Morgunblaðið - 16.09.1998, Qupperneq 50
‘50 MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK f FRÉTTUM
ROLLING Stones
er að vinna að
lokaundirbúningi
fyrir nýja breiðskífu sem
kemur út 16. nóvember
og nefnist „No
Security". Lögin á plöt-
unni voru tekin upp á
tónleikaferðalagi sveit-
arinnar „Bridges To Ba-
bylon“ og þar á meðal
eru lög sem aldrei hafa
verið gefin út áður. Tvö
laganna sem aldrei hafa
verið gefin út í hljóm-
leikaútgáfu nefnast
„Sister Morphine" og
„Memory Hotel“. Tón-
leikaferðalagi Stones
lýkur í Istanbúl 19. sept-
ember næstkomandi.
MYNDIN af Gunnari
Hrafnssyni og Ray Brown
með bassa Gunnars
á milli sín.
þyrfti að fara heim og æfa mig
meira,“ sagði Gunnar. „Síðan
kom upp í hugann að ég myndi
aldrei þrífa bassann aftur,“ sagði
Gunnar og bætti við hlæjandi að
eftir að Ray Brown hefði tekið í
höndina á sér væri ljóst að sá
handleggur yrði vafinn í plast-
poka þegar hann færi í bað.
En hann bætir við á alvarlegri
nótum: „Ég hef haft dálæti á Ray
Brown alla mina tíð. Hann er ein
af goðsögnum djassbassaleikara
og hefur haft gífurleg áhrif.
Hann er einn af þessum stóru
guðfeðrum hljóðfærisins. Ég var
ekki einn um það að vera djúpt
Einbeitingin
Ieynir sér
ekki í svip
fjármála-
ráðherrans.
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ spil-
aði Tríó Ray Browns fyrir ís-
lenska djassáhugamenn í Is-
lensku Óperunni og í dómi Vern-
harðs Linnets í Morgunblaðinu í
gær segir að tónleikarnir hafi
verið „heimsklassadjass“ enda
uppselt á tónleika goðsagn-
arinnar Ray Browns löngu
fyrir tónleikana. Merkilegt
er að Ray Brown spilaði
ekki á sinn eigin bassa á tón-
leikunum, heldur fékk lánaðan
Gunnars Hrafnssonar
bassaleikara, eins stjórnenda
Jazzhátíðar Reykjavíkur.
Þegar Gunnar er spurður
hveiju það sæti segir hann að
Ray Brown hafi lent í ógöngum
með bassann á leiðinni til lands-
ins. Þegar hann kom til Islands
og opnaði hljóðfæratöskuna kom
í ljós að hljóðfærið hans var möl-
brotið.
„Það er stórmál fyrir hljóð-
færaleikara að missa hljóðfærið
sitt rétt fyrir tónieika," segir
Gunnar. „Þú þekkir þitt hljóð-
færi til hlítar, og það er mjög
erfitt að spila á annarra manna
hljóðfæri án þess að fá tíma til að
kynnast því.“ Hins vegar var
tíminn naumur, og Ray Brown
prófaði tvö hljóðfæri áður en
bassi Gunnars varð fyrir val-
inu. „Að fara upp á svið með
algjörlega óþekkt hljóðfæri í
höndunum og spila eins og engill
er ekki á færi nema bestu
manna. Og Ray Brown sýndi
þarna og sannaði að hann er
snillingur," segir Gunnar.
En hvernig skyldi Gunnari
hafa liðið þegar hann sá Ray
Brown handleika bassann sinn
uppi á sviði á tónleikunum?
„Fyrsta tilfinningin var sú að ég
Morgunblaðið/Jón
Svavarssi
snortinn á þessum frábæru tón-
leikum. Friðrik Theódórsson,
kynnir hátíðarinnar, lýsti því í
kynningunni hversu sérstök til-
finning það væri að hitta Ray
Brown sem hefði verið í uppá-
haldi frá því hann keypti sér sinn
fyrsta bassa fyrir 42 árum.“
Þegar Gunnar er spurður
hvort hann muni ekki geyma
myndina af þeim Ray Brown á
góðum stað segir hann glaðlega
að hann hafi einmitt sagt eigin-
konunni að nú yrði hann að fá
rammann utan af brúðkaups-
myndinni til að prýða myndina.
„Ég hef myndina náttúrulega
uppi á vegg, svo ég geti yljað
mér við minningarnar þegar ég
æfi mig á bassann."
Fékk
lánað
hljóðfæri
THEO
Waigel, þýski fjár-
„ m ál a ráð h e rrann og
formaður systurflokks
kristilegra demókrata
(CSU), sést hér munda bolt-
ann af miklu öryggi í herbúð-
um þýska fótboltaliðsins TSV
1860 í Miinchen hinn 10. septem-
ber sl. Fjármálaráðherrann kom við
hjá knattspyrnuliðinu á kosninga-
ferðalagi sínu um Bæjaraland. Stutt
er til kosninga og stjórnarflokkarnir
' hafa átt á brattann að sækja í kosn-
ingabaráttunni, en hugsanlega get-
ur fimur fótaburður fjármálaráð-
herrans fangað athygli kjósenda.
Ekki fylgir sögunni hvort Waigel
hyggst breyta um starfsvettvang
og snúa sér alfarið að boltanum
ef kosningamar ganga ekki
flokknum í hag.
RAY BROWN Á ÍSLANDI
LEIKINN
MEÐ
KNÖT'
INN