Morgunblaðið - 20.09.1998, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Vinnupöll-
um stolið
VINNUPÖLLUM sem stóðu við
bensínstöð Olís við Háaleitisbraut í
Reykjavík þar sem verktakinn Stál-
bær ehf. hefur unnið að uppsetningu
skyggnisbita var stolið aðfaranótt
fóstudags. Pallarnir eru frá palla-
leigunni Stoð og eru nýlegir.
Sveinn Pálmason verktaki segir
að annaðhvort hafí þjófarnir tekið
pallana sundur og sett á bíl eða híft
þá með krana á vörubíl til að flytja
hann burt. Verkið hljóti því að hafa
tekið nokkurn tíma og biður hann þá
sem kynnu að hafa séð menn við
stöðina aðfaranótt föstudags að láta
sig eða lögreglu vita.
Sveinn sagðist í sjálfu sér þakklát-
ur þjófunum fyrir að hafa ekki stolið
pöllunum íyrr en nú að verkinu væri
svo gott sem lokið.
Morgunblaðið/Júlíus
Nýr slökkvibíll
tekinn í notkun
SLÖKKVILH) Reykjavíkur hefur
fengið nýjan slökkvibíl til umráða
og tók borgarstjórinn í Reykjavík,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hann
formlega í notkun í fyrradag.
Bfllinn er af gerðinni MAN, með
400 hestafla vél, sjálfskiptur og
með drifí á báðum hásingum. Síðast
fékk Slökkviliðið nýjan bfl árið
1991 og hefur liðið nú yfir átta bfl-
um að ráða. Vatnstankur bflsins
tekur 2.000 lítra og froðutankur
100 lítra. Auk þess hefur hann ýms-
an búnað, svo sem 10 metra bruna-
stiga, ljósamastur, 60 metra slöng-
ur og háþrýstibyssur.
HEFURÞÚ
SPURNINGAR
VARÐANDI
FJÁRFESTINGAR
ogLÍFEYRISMÁL?
RÁÐCIAFAROKKAR
SVARASPURNiNGUM
Á VERÐBRÉFADÖGUM
23.-25. SEPTIMBER
(ÚTIBÚI BÚNADARBANKANS
A egilsstOoum.
FAGRADALSBRAUT11. SÍMI471 1203
VERIÐ VELKOMIN!
^HÁUIIRIIVftlKI VERDSflEF
MEÐ Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablað um verðbréfadaga
Búnaðarbankans á Egilsstöðum
23.-25. september, frá Verðbréfa-
deild Búnaðarbankans. (Auglýs-
ingablaðinu er dreift á Austfjörðum,
norður frá Bakkafírði í norðri að
Höfn í Hornafirði í suðri).
MEÐ Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablað frá Sinfóníuhljóm-
sveit íslands þar sem dagskrá Sin-
fóníuhljómsveitarinnar er kynnt
starfsárið ‘98—’99. (Auglýsingablað-
inu er dreift á höfuðborgarsvæðinu,
Suðumesjum, Selfossi, Hveragerði,
Akranesi og Borgamesi).
FRETTIR
Skemmdir á útveggjum Dómkirkjunnar og Alþingishiissins
HÉR má sjá gulu múrsteinana fyrir innan íslenska grásteinninn í Dómkirkjunni, en múrsteinarnir þola illa
frost og eru því víða famir að láta á sjá.
Stefnt að
umfangs-
miklum
viðgerðum
KIRKJUTURNINN hallar að-
eins til austurs og er verið að
greina hvað vaidi því og hvort
það eigi að rétta hann við.
Morgunblaðið/Kristinn
VÍÐA hefur myndast rifa milli sementsmúrsins og grásteinsins í Al-
þingishúsinu, eins og Hjalti Sigmundsson bendir á á þessari mynd.
Hann segir einnig að grásteinninn hafi veðrast sums staðar og
flagnað inn fyrir sementsmúrinn.
STEINHLEÐSLUR í útveggjum
Dómkh-kjunnar hafa víða orðið fyrir
skemmdum og rifa hefnr á mörgum
stöðum myndast milli hleðslusteina
og sementsmúrs í útveggjum Alþing-
ishússins. Verkfræði- og ráðgjafar-
fyrirtækið Línuhönnun hefur því ver-
ið fengið til að rannsaka hvernig best
sé að gera við útveggi Dómkirkjunn-
ar og viðhalda steinlími og sements-
múr eða svokallaðri sementsfúgu Al-
þingishússins.
Einnig er verið að fara í gegnum
það hvernig best sé að lagfæra
kirkjuturn kirkjunnar, til dæmis
hvort rétta eigi turninn sem hallar
aðeins til austurs, að sögn Hjalta Sig-
mundssonar, byggingatæknifræð-
ings hjá Línuhönnun. Hann vinnur
að verkinu ásamt Flosa Ólafssyni
múrarameistara og Ríkharði Krist-
jánssyni verkfræðingi. Hjalti segir að
enn sé ekki ákveðið hvenær hafíst
verði handa við lagfæringarnar en
miðað sé við að það verði á næsta ári.
Hjalti segir að neðri hluti Dóm-
kirkjunnar sé hlaðinn úr íslenskum
grásteini og að efri hlutinn sé hlaðinn
með dönskum gulum múrsteini sem
sé orðinn mjög lélegur og víða illa far-
inn vegna þess að hann er ekki frost-
þolinn. Þann hluta þarf að laga en að
sögn Hjalta er verið að reyna að fínna
bestu aðferðina til þess. í þeim til-
gangi er meðal annars notast við
gamlar heimildir um viðgerðir á
kirkjunni og reynt að finna út hvernig
þær hafi staðist tímans tönn. „Við er-
um búin að sjá gamlar viðgerðir sem
hafa staðið sig býsna vel og þær fel-
ast í þvi að fjarlægja ysta hlutann af
gamla múrsteininum og setja íslensk-
an grástein í staðinn. Þessi aðferð var
notuð þegar gert var við kirkjuna
1879 og hefur reynst vel, en það er
samt ekki búið að ákveða hvort sú leið
verði farin,“ segir Hjalti.
Hann segir einnig að grásteins- og
múrhleðslurnar í Dómkirkjunni séu
múrhúðaðar að utan og að áður fyrr
hafi línur verið dregnar í þá múrhúð
til þess að líkja eftir steinhleðslu.
Þessar línur hafí hins vegar máðst
með tímanum og þegar gert hafí ver-
ið við kirkjuna í gegnum tíðina, en
ætlunin sé að draga aftur slíkar línur
í múrhúðina þannig að útlit veggj-
anna verði sem upprunalegast eftir
lagfæringarnar.
Hjalti segir að Verkfí-æði- og ráð-
gjafarfyrirtækið Línuhönnun muni
einnig sjá um að lagfæra glugga
Dómkirkjunnar, en þeir eru margir
hverjir orðnir ryðgaðir. Þá á að lag-
færa klæðningu og mála kirkjutum-
inn, setja á hann nýjan veðurvita,
gera við úrskífumar og festa aftur
upp tréskildi með skjaldarmerki
Danakonungs á vesturhlið tumsins
og flöttum þorskum á suður- og norð-
urhlið. „Reyndar er það svo að
kirkjutuminn er siginn til austurs.
Það er hins vegar hvorki búið að
greina ástæðuna né ákveða hvort yf-
irleitt eigi að rétta turninn frekar en
skakka turninn í Pisa,“ segir Hjalti.
Skemmdir inni í Alþingishúsinu
Á Alþingishúsinu eru víða
skemmdir milli hleðslusteina út-
veggjanna sem lýsa sér þannig að
rifa hefur myndast á milli steinanna
og sementsmúrsins. Þá hefur grá-
steinninn í útveggjunum veðrast og
flagnað inn fyrir sementsmúrinn.
Sums staðar lekur því rigningai'vatn
á milli steinanna og hefur það valdið
skemmdum inni í húsinu og á vegg-
hleðslu þess. „Steinamir í vegg húss-
ins eru lagðir saman á steinlím, sem
er að mestu kalk og sandur, en ysti
hlutinn af líminu er skafínn í burtu
aðeins inn á milli steinanna og í stað-
inn settur sementsmúr, sem er mót-
aður þannig að hann myndi falleg
strik, sem stendur aðeins út fyrir
steininn," segir Hjalti, þegar hann
lýsir því hvernig veggir Alþingis-
hússins eru hlaðnir. Hann segir að
vandinn sé að fínna út hvemig farið
sé að því að láta sementsfúguna
standa út fyrir flötinn, sérstaklega
þar sem hann sé ósléttur eins og á
Alþingishúsinu. Einnig sé vandi að
finna heppileg efni, sand, kalk og
sement, í endurgerð fúgunnar. „Við
erum að reyna að grafast fyrir um
það hvernig þetta vai- gert og erum
að vonast til þess að þetta handverk
sé enn þekkt í Evrópu, þannig að við
þurfum ekki að þróa aðferðina upp á
nýtt,“ segir hann.
Vinnan við úttektina á kirkjunni
fer fram í samráði við Þorstein Gunn-
arsson arkitekt en á Alþingishúsinu
fer hún fram í samvinnu við Samúel
Guðmundsson arkitekt hjá teikni-
stofu Halldórs Guðmundssonar.
A
► 1-64
Hold og blóð íslend-
Inga á vogarskálum
►Rætt við Bernhard Pálsson pró-
fessor um rekstur líftæknifyrir-
tækjaogerfðarannsóknir. /10
IMýtt fjölskylduveldi
►Synir George Bush, fyrrum for-
seta, láta nú mjög til sín taka í
bandarískum stjómmálum. /13
Sjáiðtindinn,
þarna fór ég!
►Esjan hefur margbreytilega
ásýnd og flókna innviðu. /22
Sátt við að
vera skilin eftir
►Aðalheiður Eyjólfsdóttur var
skilin eftir þegar Ijölskylda hennar
fór til Vesturheims. /26
Stofnaði Tanna frekar
en verða ólétt eða fara
ískóla
►í Viðskiptum/Atvinnulífí á
sunnudegi er rætt við Guðrúnu
B. Tryggvadóttur og Guðjón Ó.
Sigurbiartsson í Tanna ehf./30
B______________________
► 1-12
Landið og orkan
►Á að ráðast í frekari fram-
kvæmdir við beislun vatnsorku eða
á að gefa náttúrunni grið? /Bl-2, C
Á hjara veraldar
►Lífið á Svalbarða er með dálítið
óvenjulegum blæ, enda er byggðin
þar sú nyrsta í heimi. /6
Saga stórsveita og
söngvara rifjuð upp
►Sæbjöm Jónsson stofnaði Stór-
sveit Reykjavíkur 1992 og hefur
verið aðalstjórnandi hennar. /8
C
► 1-4
Landið og orkan
FERÐALÖG
►1-4
Heilbrigð aukning
ferðamanna
►Ferðakaupstefnan Vestnorden
var nú haldin hér á landi. /1
Byggðasaf nið á Dalvík
►Sjömílnaskór og hattur sem
gleypir höfuð. /4
E BÍLAR________________
► 1-4
Fyrsti fjölorkubíllinn
til íslands
►TOYOTA Prius kemur til íslands
um miðjan nóvember. /1
Ný Hyundai Sonata
►Ný kynslóð af Hyundai Sonata
var kynnt á miðju sumri. /4
Fatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-16
Tilraunaverkefni RB
►Verður Súl-Pak steypa framtíð-
arinnar? / 1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Brids - 50
Leiðari 32 Stjömuspá 50
Helgispjall 32 Skák 50
Reykjavíkurbréí 32 Fólk í fréttum 54
Skoðun 38 Útv./sjónv. 52,62
Minningar 39 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Mannl.str. llb
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. lOb
ídag 50
INNLENDAR FRETTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDÁR FRÉTTIR: 1&6