Morgunblaðið - 16.09.1998, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
(Ö)SAMTÖK Iðnaður án stóriðju
■ ■■ IÐNAOARINS .... ... . __ ., ' At\r\e> Ur milliuppgjori 30. juni 1998 Fyrirtæki í framleiðslu sem áttu 15,4% af veltu greinarinnar frá jan. til júní 1997
Rekstrarreikningur jan.-júní 1998 1997 Breyt.
Rekstrartekjur Milljónir króna 8.058 7.970 1,1%
Rekstrargjöld 7.640 7.310 4,5%
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði 419 660
Fjármaqnsqjöld -230 -176
Hagnaður af relulegri starfsemi 189 483
Fyrir tjármagnsliði 5,2% 8,3% -3,1
Af reglulegri starfsemi 2,3% 6,1% -3,7
Treinum okk-
ur góðærið
„REKSTRARNIÐURSTOÐUR
fyrri hluta árs 1998 valda von-
brigðum... Þessu veldur einkum
mikil og áframhaldandi verðsam-
keppni, jafnt við innlenda sem er-
lenda framleiðendur. Sterk staða
íslensku krónunnar og innlendar
kostnaðarhækkanir, einkum launa-
hækkanir, hafa skekkt samkeppn-
isstöðuna gagnvart erlendum
keppinautum,“ segir í nýlegri
fréttatilkynningu iðn-
fyrirtækis vegna milli-
uppgjörs þess í ár.
Versnandi afkoma
í iðnaði
Þótt afkoma og fjár-
hagsstaða séu að sönnu
mjög mismunandi milli
fyrirtækja í iðnaði fer
vart milli mála að þeg-
ar á heildina er litið fer
afkoma þeirra hrað-
versnandi. Þetta sýna
niðurstöður af-
komukönnunar sem
Samtök iðnaðarins
gerðu nú á dögunum.
Könnunin tók til fyrir-
tækja í iðnaði, utan stóriðju og
byggingarstarfsemi, og voru þau
samtals með rúmlega átta millj-
arða veltu á fyrstu sex mánuðum
ársins sem ætla má að sé um 15%
af veltu í þessum hluta iðnaðarins.
Helstu niðurstöður eru þær að
rekstrargjöld vaxa svo mikið um-
fram veltu að tvær af hverjum
þrem krónum sem fyrirtækin
höfðu í hagnað í fyrra eru nú
horfnar.
Það, sem er að gerast, er vel
þekkt: Hækkandi launakostnaður,
hátt gengi íslensku krónunnar og
háir vextir vega að samkeppnis-
stöðu og markaðshlutdeild inn-
lends samkeppnisiðnaðar. Fyrir-
tækin róa lífróður á móti þessum
straumi þenslunnar. Framleiðni
hefur vaxið hratt en það dugir ekki
til. Fyrirtækin taka á sig kostnað-
arhækkanir eins og þau geta.
Framlegð dregst saman og hagn-
aður minnkar. Kostnaðarhækkanir
og gengisþróun birtast í versnandi
samkeppnisstöðu.
Ósýnileg verðbólga
Frá því í mars í fyrra hafa inn-
lendar vörur í vísitölu neysluverðs
hækkað um 5,1% en innfluttar vör-
ur hafa lækkað í verði um 4,1%.
Opinberar tölur um 2,4% verð-
bólgu á þessu tímabili og spár um
2% verðbólgu milli ára 1997-1998
eru því villandi. I reynd er inn-
lenda verðbólgan mun meiri en þar
kemur fram. Hún er nefnilega
greidd niður með lækkandi verði á
innflutningi. Okkar fyrirtæki í iðn-
aði og þjónustu, sem eiga í óheftri
samkeppni, verða við þessar að-
stæður undir og tapa markaðshlut-
deild.
Það er þenslan sem veldur þess-
ari óheillaþróun. Erlend fjárfest-
ing kyndir undir samhliða því að
verð sjávarafurða á erlendum
mörkuðum og auknar veiðiheimild-
ir dæla fjánnagni inn í hagkerfið.
Ljóst er að hagkerfið er að ofhitna.
Seðlabankinn hækkar enn og aftur
vexti til að sporna gegn þenslunni
en slík hrossalækning dugar iðnað-
inum skammt því að sterkari
króna og hærri vextir gera ekkert
annað en spilla enn frekar sam-
keppnisskilyrðum hans.
Aukinn sparnaður
Hvað þarf að gera?
Það er samdóma álit
allra þeirra sem um
málið fjalla að til þess
að takast á við þá
miklu hættu sem
stafar af þenslunni er
brýnast að auka þjóð-
hagslegan sparnað.
Aukinn sparnaður leið-
ir til minni eftirspurn-
ar sem aftur dregur úr
spennu í hagkerfinu og
þar með úr kostnaðar-
hækkunum. Aukinn
sparnaður vinnur
þannig gegn verðbólgu
og skapar grundvöll fyrir lægri
vexti og hagstæðara gengi fyrir at-
vinnureksturinn í landinu. Allt eru
Okkur liggur lífíð
á, segir Sveinn
Hannesson, að ná fram
auknum sparnaði til að
uppsveíflan endi ekki
með efnahagslegri
kollsteypu.
þetta þættir sem hafa úrslitaáhrif
á samkeppnisstöðu og markaðs-
hlutdeild iðníyrirtækja.
Þjóðhagsstofnun hefur áætlað
að til þess að sparnaður nægi til
þess að fjármagna fjárfestingu
landsmanna, sem er í mjög viðun-
andi ástandi um þessar mundir og
svipuð því sem gerist í okkar
helstu viðskiptalöndum, þyrfti
þjóðhagslegur sparnaður að
aukast á þessu ári um 24 milljarða
króna eða um nálega fjórðung.
Draga saman í opinberum
rekstri - greiða niður skuldir
Skólabækurnar segja að stjórn-
völd eigi við þessar aðstæður að
auka þjóðhagslegan sparnað með
því að auka sparnað hins opinbera,
halda útgjöldum í skefjum en nýta
auknar tekjur sem koma inn vegna
góðærisins til að greiða niður
skuldir. Versnandi samkeppnis- og
markaðsstaða iðnfyrirtælg'a segir
okkur að stjórnvöld geri of lítið til
þess að draga úr þenslunni. Al-
þingiskosningar eru framundan og
reynslan sýnir að þá hættir stjórn-
Sveinn
Hannesson
völdum sérstaklega til að taka
hagstjórnina vettlingatökum. Ut-
litið er því ekki gott hvað þetta
varðar næstu mánuði.
Það fyrsta og oft eina, sem opin-
berir aðilar gera til þess að sporna
gegn þenslu, er að fresta opinber-
um framkvæmdum. Slíkt getur
skilað tímabundnum árangri en
getur líka snúist upp í andhverfu
sína þegar slík frestun verður ein-
ungis til að stytta framkvæmda-
tímann og gera framkvæmdir
óhagkvæmari. Vandi okkar er ekki
of mikil fjárfesting heldur of mikil
neysla. Fjárfesting hér á landi er
nú svipað hlutfall af þjóðartekjum
og gerist og gengur meðal þróaðra
þjóða eða um 20%. Ef við drög-
umst aftur úr á þeim vettvangi,
eins og við raunar gerðum á fyrri
hluta þessa áratugar, kemur það
niður á tækniþróuninni og tekju-
möguleikum framtíðarinnar.
Sparnaður einkaaðila
Við verðum að auka sparnaðinn.
Stjórnvöld verða að ýta eftir föng-
um undir sparnað einkaaðila sam-
hliða því að auka eigin sparnað eða
draga úr eigin umframeyðslu. I
bréfi, sem Samtök iðnaðarins
sendu ráðherrum og raunar öllum
þingmönnum í september í fyrra,
eru stjórnvöld hvött til þess að ýta
undir aukinn sparnað einkaaðila,
sem er hinn hluti þjóðhagslega
sparnaðarins, með skattalegum
hvötum. Þarna þarf að bjóðast
sveigjanleiki og valfrelsi til þess að
gera sparnað að vænlegri kosti
fyrir einstaklinga, svo sem í formi
hlutabréfakaupa, viðbótarlífeyris-
sparnaðar og/eða greiðslna á hús-
næðissparnaðarreikninga upp að
ákveðinni fjárhæð árlega.
Haldbærar rannsóknir skortir
um það hvernig við getum helst ýtt
undir aukinn sparnað sem við
þurfum svo sárlega á að halda. Ein
leiðin eru skattalegir hvatar. Onn-
ur er þvingaður sparnaður eða ein-
hvers konar skyldusparnaður um-
fram núverandi lífeyrissparnað.
Þriðja leiðin er að hraða einkavæð-
ingu. Fjórða leiðin er að breyta
skiptingu skattbyrðarinnar milli
fyrirtækja og heimila og minnka
millifærslur.
Varla er hægt að hugsa sér
verðugra eða brýnna verkefni en
að skoða hvaða leið er vænlegust í
þessum efnum. Okkur liggur lífið á
að ná fram auknum þjóðhagsleg-
um sparnaði til að þessi uppsveifla
endi ekki með efnahagslegri koll-
steypu eins og allar hinar í sögu ís-
lenska lýðveldisins. Slíkar koll-
steypur í samkeppnisstöðunni hafa
langtímaáhrif. Þeir vaxtarbroddar
í iðnaði og þjónustu, sem við höf-
um séð vaxa upp á undanförnum
árum, verða þá rifnir upp með rót-
um og reynslan sýnir að það tekur
mörg ár að vinna upp það efna-
hagslega tjón sem af því hlýst.
Höfundur er framkvæmdnsljóri
Samtaka iðnaðarins.
(Greinin er endurbirt vegna tækni-
legra mistaka í vinnslu.)
Háþrýstingur og
nýrnasj úkdómar
Magnús Runólfur
Böðvarsson Pálsson
OF hár blóðþrýst-
ingur er eitt algeng-
asta heilbrigðisvanda-
mál á íslandi sem og
annars staðar á Vest-
urlöndum og er al-
gengasta ástæða ávís-
unar lyfja. Of hár
blóðþrýstingur hjá
fullorðnum einstak-
lingum er oftast skil-
greindur sem viðvar-
andi blóðþrýstingur
yfir 140/90. Lengi hef-
ur verið vitað að
ómeðhöndlaður há-
þrýstingur leiðir með
tímanum til lífshættu-
legra sjúkdóma í
heila, hjarta og nýrum. Oftast
fylgja háþrýstingi engin einkenni
og sjúkdómurinn hefur því verið
nefndur „hinn þögli drápari“. Or-
sakir hækkaðs blóðþrýstings eru í
flestum tilvikum óþekktar en finn-
ast þó hjá 5-10% sjúklinga og eru
Greining og með-
ferð háþrýstings er, að
mati Magnúsar
Böðvarssonar og Run-
ólfs Pálssonar, ríkur
þáttur í starfí nýrna-
sérfræðinga.
nýrnasjúkdómar og sjúkdómar í
slagæðum nýrna meðal þeirra al-
gengustu. Mikilvægt er að greina
þessa sjúkdóma þar sem stundum
má lækna háþrýstinginn með til-
tölulega einföldum aðgerðum. Há-
þrýstingur hefur tilhneigingu til að
vera ættgengur og beinast rann-
sóknir nú að því að finna erfðavísa
sem tengjast sjúkdómnum. Grein-
ing og meðferð háþrýstings er rík-
ur þáttur í starfi nýrnasérfræð-
inga. Á 30 ára afmæli blóðskilunar
á Islandi er kjörið að staldra við og
velta fyrir sér skaðlegum áhrifum
háþrýstings á nýrun og þeim með-
ferðarúrræðum sem völ er á.
Háþrýstingur og nýrnasjúkdóm-
ar: Hvað veldur - hver heldur?
Nýrnasjúkdómur af völdum há-
þrýstings er ein af algengustu or-
sökum nýrnabilunar á Vesturlönd-
um og hefur farið vaxandi þrátt
fyrir aukna og bætta meðferð há-
þrýstings. Mest er aukningin með-
al aldraðra. Ýmsar ástæður geta
legið að baki en líklegt er að skýr-
ingin tengist stórlækkaðri dánar-
tíðni af völdum hjarta- og æða-
sjúkdóma á síðustu áratugum, sem
að miklu leyti má rekja til fram-
fara í greiningu og meðferð hækk-
aðs blóðþrýstings. Þessir sjúkling-
ar lifa því lengur og virðist þá
hættara við að fá nýrnasjúkdóm.
Háþrýstingur er einnig algengur
fylgifiskur nýrnasjúkdóma af
ýmsu tagi og er álitið að hann eigi
stóran þátt í hnignun á nýrnastarf-
semi hjá slíkum sjúklingum.
Nýrnasjúkdómur getur því ýmist
verið orsök eða afleiðing háþrýst-
ings og oft getur verið erfitt að
greina þar á milli.
Nýrnaverndandi lyíjameðferð
við háþrýstingi
Þótt ekki sé til lækning við
nýrnasjúkdómi af völdum háþrýst-
ings er hægt að sporna við honum
með kröftugri meðhöndlun hins
hækkaða blóðþrýstings og þannig
má oft hægja á framvindu nýrna-
bilunar. Völ er á fjölda blóðþrýst-
ingslækkandi lyfja en sá lyfja-
flokkur sem gagnast best sjúkling-
um með nýrnasjúkdóm eru lyf sem
hafa hamlandi áhrif á renín-
angíótensín-aldósterón-kerfi
(ACE-hemlar og angíótensín II
viðtækja-blokkar). Margt bendir
til að þessi lyf verndi nýrun gegn
skaðlegum áhrifum háþrýstings.
Vísbendingar eru um að svokallað-
ir kalsíum-blokkar kunni einnig að
hafa nýrnaverndandi áhrif. Breyt-
ingar á lífsstíl, s.s. megrun, salts-
nautt fæði, hæfileg líkamsþjálfun
og stöðvun reykinga, eru að sjálf-
sögðu mikilvægar eins og hjá öðr-
um sjúklingum með háþrýsting.
Framtíðarmarkmið
Þótt náðst hafi góður árangur í
baráttunni við háþrýsting er end-
anlegt takmark að uppgötva allar
orsakir hækkaðs blóðþrýstings,
því það gæti leitt til meðferðar
sem kemur í veg fyrir þann mikla
skaða sem hlýst af þessum sjúk-
dómi.
Höfundar eru sérfræðingar í lyf-
lækningum og nýrnasjúkdómum.
Utflutningsráði svarað
I BLAÐAGREIN
nýlega um málefni Ut-
flutningsráðs Islands
tók ég af handahófi tvö
dæmi um starfsaðferðir
Útflutningsráðs sem ég
og ýmsir aðrir útflytj-
endur teljum ekki
sæma opinberri stofn-
un eins og Útflutnings-
ráði íslands. Ég þekki
fleiri dæmi og það
sama gera fjölmargir
útflytjendur innan
Samtaka Verslunarinn-
ar-FÍS.
Framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs sendir
frá sér athugasemdir við annað
dæmið af þessum tveimur í blaða-
grein í Morgunblaðinu fyrir
skömmu. Þar gefur framkvæmda-
stjórinn í skyn að Út-
flutningsráð hafi nán-
ast tekið við fyrirmæl-
um, þó því verði seint
trúað, frá aðila í Taiw-
an við undirbúning
komu viðskiptasendi-
nefndar þaðan nýlega.
Að sjálfsögðu er ekki
hægt að gera athuga-
semdir við einkaheim-
sóknir og hverja er-
lendir gestir, sem til
íslands koma, heim-
sækja. En þegar óskað
er aðstoðar opinberrar
Einar stofnunar sem hefur
Guðbjörnsson því hlutverki að gegna
að kynna útflutning frá Islandi
með almennu kynningarstarfi án
þess að gert sé upp á milli ein-
stakra fyrirtækja þá eru þessi
*
Utflutningsráð
verður að varast, segir
Einar Guðbjörnsson,
að fara inn á sam-
keppnis- og sölusvið
sem er viðfangsefni
fyrirtækjanna.
vinnubrögð, eins og framkvæmda-
stjórinn lýsir þeim sjálfur, með öllu
óásættanleg. Útflutningsráð er
ekki ferðaskrifstofa heldur þjón-
ustustofnun allra íslenskra útflytj-
enda. Hinu dæminu, um japönsku
sendinefndina, kýs hann að svara
ekld.
Islendingum er nauðsynlegt að