Morgunblaðið - 16.09.1998, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
BÓKASALA í ágú
Rðð Var Tltill/Hðfundur/Útgefandi
1 PANORAMA ÍSLAND/ Páll Stefánsson/lceland Review.
2 AMAZING ICELAND Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM/Texti: Helgi Guðmundsson.
Ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið
3 HÍBÝLIVINDANNA/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning.
4 ÍSLENSKA VEGAHANDBÓKIN Á ýmsum tungumálum/ steindór
Steindórsson frá Hlöðum/lslenska bókaútgáfan.
5 ÍSLAND, EYJAN HLÝJA í NORÐRIÁ ýmsum tungumálum/Texti: Torfi H.
Tulinius. Ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið.
6 MEISTARINN OG MARGARÍTA/ Míkhaíl Búlgakov/Mál og menning.
7 ANDSÆLIS Á AUÐNUHJÓLINU/ Helgi Ingólfsson/Mál og menning.
8 FRÖNSK-ÍSLENSK/ÍSLENSK-FRÖNSK ORÐABÓK/ Þór Stefánsson/
Orðabókaútgáfan.
9 HRAFNKELSSAGA FREYSGOÐA//Vaka-Helgafell.
10-11 SALKA VALKA/ Halldór Kiljan Laxness/Vaka-Helgafell.
10-11 LÍFIÐ í JAFNVÆGI/ Bob Greene og Oprah Winfrey/PP forlag.
Einstakir fiokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDP SKÁLDVERK
1 HÍBÝLI VINDANNA/BöðvarGuðmundsson/Mál og menning.
2 MEISTARINN OG MARGARÍTA/ Míkhaíl Búlgakov/Mál og menning.
3 ANDSÆLIS Á AUÐNUHJÓLINU/ Helgi Ingólfsson/Mál og menning.
4 HRAFNKELSSAGA FREYSGOÐA//Vaka-Heigafeii.
5 SALKA VALKA/ Halldór Kiljan Laxness/Vaka-Helgafell.
6 ÍSLANDSKLUKKA/ Halldór Kiljan Laxness/Vaka-Helgafell.
7 LIFSINS TRE/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning.
8 TÍMAÞJÓFURINN/ Steinunn Sigurðardóttir/Mál og menning.
9 BREKKUKOTSANNÁLL/ Halldór Kiljan Laxness/Vaka-Helgafell.
10 SNORRA-EDDA/ Snorri Sturluson/Mál og menning.
ÍSLENSK OG ÞÝPD LJÓÐ
1 HÁVAMÁL/ /Vaka-Helgafell.
2-3 EDDUKVÆÐI/ Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna/Mál og menning.
2-3 SPÁMAÐURINN/ Kalil Gibran/lslendingasagnaútgáfan.
4-5 ÁSTARLJÓÐ DAVÍÐS STEFÁNSSONAR/ Davíð Stefánsson/Vaka-Helgafell.
4-5 GIMSTEINAR LJÓÐ 16 HÖFUNDA/ Ólafur Haukur Ármannson valdi efni/Hörpuútgáfan.
ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- QG UNGLINGABÆKUR
1 ÞRÍR LITLIR GRÍSIR//Bókaútgáfan Björk.
2 ANNA GETUR ÞAÐ/ /Bókaútgáfan Björk..
3 TINNABÆKUR ÝMSIR TITLAR/ Hergé/Fjöivi ehf.
4 ÚLFURINN OG SJÖ KIÐLINGAR/ Richard Scarry/Bókaútgáfan Björk.
5 STÚFUR//Bókaútgáfan Björk.
6 ÍSLENSKU DÝRIN/ Halldór Pétursson/Setberg.
7-8 KARÍUS OG BAKTUS/Thorbjörn Egner/Thorvaldsen félagið.
7-8 PALLI VAR EINN í HEIMINUM/JensSigsgaard/BókaútgáfanBjörk.
9 STAFRÓFSKVER/ Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn/Forlagið.
10 ÞRÍHJÓLIÐ HANS STEBBA/ Pnina Moet-Kass og Lorna Tomai/Bókaútgáfan Björk.
ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR
1 PANORAMA ÍSLAND/ Páll Stefánsson/lceland Review.
2 AMAZING ICELAND Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM/ Texti: Helgi Guðmundsson.
Ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið
3 ÍSLENSKA VEGAHANDBÓKIN Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM/ Steindór Steindórsson
frá Hlöðum/íslenska bókaútgáfan.
4 ÍSLAND, EYJAN HLÝJA í NORÐRIÁ ýmsum tungumálum/ Texti: Torfi h.
Tulinius. Ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið.
5 FRÖNSK-ÍSLENSK/ÍSLENSK-FRÖNSK ORÐABÓK/ Þór Stefánsson
/Orðabókaútgáfan.
6 LÍFIÐ í JAFNVÆGI/ Bob Greene og Oprah Winfrey/PP forlag.
7-8 ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR OG ÆVINTÝRI Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM//lceland Rev.
7-8 ENSK-ÍSLENSK SKÓLAORÐABÓK/ Jón Skaptason ritstýrði/Mál og menning.
9 LANDSCAPES Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM/ Texti: Sigurgeri Sigurgeirsson. Ljósmyndir:
Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið.
10 ENSK-ÍSLENSK/ÍSLENSK-ENSK ORÐABÓK/ Sævar Hilbertsson ritstýrði
/Orðabókaútgáfan.
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Bóksala stúdenta v/Hringbraut
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Eymundsson, Kringlunni
Penninn, Hallarmúla
Penninn, Kringlunni
Penninn, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
KÁ, Selfossi
Samantekt Félagsvísíndastofnunar á sölu bóka á sölu bóka I ágúst 1998 Unniö fyrir Morgunblaðið,
Féiag Islenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur
sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur.
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
SJONFYRIRBRIGÐI
S JÓNFYRIRBRIGÐI Ljósmynd/Bragr Ásgeirsson
Fyrir-
brigði
MYNPLIST
Kambur/
llangárval lasýslu
LJÓÐRÆN HUGMYNDAFRÆÐI
ÓLAFUR ELÍASSON
Opið alla daga nema miðvikudaga til
4. október. Aðgangur ókeypis.
Á FÁUM árum hefur hinn ungi
innsetningalistamaður Ólafur Elí-
asson, f. 1967, skotið öllum íslenzk-
um og flestum dönskum starfs-
bræðrum sínum ref fyrir rass um
athygli í listheiminum. Á ekki að-
eins við um sýningaframkvæmdir
sem eru margar og velskipulagðar,
heldur einnig greinar í markaðsrit-
um listarinnar. I vor birtu þrjú leið-
andi mánaðarrit í Bandaríkjunum,
Art Forum, ARTnews og Freeze,
greinar um ljósa
listamanninn frá
norðrinu, sem á
einstæðan hátt
léki með höfuð-
skepnurnar
vind, vatn, ljós
og eld. Þá koma
ýmsar eftirfar-
andi upplýsingar
úr grein er birt-
ist í Weekend-
avisen í Kaup-
mannahöfn, helgina 28. ágúst-3.
september, sem ásamt þrem lit-
myndum í miðjum menningarkálf-
inum tekur 3/4 úr heilli síðu, sem að
auki er helmingi meiri að umfangi
en almennt gerist um hérlend dag-
blöð. Það er ekki ónýtt að lesa af-
rekalista Ólafs, sem lauk námi frá
listakademíunni í Kaupmannahöfn
1985. Fyrir skömmu hlotnuðust
honum 200.000 krónur sænskar úr
sjóði Edfranska Stiftelsen, og
föstudaginn 7. september opnaði
hann sýningu í listasafninu í Árós-
um, við hlið málarans Per Kirkeby,
frægasta núlifandi myndlistar-
manns Danmerkur. Þarlendir
minnast þess nú veglega að Kirke-
by varð sextugur á dögunum m.a.
með útgáfu fjögurra bóka! Seinna í
mánuðinum tekur Olafur þátt í Tví-
æringnum í Sydney, einnig sýningu
í Rooseum í Malmö, þarnæst verð-
ur hann fulltrúi Danmerkur á Tví-
æringnum í Sao Paulo, sem opnað-
ur verður 2. október, þann níunda
sama mánaðar verður það Varsjá
og hinn sautjánda tekur hann þátt í
samstarfsverkefni með þrem öðr-
um listamönnum á MoMA í New
York og loks verður hann með
einkasýningu á safni í Leipzig 8.
nóvember, er þó ekki allt talið upp.
Olafur er fæddur á Islandi, alinn
upp í Danmörku frá fjögurra ára
aldri. Þar fyrir birtist hann á lista-
sviði, sem íslenskur nemandi á
listakademíunni í Kaupmannahöfn,
þarnæst sem íslenzkur listamaður
með íslenzkt nafn og skýrar vísanir
til íslenzkrar erfðavenju í náttúru-
list. Og þó leggur hann áherslu á,
að hann sé ekki náttúrulistamaður
né náttúrumaður fyrir þá sök. „Það
er ekki einungis upprunaleiki nátt-
úrunnar og hið grófa sem ég hef
áhuga á. Eg leita ekki eftir neinu
upprunalegu. Menningarlandslagið
í Danmörku hefur jafn mikla þýð-
ingu fyrir list mína. Það er sam-
hengið og andstæðurnar, rannsókn-
in á því sem verður til þegar nátt-
úran mætir menningunni, sem tek-
ur huga minn fanginn."
Olafur er ljósasta dæmið sem við
eigum um listamann sem kann að
markaðssetja sig og gerir það á yf-
irvegaðri hátt en nokkur sem ég
þekki til, þannig komast hvorki
Erró né Louise Matthíasdóttir með
tærnar þar sem hann hefur hælana.
En Ólafur er vel að merkja af-
kvæmi annarra tíma, nýrra og gjör-
ólíkra viðhorfa á listavettvangi.
Hann ferðast ekki um með málverk
eða höggmyndir, sendir ekki fullbú-
in verk hingað og þangað heldur
mótar innsetningar á staðnum, þar
sem allt samanlagt umhverfíð, úti
og inni, er þátttakandi í gjörningn-
um.
Allt sem Ólafur tekur sér fyrir
hendur einkennist af skipulagi og
aga, hann vísai’ til þess að þegar
skipamiðlarinn Onassis kenndi
bömum sínum frumþætti viðskipta,
var ráð hans öðru fremur að þau
skrifuðu hjá sér nöfn allra þeirra
sem þau umgengjust hverju sinni,
þarmeð hefðu þau vísi að sambönd-
um til að byggja á. „Sambönd eru
mikilvæg, listheimurinn er í raun
og veru ekki sérlega stór, þannig
rekst maður iðulega á sama fólkið á
söfnunum. Smátt og smátt fer mað-
ur að þekkja alla.“
Ólafur hefur vinnustofu í Berlín
Mitte, sem um þessar mundir er
miðstöð rannsókna og uppstokkana
ungra í myndlist, listrænna gjörn-
inga af öllu tagi. Skondið að þeir
fara fram í hverfí sem var fyrrum
stjómsetur Alþýðulýðveldisins,
sem mest hataðist við núlistir vest-
ursins og taldi þeim stjómað af
haukunum í Pentagon (!), gott ef
Stasi hafði ekki aðsetur þar einnig.
Hverjum skyldi hafa dottið þessi
þróun í hug fyrir aðeins áratug eða
svo? En sem að líkum lætur er list-
sköpun Ólafs ekki háð vinnustof-
unni, er ekki staðbundin í þá veru,
heldur getur hann fengið hugmynd-
ir hvar sem er og útfært þær á
staðnum. Svona eins og rithöfundur
sem sækir föng í lifanir allt um
kring á ferðum sínum og safnar
þeim í eitt brennigler. Þó getur ein
hugmynd verið ávöxtur mikillar
vinnu og djúprar íhugunar og
þannig er Ólafur oftar en ekki með
4-5 hugmyndir í takinu samtímis.
Vinnur að einu afmörkuðu verkefni
í nokkra daga, leggur það svo til
hliðar og það getur liðið langur
tími, jafnvel heilt ár áður en inn-
setningin er fullmótuð.
Sýnishorn listar Ólafs rataði
hingað á Kjarvalsstaði fyrr á árinu
og var bæði um inni- og útilistaverk
að ræða, en sýningin í litla fallega
listhúsinu að Kambi helgast frekar
af hinni ljóðrænu hlið sköpunarferl-
isins. Um er að ræða bláleita ljós-
myndaröð sem nefnist: „Leitað að
heitu vatni í landi Gunnars Arn-
ars“. Og hver sem alvaran er að
baki vatnsleitinni, er um afar ljóð-
rænan og heimspekilegan gjörning
að ræða er fer fram um hávetur og
ber í sér vísanir til lands og nýs
landnáms. Með sérstökum útbúnaði
við einn gluggann, eins konar dýpt-
arsjá, er gesturinn þarnæst leiddur
inn í heim ófreskra sjónfyrirbrigða,
ýmissa óvæntra skynjana á náttúr-
unni og umhverfinu.
Það er vel þess virði að sveigja út
á afleggjarann að Kambi og skoða
sýningu hins metnaðarfulla, stjórn-
sama og skipulagða unga lista-
manns, ekki spillir að akstursleiðin
er hin fegursta.
Bragi Ásgeirsson
Ólafur
Elíasson