn í
nóvember.
Ríkisstjórnin markaði þá stefnu að
nýtt yrði heimild Alþingis til útgáfu
nýs hlutafjár í Landsbanka Islands
og Búnaðarbankanum. Sala bréfa í
Landsbankanum stendur yfir og í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjómarinnai'
kemur fram að útgáfa hlutabréfa í
Búnaðarbankanum eigi að verða í
síðasta lagi í febrúar á næsta ári.
Búnaðarbankinn hefur undirbúið
hlutafjárútboð og skráningu bank-
ans á Verðbréfaþing Islands og eft-
ir fund í gær óskaði bankaráðið
formlega eftir því við viðskiptaráð-
herra, sem fer með atkvæði eina
hluthafans, ríkissjóðs, að boðað
verði til hluthafafundar til að
ákveða útboð. Pálmi Jónsson, for-
maður bankaráðs, segir að bankinn
vaxi stöðugt og auka þurfi eigið fé
hans til þess að vöxturinn geti hald-
ið áfram. Annars sé hætta á að eigið
fé fari undir lögboðin mörk.
Dreifð sala
Ekki hefur verið ákveðið hvernig
staðið verður að útboði hlutafjár í
Búnaðarbankanum. Pálmi segir að
með ályktun bankaráðsins hafi ver-
ið send greinargerð þar sem bent er
á helstu atriði sem máli skipta. Það
sé síðan eigandans og viðsldptaráð-
herra sem fulltrúa hans að taka við-
eigandi ákvarðanir.
í stefnumörkun ríkisstjórnarinn-
ar eru sömu markmið sett um sölu
hlutabréfa í Búnaðarbankanum og
Landsbankanum. Hlutabréfin verða
því seld starfsmönnum á gengi sem
svarar til innra virðis bankans um
síðustu áramót og síðan til almenn-
ings í dreifðri sölu á gengi sem enn
hefur ekki verið ákveðið.
Hlutafé í Búnaðarbankanum er
nú 3,5 milljarðar kr. Útboðið verður
væntanlega miðað við að ríkið eigi
áfram 85% hlutafjár í bankanum.
Það þýðir að seld verða hlutabréf að
nafnvirði rúmlega 600 milljónir kr.
Hugbúnaðarfyrirtækið Softis
Semur við
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Softis undirritaði í síðustu viku
þjónustusamning við finnska fyrir-
tækið Compupro. Þá gekk félagið
einnig frá langtímasamningi við
Pharmapartners frá Hollandi fyrr í
sumar.
Sigurður Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Softis, segir erfitt að
meta slíka samninga til fjár, það
fari einfaldlega eftir fjölda notenda í
framtíðinni, en telur ljóst að þeir
hlaupi á tugum milljóna króna á
næstu árum. Hann segir samning-
ana afar þýðingarmikla með tilliti til
þess að þeir koma til með að auð-
velda allt markaðsstarf erlendis í
framtíðinni, ekki síst í ljósi þess að
umrædd fyrirtæki eru þæði í
fremstu röð í heimalöndunum:
Compupro
„Compupro hefur sérhæft sig í við-
skiptahugbúnaði og er félagið í far-
arbroddi á því sviði í Finnlandi.
Hoilendingarnir hins vegar, sem
starfa í heilsugeiranum, hafa einnig
náð góðum árangri og munu m.a.
nota hugbúnað frá Softis við flutn-
inga á sjúkraskýrslum."
Sigurður segir báða samningana
hafa verið nokkuð lengi í burðarliðn-
um. Tvö ár hafi liðið frá því viðræður
hófust af alvöru við Finnana þar til
gengið var frá samningnum á fóstu-
dag og svipaðan tíma hafi tekið að
komast að samkomulagi við Hollend-
ingana. Nú sé hins vegai' ákveðinn ís
brotinn og það góða orð sem fer af
erlendu samstarfsaðilunum ætti að
gera Softis auðveldara fyrir á er-
lendum vettvangi í framtíðinni.
Hafin sala á
iMac frá
Apple
HAFIN er sala á iMac, nýju
einkatölvunum frá Apple, á Is-
landi. Nýlega var fyrsta tölvan
afhent en iMac er til sölu í versl-
un Nýherja.
Þótt ACO hafi tekið að sér
söluumboð Apple á íslandi mun
Nýherji halda áfram sölu og þjón-
ustu á tölvubúnaði sem byggist á
MacOS stýrikerfinu, eins og fram
hefur komið. „Djarft útlit iMac
tölvunnar þarf ekki að koma á
óvart því það er ekki í fyrsta sinn
sem Apple Computer kemur fram
með nýjungar og óhefðbundið út-
lit. Þótt útlitið sé óvenjulegt er
hér samt um að ræða öfluga
tölvu, búna öllu því sem krafist er
af öflugri heimilistölvu, svo sem
233MHz G3 örgjörva, 4GB hörð-
um diski, 56 hraða mótaldi,
ethernetkorti og innbyggðum
stereóhátölurum,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Nýheija.
iMac tölvan kostar 129.900 kr.
hjá Nýherja.
Á myndinni sést Sveinn Orri
Tryggvason, verslunarsljóri Ný-
heija, afhenda Valdimari Sigur-
jónssyni fyrstu iMac tölvuna. Sig-
urjón aðstoðar föður sinn við
tölvukaupin.
Hreyfing á
hlutabréfum
ÚA
HLUTABRÉF í Útgerðarfélagi
Akureyringa hf. fyrir um 45 millj-
ónir kr. skiptu um hendur á Verð-
bréfaþingi í gær. Var það lang-
mesta sala í einu félagi þann dag-
inn.
Viðskiptin með hlutabréf í ÚA
fóru aðallega fram í tveimur stór-
um sölum, 13 og 16 milljónir kr.
Gengi bréfanna breyttist lítið, loka-
gengi dagsins var 5,2% sem er um
1% hækkun frá síðasta söludegi.
Þá varð 2,9% hækkun á gengi
hlutabréfa Islandsbanka. Úrvals-
vísitala Aðallista Verðbréfaþings
hækkaði um 0,24% í gær.