Morgunblaðið - 16.09.1998, Blaðsíða 56
NIVEA
ÍMnrgnmM&ifrÍtJi
Drögum næst
24. september
JÍÍL HAPPDRÆTTI
jSjgrjJj HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Farþegaþota nauðlenti á Calgary-flugvelli
_ +
. Tveir Islending-
ar meðal farþega
HESTAMENNIRNIR Sigurbjörn
Bárðarson og Axel Omarsson voru
meðal farþega í Boeing 767-far-
þegaþotu frá flugfélaginu Martinair
sem varð fyrir vélarbilun og neydd-
ist til að nauðlenda skömmu eftir
flugtak frá flugvellinum í Calgary í
Kanada á mánudagskvöld.
„Hann sagði að þeir hefðu heyrt
mjög háa sprengingu meðan þeir
voru á flugi og séð eld í hreyfli,"
sbgir Þórunn Bergsdóttir, eigin-
kona Axels, en hún talaði við hann í
síma í gærdag.
Samkvæmt frétt í alnetsútgáfu
dagblaðsins Calgary Herald neydd-
ust flugmennirnir til að slökkva á
öðrum hreyfli vélarinnar eftir
sprenginguna. Fjölmargt fólk á
jörðu niðri heyrði hvellinn og sá eld
leggja frá væng vélarinnar. Einn
farþeganna sagði í viðtali við blaðið
að hann hefði aldrei orðið hræddari
á ævinni. Annai- sagðist hafa heyrt
flugfreyjurnar biðja bænir meðan á
ósköpunum stóð. I um tíu mínútur
var ljóslaust í farþegarýminu.
Eftir hálftíma tókst áhöfninni að
lenda þotunni og gekk það vel þó
að sprungið hefði á þremur dekkj-
um.
„Þeir sögðu að fólk hefði verið
rólegt um borð, en samt hrætt
vegna þess að nýlega varð annað
flugslys við Nova Seotia og það
ímyndaði sér að það sama væri að
gerast aftur,“ segir Þórunn.
Sigurbjörn og Axel voru á heim-
leið frá stórri hestasýningu í Cal-
gary. Vegna verkfalls flugmanna í
Kanada gátu þeh- ekki farið til
Minneapolis í Bandaríkjunum og
þaðan til Islands eins og til stóð,
heldur urðu að taka vél sem var á
leið til Amsterdam. Af sömu orsök-
um hafði ferðalagið til Kanada orð-
ið mun lengra en ella.
Að sögn Þórunnar vonuðust þeir
Sigurbjörn og Axel eftir að komast
til Islands í dag með Flugleiðavél
frá Amsterdam.
Sjómenn eru hinir
mestu bókaormar
BÓKLESTUR sjómanna hef-
ur aukist svo um munar síð-
ustu árin og svo virðist sem
sjómenn nýti frívaktir sínar í
auknum mæli til lesturs.
Skýringar á þessari auknu
bókhneigð kunna að vera
margar en svo virðist sem
sjómenn séu ögn leiðir á
myndbandaglápi og vilji fjöl-
breyttari afþreyingu.
Með aukinni sókn á fjarlæg
mið hafa sjóferðir lengst til
muna og þess vegna aukast
kröfur sjómanna um afþrey-
ingu og tómstundir um borð í
skipunum. Samkvæmt upp-
lýsingum frá bókasöfnum á
helstu útgerðarstöðum Iands-
ins voru útlán til skipa í mik-
illi lægð um miðjan níunda
áratuginn en þá var mynd-
bandið einmitt að ryðja sér til
rúms. Utlán hafa hins vegar
aukist á ný og náðu hámarki
árið 1994 en þá var útrás ís-
lenskra fiskiskipa á fjarlæg
mið að hefjast að einhveiju
marki.
Bókaverðir víða um land
eru sammála um að sjómenn
séu bæði mikið og vel lesnir.
Þeir vilji fjölbreytt lesefni,
spennu- og ævisögur séu sí-
vinsælar meðal þeirra, en
einnig sé talsvert lesið af
fræði- og fagurbókmenntum.
■ Íslenskir/C3
íslenzk ljóð
í fyrsta
sinn á kín-
versku
SAFN íslenzkra ljóða á kínversku
er komið út í Kína; með 178 ljóðum
eftir 37 skáld og er það í fyrsta
skipti, sem íslenzk Ijóð eru gefín út
á kínverskri tungu. Bókin var kynnt
á fundi í Peking.
Tíminn og vatnið heitir íslenzka
ljóðasafnið. Dong Jiping þýddi ljóð-
in úr ensku. Sigurður A. Magnús-
son rakti á fundinum tildrög bókar-
innar, sem eru þau, að Dong Jiping
kynntist á háskólabókasafninu í
Iowa í Bandaríkjunum íslenzkum
ljóðum í enskri þýðingu Sigurðar A.
Magnússonar. Hann hreifst svo af
ljóðunum, að hann varð sér úti um
eintak af bókinni og heimkominn
ákvað hann að sækjast eftir leyfi til
að þýða ljóðin og gefa út á kín-
versku.
■ íslenzk ljóð/6
Brúin yfir
Gígju fullgerð
NÝJA brúin yfir Gígju er nú full-
búin og verður formlega opnuð á
morgun að viðstöddum sam-
gönguráðherra, vegamálastjóra
-eg fulltrúum verktaka sem eru
Armannsfell og undirverktakar.
Reynir Gunnarsson hjá Vega-
gerðinni á Höfn upplýsti Morg-
unblaðið í gær um að síðustu
handtökin við frágang garða og
fleira hefðu verið unnin nú í vik-
unni. Byi-jað er að rífa bráða-
birgðabrúna, sem notuð var á
meðan.
--------------
Harður árekstur
við Sæbraut
MJÖG harður árekstur varð á
gatnamótum Sæbrautar og Súðar-
vogs í Reykjavík í gær klukkan
rúmlega 18. Sendibifreið og strætis-
vagn skullu saman, en umferðarljós
á gatnamótunum voru ótengd. Öku-
maður bifreiðarinnar fótbrotnaði og
khppa varð hann úr bflnum. Sendi-
R'reiðin var jafnframt óökufær og
var hún fjarlægð með kranabifreið.
Morgunblaðið/Emil Þór
Nærri eitthundrað íslenskir hluthafar í Manchester United
Hafa næstum því tvö-
faldað fjárfestingu sína
HÁTT í hundrað íslenskir aðdáendur enska fót-
boltaliðsins Manchester United, sem keyptu í
því hlutabréf skömmu fyrir áramót, hafa nærri
tvöfaldað fjárfestingu sína. Þeir sem stærsta
hluti eiga geta nú selt bréfín með um 700 þús-
und króna hagnaði.
Hlutabréfaeigendurnir fengu fyrir skömmu
senda tilkynningu um að vegna tilboðs BSkyB-
sjónvarpsstöðvar auðjöfursins Roberts Mur-
dochs í félagið stæði þeim til boða annaðhvort
að selja bréfin með 65-70% ávöxtun eða að
eignast hlutabréf í sjónvarpsstöðinni í skiptum
fyrir þau.
Svo gæti þó farið að enn meira fengist fyrir
hlutina því bandarískt verðbréfafyrirtæki hefur
lagt fram um 10% hærra tilboð í fótboltafélagið.
„Verðbréfastofan keypti talsvert af hluta-
Mögulegt að kaupa
hlut í fleiri félögum
bréfum í Manchester United fyrir jólin vegna
þess að við fundum fyrir áhuga frá stuðnings-
mönnum fyrir að eiga, þó ekki væri nema 10-20
þúsund króna hlut,“ segir Jafet Olafsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfastofunnar.
Fjárfestu fyrir 10-200 þúsund krónur
Þeir sem fjárfestu með milligöngu fyrirtæk-
isins keyptu hluti fyrir á bilinu 10-200 þúsund
krónur. Jafet segist þó vita af fáeinum öðrum
fjárfestum sem keyptu á vegum breskra verð-
bréfafyrirtækja, þar af voru 2-3 sem eignuðust
um milljón króna hlut.
Stjórn Manchester United hafði samþykkt að
ganga til viðræðna við Murdoch áður en tilboð-
ið frá bandaríska fyrirtækinu kom fram. „Ef
allh- stóru hluthafarnir samþykkja tilboð Mur-
dochs þá liggur ekki annað fyrir hinum minni
en að beygja sig undir það,“ segir Jafet. „Ef yf-
ir 80% hluthafa samþykkja svona tilboð er
minnihlutinn neyddur til að selja.“
Jafet segir að íslenskir hluthafar séu enn að
velta fyi’ir sér hvað þeir ætli að gera, en enginn
hafi selt hlut sinn ennþá. „Menn hafa hringt og
spurst fyrir um þetta, og það verður söknuður
hjá mörgum ef þeir neyðast til að selja.“
Jafet segist íhuga að bjóða upp á hlutabréf í
fleiri fótboltaliðum, meðal annars séu bréf í
Newcastle og Bolton á markaði í Bretlandi.