Morgunblaðið - 20.09.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNURDAGUR 20. SEPTEMBER 1998 35
tír Dansinum eftir Ágúst Guðmundsson.
er gamall vinur Haraldar en nú
hefur hún sem sagt gert upp hug
sinn og ákveðið að giftast Haraldi.
Brúðkaupið er haldið og þá gerist
það að enskur togari strandar við
eyjuna og það er hlaupið út til þess
að athuga hvort bjarga megi
mönnunum. Ivar er ekkert alltof
sáttur við ákvörðun Sirsu um
makaval og þess vegna snúast
björgunaraðgerðirnar upp í keppni
á milli þessara tveggja manna um
hetjuhlutverkið og hylli brúðarinn-
ar.
Það tekst að bjarga öllum mönn-
unum og menn taka aftur til við
drykkju og dans að færeyskum sið.
Þegar dansinn hefur verið stiginn
nokkra stund gerist það að einn
skipbrotsmannanna, sem hafði
slasast mikið, deyr. Þá koma fram
kirkjunnar menn og biðja um að
öllum dansi og gleði verði hætt. Það
sé vanvirðing við manninn. Nú er
úr vöndu að ráða, vegna þess að
hvað er færeyskt brúðkaup án þess
að þar sé dansað? Brúðguminn,
Haraldur, hefur þó nokkuð um
þetta að segja og hvort sem það er
nú að hann er farið að langa í brúð-
arsængina með eiginkonunni, eða
að honum finnst hún full tileyg til
Ivars, þá ákveður hann að veislunni
skuli hætt.
Að stöðva færeyskan dans í brúð-
kaupi er eins og að reyna að kæfa
eld. Hann blossar alltaf aftur upp.
Menn vilja illa una þessu og áður
en langt um líður, hafa veislugestir
fært sig yfir í annað hús og halda
þar áfram brúðkaupsveislu Harald-
ar og Sissu. Þetta á eftir að hafa
ýmsar afleiðingar."
Á kristniboðshæli
í Færeyjum
Var myndin tekin í Færeyjum?
„Að hluta til, og að hluta til aust-
ur í Vík í Mýrdal. Við vorum í
|---------------1
l Stafakubbar i
'jroip
Skolavörðustíg 1a
DANSSVEIFLU
ADÖGUM! um hel2'na
____ stu
námskeið
557 7700
hringdu núna
Áhugahópur
um almenna
dansþátttöku
á íslandi
Netfang: KomidOgDansid@tolvuskDli.is
Heimasíða: www.tolvuskoli.is/KomidOgDansid/
Færeyjum í þrjár vikur og það var
ljómandi gaman þar. Að vísu
skyggði það dálítið á gleðina að
rúmlega helming tímans höfðum
við aðsetur á kristniboðshæli
fjörutíu kílómetra frá Þórshöfn.
Eftir nokkrar samningaviðræður,
voru þeim leyfðar reykingar í and-
dyrinu sem töldu sig þurfa þess -
en að menn mættu smakka áfengi;
það var útilokað að ræða það. Þetta
var eins og í þurrkví, en það fyndna
var að þarna gekk rígfullorðið fólk
um með vasapela og laumaði út í
kaffið sitt á kvöldin.
Húsið var svo heilagt að okkur
datt það í hug, okkur til skemmtun-
ar, að fá Færeyska dansarafélagið
til þess að koma og slá upp með
okkur færeysku dansiballi, vita-
skuld áfengisfríu en það var lagt
blátt bann við því líka. Þetta var
vígt hús og í vígðum húsum er ekki
dansað. Þetta gaf hins vegar þeirri
ákvörðun kirkjuveldisins í sögu
Williams Heinesen, að banna dans-
inn í brúðkaupi Sirsu og Haraldar,
nýja vídd.
Trúin er tekin mjög alvarlega í
Færeyjum, bæði af þeim sem trúa
og þeim sem trúa ekki. Til dæmis
þurftum við að leggja niður vinnu á
messutíma, jafnvel þótt enginn af
starfsliði myndarinnar ætlaði sér í
kirkju, heldur af virðingu við alla
hina sem fóru í kirkju. Menn skipt-
ast þarna alveg í tvö horn hvað
kirkjuna varðar en þó að þeir trú-
lausu nenni ekki í kirkju, er það
minnsta sem þeir geta gert að gera
ekki neitt annað á meðan.
Við komumst í burtu stórslysa-
laust, þótt vissulega hafi orðið slys.
Það gerðist við tökur á seglskipi að
stórbóman brotnaði í sviptivindi og
lenti með fítonski-afti á kvikmynda-
tökuvélinni og höfði annars kvik-
myndatökumanns. Það var í raun
mesta mildi að hann lét ekki lífið
þar. Að öðru leyti gekk þetta af-
skaplega vel og við héldum til Þórs-
hafnar. Við vorum samt áfram að
taka úti í eyju sem heitir Mykines
og þangað fórum við með þyrlu á
hverjum degi sem var mikið ævin-
týri.
En áður en við fórum til
Færeyja vorum við í viku í Vík í
Mýrdal. Þar fékk maður að síga í
björg og slást úti í briminu. Við
vorum látnir slást þar, við Baldur
Trausti, og það var allskuggalegt
stundum. En þetta var mikið ævin-
týri og maður fékk þarna að prófa
hluti sem mann hefði aldrei órað
fyrir að eiga eftir.“
Um hvað er sjónvarpsmyndin
svo?
„Þar er aðalpersónan Dagfinn-
ur. Hann ber út Dag. Þetta er
dálítið spes gæi. Hann er
Hitchcock-aðdáandi og honum
finnst hann sjá alls staðar í kring-
um sig einkennilega hluti sem hon-
um finnst eiga sér hliðstæður í
myndunum. Hann er ástfanginn af
stúlku sem heitir Freyja og býr í
sama húsi og hann. En hann er
feiminn og dálítið inn í sig og á sín
óþvinguðustu samskipti á spjall-
rásinni á irkinu. Þegar út í raun-
veruleikann er komið, þá eru sam-
skiptin miklu erfiðari. Honum
vefst þar iðulega tunga um höfuð.“
Nánasta framtíð?
„Nánasta framtíð er frumsýning
á Vírus í Hafnarfirðinum 7. nóvem-
ber. Hvað þá tekur við er ekki end-
anlega ákveðið en ég hef frétt að
það bíði spennandi hlutir handan
við hornið."
Tekurðu aldrei frí?
„Það hefur alltaf verið góður og
einlægur ásetningur minn að taka
mér nærandi fri þar sem ég slappa
af í faðmi fjölskyldunnar - það nær
hins vegar sjaldnast að verða annað
en ásetningur."
Rafsól hf. er löggiltun rafverktaki og starfan í Reykjavík og nágrenni.
ER RAFLÖGNIN ORÐIN
GÖMUL EÐA ÚR
SÉR GENGIN?
HEFUR ÞÚ ÁHYGGJUR AF
ÖRYGGI FJÖLSKYLDUNNAR?
Viö hjá Rafsól skoðum eldri
raflagnir og gerum kostnaöar-
áætlanir á þeim úrbótum sem
þurfa þykir, húseigendum aö
kostnaöarlausu. Upplýsingar
í síma 553 5600
FYRIRBYGGJUM SLYS -
AUKUM ÖRYGGI!
RAFSOL
SKIPHOLT 33 - REYKJAVÍK
S f M 1: 553 5600
Spennan
er í hámarki
Hvexjix vexða
íslandsmeistaxax?
Hvexjix ná sæii i
Evxópukeppni félagsliða?
Hvaða lið falla úx
Landssimadeildinni?
17. UMFERÐ
20.9
20.9
20.9
20.9
20.9
sun. kl. 14
sun. kl. 14
sun. kl. 14
sun. kl. 14
sun. kl. 14
Akranesvöllur
IA - ÞROTTUR R,
Vestmannaeyjavöllur
IBV - LEIFTUR
Keflavíkurvöllur
KEFLAVIK - KR
Laugardalsvöllur
FRAM-IR
Valsvöllur
VALUR - GRINDAVIK
Fáðu úrslitin send í GSM símann þinn með SMS.
Skráðu þig á heimasíðu Símans www.simi.is
eða hjá Þjónustumiðstöð Símans í síma
lElD 7000